Tíminn - 06.12.1995, Blaðsíða 7
Miövikudagur 6. desember 1995
8(mtom
7
Nám í hestamennsku núna
viburkennt í námskerfinu
Aöalfundur Félags tamninga-
manna var haldinn í Félags-
heimili Gusts í Kópavogi 2.
desember. Trausti Þór Guö-
mundson, formaöur félagsins,
flutti skýrslu stjórnar og gjald-
kerinn Olil Amble geröi grein
fyrir reikningum.
Félagiö var 25 ára á þessu
starfsári. Félagsmenn eru nú um
300. Stór Iiður í starfi félagsins
hefur á undanförnum árum ver-
iö menntunarmál tamninga-
manna, en fyrir nokkru tók fé-
lagið upp samstarf við Bænda-
skólann á Hólum um menntun
tamningamanna. Nú er verið að
móta framhaldsnám þar sem
skólinn mun útskrifa nemendur
með þjálfarapróf og reiðkenn-
araréttindi C. Um er að ræða
fimm mánaða nám, þrír mán-
uðir í skóla og tveggja mánaða
þjálfunartími heima. Inntöku-
skilyrði í þetta nám er frum-
tamninganám annað hvort frá
Bændaskólanum eöa félaginu
sjálfu. Félagið mun þó enn um
óákveðinn tíma geta útskrifað
þjálfara á sama hátt og verið
hefur.
Reiðkennaranámskeiði FT er
nú nýlokið norður á Hólum.
Námskeiðið stóð í 10 daga auk
tveggja daga sem fóru í próf.
Þetta námskeið var eingöngu
ætlað nemendum sem lokiö
höfðu áður fullgildu prófi
tamningamanna.
Yfirmaður prófnefndar var
Eyjólfur ísólfsson, en með hon-
um dæmdu prófin Reynir Aðal-
steinsson og Sigurbjörn Bárðar-
son.
Félagið hefur nú ráðiö til sín
starfskraft til að sinna skrif-
stofustörfum. Það er Ingibjörg
Magnúsdóttir, starfsmaður LH.
Skrifstofa FT verður til húsa hjá
Landssambandi hestamannafé-
laga í Bændahöllinni og er fé-
lagsmönnum bent á aö snúa sér
til skrifstofunnar, vanti þá upp-
lýsingar. Ingibjörg verður nokk-
urs konar framkvæmdastjóri fé-
lagsins.
Frá landsmóti hestamanna á Vindheimamelum. Fremst t.h. á myndinnier Trausti Þór Cubmundsson, formabur F.T.
ingamanna, reiðkennara og þjálf-
ara.
„Hólaskóli og Félag tamninga-
manna gera með sér svofellt sam-
komulag:
Hólaskóli setur á stofn fram-
haldsdeild sem útskrifar þjálfara,
sýningarfólk og reiðkennara sem
uppfylla kröfur Félags tamninga-
manna. Námiö mun lúta sömu
reglum og hliðstætt nám innan
menntakerfisins og m.a. vera
lánshæft samkvæmt reglum
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Félag tamningamanna og Hóla-
skóli skipa nefnd til að útfæra
námið og skal nefndin kölluð
Reiðkennslunefnd. Reiökennslu-
nefnd skal skipuð fimm mönn-
um, tveimur fulltrúum Hólaskóla
og tveimur fulltrúum Félags
tamningamanna. Fimmti maður
Reiðkennslunefndar og jafnframt
oddamaður skal vera kennari á
Hólum og jafnframt félagi í Félagi
tamningamanna. Reiðkennslu-
nefnd skal móta íeglugerð og til-
lögur að námskrá fyrir námið.
Jafnframt skal Reiðkennslunefnd
Felldur nlbur dómur
á 4ra vetra hrossum
Samkvæmt samþykkt síðasta
aðalfundar þá sendi stjórn FT
bréf til Bændasamtaka íslands
þess efnis að felldir yrðu niður
dómar á 4 vetra hrossum.
Send var greinargerð með
bréfinu sem hljóðaði þannig:
„Það er samdóma álit félags-
manna í FT að oft sé gengið
nærri 4 vetra jjömlum lirossum
í sýningum. A þessum aldri eru
hross á viðkvæmu þroskastigi
og auðvelt að marka spor í sálu
þeirra sem ekki verða aftur tek-
in. Kröfur til kynbótahrossa
eru alltaf að aukast og með
auknum kröfum eykst álag á
hrossin. Ennfremur má geta
þess að FT telur ekki nauðsyn-
legt að sýna 4 vetra gömul
hross til að stytta ættliðabilið
vegna þess að í flestum tilfell-
um eru hryssur sýndar aftur 5
vetra og jafnvel eldri."
Svar hefur ekki borist við
þessari málaleitan.
Nýtt skref í mennt-
unarmálum
Nýverið gerðu Félag tamninga-
manna og Bændaskólinn á Hól-
um með sér samning um mennt-
un reiðkennara og þjálfara og
sýningarmanna. Samkomulag
þetta var undirritað af Jóni
Bjarnasyni, skólastjóra á Hólum,
fyrir hönd skólans og Trausta Þór
Guðmundssyni fyrir hönd FT
með fyrirvara um að aðalfundur
staðfesti það. Samkomulagið var
borið undir aðalfund og sam-
þykkt þar.
Það hljóðar þannig:
Samningur um menntun tamn-
HEJTA-
MOT
KARI
ARNORS-
SON
Af stóbhestum HS
Hrossaræktarsamband Suður-
lands hefur tekib á leigu í hús-
notkun á næsta vori þrjá topp-
hesta. Það eru Gustur frá Hóli II,
Stígandi frá Sauðárkróki og Otur
frá Sauðárkróki. Hér er um skipti-
leigu að ræða. Við því er ab búast
ab mikil absókn verði í þessa
hesta. Gustur og Stígandi eru báð-
ir í éigu annarra hrossaræktar-
sambanda, en Otur er í eigu
Sveins Guðmundssonar. Allir eru
þessir hestar mjög umsetnir.
