Tíminn - 08.12.1995, Qupperneq 3
Föstudagur 8. desember 1995
3
Um 2.150 Bretar hingab í
1 dags feröir í nóvember
Tæplega 2.500 Bretar lögbu
hingaö leib sína í nóvember,
sem er mjög óvæntur fjöldi
m.v. árstíma og t.d. meira en
tvöföldun frá sama mánuöi í
fyrra. Enda var þessi hópur
um fjóröungur allra útlend-
inga sem komu til landsins í
mánuöinum. „Já, ég kann
skýringu á þessu. Þarna er um
aö ræöa alveg ótrúlega fjölgun
á eins dags feröum", sagöi
Magnús Oddsson feröamála-
stjóri. í nóvember heföu
heimsótt okkur um 2.150 gest-
ir frá Bretlandi, sem komu ab
morgni og fóru ab kvöldi, í
leiguflugi á vegum ýmissa er-
lendra aöila.
Þetta sé alveg nýr markhópö-
ur. Og þróunin viröist ör, því
þessum bresku dagsgestum hef-
ur fjölgað úr um 500 í sama
mánuði í fyrra í 2.150 nú, eða
meira en fjórfaldast.
Magnús segir þetta dæmi um
nýjan þátt í ferðaþjónustu í
heiminum, sem er mikil fjölgun
styttri feröa, þótt þessar séu
kannski í allra stysta lagi. Við
Skattleysismörk hœkka um 1600 kr. á mánuöi á nœsta ári vegna
skattfrelsis lífeyrisiögjalda. Hagdeild ASÍ:
Kaupmáttur lágtekju-
fólks eykst um 8%
I endurskobabri áætlun hag-
deildar ASÍ um þróun kaup-
máttar á samningstímanum
kemur m.a. fram aö hann
veröur rúmlega 8% meiri í
samningslok hjá Iágtekjufólki
meö um 60 þúsund krónur í
mánaðarlaun. Þessu til vib-
bótar mun hækkun skattleys-
ismarka auka kaupmátt ráb-
stöfunartekna um 1,5%, sé
miðab viö mebaltekjur innan
ASÍ.
Þetta kemur m.a. fram í frétta-
bréfi ASÍ sem helgað er niður-
stöðu launanefndar ASÍ og VSÍ
og mati á kaupmáttaráhrifum
kjarasamningsins aö teknu til-
liti til viðbótarsamkomulags um
desemberuppbót og yfirlýsingar
ríkisstjórnar frá 29/ nóvember
sl.
Þar kemur einnig fram aö
meö yfirlýsingu sinni hafi ríkis-
stjórnin komið verulega til
móts viö framkomna gagnrýni
verkalýöshreyfingar vegna
skeröingar á skattleysismörkum,
afnáms umsaminna hækkana á
atvinnuleysisbótum og bótum
almannatrygginga. Hagdeild
ASÍ telur að þessi stefnubreyting
stjórnvalda muni leiða til þess
aö atvinnuleysisbætur hækki í
samræmi viö kjarasamninga 1.
janúar n.k. um 2.700 krónur á
mánuði, eöa um 5,4%, og bætur
almannatrygginga þ.e. elli- og
örorkulífeyrir ásamt tekjutrygg-
ingu, um 3,5%. Þá munu skatt-
leysismörk hækka á næsta ári
um 1.600 krónur á mánuöi frá
því sem verið hefur í ár vegna
skattfrelsis lífeyrisiðgjalda. Þaö
mun þó vera um 450 kr. minni
hækkun en ef verötrygging per-
sónuafsláttar yrði óbreytt að
mati hagdeildarinnar.
Gert er ráð fyrir að þessar
skattalækkanir nemi alls um
1.350 milljónum króna, 1.100
milljónir á næsta ári og 250
milljónir 1997. Þá er talið að
breytingar á forsendum verð-
lagningar á grænmeti og afurö-
um svína og alifugla muni
styrkja verðlagsforsendur kjara-
samninganna og tryggja um
leið að kaupmáttur launa geti
áfram farið vaxandi. -grh
þekkjum þetta líka hér heima,
t.d. í því þegar fólk sé að hópast
í 4ra daga ferðir til Bahamaeyja
og helgarferðir til Evrópulanda.
Þessi fjórföldun dagsferða í nóv-
ember sé eigi aö síöur mjög sér-
stakt fyrirbæri.
Magnús segir þessa þróun þó
eiginlega bæði jákvæða og nei-
kvæða. „Það neikvæða er auð-
vitað það, að þessi gestir skuli
ekki dvelja hérna lengur". Það
sé engin gistinótt í þessu, þann-
ig að þessir gestir skilji tiltölu-
lega lítið eftir í landinu, m.v.
aðra ferðamenn. Þeir koma hér
að morgni, fara í skoðunarferð-
ir, borða og líta kannski í ein-
hverjar búðir og fara síðan heim
að kvöldi. Þessir eins dags hópar
koma einungis frá Bretlandi,
a.m.k. enn sem komið er. Nær
alla fjölgun erlendra ferða-
manna í nóvember má rekja til
fyrrnefndra hópa, auk talsverðr-
ar fjölgunar Bandaríkjamanna.
