Tíminn - 24.11.1995, Side 2
2
Föstudagur 24. nóvember 1995
Tíminn
spyr...
Var rétt af Ríkisútvarpinu a& end-
urflytja hina umdeildu „Hetju-
sögu" Hrafns Cunnlaugssonar?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
stjórnniálafræbingur:
Mér þykir það fullmikil auglýsing
fyrir Hrafn Gunnlaugsson, en á það
ber að líta að aðstandendur Hall-
dórs Laxness, sem á aö vera sögu-
hetja í smásögunni,. óskuðu eftir
þessu og Hrafn veitti saiíiþykki sitt.
Líklega er eins mikið til í að Halldór
Laxness'sé'sögubetja þarna og að
Ólafur Thors hafi verið sögulietja í
Atómstöðinni.
Mörður Árnason íslenskufræð-
ingur:
Út af fyrir sig getur enginn sagt
neitt við þessari sögu. Ýmsir höf-
undar hafa notað efni úr samtíðar-
sögu og dulbúið frægt fólk. l>ar má
minna á t.d. bók Hallgríms Helga-
sonar, sem hefur notað svipaða að-
ferð og Hrafn beitir þarna. Útvarpið
hlýtur hins vegar að leggja sitt mat
á dagskrána, þ.á m. bókmenntir. Til
er sérstakur bókmenntaráögjafi við
útvarpiö. ITóðlegt væri að vita
hvort hann var meö í ráöum, þegar
þetta efni var sett saman. Fróðlegt
væri að vita hvort útvarpiö hefur
metið þaö þannig í upphafi, að hér
væri merkilegt bókmenntaverk á
ferð, samið af þeirri smekkvísi sem
útvarpinu hæfir. Endurtekning efn-
isins bendir til að svo hafi veriö.
Gunnlaugur S. Gunnlaugsson,
formaður Útvarpsráðs:
Já, ég tel aö svo hafi verið. Það lá
fyrir fjöldi áskorana frá hlustend-
um og mér virðist aö báðir málsað-
ilar hafi verið fylgjandi því að þetta
yrði flutt. Þetta er sjálfsögð þjón-
usta. Það er allt annaö mál j)ótt um-
deilt hafi verið þegar sagan fór fyrst
í loftið. í gær (fyrradag) lá fyrir
áskorun 150 manna með leyfi frá
Auði Laxness að Ríkisútvarpiö end-
urflytti þáttinn. Þess vegna get ég
ekki gert athugasemd við að dag-
skrárstjóri hafi tekiö ákvörðun um
endurflutning efnisins. Ég styð það
heils hugar.
Miklar vonir bundnar vib Jólalandiö / Hveragerbi. Allur bœrinn myrkv-
aöur 1. des. ábur en œvintýralandiö opnar formlega:
„Nú á aö taka Finn-
ana og skilja þá eftir"
Morgunblabsfréttin er röng, segir Leifur Steinn Elísson hjá VISA-ísland:
Undirbúningur stendur nú sem
hæst að opnun „Jólalands" í
Hveragerði en 1. des. nk. verður
allur bærinn myrkvaður og
gamla tívolíið opnað með pomp
og prakt. Von er á gestatívolíi frá
líretlandi og verður margt til
skemmtunar í Jólalandi í desem-
ber aö sögn forráðamanna. Það
eru Flugleiðir, Samvinnuferðir-
Landsýn, Hveragerðisbær auk 50
fyrirtækja þar sem standa aö Jóla-
landi.
Ólafur Reynisson í Húsinu á
Sléttunni í Hveragerði er í stjóm
verkefnisins og sagði hann í samtali
við Tímann í gær að mikið væri lagt
undir, 25 milljónir til að byrja meö,
enda kominn tími á að markaðs-
setja íslensku jólasveinafjölskyld-
una. Bretar hefðu t.d. bara einn
jólasvein og þeim þætti íslenska
hefðin mjög spennandi. 13 sveinar
og Grýla og Leppalúöi. „Nú á að
taka Finnana og skilja þá eftir. Þeir
hafa verið næsta einráöir í þessum
heimshluta og svo talað sé í þotum
þá fá þeir um 130 þotur í ár til sín,
gagngert vegna jólasveinsins."
