Tíminn - 02.11.1995, Blaðsíða 7

Tíminn - 02.11.1995, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 2. nóvember 1995 7 Formaöur stœrsta kratafélagsins segist ekki hafa fengiö birta grein í Alþýöublaöinu. Ritstjórinn neitar: Ágreiningur enn hjá krötunum Formaöur Alþýbuflokksfélags Hafnarfjaröar, stærsta kratafé- Iags landsins, Magnús Haf- steinsson, kvartar yfir því að hafa verib úthýst úr Alþýbu- blabinu. Hann hugbist leggja fram spurningar í sex libum varbandi meinta góba fjár- málastjórn, sem svo mjög hef- ur verib gumab af innan og utan flokksins ab undanförnu og hver yfirlýsingin af annarri verið birt þar um í fjölmiðl- um. Enn er bullandi ágrein- ingur vegna gjaldkera flokks- ins, þrátt fyrir ítrekabar traustsyfirlýsingar honum til handa. Magnús segir Hrafn Jökuls- son, ritstjóra Alþýðublabsins, hafa neitað sér um birtingu. „í samtali vib hann í síma taldi hann sig hafa loforð einhverra háttsettra manna í Alþýðu- flokknum um ab þessi grein yrbi stöbvub," segir Magnús Hafsteinsson, sem leitaði til Morgunblaðsins með fyrir- spurnir sínar. Hrafn Jökulsson, ritstjóri og varaþingmabur, sagði við Tím- ann: „Þetta er sem betur fer á misskilningi byggt hjá þessum ágæta greinarhöfundi úr Hafn- arfirði. Honum hefur ekki frem- ur en öðrum verið neitað um að skrifa í Alþýöublaðið, enda al- mennt ekki litið svo á að þögn Alþýðublaðsins sjái til þess að umræða um einhver mál sé þögguð niður. Eins er þetta úr lausu lofti gripið sem hann Vinnuhópur á vegum sam- starfsráöherra Noröurlanda vill leggja niöur Norrcenu blaöa- mannamiöstööina í Árósum: Blaðamenn mótmæla Blaðamannafélag íslands og félög blabamanna á Norburlöndum í samstarfi vib útgefendur hafa ákvebib ab bregbast hart vib fram- kominni tillögu um ab Norræna blabamannamibstöbin í Árósum verbi lögb nibur. En tillaga þess efnis kom nýlega fram í skýrslu vinnuhóps, sem starfab hefur á vegum samstarfsrábherra Norbur- landa. Endanleg ákvörbun í mál- inu verbur tekin á fundi Norrænu rábherranefndarinnar á næsta ári. Á vegum Blaðamannafélags ís- lands hefur verið dreift undir- skriftalistum tib félagsmanna, þar sem skorab er á þá að mótmæla þessum fyrirhugubu áformum, sem ganga þvert á niðurstöðu nýbirtrar úttektar á starfsemi Norrænu blaða- mannamibstöðvarinnar, NJC. En sú skýrsla var unnin á vegum Norrænu forsætisráðherranefndarinnar og kom út í október sl. í þeirri skýrslu er lögð áhersla á mikilvægi NJC fyr- ir framtíðarþróun fjölmiblunar og endurmenntunar fjölmiðlafólks á Norburlöndum. Blaðamannafélag íslands teiur að þab mundi verba mikib reiðarslag fyrir allt endurmenntunarstarf fé- lagsmanna og þá ekki aðeins hér- lendis, heldur og einnig meðal blabaman'na á hinum Norðurlönd- unum, ef þessi tillaga vinnuhópsins nær fram að ganga. En fjölmargir ís- lenskir blaða- og fréttamenn hafa á undanförnum árum sótt þangað bæði nám og fróbieik, auk þess sem þab hefur aukib á tengsl og sam- skipti norrænu félaganna. -grh heldur fram um loforð ein- hverra háttsettra manna í Al- þýðuflokknum að þessi grein yrði stöðvuð. Magnúsi var vel- komið að skrifa í Alþýðublaðið og harma ég að sjálfsögðu að þessi virðulegi Hafnarfjarðar- krati hefur fyllst þessum mis- skilningi." í grein Magnúsar má sjá að enn eru sárindi vegna málefna Guðmundar Árna Stefánssonar á sínum tíma. Þá gekk hvað harðast fram gegn Guðmundi Árna Vilhjálmur Þorsteinsson úr stjórn Félags frjálslyndra jafnaöarmanna. Sami Vilhjálm- ur hefur ritað greinar um frá- bæra fjármálastjórn Alþýðu- flokksins undir stjórn núver- andi