Tíminn - 06.12.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.12.1995, Blaðsíða 6
6 arr . i ... mmmn Mi&vikudagur 6. desember 1995 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Listibnabarskóli á Biönduósi Hugmyndir eru uppi um að stofna listiðnaðarskóla á Blönduósi. Atvinnumálanefnd Blönduóss hefur bent á þenn- an möguleika og telur tilvalið að skólinn veröi í húsnæði Kvennaskólans, en þar sé til staðar ýmislegt sem nýst gæti slíkum skóla, t.d. bókasafnið og heimilisiðnaðarsafnið. Bæj- arráð hefur tekið jákvætt í þessar hugmyndir og ákveöið hefur verið að kanna mögu- leika á stofnun skólans. Hugmyndin mun hafa kviknab í Heimaiðjunni, fé- lagi handverkshóps í Austur- Húnavatnssýslu. Unnur Krist- jánsdóttir, fyrrverandi bæjar- fulltrúi á Blönduósi, hefur starfaö með handverkshópn- um, en hún á einnig sæti í at- vinnumálanefnd Blönduós- bæjar, og flutti Unnur tillögu í nefndinni varðandi málið. Atvinnumálanefndin lagði til að rábinn verði starfsmaður til að vinna að framgangi málsins og benti á Helgu Thoroddsen á Þingeyrum, sem hefur reynslu og þekkingu á þessu sviði, en Helga á sæti í handverksnefnd sem starfar á vegum forsætisráðuneytisins. Skúli Þórbarson, bæjarstjóri á Blönduósi, kvaðst búast viö að málinu yrbi komið á skrið meö því að óska eftir fundi með Helgu á Þingeyrum, en hins vegar væri að svo stöddu ekki hægt að segja til um hvort sérstakur starfsmaður yrði ráðinn til að vinna aö framgangi verkefnisins. Þess má geta að í allmörg ár hafa ráöamenn á Blönduósi horft til þess að skapa aukna starfsemi í húsnæði kvenna- skólans, en það hefur ekki ver- ið nýtt sem skyldi frá því að skólinn var lagður niður. Jafn- framt hefur einnig verib í gangi umræða á landsvísu um nauðsyn þess að stofna ein- hvers konar listaskóla, en sú umræða hefur ekki komist á það plan enn í hvaða formi og á hvaða skólastigi sú mennta- stofnun yrði, ef henni yrði komiö á laggirnar. FRÉTTIR VESTMANNAEYJUM Bæjarstjóri meb athyglis- verbar tillögur um félagslega íbúbakerfib: Allar íbúöirnar settar á almenn- an markaö Á fundi væntanlegra reynslusveitarfélaga fyrir skömmu kynnti Guðjón Hjör- leifsson bæjarstjóri hugmynd- ir sínar um breytingar á fé- lagslega íbúöakerfinu, sem miða að því að koma kerfinu út úr þeirri blindgötu sem það stefnir í. Vill Guðjón að íbúð- irnar verði settar á almennan markað, en með ákveðnum skilyrðum þó. Telur Guðjón að verði sú leið farin, sem hann bendir á, skapist mögu- leikar fyrir sveitarfélög og Byggingasjóð ríkisins að kom- ast undan innlausnarskyld- unni, sem er að sliga mörg sveitarfélög. „Ég geri mér ljóst að það verður erfitt fyrir Bygginga- sjóð að fá fjárveitingu til þess að færa félagslegar íbúðir nið- ur í markaösverð. Þó svo að það verði gert, eru allar líkur á því ab kerfiö springi eftir ein- hver ár, þar sem 90% lánsregl- an er við lýði og aðrar for- sendur, sem hafa gert það að verkum að verö félagslegra íbúða hefur hækkað meira en verð íbúða á almennum mark- aði," sagbi Guðjón. Megininntak í hugmyndum Guöjóns er að íbúðirnar verði settar á almennan markað með ákveðnum skilyrðum varðandi kaupsamning. Þær eru