Tíminn - 30.11.1995, Blaðsíða 7
7
Fimmtudagur 30. nóvember 1995
Norrœna flutningamannasambandib ályktar um
fiskveiöistjórnun á Islandi:
Ætlar a ð berjast
gegn kvótakerfinu
Fiskveiðikerfi með frjálsum,
framseljanlegum veiðiheimild-
um, eins og framkvæmt er á ís-
landi, hefur leitt til óæskilegrar
uppsöfnunar kvótans á fáar
hendur, segir þing Norræna
flutningamannasambandsins,
NTF, sem hélt 10. þing sitt í
Lillehammer í Noregi á þriðju-
dag og miðvikudag.
Fingið bendir á að þessi þróun
mála hafi haft neikvæð áhrif á
hagsmuni fiskimanna og annarra
launþega í sjávarútvegi, meðal
annars í formi ótryggari atvinnu
og að kerfið hafi lækkað launa-
kjör. Þingið lýsti yfir að aðildar-
samböndin á Norðurlöndum eigi
að vinna gegn fiskveiðistefnu
með frjálsum, framseljanlegum
kvótum hvert í sínu landi.
Innan NTF eru 44 aðildarsam-
bönd og félög á Norðurlöndum
með um 335 þúsund félagsmenn.
Fimm íslensk félög og sambönd
eru innan NTF: Verkamannasam-
band Islands, Sjómannafélag
Reykjavíkur, Farmanna- og fiski-
mannasamband íslands, Félag ís-
lenskra atvinnuflugmanna og
Flugfreyjufélag íslands.
-JBP
Siguröur Markússon, fráfarandi stjórnarformaöur SIS, í rœöustól á aöalfundinum.
Tímamyndir C 5
Bílgeymsla Rauöakrossdeildar Strandasýslu á Hólmavík.
Hólmavík:
Byggt yfir sjúkrabílinn
Siguröur Markússon lœtur af stjórnarformennsku í SÍS og Egill 01-
geirsson á Húsavík tekur viö. Siguröur í samtali viö Tímann:
Vibskipti Sambandsins
ekki horfin í tómarúmið
Frá aöalfundi Sambandsins. Frá vinstri eru Erlendur Einarsson fyrrverandi
forstjóri SÍS, Gunnar Sveinsson fyrrv. kaupfélagsstjóri Kaupfélags Suöur-
nesja, Ólafur Sverrisson fyrrv. kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfiröinga,
Maríus Kárason stjórnarformaöur Kaupfélags Steingrímsfjaröar, og Sigrún
Magnúsdóttir kaupfélagsstjóri Kaupfélags Bitrufjaröar.
Frá Stefáni Císlasyni, fréttaritara Tímans
á Hólmavík:
Þessa dagana standa yfir fram-
kvæmdir vib byggingu bíl-
geymslu fyrir sjúkrabíl Rauða-
krossdeildar Strandasýslu, en
verkið hófst síðsumars. Húsið er
nú fokhelt og er unniö að inn-
anhúsfrágangi.
Bílgeymsla Rauðakrossdeild-
arinnar stendur á lóð heilsu-
gæslustöövarinnar á Hólmavík,
en af ýmsum ástæbum þykir
hentugt ab geyma sjúkrabílinn
Sverrir Stormsker, sem kallar
sig nú Serði Monster, hefur
sent frá sér 75 mínútna lang-
an geisladisk undir heitinu
Tekið stórt upp í sig.
Þar er að finna 19 „bannvæn"
lög og eru flest þeirra eftir Serði
sjálfan. Einnig má þar finna
Hausthefti 169. árgangs Skírnis
er komið út. Einstaklingurinn
er jrar í brennidepli, að því er
segir í fréttatilkynningu frá út-
gefanda, sem er Hið íslenska
bókmenntafélag. Litið er um
öxl, er einstaklingsvitund eflist
mjög meðal íslensku þjóðarinn-
ar, en einnig horft fram á veg-
inn og spurt hvernig rétti ein-
staklinga verði best borgið í
samfélagi framtíðarinnar.