Þá hefur Hrossaræktarsambandið
keypt stóðhestinn Jó frá Kjartans-
stöðum.
Jór er undan Trostan frá Kjartans-
stöðum og Vöku frá Ytra-Skörðu-
gili. Hann stób efstur 5 vetra hesta á
landsmótinu 1994 og hlaut þá í að-
aleinkunn 8.32. Kynbótamat hans
er 126 stig.
Þeir hafa boðið öðrum sambönd-
um hlut í honum og Hornfirðingar
hafa þegar tryggt sér hlut. Hrossa-
ræktarsamband Eyfirðinga og Þing-
eyinga og Hrossaræktarsamband
Vesturlands munu vera að hugsa
Hrossaræktarsamband Suburlands hefur keypt Jó frá Kjartansstöbum.
Knapi: Þórbur Þorgeirsson.
sinn gang. Stóðhesturinn Kópur frá
Mykjunesi, sem verið hefur í eigu
Hrossaræktarsambands Suburlands
og Hornfirðinga, hefur verið seldur
Sigurbirni Báröarsyni. Hann er seld-
ur til geldingar vegna sjúkleika í
skaufa.
Ekki tímabært ab
samþykkja
Vegna fréttar af aðalfundi
Hrossaræktarsambands íslands skal
það tekið fram í sambandi við stóð-
hestastöðina, að fundurinn felldi
tillögu um að væntanlegt sameinað
samband hrossaræktenda tæki við
rekstri stöbvarinnar. Það var ekki
talið tímabært að gera slíka sam-
þykkt, bæði vegna þess að af sam-
einingunni er ekki enn orðið og
eins hitt að ekki væri hægt ab ganga
inn í sameiningu með slíkar kvaðir.
Fundarmenn voru hins vegar sam-
mála því að rekstur stóbhestastöðv-
ar yrði áfram í Gunnarsholti, þó
menn hefðu mismunandi áhersl-
ur varðandi verkefnið. ■
yfirfara og endurskoða reglugerð
og námskrá reglulega, minnst
einu sinni á ári, og gera tillögur
um nauösynlegar breytingar sem
miða að þróun og eflingu náms-
ins. Kennarar þeir sem sjá um
kennslu námsþátta, sem lúta
beint að reiðkennslu, skulu vera
gagnrýndir af Reiðkennslu-
nefnd."
Hólum, 1. desember 1995
F.h. Hólaskóla
Jón Bjamason
F.h. Félags tamningamanna
Trausti Þór Guðmundsson
Hér hefur náðst mjög merkileg-
ur áfangi í því að fá nám sem
varðar kennslu og störf í hesta-
mennsku viöurkennt í mennta-
kerfinu. Áfangi hafði áður náðst í
samvinnu Hólaskóla og Félags
tamningamanna er varðar nám
tamningamanna.
Þess er rétt að geta að þeir, sem
áöur hafa unnið til þessara rétt-
inda á vegum félagsins, halda
þeim óskertum. Áfram verður líka
boöið upp á námskeiö af svipuð-
um toga og það námskeiö, sem
lauk nú í lok nóvember og minnst
er á hér aö framan, meðan verið
er að þróa hiö nýja nám. Þannig
gefst þeim tækifæri á því að „-
hreinsa upp", eins og formaður
FT komst að oröi, en að öðru leyti
ná menn ekki þessum réttindum
nema með þessu námi við Hóla-
skóla.
Það er stefnt að því aö þetta
nám geti hafist í febrúar og þá
liggi fyrir nauðsynlegar reglugerð-
ir. Frumdrög að reglugerðum
liggja þegar fyrir, en Reiðkennslu-
nefnd verður að bregða skjótt við
og ganga frá endanlegri gerð
þeirra.
Það, sem er ekki síst merkilegt
við þetta samkomulag, er að
þarna er það viðurkennt að fag-
fólkið komi að mótun námsins
sem jafnframt felur í sér að
menntakerfið viðurkennir Félag
tamningamanna sem fagfélag.
Aðalfundurinn kaus eftirtalda
menn í Reiðkennslunefnd:
Trausta Þór Guömundsson og
Ólaf Hafstein Einarsson.
Trausti Þór Guömundsson var
endurkjörinn formaöur og aðrir í
stjórn eru Einar Öder Magnússon
varaformaður, Olil Amble gjald-
keri, Ólafur Hafsteinn Einarsson
ritari, Atli Guömundsson með-
stjórnandi.
Varamenn Sveinn Jónsson og
Freyja Hilmarsdóttir. ■
Af stöbinni
Stóðhestastöbin hóf starfsemi sína
1. nóvember, eins og skýrt hefur
verib frá. Nú þegar er allt komiö á
fulla ferð, fjöldi hesta á stööinni er
kominn yfir 30 og nokkrir hestar
munu bætast við á næstunni. Þab
verður því að grípa til þess ráðs að
bæta við mannskap, svo hægt sé ab
sinna öllum beiðnum. Um áramót-
in mun hestum fjölga enn, því vit-
að er að þá verður byrjað með
nokkra hesta sem komnir eru á
fimmta vetur. Af þeim hestum, sem
þegar er byrjað með, eru margir
spennandi, en tíminn mun leiöa í
ljós hvað í þeim býr. í þessari viku
mun Páll Stefánsson dýralæknir
koma í eftirlitsferb þar sem hann
mun athuga heiisufar hestanna. ■