Tíminn - 06.12.1995, Blaðsíða 5
Mi&vikudagur 6. desember 1995
5
Pjetur Hafstein Lárusson: j
Hugaö aö Asmundarsal
Steinn Steinarr hafbi það eft-
ir fóstru sinni, að menning
væri rímorð á móti orðinu
þrenning. Menning og þrenning
— það fer ekki milli mála, þessi
tvö orð ríma. Og ekki nóg með
það, eiginlega er menning ekkert
annað en þrenning, þegar öllu er
á botninn hvolft. Hún er þrenn-
ing tímans — fortíðar, nútíðar
og framtíðar. Það sem við gerum
í nútíðinni á sér rætur í fortíð og
vonandi einhverja lífsvon í
framtíðinni. Þetta á við um alla
menningu, hvort heldur er t.d.
listsköpun, verslunarhætti eöa
fiskveiðar, svo nokkur atriði
menningar séu nefnd.
Fólk hefur misjafnar skoðanir
á því, hvað sé menning. Hjá
ýmsum er skilgreiningin á fyrir-
bærinu æði þröng, en víðari hjá
öðrum eins og gengur. Sjálfur
hallast ég að því, að menning
séu þeir samfélagshættir sem til-
tekinn hópur, t.d. þjóð, hefur
þróað með sér/ bæði leynt og
ljóst, svo og afleiðingar þeirra.
Altjent er menningin ekki yfir-
borðsfyrirbæri. Hún á sér djúpar
rætur. Þessar rætur eru við-
kvæmar og þarfnast næringar.
Engin næring er menning-
unni drýgri en sagan. Hún er
ekki aðeins skíma inn í fortíðina,
heldur einnig leiðarstjarna nú-
tímans á vit framtíðar. Því er það
svo, að þeir, sem kallast vilja
menningarlega þenkjandi, reyna
hvað þeir geta til þess að varð-
veita þær vörður, sem hlaðnar
hafa verið á leið fólks til æðri
þroska.
Á Skólavörðuholti stendur ein
slík varða, sem nú er í nokkurri
hættu. Ég á hér við hús Ásmund-
ar Sveinssonar myndhöggvara,
Ásmundarsal, eins og það er oft
kallað. Svo sem kunnugt er, hef-
ur Reykjavíkurborg keypt húsið
af Arkitektafélaginu. í sjálfu sér
er það ekki óeðlilegt, þótt vissu-
lega hefði verið að því nokkur
sómi að Leifur Breiðfjörð mynd-
listarmaður hefði eignast húsið,
eins og hugur hans stóð til. En
auðvitað ræður Arkitektafélagið
hverjum það selur eigur sínar.
Ásmundarsalur á sér ríkari sess
í listasögu Reykjavíkur en sumir
virðast gera sér ljóst. Ekki er nóg
með að þarna hafi Ásmundur
starfað að list sinni frá því hann
reisti húsið á árunum 1932 til
1934 og allt þar til hann flutti í
Laugardalinn rétt um 1950. Fyrri
kona hans, Gunnfríður Jóns-
dóttir myndhöggvari, starfaði
þarna einnig og bjó, m.a. eftir
skilnað þeirra. Ætti það ab vera
áhugamönnum um listir ís-
lenskra kvenna nokkurt íhugun-
arefni.
Árið 1951 flutti Gunnar kaup-
maður Sigurðsson, oftast kallað-
ur Gunnar í Geysi, í húsið. Var
hann leigjandi Ásmundar, en
saman steyptu þeir gólf í austur-
hlið hússins, sem áður hafði ver-
ið gímald. Þá varð til salur, sem
Gunnar kallaði Listvinasalinn. í
þessum sal stofnaði hann fyrsta
galleríið á íslandi og lengst af hið
eina sem rekið var á landinu.
Gunnar fluttist úr húsinu árib
1960. En þar með var ekki lokið
listasögulegu hlutverki þess, því
síðar starfaði Myndlistaskóli
Reykjavíkur þar. í tengslum við
skólann hófu myndhöggvarar
að sýna verk sín á lóð hússins ár-
Ásmundarsalur.
ib 1967. Urðu þær sýningar síðar
rótin að stofnun Myndhöggv-
arafélags íslands.
Eftir að félag arkitekta keypti
húsið, héldu þeir merki Gunnars
í Geysi á lofti með því að reka
þar sýningarsal. Því má ljóst
vera, ab ekkert hús í Reykjavík
skipar þvílíkan sess í myndlistar-
sögu borgarinnar og einmitt
þetta.