Mcðal cfnis í Skírni er grein Sig-
urðar Gylfa Magnússonar um
dagbók Halldórs Jónssonar frá
Miðdalsgröf, sem talin er gefa ein-
staka mynd af lífi einstaklings í
bændasamfélaginu um síöustu
aldamót. Tilurð höfundarins heit-
sem næst heilsugæslustöðinni. I
sumum tilvikum getur þaö stytt
viðbragðstíma, m.a. þegar lækn-
ir þarf ab fylgja bílnum í útköll,
og auk þess eru tæki í bílnum,
sem nýtast heilsugæslustöðinni
og sjúkrahúsinu við ákvebnar
aöstæður. Fram til þessa hefur
bíllinn staðið í húsnæði Björg-
unarsveitarinnar Dagrenningar.
Umsjón með byggingu bíl-
geymslunnar er í höndum
Benedikts Grímssonar, húsa-
smíðameistara á Hólmavík. ■
nokkur erlend lög sem þekkt eru
meöal landans undir nöfnun-
um Adam átti syni sjö og Þrjú
hjól undir bílnum, en í meðför-
um Serðis heita þau Saddam átti
syni sjö og Þrjú tól undir fíln-
ir grein eftir Þröst Helgason, þar
sem rætt er um þau tímamót er
höfundurinn verður til í íslenskri
skáldskaparumræðu. Sigurður
Líndal skrifar greinina Stjórnar-
skrá og mannréttindi þar sem
færö eru rök að jrví að ofuráhersla
á einstaklingsréttindi í nútíma-
stjórnarskrám kunni á endanum
að vinna gegn mannréttindum,
en í drögum aö stjórnarskrá
næstu aldar leggur höfundur
skylduhugtakiö til grundvallar.
í grein sinni færir Jón Á. Kal-
mansson rök að því að leggja eigi
ríkari áherslu á veröleika og.
mannkosti einstaklingsins en gert
hefur verið í áhrifamestu réttlæt-
iskenningum síðari tíma.
Egill Olgeirsson tæknifræðingur,
stjórnarformaður Kaupfélags
Þingeyinga, var kjörinn formaður
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga á aðalfundinum í lok síðustu
viku. Hann tekur við af Sigurði
Markússyni, sem gegnt hefur
stjórnarformennsku á erfiðum
tímum hjá Sambandinu. Tíminn
ræddi við Sigurð Markússon.
„Á fundinum kom fram að við er-
um á þessum síðustu 5-6 árum bún-
ir að borga niöur skuldir, sem voru
14 milljarðar, niður í nánast ekki
neitt. Þær voru samkvæmt efna-
hagsyfirliti 30. september ein millj-
ón og eru til peningar þar á móti.
Við fórum í nauðasamning í fyrra.
Kröfurnar í hann voru 360 milljón-
ir, þar af gáfu lánardrottnar eftir
270 milljónir. Þannig að hundraðs-
hlutfallið á nútímaverðlagi á eftir-
gjöfunum af heildarskuldinni er al-
veg um 2 prósent," sagði Sigurður
Markússon, fráfarandi stjórnarfor-
maður Sambandsins.
Sigurður segir að gott samkomu-
lag hafi verið um nauðasamning-
inn. Einn sagöi nei, en það var
skiptastjóri KRON, en í síöustu viku
féll málið Sambandinu í hag í
Hæstarétti, sem Sigurður segir að
hafi verið ánægjuleg frétt daginn
fyrir aðalfundinn.
Á aðalfundinum leiðrétti Sigurð-
ur Markússon þann misskilning
margra að viðskipti, sem Samband-
Greinar unt íslenskar fornbók-
menntir eru eftir Árna Bergmann
og Kristínu Geirsdóttur. Sigurður
A. Magnússon skrifar urn Sann-
leika og fagurfræði og ritgerð Pló-
tóníusar um fegurðina birtist í
þýðingu Eyjólfs Kjalars Emilsson-
ar.
