Tíminn - 21.09.1995, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 21. september 1995
UR HERAÐSERETTABLOÐUM
r EY! óháð fréttabla< K ) i Nordui 1 i«nd R li vcstra
SAUÐARKROKI
Hundar drepa tugi
kinda í Fljótum
Fyrir síbustu helgi voru tveir
hundar á bæ einum í Austur-
Fljótum aflífaðir, þar sem sýnt
þótti aö þeir höföu höggviö
talsvert skarö í fjárstofn Fljóta-
manna í sumar. Fundist hafa
hátt á annan tug dauöra lamba
og óttast er aö hundarnir hafi
fargaö mun fleiri, auk þess aö
hafa mariö eöa sært skepnur
þannig aö þær falli í mati viö
slátrun í haust.
Taliö er aö eigendur fjárins í
Fljótunum fái tjón sitt bætt, þar
sem trygging eiganda hund-
anna sé meö þeim hætti aö hún
eigi aö bæta tjóniö.
Sveitasetrib á
Blönduósi
„Eftirlíking," segir Hallbjörn
Hjartarson í Kántríbæ
„Við erum aö búa til nýja
þjónustuímynd fyrir staöinn og
ætlum okkur að skapa notalegt
og þægilegt yfirbragð. Það er
ekki síður aukin og bætt þjón-
usta sem viö leggjum áherslu á
frekar en breytingarnar á hús-
næðinu. Hingaö eru komnir til
starfa topp fagmenn, bæöi
kokkur og þjónn, og áöur en
langt um líður veröur hafist
handa viö breytingar á anddyri
og sal. Sú hönnun mun verða í
anda nafns staðarins," segir
Óskar Húnfjörð á Blönduósi, en
Óskar og frú keyptu sl. vor Hót-
el Blönduós og hafa nú breytt
nafni staöarins í Sveitasetrið.
Opnunarkvöld undir nafni
Sveitasetursins var um síðustu
helgi. Fjölmenni var á staðnum,
en á sama tíma var fámennt í
Kántríbæ á Skagaströnd. Hall-
björn Hjartarson, veitingamað-
ur þar, er ekki hress yfir því að
nýir eigendur Hótel Blönduóss
hafi tekiö upp Sveitasetursnafn-
ið. Hann segir greinilegt aö þeir
ætli sér aö höfða til þeirra
strauma sem legið hafi í Kántr-
íbæ og Óskar og frú hafi í fyrsta
skipti komið í Kántríbæ fyrir
skömmu, greinilega í njósna-
leiðangri, til aö fá hugmyndir
varðandi útlit nýja staöarins á
Blönduósi.
„Ég er ákaflega hneykslaöur á
þessari framkomu þeirra og það
hafa margir sagt við mig að þau
heföu alveg eins getað kallaö
staöinn Sveitasetrið-Kántríbær.
Ég var ákaflega ánægöur þegar
ég sá Óskar og frú í fyrsta skipti
hér í Kántríbæ og þakkaði þeim
innilega fyrir komuna. Mig
grunaöi þá ekki hver tilgangur
feröar þeirra var. En ég er sann-
færöur um að gestir mínir sjá í
gegnum þetta og kunna aö
meta þá þjónustu sem þeir hafa
fengiö í Kántríbæ," segir Hall-
björn.
Óskar segist undrandi á þess-
Hreindýraveibitímabilinu er ab Ijúka. Dagur jónsson og Gunnar johnsen
hafa verib hér síbastlibnar 3 vikur og fellt 18 hreindýr. Hér sjást Dagur og
Ágúst Ólafsson á göngu í Hvannadal íLóni meb þarfasta þjóninn klyfjab-
an eftir vel heppnaba veibiferb. Mynd úr Eystrahorni.
um viðbrögðum Hallbjarnar.
„Ég á ekkert svar við minni-
máttarkennd annarra, en ég
hygg að fólk muni sjá þegar
fram líða stundir að þessi staður
ber ekki neinn andblæ af
Kántríbæ. Með fullri virðingu
fyrir því sem Hallbjörn hefur
veriö aö gera. Varðandi heim-
sókn mína í Kántríbæ um versl-
unarmannahelgina, þá fór ég
þangað með vinafólki og spurn-
ingin var að fara á kántríhátíð-
ina eða Síldarævintýrið. Ég
skemmti mér ágætlega hjá Hall-
birni og á ábyggilega eftir að
fara í Kántríbæ aftur," sagði
Óskar Húnfjörð-
Mm
EGILSSTÖÐUM
Mikib ab gera hjá Jöklaferb-
um hf. í sumar:
Bretar skoba hvali
vib Hrollaugseyjar
Að sögn Tryggva Árnasonar,
framkvæmdastjóra hjá Jökla-
ferðum hf., Hornafirði, hefur
verið mikið aö gera hjá fyrir-
tækinu í sumar.