helstar að kaupandi þarf að eiga 10% kaupverðs, Bygg- ingasjóður láni 70% til 43 ára með 2,4% vöxtum og 20% verbi lánuö til 15 ára meb 2,4% vöxtum. Reyndar verður kaupverð íbúðanna hærra en á almenn- um markaði, en á móti kemur aö vextir eru lægri og afborg- anir verba lægri. Sem dæmi tók Guöjón um afborganir af íbúö sem seld yrði samkvæmt þessu kerfi á 8 milljónir, þá yrði greiðslubyrði lægri en af íbúð sem seldist á 5 milljónir á almennum markaði. Greiöslubyrði á 8 milljón króna íbúð yrði samkvæmt þessu 28.405 krónur í félags- lega kerfinu, en 48.240 á al- mennum markaði. Einnig yrði hagstæðara ab kaupa þessar íbúðir en ab leigja á almenn- um markaði. „Söluverð nálgast markaðs- verð á einhverjum árum, en núvirði greiðslnanna er tölu- vert lægra. Þannig verður í lagi ab endurselja íbúðina á hærra verði áfram, þó svo að hún fari á sölu eftir þrjú, fimm eöa tíu ár." Austurland ■ iUHlWIIJ.-WirM Heimavistir auka forskot í sam- keppni um ferba- þjónustu Bæjarstjórn Seyðisfjarbar hefur lagt til að greiðsluskipt- ingu vegna framhaldsskóla í Múlasýslum verði breytt frá því sem nú er í þá veru að heimasveitarfélögin, þ.e. þau sveitarfélög sem skólarnir eru í, greiði meira en verið hefur. Reyndar er aðeins samningur á milli sveitarfélaganna um Verkmenntaskóla Austur- lands, en tillögurnar sem sveitarstjórnir fengu í vor til umfjöllunar gera ráð fyrir að þær nái einnig til Mennta- skólans á Egilsstöðum. Til þessa hefur greiðsluhlutfall sveitarfélaganna verið miðað vib útsvarsstofn, en Seyðfirð- ingar vilja miða við íbúa- fjölda. Neskaupstaður greiðir nú þrisvar sinnum útsvarsstofn- hlut vegna Verkmenntaskól- ans áður en til skipta á milli annarra sveitarfélaga kemur. í tillögum bæjarstjórnar Seyðis- fjarbar er gert ráð fyrir ab heimasveitarfélögin greiði fyrst 24% af hlut sveitarfélag- anna og síðan skiptist þau 16% sem eftir eru á milli allra sveitarfélaganna, heimasveit- arfélaganna líka, í hlutfalli við íbúafjölda miðað vib 1. des. árið á undan. Þarna er miðað við að hlutur ríkisins verði 60% og sveitarfélaganna 40%. í rökstuðningi bæjarstjórnar Seyðisfjaröar kemur fram að þeir telja að heimasveitarfé- lögin hafi meiri tekjur og hag- ræðingu — í þessu tilfelli Nes- kaupstaður, þar sem enginn samningur er til um Mennta- skólann á Egilsstöðum — en sú skipting, sem nú er í gildi, gerir ráð fyrir. í rökstuðningn- um segir einnig að ætla megi aö beinar og óbeinar tekjur séu mun hærri en sem nemi greiðslum þeirra til viðkom- andi skóla. Með tilkomu heimavistanna fá þau sveitar- félög, sem um ræbir, gistirými á aðalferðamannatímanum, sem að stórum hluta er greitt af öðrum en þeim sem standa í feröaþjónustu á viðkomandi stöðum, og veitir þeim sveit- arfélögum forskot í sam- keppninni um ferðaþjónustu. Nýtt fréttablab: Vopnfirbingur Nýtt blað, Vopnfirðingur, óháb fréttablab, hefur hafib göngu sína. Komin eru út tvö tölublöð, en fyrirhugað er að blaðið komi út hálfsmánaðar- lega. Útgáfustjóri er Hafþór Róbertsson og er blaðið prent- ab í Hafþórsprenti. Ritstjóri er Sigrún Oddsdóttir kennari og sagði hún í viötali við Austra að blaðið hefði fengib góbar