Tíminn - 27.10.1995, Blaðsíða 2

Tíminn - 27.10.1995, Blaðsíða 2
2 fíiÍMIÍWW Föstudagur 27. október 1995 Meiri hœtta á snjóflóöi úr Skollahvilft í noröaustanátt, segir Gunnlaugur Finnsson: Fólk fór af óöruggu svæði og lenti í snjófloðinu „Ég hef grun um að einn maður úr húsi sem var rýmt hafi farib í eitt af þessum húsum sem lenti í flóðinu og ég held ab þab séu dæmi um þab ab menn hafi farib af þessu óörugga svæbi og yfir á þab svæbi sem lenti svo í flóbinu og týnt þar lífi," sagbi Gunnlaugur Finnsson, bóndi ab Hvilft sem stendur rétt utan Flateyrar, og kennari á Flateyri, í samtali vib Tímann í gær en hann er staddur á Kirkjuþingi í Reykjavík. Ab sögn Gunnlaugs færast hættusvæbin til eftir því hver vindáttin er. „Skollahvilftin er gamalt hættusvæbi og þaðan hafa oft komib snjóflób, sérstak- lega í norbaustanátt." Norðaust- anátt var einmitt í gærmorgun þegaíflóbib kom nibur úr Skolla- hvilft. „Mér fannst það alveg koma til greina ab það kæmi flób úr þessu fjalli en fyrirfram hefbi ég ekki gagnrýnt þetta eba sagt ab menn hefbu átt ab rýma meira en þeir gerbu. Þab gat enginn vitab ab þetta yrbi svona mikib. Hrafl úr þessum stærstu flóbum sem ég veit um hafa farib nibur undir efstu húsin, yfir kirkjugarbinn og nibur undir rabhúsin vib Hjalla- veg." Gunnlaugur segir ab fyrstu snjóflóbavarnirnar hafi einmitt verib gerbar vegna flóbanna úr Skollahvilft. „Þá var gerb tvöföld röð af jarbvegskeilum en flóbib núna fór hreinlega yfir keilurn- ar." Vegna þessara varna og sök- um þess að snjóflób hefur aldrei Cunnlaugur Finnsson. ábur fallib svona langt nibureftir í nokkru magni var þetta svæbi ekki talib hættusvæði. Gunnlaugur telur ab alveg sér- stakar abstæbur hafi orbib þess valdandi ab þetta snjóflób féll. Snjór hefur verib nibur í mibjar þlíbar allan þennan mánub, hit- inn um frostmark og veruleg snjókoma verib síbasta hálfa mánubinn. „Jörbin var öll gjör- samlega gegnsósa af úrkomu og svo kemur þessi þungi snjór og ekkert frost þannig ab ekkert frýs saman. Þetta virðist nánast vera eins og vatnsflób eba loftpúba- flób. Þab virbist ekki hafa verib til neitt sem heitir vibnám þarna á milli þessa massa og fastrar und- irstöbu." Ab sögn Gunnlaugs hafa menn síbar bætt vib meiri snjóflóba- vörnum því ab undanförnu hafa einnig komið flób úr Innra-Bæj- argili. „En þab er mikib meiri hætta á því svæbi þegar þab er mikil snjókoma og hánorban- og norbvestanátt því ab þá leggur storminn inn fjörbinn." Gunnlaugur segir ab vebrib sem gengib hafi yfir þetta svæbi síbustu sólahringa sé mjög óvanalegt fyrir þennan árstíma en segir mörg dæmi þess ab kom- ib hafi óhemju snjókoma. „Ég veit náttúrulega ekki hvernig vebur var um þetta leyti árib 1934 en þá fórust þrír menn þarna í snjóflóbi þegar þeir ætl- ubu ab fara ab vitja um fé þarna út á Saubanesi." -LÓA Fólksfœkkun í Bolungarvík eftir Súöavíkurslysiö: Beygur í fólki, fólk er hrætt „Þab er beygur í fólki, fólk er vissulega hrætt," sagbi Kristín Magnúsdóttir, íbúi í Bolungarvík, í samtali vib Tímann í gær. Kristín sagbi ab eftir snjóflóðin í Súbavík hefðu margir hugsað sig al- varlega um hvab varðar búsetu og nokkrir flust burt. Eftir áfallib á Flateyri myndu eflaust enn fleiri hugsa sér til hreyfings en atvinnu- mál spilubu eitthvab inní. „Mabur finnur það á fólkinu að það er svo hrætt. En