Tíminn - 21.09.1995, Page 9
Fimmtudagur 21. september 1995
W'WfWWIlT
UTLÖND .v . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Þýskir nýnasistar sem barist hafa í Bosníu e.t.v. ab búa sig undir hryöjuverkastarfsemi heima fyrir:
„ Getum varla reiknað meö því
að þeir verði aðgerðalausir"
Ernst Uhrlau, sem er háttsettur
embættisma&ur þýsku leyni-
þjónustunnar, hefur bent á ab
nokkur hætta sé á því að þýskir
nýnasistar, sem barist hafa sem
málalibar í Bosníu, snúi aftur
til Þýskalands og hefji þar
vopnaba hrybjuverkastarfsemi.
„Þetta fólk er aö koma til baka
með ný vibhorf til ofbeldis, með
reynslu af hernaöarátökum, með
víötæk sambönd erlendis við fólk
sem er sama sinnis og aðgang að
vopnum og sprengiefnum," segir
Uhrlau. „Við getum varla reiknað
með því að þeir verði aðgerða-
lausir."
Hann sagðist telja að „50 eða
fleiri" þýskir nýnasistar og hægri-
sinnaðir öfgamenn hafi starfað
sem málaliðar hjá Króötum, sem
þeir hafa haft samúð með um
langa hríð. Þetta „vopnaða
bræðralag", eins og hann kallaði
það, á rætur allt aftur til upphafs-
ára Ustasi-hreyfingarinnar, sem
er hreyfing króatískra þjóðernis-
sinna. Hún var þekkt fyrir hryðju-
verk gagnvart Serbum og mús-
limum á millistríðsárunum og í
seinni heimsstyrjöldinni, og
starfaði náið með Þjóðverjum í
heimsstyrjöldinni. Ustasi-hreyf-
ingin hefur verið starfandi allt
fram á okkar daga.
Austurrískur nýnasisti, sem
snúið hefur aftur frá Bosníu,
sagði að króatískir hermenn
hefðu heilsað honum og hverjir
öðrum með kveðju þýskra nasista
frá Hitlerstímanum: „Heil Hitl-
er!"
Það var Eugen Kammerer, Þjóð-
verji sem starfaði um skeið með
frönsku útlendingaherdeildinni,
sem kom umræðunni um nýnas-
istana í Bosníu af stað þegar hann
skýrbi frá því fyrr á árinu að hann
hafi dvalið sem njósnari fyrir
þýsku leyniþjónustuna meðal
málaliða í Bosníu í eitt og hálft ár.
„Það eru eitthvað á annaö þús-
und útlendingar þarna, flestir
Þjóðverjar, sem berjast hjá öllum
aðilum stríðsins," sagbi hann.
í síöasta mánubi komu síðan
fram sannanir fyrir því ab hópar
nýnasista, sem voru í Bosníu, séu
að velta fyrir sér vopnuðum átök-
um í Þýskalandi, en þá vísaði Pet-
er Naumann, sem hefur verið of-
arlega í hreyfingu þýskra nýnas-
ista, lögreglunni á átta vopna-
geymslur og afhenti þeim
jarðsprengjur, sprengihettur,
handsprengjur og sprengjuvörpu
sem sérfræðingar segja að komi
frá ríkjunum sem áður tilheyrðu
Júgóslavíu.
Ewen Southby-Tailyour, bresk-
ur ofursti sem starfaði með eftir-
litssveitum Sameinuðu þjóðanna
í Króatíu frá nóvember 1993 til
maí 1994, segir einnig frá því að
hann hafi hitt þýska málaliða í
króatíska hernum, og hafi sumir
þeirra verið með armbönd sem
voru skreytt hakakrossinum.
Um það bil 12 af þýsku nýnas-
istunum í Bosníu mynduöu eins
konar „harðan kjarna" í her Kró-
ata, ab því er þýskir leyniþjón-
ustumenn segja. Talið er ab þessir
12 hafi starfað saman í sérstakri
herdeild sem gekk undir nafninu
„Baron von Trenck herdeildin" í
suðurhluta Bosníu, nálægt bæn-
um Mostar, en deildin var nefnd
eftir austurrískum herforingja
sem varð alræmdur fyrir ofsóknir
gegn Ungverjum á 18. öld. Talið
er að herdeildin hafi nú verið
leyst upp en þýska leyniþjónustu-
menn grunar ab meölimum
hennar hafi tekist að koma vopn-
um til Þýskalands og séu að und-
irbúa árásir á stjórnmálamenn og
gyöinga.
Byggt á The Sunday Times
Frakkland:
• /
Fjarlogin
fyrir 1996
þykja ströng
París — Reuter
Franska ríkisstjórnin sam-
þykkti í gær fjárlög fyrir áriö
1996 og eru þar ríkisútgjöld-
um settar mjög þröngar skorb-
ur, bæði til þess ab minnka
fjárlagahallann og eins í því
skyni aö fullnægja þeim skil-
yrbum sem sett hafa verib til
undirbúnings væntanlegum
gjaldmiðilssamruna Evrópu-
sambandsins.