viðtökur. Aðaláhersla verður lögð á fréttir og fréttatengt efni, ýmsar frásagnir og við- töl. Einnig verða í blaðinu mataruppskriftir, íþróttaefni og fleira. Til aö byrja með veröur blaöib selt í lausasölu, en til greina kemur að bjóða upp á blaöið í áskrift síðar. Heimavistarhús Menntaskólans á Egilsstööum og Verkmenntaskóians í Neskaupstab. Einar Sigurösson landsbókavöröur (ímiöiö) tekur viö bókagjöfinni af dr. Franz Schmid sendiherra. T.v. er Árni Siemsen, rœöismaöur Austurríkis. Austurrísk bókagjöf til Landsbókasafnsins Þribjudaginn 21. nóvember sl. afhenti sendiherra Austur- ríkis, dr. Franz Schmid, Umferbin í mibbœnum fram ab jólum: Frítt í bíla- stæðahús á laugardögum Umferb verbur takmörkub um Laugaveg og Austur- stræti, dagana 9.-24. desem- ber næstkomandi, en eink- um má þó gera ráð fyrir lok- un þessara gatna laugardag- ana 9. og 16. desember, auk Þorláksmessu. Strætisvagnar og leigubílstjórar, sem erindi eiga í hús við göturnar, verba þó látnir njóta einhverra undanþága frá þessari reglu. Gjaldskylda í stöðu- og miðamæla verður á þessum tíma frá 10-18.00 mánudaga til föstudaga, en laugardag frá 10.00 til 14.00. Bílahúsin verða opin í samræmi við opnunar- tíma verslana gegn, eins og segir í tilkynningu frá borgar- stjórn og lögreglu, vægu gjaldi, eða 30 kr. fyrsta klst. og síðan 10 kr. fyrir hverjar 12 mínútur. Notkun bílastæðahúsa verður hins vegar gjaldfrí á laugardög- um í desember. Starfsfólk í miðbænum er hvatt til að leggja bílum sínum fjær en venjulega. -PS Leibrétting: Anna Berg meö 69 út- flutt hross í aukablabi Tímans um land- búnað var upptalning á þeim aðilum sem það sem af er þessu ári hafa flutt út hross. Þar var sagt að Anna Bera hefði flutt út 69 hross, en hið rétta er ab það er Anna Berg sem það geröi. Undirritaöur biðst velvirðingar, en bendir þó á sér til varnar að út úr gögnum frá Bændasamtökunum er ekki hægt að lesa annað en að kon- an heiti fyrrnefnda nafninu. -PS Landsbókasafni íslands — Háskólabókasafni bókagjöf frá menningardeild austur- ríska utanríkisráðuneytisins. Um er að ræða austurrískar bókmenntir og rit sem fjalla um Austurríki, land, þjóð og menningu, um hundrað og þrjátíu bindi, öll valin í samráði við kennarana í þýsku við Há- skóla íslands og fyrir meðal- göngu Ludwigs Siemsen, aðal- ræðismanns Austurríkis á ís- landi. ■ Lindab 11 ■ ■ ■ þakrennur sm Þola íslenskar Z veóurbreytingar; Þakrennukerfiö frá okkur er sam- ■ sett úr galvanhúöuöu plastvöröu J stáli. Þær hafa styrk stálsins og m endingu plastsins. Gott litaúrval. ■ Umboösmenn um land allt. ■ asmnnmm TÆKNIDEILD thls,k .../fc /VÍ.' ■ Smidshöfða 9 • 132 Reykjavík a Sími 587 5699 • Fax 567 4699 * 4 ■ ■ ■ I Lindab ■ ■ ■■> ÞAKSTAL „ Þak- og veggklæðning í H ■ mörgum útfærslum, t.d.: bárað,■ ■ kantað, þaksteinamynstur ofl. B Plastisol yfirborðsvörn klæðn- ■ ■ ingarinnargefur margfalda ■ endingu. m Fjölbreytt litaúrval. ■ Umboðsmenn um land allt. ■ qanEnamciaa ^^HDEiLDáfeA ^FtaaNG Z : jjk ■ Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík m ■ Sími 587 5699 • Fax 567 4699 * ♦■■■■■■■■■■■■■*‘

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.