Núna standa yfir hvalaskoð-
unarferðir á vegum fyrirtækis-
ins. Hægt hefur veriö að komast
í slíkar ferðir undanfarin haust.
Tryggvi segir að þessar ferðir
séu vinsælar hjá breskum ferða-
mönnum, sem komi sérstaklega
til íslands til að sjá hvali í sínu
rétta umhverfi. Siglt er suður
undir Hrollaugseyjar til að sjá
dýrin. Skipiö, sem notað er í
ferðirnar, heitir Sigurður Ólafs-
son SF-44. Síðasta ferðin í haust
er ráðgerð helgina 23.-24. sept.
nk.
Um 7 þúsund manns voru
búnir að koma í fjallahóteliö
Jöklasel, sem Jöklaferðir hf. rek-
ur í 840 metra hæð á Skálafells-
jökli. Opnað var 24. apríl sl. í
sumar hafa 18 manns starfað
hjá fyrirtækinu og 4 til viðbótar
þegar mikið hefur verið að gera.
Það er alltaf ab aukast ab erlend
fyrirtæki umbuni starfsfólki
sínu fyrir gott starf og sendi það
í ævintýraferðir og eru feröir
upp á jökul vinsælar.
Slmrttm /riltm- mm§lfiln$mhlmilb i Smdyrnttjmm
KEFLAVIK
Bæjarfulltrúar ánægöir með
hugmyndir um skólamálaskrif-
stofu í Reykjanesbæ, en Anna
M. Gubmundsdóttir spurbi:
Hvenær verbur
loforö um nýjan
grunnskóla efnt?
„Hvenær verður loforð allra
flokka fyrir síðustu kosningar um
byggingu nýs grunnskóla efnt?"
spurði Ánna Margrét Gubmunds-
dóttir bæjarfulltrúi (A) á síðasta
bæjarstjórnarfundi í umræðum
um þá tillögu skólanefndar, að
Reykjanesbær stofni og reki skóla-
málaskrifstofu. Þessi skrifstofa á
að fara með málefni grunnskóla,
leikskóla og tónlistarskóla. Jó-
hann Geirdal bæjarfulltrúi (G)
sagbist fagna þessari tillögu og
sagði ab bæjarfélagið ætti ab vera
með skólaskrifstofu. Jóhann sagð-
ist sjá ab rekstur hennar gæti ver-
ið svipaður og Markaðs- og at-
vinnumálaskrifstofunnar og ab
hún gæti selt faglega þjónustu
sína. Ellert Eiríksson bæjarstjóri
sagði þetta gott mál og ræddi um
þab hvernig nágrannasveitarfé-
lögin gætu komið nálægt því.
Fátt varb hins vegar um svör
viö spurningu Önnu Margrétar
um nýja skólabyggingu.
KEFLAVIK
D-álman:
Fyrirætlunum ráb-
herra harblega
mótmælt
Sveitarstjórnarmenn, stjórn
Sjúkrahúss Suðurnesja og starfs-
fólk þess hafa mótmælt harðlega
þeim áformum heilbrigbisráð-
herra að minnka fyrirhugaöa D-
álmu Sjúkrahússins. Tillaga heil-
brigðisrábuneytisins um D-álm-
una byggist á því ab í stað þess að
byggja kjallara, 1. hæð og 2. hæb,
rísi ein hæð. Kjallara verði sleppt
og sett verbi á einnar hæbar
byggingu brábabirgðaþak. Með
þessari ráðstöfun telur ráöuneytið
að megi taka bygginguna fyrr í
notkun eða 1997.
Þeir stjórnarmenn SHS, sem
blaðið hefur rætt við, telja að
þessi hugmynd komi ekki til
greina. Búið sé ab gera samkomu-
lag um byggingu D- álmunnar og
sá samningur eigi ab standa. Nú
þegar sé búið ab eyba í teikningar
vegna D-álmunnar 18 milljónum
króna og enn sé verið aö tala um
að fá nýjan aðila til að gera nýja
tillögu að byggingunni.
