Tíminn - 27.10.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.10.1995, Blaðsíða 1
79. árgangur Föstudagur 27. október 1995 202. tölublað 1995 SIMI 563 1600 Brautarholti 1 STOFNAÐUR 1917 Snjóflób í Kolbeinsdal í Hólahreppi: Lentu á hross- um og hlöhu Aö minnsta kosti tvö hross drápust í snjóflóbum sem féllu í Kolbeinsdal í Hóla- hreppi í fyrrinótt. Snjóflóö féll á hlööuna vib Smibs- gerbi í Kolbeinsdal og olli miklum skemmdum á henni. Talib er ab nokkur snjóflób hafi fallib í minni Kolbeinsdal í fyrrinótt. Þegar Tíminn hafbi samband vib Jón Árna Frib- jónsson bónda í Smibsgerbi í gær vom menn í óbaönn ab reyna ab bjarga hrossum frá Sleitustöbum sem höfbu lent í flóbunum. Þá höfbu tvö hross fundist daub og nokkrum ver- ib bjargab lifandi. Eitt flóbib nábi ab teygja sig í girbingar og hlöbu í Smibs- gerbi og valda þar töluverbum skemmdum. Engar skepnur sakabi hins vegar í Smibsgerbi. Flóbib var mjög stórt ab sögn Jóns Árna og lentu nokkur hross utar í því.Mikill snjóalög eru í Kolbeinsdal en þar var farib ab rigna eftir hádegi í gær. -GBK Hér má sjá björgunarmerm frá Reykjavík hlaupa um borb í hina nýju þyrlu Gœslunnar, TF Líf, ígœrmorgun. Áberandi var hversu vibbragbsfljótir björgunarabilar voru ígœrmorgun og hversu fljótt hjálparkerfib var komib ígang. Reynslan sem fékkst af hinum hörmulegu atburbum á Súba- vík nýttist augljóslega ígœr. Þrátt fyrir hetjulegt björgunarstarf fjölmargra abila er harmleikurinn á Flateyri ígœr mannskœbustu náttúruham- farir á landinu í manna minnum. Tímamynd: cs Cífurlegt snjóflóö féll úr Skollahvilft viö Önundarfjörö: Mannskaði á Flateyri Kl. 04.07 í fyrrinótt féll snjó- flóð úr Skollahvilft á kauptún- ib Flateyri vib Önundarfjörb. 30 íbúar í 19 íbúbarhúsum urbu undir flóbinu. A.m.k. 17 létust, 9 karlar, 5 konur og 3 börn, en þriggja var enn sakn- ab þegar Tíminn fór í prentun. 4 íbúar fundust á lífi um há- degisbilib í gær og sex var bjargab strax eftir flóbib. Krafturinn í flóbinu var gífur- legur og splundrubust mörg íbúbarhúsanna og fluttust langt úr stab. Snjórinn féll á hús vib Ólafstún, Hjallaveg, Tjarnargötu og Unnarsstíg. Víðtækt björgunarstarf stób yfir í gær undir stjórn Almanna- varna í Reykjavík en þar störf- uðu um 30 manns við skipu- lagningu björgunaraðgeröa. Þangaö barst fyrst tilkynning kl. 04.28 og var upp úr því komið upp þéttriönu neti sem teygði anga sína víba um land. Slæmt veöur hamlaði samgöngum til staðarins og gerði það allt björg- unarstarf mjög torvelt. Hringt var í alla hugsanlega aðila og björgunarsamtök sem hafa komið ab svona málum eft- ir ab augljóst varö aö ekki væri hægt að fljúga vegna veöurs og lítiö hægt ab nota akstursleiðir. Fram eftir degi var aöeins hægt að komast sjóleiðina til Flateyrar en þyrlu Lnadhelgisgæslunnar, Líf, tókst að lenda kl. 13.13 í gær og síðan voru farin nokkur flug þrátt fyrir aö vindur væri allt að 12 vindstig. Varbskipið Ægir fór í gær- morgun með 105 menn frá Reykjavík og var von á skipinu til Flateyrar um kl. 20.00 í gær- kvöldi. Þar af var 10 manna hóp- ur lækna og sérþjálfaðs fólks í áfallahjálp um borö. Óöinn fór frá Grundarfiröi og var einnig von á honum í gærkvöldi meö 65 menn innanborðs. Þá fór tog- arinn Sléttbakur frá Patreksfirbi með 21 björgunarmann innan- borðs og kom hann um kl. 16.00 til Flateyrar. Samanlagður fjöldi björgunarmanna við hjálpar- starf í gær skipti hundruðum. Fyrstu aðkomnu björgunar- mennirnir hófu leit um kl. 09.00 í gærmorgun. Þeir komu m.a. frá ísafirði um Vestfjarðagöngin nýju en vegna ófæröar fóru þeir síðasta spölinn til Flateyrar sjó- leiðis. Eftir það fjölgaöi björgun- armönnum jafnt og þétt og tók leitin ab fólkinu stakkaskiptum eftir ab leitarhundar komu á svæðiö. M.a. flaug flugvél Flug- málastofnunar á Egilsstaði í gær- morgun og sótti þrjá hunda frá Noröfirði. 14 manns létust eins og kunn- ugt er í snjóflóöi í Súðavík í janúar og eru þessi tvö flóð með þeim mannskæðustu á landinu til þessa. Þeir sem björgunarmenn fundu á lífi voru: Atli Már Sigurðsson, Hjallavegi 8 Anton Rúnarsson, Hjallavegi 4 Sóley Eiríksdóttir, Unnarstíg 2 Guðný María Kristjánsdóttir, Tjarnargötu 7 -BÞ Sjá einnig bls. 2,3,7 og 16 Nöfn þeirra sem létust Þórður Júlíusson, Hjallavegi 6, fæddur 1937, 58 ára Sigurður Þorsteinsson, Hjallavegi 8, fæddur 1956, 39 ára Þorsteinn Sigurðsson, Hjallavegi 8, fæddur 1977,18 ára Kristinn Jónsson, Hjallavegi 8, ekki vitað um aldur Haraldur Eggertson, Hjallavegi 10, fæddur 1965, 30 ára Svanhildur Hlöðversdóttir, Hjalla- vegi 10, fædd 1965, 30 ára Haraldur Jón Haraldsson, Hjalla- vegi 10, fæddur 1991, 4 ára Ástrós Birna Haraldsdóttir, Hjalla- vegi 10, fædd 1992, 3 ára Benjamín Oddsson, Hjallavegi 12, fæddur 1936, 59 ára Þorleifur Yngvason, Hafnarstræti 41, fæddur 1957, 38 ára Lilja Ásgeirsdóttir, Hafnarstræti 41, fædd 1961, 34 ára Gunnlaugur P. Kristjánsson, Tjarn- argata 3, fæddur 1923, 72 ára Geirþrúður Friðriksdóttir, Tjarnar- gata 3, fædd 1926, 69 ára Svana Eiríksdóttir, Unnarstígur 2, fædd 1976,19 ára Halldór Ólafsson, Unnarstígur 2, 20 ára Sólrún Ása Gunnarsdóttir, Unnar- stígur 4, fædd 1980,15 ára Linda Björk Magnúsdóttir, Hafnar- stræti 45, fædd 1971, 24 ára Nöfn þeirra sem saknað var kl. 18:15 í gær: Rebekka Rut Haraldsóttir, Hjalla- vegi 10, fædd 1994,1 árs. Magnús E. Karlsson, Hafnarstræti 45, fæddur 1945, 53 ára Fjóla Aöalsteinsdóttir, Hafnar- stræti 45, fædd 1945, 50 ára

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.