í greinum um bækur eru kort-
lögð tvö svið íslenskra bók-
mennta, sem lítiö hafa verið
könnuö til þessa. Rúnar Helgi
Vignisson rær á miö íslenskra sjó-
mannasagna og Árni Ibsen rekur
hvernig ný bókmenntategund,
örsögur, hefur veriö að festa rætur
hérlendis. Þá skrifar Einar Sigurðs-
son grein um Bókmenntaskrá
Skírnis, sem fylgir hausthefti ekki
ið annaðist, væru horfin og týnd í
tómarúmið. Sigurður segir að þetta
sé alrangt. Sex fyrirtæki með rætur í
Sambandinu, nú hlutafélög, séu í
góðum gangi og öll séu þau í meiri
eða minni eigendatengslum við
kaupfélögin í landinu og samstarfs-
félög þeirra. Hér er um að ræða Inn-
kaupasamband kaupfélaga, íslensk-
ar sjávarafurðir, Kaupás, Kjötum-
boðið, Samskip og Skinnaiðnað á
Akureyri.
„Þessi sex féiög veltu í fyrra 21,6
milljörðum og höföu aukið veltuna
um 1,2 milljarða milli ára. Eftir
aö þessu sinni og er óvíst um
framhald á útgáfu hennar, að því
er fram kemur í oröum ritstjór-
anna, Jóns Karls Helgasonar og
Róberts H. Haraldssonar.
Linda Vilhjálms er skáld Skírnis
að þessu sinni og birtast eftir hana
tvö ljóð, sem kallast á við forsíðu-
mynd ritsins, en hún er eftir
Myndlistarmann Skírnis. Þaö er
Óskar Magnússon (1915-1993),
sem var verkamaður hjá Eimskip
lengst af, en um sama leyti og
hann hóf nám í veflist 1973 sagði
hann sig úr lögum við samfélagið
og reisti sér hús uppi á Hellisheiði
ásamt Blómeyju konu sinni, eins
og fram kemur í grein Ólafs J.
Engilbertssonar í Skírni. -ÁR
þeim fréttum, sem maður les í blöð-
um núna, þá verða þessi fyrirtæki
með hagnað sem verður einhvers
staðar á milii 400 og 500 milljónir í
ár. Allt er þetta því að rísa upp á
ný," sagöi Sigurður í samtali við
Tímann.
Sigurður segir að Samband ís-
lenskra samvinnufélaga verði ekki
lagt niður. Það hafi miklu hlutverki
að gegna sem landssamtök 24 kaup-
félaga og samvinnumanna í land-
inu. Ótrúlegt sé að Sambandiö
hverfi til viðskipta eins og áður,
þegar fyrirtækið var langstærsta fyr-
irtæki landsins. Hlutverk þess sé og
verði eingöngu félagslegs eðlis sem
málsvari samvinnumanna í land-
inu.
„Mér finnst alls ekki að hlutverk
mitt sem stjórnarformaður hafi ver-
ið svo leitt, einhver varð að gera
þetta," segir Sigurður Markússon
aðspurður um það hvort hlutverk
hans heföi ekki veriö erfitt og sárt.
Sigurður segir að Þorsteinn Sveins-
son, varaformaður SÍS, og raunar
stjórnin öll hefðu unnið afar vel aö
málum með sér. Það, sem hafi verið
ánægjulegt, hafi verið að jrað tókst
að stýra fyrirtækinu framhjá gjald-
þroti. Fram fór mikil sala á öllum
hinum miklu eignum SÍS. í dag eru
eignir Sambandsins virtar á 18
milljónir króna.
„Það voru margir búnir aö dæma
okkur af og það oft, alls konar menn
— stjórnmálamenn, fjölmiðlamenn
og fleiri. En Sambandið stóö af sér
þetta mikla veður og á framtíðina
fyrir sér á sínu sviði," sagði Sigurður
Markússon að lokum. -JBP
Bannvœn lög frá Seröi Monster:
Tekið stórt upp í sig
um.
Skírnir kominn út:
Einstaklingurinn í brennidepli