Jean Arthuis fjármálaráðherra
sagbi að fjárlagahallinn yröi
tæpir 290 milljarðar franka á ár-
inu 1996 (nálægt 3.000 millj-
örðum ísl. króna), sem er um
10% lægri halli en á þessu ári,
en gert er ráð fyrir aö hann
verði 322 milljarðar franka í ár.
Stefnt er að því að fjármál
franska ríkisins verði á svipuð-
um nótum og fjármálin í Þýska-
landi, þannig að þessi tvö ríki
geti verið í fararbroddi þróunar-
innar í átt að gjaldmiðilssam-
runa ESB fyrir aldamótin. Alain
Juppe forsætisráðherra stefnir
að því að fjárlagahallinn verði
ekki meira en 4% af vergri þjóð-
arframleiðslu árið 1996 og 3%
árið 1997, samkvæmt því sem
ráö er fyrir gert í áætlun ESB um
gjaldmiðilssamrunann.
Alain Juppe sagði ennfremur
að með því aö draga úr fjárlaga-
hallanum væri stefnt að því að
vextir haldi áfram að lækka.
„Það hefur forgang hjá okkur,"
sagði hann.
Með fjárlögunum fyrir 1996
er hnykkt á þeirri stefnu sem
mörkub var í einskonar bráða-
birgðafjárlögum sem gerð voru í
júní, en þar var lögð áhersla á að
skapa atvinnu og draga úr fjár-
lagahallanum með því ab
Alain Juppe kynnir fjárlögin á blaöamannafundi í gœr.
hækka skatta.
Alain Juppe hefur einnig
ákveðiö ab stefnt veröi að því að
dregið verbi úr hallanum á al-
mannatryggingunum í Frakk-
landi þannig að á árinu 1997
verði hann enginn, en í ár er
reiknab með ab hann verði um
60 milljarðar franka. Almanna-
tryggingarnar í Frakklandi eru
utan vib fjárlögin og er sérstök-
um almannatryggingarsjóði
stjórnab af atvinnurekendum
og verkalýðsfélögum í samein-
ingu.
Fundur utanríkisrábherra Arabaríkja:
Reyna aö koma á fót
milliríkjadómstóli
Ilamhurgcr Abcndhlatt
Bábum megin borbsins
Eins og greint var frá í Tímanum í síbustu viku eru launamál þingmanna
víbar til umrœbu en á íslandi og eiga sér nú stab töluverbar deilur um
þau í Þýskalandi. í nýjasta hefti tímaritsins Der Spiegel birtist þessi mynd,
sem raunar gœti alveg eins átt erindi í umrœbuna hér á landi.
Kaíró — Reuter
Nú stendur yfir tveggja daga
fundur utanríkisráöherra Araba-
bandalagsins þar sem leitaö er
nýrra leiða til að koma í veg fyrir
að ágreiningur milli Arabaríkja
fari úr böndunum og leiði til of-
beldis og vopnaðra átaka.
Samkomulag um milliríkjadóm-
stól Arabaríkja þykir nú vera í sjón-
máli og enn fremur er búist við því
að á fundinum verði samþykktar
siða- eða samskiptareglur þar sem
bannað verði að grípa til ofbeldis í
milliríkjadeilum Araba.
Esmat Abdel-Meguid er aðalritari
Arababandalagsins. Hann hvatti
ráðherrana til þess að samþykkja
reglurnar og fundarmenn sögðust
búast vib því að þær myndu hljóta
samþykki án verulegra vandkvæða.
Hins vegar hefur hugmyndin um
milliríkjadómstól veriö á dagskrá
Arababandalagsins í hálfa öld og
Fares Bouez, utanríkisráðherra Líb-
anons, sagði að lengri tíma þyrfti
til þess ab skoða athugasemdir sem
aðildarríkin hafa gert við þá út-
færslu sem nú er í umræðunni.
Abdel-Meguid sagöi að aðalskrif-
stofa bandalagsins hefði nú loks
sett saman drög að lögum um
dómstólinn og hefði lagt þau fyrir
rábherrana. „Hlutverk dómstólsins
er að koma í veg fyrir átök og að
jafna ágreining sem upp kann að
koma ... á friðsamlegan hátt. Hann
á ekki að vera í neinni andstööu
við lögsögu Alþjóðadómstóls Sam-
einubu þjóbanna heldur á hann að
starfa jafnhliða honum," sagbi
hann.
Bouez sagði hins vegar að sum af
ákvæðunum í drögunum gætu
stangast á við lög og stjórnarskrár
einhverra Arabaríkjanna. „Þess
vegna er það mjög viðkvæmt mál
að koma þessum dómstól á laggirn-
ar. Við ættum ekki að hafa neinn
dómstól, ef við leitum ekki til hans
þegar vandamál koma upp eða
komum okkur hjá því ab fara eftir
úrskurðum hans," sagði hann.
Arabískir stjórnarerindrekar
sögðu að Arabaríkin væru miklu
viðkvæmari fyrir því að skuldbinda
sig til aö lúta arabískum dómstóli,
frekar en alþjóblegum, í málefnum
sem varða t.a.m. fullveldi ríkja.