Aftur á móti voru Norðurlanda-
búar nú talsvert fleiri en fyrir
ári. Auk Norðurlandanna eru
aðeins fimm lönd sem eiga hér
yfir hundrað fulltrúa í dæmi-
gerðum vetrarmánuði. ■
Heimur Gubríbar:
Síbustu sýningar
Skrif Alþýbublabsins um Gubna Ágústsson úr-
skurbub í sibanefnd:
Hrafn fundinn sekur
Hrafn Jökulsson, ritstjóri Al-
þýðublaðsins, var í úrskurði
siðanefndar Blaðamannafélags
íslands í fyrradag talinn hafa
brotið ákvæði 3. greinar siða-
reglna félagsins. I blaði sínu
reyndi hann að gera Guðna Ág-
ústsson alþingismann að kyn-
þáttakúgara. Siðanefnd telur
brotið alvarlegt. Þriðja grein
fjallar umn vandaða upplýs-
ingaöflun, úrvinnslu og fram-
setningu auk tillitssemi í
vandasömum málum. Ritstjóri
og blaðamaður Helgarpóstsins
sluppu með skrekkinn.
„Hrafn Jökulsson hefur fengið
sinn dóm og er sekur fundinn
fyrir ómerkilegan fréttaflutning
og skýlaust brot á siðareglum
blaðamanna. Hann hefur oft á
tíðum sýnt aö hann vill reka has-
arblab þar sem öll mebul skulu
brúkuð til ab koma óorbi á pólit-
íska andstæðinga," sagði Guðni
Ágústsson, alþingismaöur í sam-
tali við Tímann í gær.
„Ég hef gert mitt til að koma
böndum á hrafninn. Yfirleitt
leiöir reynsla og mótlæti menn
til einhvers þroska. Ég vona að
það gerist með Hrafn Jökulsson.
Ég hef ekki verið með nein áform
um frekari málssókn og síður eft-
ir ab hans eigin stéttarbræður
hafa beitt vendinum og fallist á
meginrök minnar kæru. Eftir
stendur ab upplognar sakir
Hrafns Jökulssonar á hendur mér
og minni fjölskyldu eiga sér ekki
aðrar stobir en í skáldlegu hugar-
flugi ritstjórans. Von er að fugl-
inn láti illa í snörunni," sagði
Guðni í gær.
Guðni kvabst abspurbur una
því illa að Hrafn skuli í leiðara Al-
þýðublaðsins í gær bjóða sig vel-
kominn í félagsskap með Adolf
Hitler. „Þetta er andstyggileg
framkoma og óþverraháttur eins
og fyrri árásir á mig sem eiga ekki
vib rök að stybjast. Enn bætir
hann gráu ofan á svart. Mér sýn-
ist þetta orðiö að snúast upp í
mannlegan harmleik," sagbi
Guðni Ágústsson í gær. -JBP
Síbustu sýningar á leikriti Stein-
unnar Jóhannesdóttur Heimur
Gubríðar, síbasta heimsókn Gub-
ríbar Símonardóttur í kirkju Hall-
gríms, verba í Hveragerbiskirkju á
sunnudagskvöld, 11. des. kl. 21,
og í Saurbæ á mánudagskvöld,
12. des. kl. 21.
I.eikritið hefur verib sýnt við
góða aðsókn í Hallgrímskirkju í vet-
ur en leikhópurinn hefur einnig
farib með sýninguna í kirkjur úti á
landi. Var t.d. troðfullt hús í Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum en Gub-
ríður var úr Eyjum og henni rænt
þaðan á sínum tíma. Guðríður og
sr. Hallgrímur Pétursson áttu sín
bestu ár í Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd og var aðsókn svo mikil að
sýningunni þar að margir urbu frá
að hverfa. Hlutverkin skipa Helga
Helga Bachman leikur Guöríöi á eldri árum.
Bachman, Helga Elínborg Jónsdótt-
ir, Þröstur Leó Gunnarsson, Guöjón
Davíð Karlsson og Björn Brynjúlfur
Björnsson en Steinunn Jóhannes-
dóttir leikstýrir verkinu. Leikritib
var gefið út á bók en fyrsta prentun
er nú uppseld hjá útgefanda. Önnur
prentun er væntanleg. ■
Kristjana Bergsdóttir.
