Tíminn - 20.07.1995, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 20. júlí 1995
________________________ ^
Handverk á Hólmavík:
Markaður í elsta húsi staðarins
Stikkfrí" lögregla
Allt frá því aö ég var embættis-
maður hef ég haft áhuga á og
fylgst með störfum lögreglunnar.
Síðustu ár hefur mér fundist
löggæsla slappast frá því sem áð-
ur var og læt ég nægja að nefna
eitt dæmi: Er það eðlilegt, að í
Reykjavík skuli ekki lengur vera
amast við bílum sem lagt er vit-
laust, t.d. við brunahana, nema á
vinnutíma stööuvarða?
Að undanförnu hafa nokkur
atriði sem varða löggæslu veriö
til umfjöllunar í fjölmiðlum og
verða þau mér að umtalsefni í
dag.
Eftir þjóðhátíðardaginn kom
það fram í fréttum, að yfirgengil-
ega frekir hundaeigendur hefðu
brotið reglur um hundahald í
miðbæ Reykjavíkur á meöan há-
tíbarhöldin stóðu. Par heföi verið
kvartab við lögregluþjóna og
þeim bent á brotið. Ekkert höfðu
þeir aðhafst þrátt fyrir það.
Um svipað leyti var í öllum
fjölmiblum sagt frá umferðar-
slysi suður með sjó, þar sem fest-
ing tengivagns hafbi gefið sig
meb þeim afleiðingum að vagn-
inn olli skemmdum á vegg og
fleiru, en sem betur fer ekki lík-
amstjóni. Það kom í ljós að
mörgum mánuðum ábur hafði
bifreiðaskoðun gert athugasemd
við ástand vagnsins og gefið frest
til viðgerða. Nokkru síðar hafði
lögregla stöövab ökutækið og aft-
ur gefib frest, nú í tvo daga. Ekki
hafði umráöamabur ökutækisins
sinnt því og ekki skipti lögreglan
sér frekar af honum eba fylgdist
Frá
mínum
bæjar-
dyrum
LEO E. LOVE
meb að hann sínnti boði hennar.
í síðustu viku var hluti ung-
lingavandans til umfjöllunar í
Þjóðarsál Rásar 2. Þar hafði verið
sagt frá ásókn unglinga í búðir
fjöllistafólks og forsvarsmaður
þess lýst frati á uppeldi og eftirlit
foreldranna. Móðir eins hinna
óstýrilátu unglinga hringdi líka
og þá kom fram ab meira ab segja
lögregla hefði verið kölluð til að-
stoðar, enda um að ræða brot á
reglum um útivist barna. Slíkum
málum taldi lögreglan sig ekki
geta sinnt.
Vitandi það hversu mikilvægt
er að allir beri virðingu fyrir lög-
um og löggæslu, en einkum
vegna reynslu minnar um að
virk, skilningsrík löggæsla getur
haft undraverö áhrif á allsherjar-
reglu og framferði borgaranna,
hef ég rábþrota velt þessum mál-
um fyrir mér.
Um síðustu helgi kom svo ljós
í myrkrinu: Lögreglan í Vest-
mannaeyjum framfylgdi lögun-
um um veiðikort „meb stæl".
Lundaveiöimenn höfðu af ein-
hverjum ástæðum látib undir
höfub leggjast ab ná sér í veiði-
kort, sjálfsagt talið lögin um þau
heimskuleg og reiknað með að
lögreglan í Vestmannaeyjum
væri „stikkfrí", eins og svo víða
annars staðar.
Geðþekkur lögreglufulltrúi
svaraði fyrirspurnum frétta-
manna sjónvarps, og mikið
gladdi mig að heyra hann ein-
falda málib og segja eitthvab á
þessa Ieið: „Við erum bara að
framfylgja þessum lögum, eins
og öllum öbrum lögum."
Já, þeir létu ekki á sig fá þótt
lögreglustöðin, jafnt úti sem
inni, og lögreglubílarnir væru ið-
andi af lundalús. Þeir létu heldur
ekki á sig fá þótt bæjarbúar teldu
ósanngjarnt að sér fariö. Lögun-
um skyldi framfylgt.
Frá Stefáni Gíslasyni, fréttaritara
Tímans á Hólmavík:
Félagsmenn í Strandakúnst, sem er fé-
lag handverksfólks á Ströndum, hafa
opnab markab í elsta húsinu á Hólma-
vík, svonefndu Riis-húsi.
Á dögunum flutti Strandakúnst aðset-
ur sitt í Riis-húsið á Hólmavík, en hópur-
inn hefur verið í húsnæðishraki fram til
þessa. í fyrstu er handverksfólkið með
Riis-húsið á leigu, en uppi eru hug-
myndir um að kaupa húsið undir starf-
semina meb aðstoð sveitarfélaga í sýsl-
unni og fleiri aðila. Þá er jafnframt ætl-
unin að gera húsið upp í upprunalegri
mynd, en það verk er umfangsmikið og
þarf að vinnast í áföngum.
Riis-húsið er elsta húsið á Hólmavík,
byggt 1897. Þar var lengst af rekin versl-
un, en húsið hefur verið notað til íbúð-
ar. Síðast var þar saumastofa, knatt-
borðsstofa og myndbandaleiga, en síð-
ustu ár hefur húsib staðið autt.
Félagar í Strandakúnst eru nú um 40,
og eru framleiðsluvörurnar margvísleg-
ar. Þar gefur m.a. ab líta prjónavörur,
skartgripi úr steinum, fléttaðar körfur,
hárspennur úr rekaviði, örsmáa fugla úr
korki, gólfmottur og margt fleira.
Gallerí Strandakúnst í Riis-húsinu á
Hólmavík verður opið alla daga í sumar
milli kl. 3 og 10 síðdegis. Þar er ævinlega
kaffi á könnunni, og á sunnudögum
verður kaffihlaðborb til ágóða fyrir end-
urbætur á húsinu.
Formaður handverkshópsins Stranda-
kúnstar er Anna Margrét Valgeirsdóttir á
Hólmavík. ■
Anna Margrét Vatgeirsdóttir, formabur Strandakúnstar, ab störfum í Riis-húsinu.