Menning krefst samhengis í
tíma og rúmi. Af ofansögðu má
því ljóst vera, að hugmyndir
borgarstjórnar um að breyta Ás-
mundarsal í barnaheimili eiga
sér ekki rætur í menningarhefð
borgarinnar. Vitanlega viljum
við, sem studdum R-listann í síð-
ustu borgarstjórnarkosningum,
tryggja börnum dagvist á viðeig-
andi stofnunum. En við viljum
einnig geta skilað börnum okkar
þeim menningararfi, sem okkur
var trúað fyrir.
Því menning er þrenning tím-
ans — fortíð, nútíð og framtíð.
Þetta bið ég fulltrúa okkar í
borgarstjórn að hafa hugfast,
þegar þeir n.k. fimmtudag ganga
til atkvæðagreiðslu um framtíb
þess sögulega húss, sem hér hef-
ur verið gert að umræðuefni.
Höfundur er rithöfundur.
Mín skobun
Stefán Vilhelmsson:
Flugumferöarstjórum finnst
sjálfsagt lítið fara fyrir lýð-
ræðinu í kjarabaráttunni
sem þeir heyja þessa dagana.
Þab er einfaldlega ekki við þá
talað nema í þeim tón sem telst
til valdbeitingar, tón sem þeir
helst þekkja sem hafa litla eða
enga möguleika til ab bera hönd
fyrir höfuð sér, mega ekki tjá sig
og verba að gera sig ánægba
meb það sem að þeim er rétt.
Allur fjöldinn leitar nú eftir
leiðréttingu sinna launamála,
en vib allt aðrar abstæður.
Flugumferðarstjórar tóku
mikla áhættu til þess að á þá
yrði hlustað, áhættu sem flest
annab starfandi fólk þarf ekki
að taka, því það hefur verkfalls-
rétt.
Ríkisvaldið og VSÍ hafa ham-
ast gegn því alla tíð ab grunn-
laun yrðu hækkuð, þess vegna
hefur fólk þurft að eyða mestum
hluta sólarhringsins á vinnu-
stab.
Þar hafa stéttarfélögin mis-
reiknað sig hrapallega. Látið
blekkjast af gylliboðum um
hærri eftir- og næturvinnulaun.
Hjá flestum starfsstéttum í land-
inu hefur þetta svo stöðugt
færst í vöxt, svo mjög að komiö
er út á ystu nöf, ef svo má segja,
hjá sumum þeirra.
Störf flugumferðarstjóra eru
þess eðlis að þab ætti ab banna
alla yfirvinnu, eins og dæmin
sanna, en þar sem launatekjur
þeirra byggjast mikib á henni,
verður aö koma til móts vib þá
og hækka grunnlaunin. En þab
er víst bannorö.
Flugmenn vinna eftir ströng-
um flugtíma- og vaktamörkum
og ætti þab ekki síöur að gilda
um flugumferðar.stjóra. Vib-
brögb Halldórs Blöndal ráð-
herra í þessu máli vekja athygli.
Þau benda til þess að þar fari
mikill valdsmaður, sem ætlar að
nota sér aöstöðuleysi hinna og
hleypa þeim hvorki eitt né
neitt. í gegnum aldirnar hafa ís-
lendingar fengið ab kenna á
slíkum valdsmönnum. Þeir láta
ekki neinn segja sér fyrir verk-
um, hvað sem það kostar. Von-
andi er að hann nái áttum og
skilji ab mál flugumferðarstjóra
snýst um, eins og fyrr er sagt, að
minnka vinnuálagið svo alls ör-
yggis sé gætt, sem þýöir að fleiri
þarf til starfans.
Kæri alþingismaður.
Stjórn MS Félagsins skorar á
þig ab beita þér fyrir því að lög-
um veröi breytt þannig ab
tekjutrygging öryrkja verbi ekki
skert vegna þeirra tekna sem
makar þeirra eða sambýlingar
kunna að afla sér.
Lítill eða enginn ágreiningur
er um að í flestum tilvikum,
einkum í hópi hinna lægst
launuöu, þarf tvær fyrirvinnur
til að standa undir útgjöldum
fjölskyldunnar. Gildandi Iögum
er hins vegar þannig háttað að
tekjutrygging öryrkja, sem að
hámarki getur náð kr. 24.439,
byrjar ab skerðast um leið og
mánaðarlaun maka hans fara
fram yfir kr. 36.220.
Það þarf varla ab lýsa því hví-
lík áhrif svona lög hafa á mögu-
leika öryrkja til sambúðar og
hjónabands. Þeir, sem eitthvab
þekkja til málefna öryrkja, vita
líka að núgildandi lög stubla
verulega ab þeirri einangrun og
einsemd, sem er hlutskipti allt-
í framhaldi af því verður að
hækka grunnkaupiö svo þeir
megi lifa af því, en uppistaðan í
of margra öryrkja á íslandi. Til
að halda reisn og sjálfsvirðingu í
samskiptum við hugsanlegan
maka mætti ætla að kr. 24.429
væru algert lágmark þess sem
öryrkinn geti komist af meb.