Jóhannes Ólafsson, formaöur knattspyrnurábs ÍBV,
vegna fréttar á íþróttasíöu blaösins:
Engin óánægja
með persónu Atla
Á íþróttasíðu á þriðjudag kom
fram í dálkinum Molar, ab óvíst
væri meb framhald Atla Eðvalds-
sonar sem þjálfara ÍBV-liösins í
knattspyrnu, þar sem óánægja
væri með Atla og ab sú óánægja
tengdist persónu hans.
Fréttamoli þessi hefur vakib sterk
viðbrögð meðal stuðningsmanna
ÍBV og fleiri og því greinilegt að
fjölmargir eru á annarri skoðun. Jó-
hannes Ólafsson, formaður knatt-
spyrnuráðs ÍBV, segir þetta út í
hött. Menn séu mjög ánægðir meö
störf Atla í Eyjum og þegar hafi
verið rætt við hann um áframhald-
andi störf með liöið.
Það skal ítrekað, sem stóð í
fréttamolanum, að eins og allir
vita, þá hefur Atli náð frábærum
árangri með liðið og komið því í
Evrópukeppni. Liðib hefur leikið
mjög skemmtilega knattspyrnu og
Atli og leikmenn hans sýnt það og
sannað að þeir verðskulda það sæti
sem þeir eru í nú. ■
jan Garbarek og The Hilliard Ensemble.
Afmœlistónleikar RúRek 95 í Hallgrímskirkju:
Hraunbreiður
og saxófónn
„Þar sem hann ók um hraun-
breiður landsins fannst honum
allt í einu eins og Jan Garbarek
birtist með saxófóninn og spynni
kringum hina fornu tónlist," seg-
ir í fréttatilkynningu frá RúRek
um tilefni þess ab norski djass-
saxófónjöfurinn, Jan Garbarek,
og renisanssöngkvartettinn, The
Hilliard Ensemble, tóku upp
samvinnu.
Það er þýski hljómplötuútgef-
andinn Manfred Eicher sem fékk
þá hugmynd að leiba saman ís-
lenskt hraun, Garbarek og forna
tónlist, en hann vann hér á landi
við kvikmyndun. Saman halda
Garbarek og Hilliard Ensemble að-
eins örfáa tónleika á ári, en gátu
ekki staðist boð um að koma til
upphafslands samvinnu sinnar og
munu því halda afmælistónleika
RúRek 95 nk. laugardag í Hall-
grímskirkju ki. 20.30. Á efnis-
skránni verður tónlist frá endur-
reisnartímanum, svipuð þeirri sem
tekin var upp á geisladiski þeirra fé-
laga, Officium, sem hefur selst
mjög vel hér á landi sem annars
staðar. Ekki tókst að hafa tónleik-
ana í hátíðarviku RúRek, vegna
anna Hilliard-sönghópsins. ■
A köldum klaka vel tekiö á alþjóölegu kvikmyndahátíö-
inni í Toronto:
Líkt vib Jarmusch og
Kaurismaki-bræður
Kvikmynd Fribriks Þórs Frib-
rikssonar, Á köldum klaka, var
afar vel tekib á alþjóölegu
kvikmyndahátíðinni í Tor-
onto í Kanada. Torontohátíðin
er næststærsta kvikmyndahá-
tíb í heimi og uppselt var á
bábar sýningar Á köldum
klaka.
Myndin fékk lofsamlega um-
fjöllun í kanadískum fjölmiðl-
um og fær hún m.a. þrjár og
hálfa stjörnu af fjómm möguleg-
um í stærsta dagblaði Kanada,
The Globe and Mail. Gagnrýn-
andi myndarinnar segir hana
„rakna til vinsælda" og ab hún
sé „kyndug vegamynd sem
smakkist eins og mynd eftir Jim
Jarmusch með skvettu frá Kau-
rismakibræðrum — en með
kröftugu, kaldhæðnu gosi sem
hlýtur að vera séríslenskt...
Heildarútkoman er oft bráðfynd-
in, einatt súrrealísk og að lokum
mjög heillandi."
í framhaldi af góðum viðtök-
um myndarinnar verður senn
gengið frá samningum um dreif-
ingu hennar í kvikmyndahúsum
í Kanada og Bandaríkjunum. ■
Nýr fjárreibu-
stjóri Reykja-
vikurborgar
Borgarráð samþykkti á fundi sín-
um í gær að ráða Önnu Skúla-
dóttur viðskiptafræðing í stöbu
fjárreiðustjóra Reykjavíkurborga r.
Alls bárust 14 umsóknir um stöð-
una. ■