gjaldkera flokksins. Magnús Hafsteinsson er greinilega ekki fyllilega sáttur og á spurningum hans í Morg- unblaðinu má greina mikinn efa um gæðastjórnun Alþýðu- flokksins. Hann gagnrýnir treg- ar upplýsingar um greiöslur til gjaldkerans. Hann efast greini- lega um að það sé góð fjármála- stjórn að sami maður sé stjórn- arformaður Alþýðublaðsins, annist hlutverk framkvæmda- stjóra, greiöi sjálfum sér kostn- að og láti færa bókhald blaðsins heima hjá sér. -JBP Tímamynd CS Siguröur Þóröarson hjá Bónus meö ávaxtasúrmjólkina frá Neskaupstaö. Súrmjólk frá Neskaupstaö rennur út á Reykjavíkurmarkaöi: Bónus vill fá tveggja lítra mjólkurumbúbir Bónus leitar nú að mjólkurbúi til að pakka mjólk í 2 lítra umbúðir merktar versluninni. Jóhannes Jónsson í Bónus sagbi í samtali við Tímann ab ýmis öfl sæju væntanlega til þess að ekkert yrbi úr slíkum áformum. Bónus hefur hafið sölu á súr- mjólk með þrem bragðtegund- um sem fengin er frá Neskaup- stað. „Súrmjólkin að austan selst jafnóðum og hún berst okkur," sagöi Jóhannes í Bónus. -JBP íslensk hönnun hjá Vélum og þjónustu hf.: Vörugámur á flutningabíl meb fjölþætt notagildi Nýlega afhentu Vélar og þjón- usta hf. nýjan sérútbúinn DAF-flutningabíl, en þab sem er óvenjulegt vib þennan flutningabíl er ab vörugámur- inn á honum er algerlega ís- lensk hönnun. Gámurinn er sérstakur ab því leyti ab hurb- irnar eru knúnar sjálfvirkum vökvaopnunarbúnabi og hægt er ab hlaba bílinn bæbi ab aftan og frá hlib. Hér er um ab ræða bíl af gerö- inni DAF 75 og er heildarþyngd bílsins 19 tonn. Bíllinn er mjög fullkominn aö allri gerð, búinn loftfjöðrum að framan og aftan og í bílnum er tölvubúnaöur sem fylgist með ástandi hans. Hér er um að ræða sérstaka eftir- litstölvu, sem fylgist með ásig- komulagi hinna ýmsu hluta bílsins, svo sem með vél, gír- kassa og drifi, hefur eftirlit með eldsneytisnotkun ásamt fjöl- mörgu öðru. Tölvan gefur merki um það ef eitthvað bilar eða fer úrskeiðis og geymir hún allar slíkar upplýsingar í minni. Þeg- ar bíllinn kemur til ástands- skoðunar hjá Vélum og þjón- ustu hf., tengist eftirlitstölvan í bílnum móðurtölvunni á verk- stæðinu og sést þá hvað lagfæra þarf. Vörugámurinn, sem er á bíln- um, er íslensk hönnun. Gáminn hannaði Karl Sigurðsson tækni- fræðingur, markaðsstjóri Véla og þjónustu hf., en fyrir í land- inu er annar bíll með samskon- ar búnaði, hönnuðum af Karli. Hönnuöur, eigandi og smiöur. Karl Sigurösson hönnuöur vörugámsins, Arnbjörn Ólafsson eigandi flutningabíls- ins, og Ingi Einar Sigurbjörnsson vélvirki viö hina nýju DAF-flutningabifreiö. Eigandi DAF-bílsins, sem hér um ræöir, átti reyndar hinn bíl- inn, sem einnig er af gerðinni DAF, og var reynsla hans af þeim bíl mjög góð. Þegar hann síðan ákvað að endurnýja, fékk hann sér DAF af stærri gerö. Vörugámurinn er óvenjulegur að því leyti aö hægt er aö opna aðra hliðina alveg upp að þaki með því einu að styðja á hnapp, en hurðirnar eru knúnar vö- kvalyftum. Þegar hurðin opn- ast, rennur efri hluti hennar upp á þak, en hinn neðri niður með hliðinni. Notagildi vöru- gáma af þessari gerð er mikið. Hægt er að hlaða bílinn frá hlið og auðvelt er að koma inn löng- um búntum af rörum og timbri. Einnig er vörugámurinn hent- ugur fyrir kvikmyndatökur og sem hljómsveitarpallur og hefur sá vörugámur, sem fyrir er, ein- mitt nýst sem slíkur. Á bílnum er DHollandia vöru- lyfta frá Vélum og þjónustu hf. Hann var sprautaður á Selfossi og þak úr trefjaplasti sett á hann þar. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.