Hins vegar gera gildandi lög ráb
fyrir því ab öryrkjar taki ekki
upp sambúð með öbrum en
þeim sem eiga kost á og eru
reiðubúnir til að taka þá alger-
lega á sitt framfæri, fæða þá og
klæða eins og um börn sé ab
ræða.
Hin hliðin á þessu máli er
auðvitað fólkið sem er í hjóna-
bandi eða sambúð þegar heilsu-
tjónið á sér stað. Ein og sér veld-
ur örorkan oft miklu álagi á fjöl-
skylduna, ekki síst makann, sem
gjarnan þarf ab sjá einn um allt
það sem áður var verk beggja:
heimilið, börnin og allar útrétt-
ingar, auk þess að sinna öryrkj-
anum sjálfum. Vegna hinna
lágu Jbóta, sem öryrkinn fær,
þarf makinn í ofanálag að bæta
við sig verulegri vinnu til að
launum þeirra hefur fengist fyr-
ir óhóflega og um leið hættu-
lega yfirvinnu. ísland er lág-
launasvæði og er almenningur
smám saman að læra hvers
vegna svo er.
Eg var starfandi í mörg ár sem
flugvélstjóri og bar mikið traust
til flugumferðarstjóranna. Að
sjá þá þjónustu dregna saman á
nokkurn hátt fyndist mér skelfi-
legt, því alla daga ársins er fjöldi
íslendinga á ferð um vegi lofts-
ins, oft heilu fjölskyldurnar.
Þeir, sem best þekkja til þessara
mála, vita að aldrei má slaka á,
svo hættunni verði ekki boðið
heim.
Ég verð að lýsa undrun minni
yfir því hvað almenningur læt-
ur sig þetta mál litlu skipta.
Höfundur er fyrrverandi flugvélstjóri.
fjölskyldan eigi fyrir sameigin-
legum útgjöldum. Þessi viðbót-
arvinna verður í flestum tilfell-
um til að svipta öryrkjann allri
tekjutryggingu. Skerðingar-
ákvæðin verða því gjarnan til að
kippa grundvellinum endan-
lega undan hjónabandinu,
binda endi á þær framtíðarvon-
ir sem fólk gerði sér í góðri trú.
Meb skilnaðinum verður mak-
inn betúr settur og öryrkinn fær
aftur sína tekjutryggingu og þær
uppbætur sem einstæðingar
eiga rétt á. Verstir eru þessir
skilnabir þegar öryrkinn þarf
einnig að flytja frá börnum sín-
um.
Engum kæipi til hugar að
skerða eða fella niður atvinnu-
leysisbætur fólks vegna tekna
sem maki þeirra eða sambýling-
ur aflar sér, enda er það ekki
gert. Hins vegar hefur ekki enn
verið komið í veg fyrir að lög-
gjöfin fari allt öðruvísi með þá
sem eru atvinnulausir vegna
heilsutjóns, jafnvel þótt tekju-
VETTVANGUR
„í framhaldi afþví verð-
ur að hœkka grunnkaup-
ið svo þeir megi lifa af
því, en uppistaðan í
launum þeirra hefur
fengist fyrir óhóflega og
um leið hœttulega yfir-
vinnu. ísland er lág-
launasvœði og er al-
menningur smám saman
að læra hvers vegna
svo er."
trygging þeirra sé meira en
helmingi lægri en atvinnuleys-
isbætur hinna fullfrísku. Er
tekjutap vegna örorku ekki jafn
alvarlegt og þab atvinnuleysi
sem e.t.v. varir aðeins tíma-
bundið? Eða erum vib enn á því
menningarstigi að álíta fatlaða
ekki hafa sömu þarfir og annað
fólk þegar kemur að hjónabandi
og fjölskyldulífi?
Stjórn MS Félagsins skorar á
þig að beita þér fyrir því að öryr-
kjar, sem eru í eða hyggja á sam-
búð, haldi að minnsta kosti
tekjutryggingu sinni, þótt áfram
missi þeir nokkurs í uppbótum
sem þeir ættu rétt á sem ein-
stæðingar. Það félagslega böl,
sem stöðugt hlýst af núgildandi
lögum, er eðli málsins sam-
kvæmt afar viðkvæmt, sárs-
aukafullt og niðurlægjandi, og
af því tagi ab ekki er auðvelt fyr-
ir þolendur að ræða allar hliðar
þess á opinberum vettvangi.
Með virbingu og þakklæti,
stjóm MS Félags íslands
Opiö bréf til alþingismanna