Ólafur sagði Hveragerði álitlegan
kost vegna nálægðar við höfuð-
borgina og útsýniö að bænum frá
Unniö oð undirbúningi Jólalands í gamla Tívolíhúsinu.
Hellisheiöinni væri tilkomumikið,
bærinn væri eins og lítið ævintýra-
land þegar búið væri að skreyta allt
með ljósadýrð.
Forráöamenn Jólalands munu
bjóða sérstaklega til sín grunnskól-
um og ellilífeyrisþegum og auk þess
er vonast til að erlendir ferðamenn
láti sjá sig í nokkrum mæli. M.a. eru
ferðir til Jólalands í Hveragerði not:
aðar sem vinningur fyrir verslunar-
Tímamynd: CS
keðju í Bretlandi. Greiða þarf fyrir
„vegabréf" aðjólalandi og mun að-
gangseyrir fyrir fullorðna rétt undir
bíómiðaverði en ódýrara fyrir börn.
í gær kom risastórt jólatré frá
Noregi sem sett verður upp í gamla
tívolíhúsinu og þar var jafnframt
verið að setja hitalögn í húsið og
smíða geysistórt svið sem „rúmar
heila Sinfóníuhljómsveit" að sögn
Ólafs. -BÞ
VISA abyrgist ekkert
„Við hjá VISA-Islandi höfum að
sjálfsögðu ekki tekist á hendur
neina ábyrgð vegna viðskipta
Tómasar Tómassonar og Reykja-
víkurborgar," sagði Leifur Steinn
Elísson aðstoðarframkvæmda-
stjóri VISA í samtali við Tímann í
gær. Leifur Steinn sagði ab flest-
um væri ljóst að Visa er greiðslu-
miðlunarfyrirtæki, það flytti fé
frá korthöfum til söluaðila eftir
ákveðnum reglum. Visa gæti
enga ábyrgð tekið á framtíð ein-
stakra fyrirtækja.
Frétt Morgunblaðsins um aö
Tómas Tómasson veitingamaður á
Hótel Borg og Hard Rock Cafe
mundi greiba borginni andvirbi
Pósthússtrætis 9, áður fyrri hús Al-
mennra trygginga, að hluta til meb
Visa raðgreiðslum vakti athygli
margra og vissa erfiöleika hjá skrif-
stofu Visa.
„Sennilega byggist þessi mis-
skilningur á því að Tómas Tómas-
son hafi bent borgaryfirvöldum á
þab að greiöslur hans mundu ber-
ast borginni mánaöarlega sama dag
og hann fær uppgjör frá VISA
vegna viöskipta sinna. Einhver
misskilningur hefur alla vega kom-
ið upp, ég veit ekki nákvæmlega
hvar hann liggur," sagði Leifur
Steinn.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, bar það í
gær tii baka að borgin seldi húsið á
raðgreiðslum Visa. Hún segir þó að
Visa-ísland hafi tekib að sér að
tryggja mánaöarlegar greiðslur af
reikningi Hótel Borgar.
Borgarlögmaður sagði í bréfi til
borgarráös að til tryggingar á út-
borgunargreiðslum „skal seljandi
leggja fram yfirlýsingu frá VISA- ís-
land þess efnis að fyrirtækið skuld-
bindi sig til þess að leggja ofan-
greindar fjárhæðir á reikning borg-
arsjóðs á umsömdum gjalddög-
um."
Leifur Steinn Elísson sagöi ab
einnig þetta væri málum blandið
og rangt með farið. Visa sæi ein-
faldlega ekki um slíkar tilfærslur á
peningum. Ennfremur hefði eng-
inn nokkru sinni talað við Visa um
þessa flutninga á fé. -JBP
Sagt var...
Haldíb þér kjafti skáld
— allt er sagt
„...og Halldór Laxness sem situr í
sæmd sinni í hárri elli að loknu því
æviverki að orba snilldarvel hverja
einustu hugsun sem leitará íslend-
inga."
Gubmundur Andri í Alþýbublabinu í
gær.
Sarnhugur í verkl
„Ép held hins vegar að nú sé þörf á
þjobarátaki um ab leiöa Hrafn Gunn-
laugsson hjá sér."
G. Andri tekur þátt í stríbinu um hetjur
Hrafns meb því ab fara fram á ab abrir
þegi yfir snilldarbragbi eftirhermunnar.