þegar veðrib batnar held- ur fólk í vonina og reynir að vera bjartsýnt," sagði Kristín. Ekki hefur verið skipulögð hjálp til handa þeim sem þjást af kvíða vegna hættunnar á snjóflóöum í Bolungarvík en Kristín segir Bolvík- inga eiga mjög góðan lækni sem hafi veitt mörgum hjálp. -BÞ Eina bensínstööin á Flateyri gjöreyöilagöist: Allt gert til að koma eldsneytismálum í lag „Vib settum strax af stab þjónustu vib Flateyri í morgun þegar ljóst var hvernig fór, og gerbum allar rábstafanir," sagbi Bjami Bjama- son hjá Olíufélaginu hf., ESSO, í samtali vib Tímann í gær. Esso- stöbin á Flateyri varð undir snjóflóðinu og gereyðilagðist. Stöð- in, þrjár byggingar, stóð hægra Mötuneyti Kambs notab fyrir abhlynningu slasabra: Unnib baki brotnu Fyrsta aðhlynning slasabra í snjóflóbinu á Flateyri fór fram í mötuneyti Fiskvinnslunnar Kambs hf. á Flateyri. 15 aðilar unnu baki brotnu í gær vib ab næra björgunarmenn sem unnu við gríbarlega erfibar abstæður og urbu fyrir miklu orkutapi. Starfsstúlka í mötuneytinu sagði í samtali vib Tímann í gær ab hún gæti ekki giskab á hve mik- ill fjöldi hefbi tekib þátt í björg- unarstarfinu en þab væru miklu fleiri en eiginlegir björgunar- sveitarmenn. Nánast allir íbúar þorpsins sem vettlingi gætu valdib kæmu ab björgunarstarf- inu. - BÞ Stœrö snjóflóösins og hve langt þaö fór kom snjóflóöafrœöingum í opna skjöldu: Trúbum J)ví ekki að þetta gæti gerst hér Jón Gunnar Egilsson snjó- flóbafræbingur segir ab ham- farirnar á Flateyri hafi komib snjóflóbafræbingum í opnu skjöldu, sérstaklega hve langt nibur flóbib gekk. „Vib hrein- lega trúbum þvíekki þegar vib fréttum þetta í morgun (í gær) ab þetta hefbi gerst," sagbi Jón Gunnar í samtali vib Tímann í gær. Hann segir abstæbur á Ön- undarfirbi hafa verib þannig ab mjög ör snjósöfnun hafi verið, mikil ofankoma og vindur sem hafi valdib snjóflutningi. Þann- ig hafi snjórinn safnast of hratt til ab hann næbi ab hanga uppi. Hann hefur hins vegar ekki skýr- ingar á því af hverju flóbib gekk svo langt nibur. Þetta hefur verib hamfaraflób. Þarna hefur verib byggb mjög lengi, þannig að kringumstæbur hafa verib mjög óvanalegar. Þarna hefur aldrei áður gerst neitt í líkingu vib þab sem gerb- ist í gær." -Hvab meb snjóflóðavarnir, hættumat og slíkt. Er ekki búib ab kippa fótunum undir þeim rannsóknum sem hafa verib gerbar á snjóflóbahættu? „Þab er aubséb ab þær reglur sem vib höfum notab hér sam- kvæmt bestu þekkingu eru ekki nægar. Kannski er þetta eitthvab sem vib getum ekki ákveðib." Jón segir ab vib snjóflóba- rannsóknir hafi menn notab reiknilíkön sem líki eftir snjó- flóbi sem fer nibur hlíb. Ferill flóbsins sé prófabur út frá ákvebnum forsendum um snjó- dýpt og fleira. „Þetta eru náttúr- iega bara líkön og það þarf ab gefa þeim forsendur. Svo virbist sem þessar fo'rsendur séu skeik- ulli en vib töldum," sagði Jón Gunnar Egilsson, snjóflóbafræb- ingur á Veburstofunni í gær. -BÞ megin við þjóðveginn sem liggur inn í þorpið. Bjarni sagði ab reynt yrði aö koma eldsneyti og öðrum vörum landleiðina, en auk þess væri Stapa- fell til reiðu á næstu slóðum. -JBP Stjórnstöö aögeröa í gœr um í Reykjavík. Hér sjást þeir Cubjón Petersen, framkvæmdastjóri og Hafþorjónsson aöalfulltrúi. Tímamynd: cs var hjá Almannavörn-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.