Landsmenn
öölist hlut í
einkavæbingu
Kristjana Bergsdóttir, varaþing-
mabur framsóknarmanna á
Austurlandi, hefur Iagt til að
einkavæbing ríkisfyrirtækja
fari fram á þann hátt ab fyrir-
tækjum í ríkiseign verbi fyrst
breytt í hlutafélög en síban
verbi öllum fjárrába íslending-
um afhentur endurgjaldslaust
jafn hlutur í hverju fyrirtæki.
Kristjana segir gagnrýnisvert að
við sölu ríkisfyrirtækja sé hags-
muna eigenda, þab er ab segja al-
mennings, ekki gætt nægilega
vel. Við þessu þurfi löggjafinn að
bregðast án þess að tekin sé af-
staða til einkavæðingar að öðru
leyti. Ljóst sé að almenningi sé
umhugað að aðferðir við einka-
væðingu verði endurskoðaðar
með hagsmuni hinna raunveru-
legu eigenda fyrir augum. Kristj-
ana segir sölu Lyfjaverslunar rík-
isins á síðasta ári vera dæmi um
hvernig stabið hafi verið að þess-
um málum. Markaðsverð hluta-
bréfa í versluninni hafi í upphafi
verið á genginu 1,34 en gengi
þeirra sé nú 2,0. Þannig hafi þau
hækkað um allt að 63,9% á innan
viö einu ári. Langir biðlistar hafi
myndast eftir bréfunum þar sem
um mjög hagstæð kaup hafi verið
ab ræða en þegnum jájóðarinnar
hafi á hinn bóginn gróflega verib
mismunað. Kristjana bendir á að
sú aðferö, sem hún hefur lagt til,
hafi verið notuð í allmörgum ríkj-
um og nefndi Bresku Kólumbíu
og Kanada auk ríkja í Austur-Evr-
ópu þar sem unnið hefur verið að
einkavæöingu að undanförnu.
Því eigi að vera auðvelt aö koma
þessu til framkvæmda hjá fá-
mennri en jafnframt vel upplýstri
þjóð. -ÞI
Hörö viöurlög viö stórfelldum eöa ítrekuöum ásetningsbrotum:
Allt að sex ára fangelsi
og milljónir kr. í sektir
Á næstu dögum mun sjávarút-
vegsrábherra leggja fram á Al-
þingi frumvarp til laga um bætta
umgengi um aublindir sjávar,
sem ab mestu byggir á frumvarpi
sem dagabi uppi á síbasta þingi.
Vib brotum á ákvæbum laganna
verbur beitt stigvaxandi refsiab-
gerbum. Sé um stórfelld eba ít-
rekub ásetningsbrot ab ræba get-
ur þab varbab allt ab 6 ára fang-
elsi. Þá geta sektir numib allt ab 8
milljónum króna.
Á blaðamannafundi í sjávarút-
vegsráðuneytinu í gær kom m.a.
fram að samstaba er um efni frum-
varpsins hjá hagsmunaðilinum í
Samstarfsnefnd um bætta um-
gengni um auðlind sjávar. Meðal
annars aflaði nefndin sér gagna
með viðhorfskönnum meðal sjó-
manna, en alls fengust svör frá 270
sjómönnum af 1.000 sem könnun-
in náði til.
í frumvarpinu er m.a. lagt til að
lögfest verði bann við að henda
fiski í hafið og bátum undir 20
tonnum verði bannab að stunda
netaveiöar frá 1. nó.vember til
febrúarloka ár hvert. Óheimilt
verður ab hefja veiöiferð nema að
kvóti sé fyrir hendi í þeim tegund-
um sem líklegt er talið að fáist í
túrnum og líklegum meðafla. Skylt
veröur að draga reglulega veiðar-
færi sem skilin eru eftir í sjó, auk
þess sem heimilt verður að draga
þau á kostnað eigenda. í ákvæðum
er lúta að vigtun sjávarafla er með
skýrari hætti en áður kveöið á um
skyldur og ábyrgð þeirra sem koma
að vigtun afla, s.s. skipstjóra, öku-
manna, starfsmanna hafnarvoga
og kaupendum. Þá er í frumvarp-
inu lagt til það nýmæli að óheimilt
veröur að landa afla í öðrum höfn-
um en þeim sem hafa fullnægjandi
vigtunarabstöðu.
Þá er í frumvarpinu kveðið mun
skýrar en verið hefur um viðbrögð
stjórnvalda vegna brota á lögun-
um. Meðal annars verður hægt að
svipta menn vigtunarleyfi og fisk-
markaði starfsleyfi vegna brota á
ákvæbum laganna. Auk þess er
stefnt ab því að skoða skipulag
veibieftirlitsins sérstaklega með það
að markmiði að gera þab skilvirk-
ara. Jafnframt á að kanna hvort
hægt sé að efla eftirlitið með auk-
inni samvinnu veiðieftirlits og
Gæslunnar.
-grh