Minnisleysi maddömunnar
„Nýskeb komu fokreibir trillukarlar
saman á mótmælafundi á Austurvelli
og hermdu mebal annars loforð upp
á Siv sem stóö þar í miðri þvögu.
Sjónvarvottar segja ab Siv hafi verib
hálfrábalaus og a bendingu sagt meb
uppgjafartóni vib hina herskáu sjó-
sóknara: „Ég man ekki eftir öllum
þessum loforbum."
Segir Egill Helga í úttekt í grein Helgar-
póstsins um „litlu framsóknarmaddö-
muna", sem á bágt meb ab líma lof-
orbaspjöldin upp í langtímaminnib eins
og fleiri kollegar hennar. í tilvitnun var
verib ab herma upp á hana opinberar
hugmyndir sem þóttu í andstöbu vib
kvótakerfib.
Apinn er altént
forfabir Snorra Beteis
„Ætli trúarofstækismenn séu ekki
sterkasta sönnunin fyrir því að mab-
urinn og apinn eigi sameiginlegan
forföbur, svo þab er ekkert skrítib ab
þeir skuli vera svona sólgnir í aö
kveikja í ritinu sem fjallar um þessi
vibkvæmu fjölskyldumál."
Sverrir Stormsker í DV furbar sig svo
sem ekki á því ab Betelsfólk skuli hafa
brennt rit um þróunarkenningu Darw-
ins.
Afkristnibobskapur biblíunnar
„Innan spjalda biblíunnar er ab finna
þvílíka leiðinda víbáttuvitleysu ab
mabur er forviða að þessi „heilaga
ritning" skuli ekki fyrir löngu vera bú-
in að afkristna gjörvalla heimsbyggb-
ina ... Þótt ég meti flestar bækur
meira en þessa rotþró dragúldinna
kennisetninga ..."
Sverrir hélt áfram ab mæla fram marg-
an sannleikann í DV í gær.
Hæfileikaríkt nýaldarrit
„Bók sem kemur aðeins fram einu
sinni á mannsævi og skiptir sköpum í
lífi fólks."
Þessi rökkvaba dularbók sem hefur ab
geyma Celestine handritib (sem „hefur
ab geyma leyndardóma sem eru ab
gjörbreyta heiminum") getur á ein-
hvern óskiljanlegan hátt abeins komib
fram einu sinni á hverri mannsævi.
Þetta reikningsdæmi er þó líklega ný-
öldurum aubleysanlegt en því má ekki
gleyma ab bókin hefur gengib frá
manni til manns síban hún kom í litlar,
NB: litlar, bókaverslanir víba um Amer-
íku. (Hún hefur því ekki selst í milljón-
um eintaka, er nr. 1 á metsölulista New
York Times, nema á yfirborbinu heldur
farib óhefbbundnar leibir manna á
milli). Þetta er ekki gróbabrall heldur
heibarleg auglýsing frá Leibarljósi í
Mogganum í gær.
í pottinum eru margir sérfræðingar í
höfundarétti og þótti öllum það mik-
il tíðindi að tilkynnt hafi veriö í út-
varpinu áður en Hetjusaga Hrafns
Gunnlaugssonar var lesin í annab
sinn í fyrrakvöld ab sagan væri lesin
vegna fjölda áskorana og með leyfi
Aubar Sveinsdóttur (konu Hall-
dórs). Það vissi enginn ab Aubur
hefði „copyright" á verkum
Hrafns! ...
•
Það hitnar stundum í kolunum á
þingi þó rólegt sé á yfirborbinu.
Þannig mun Arni Johnsen hafa hrist
höfubið undir ræðu hjá Össuri í
fyrradag og Össur þá gripið til
gömlu klisjunnar um að hann
„heyrbi ab háttvirtur þingmabur
Árni Johnsen hristi höfuðið". Árna
líkaöi ekki þessi glósa og þegar hann
gekk fram hjá Össuri í þingsalnum
skömmu síðar greip Árni í eyra Öss-
urar og sneri dudjlega upp á. Enn
síðar kom Árni aftan ab Össsuri í
stiga þinghússins og þá sparkabi
Árni í afturenda umhverfisrábherrans
fyrrverandi. Össur mun hafa haldið
stillingu sinni en hann er vfst hættur
ab senda Árna glósur — í bili...