Tíminn - 08.12.1995, Síða 4
4
Föstudagur 8. desember 1995
STOFNAÐUR 1 7. MARS 191 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: )ón Kristjánsson
Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 563 1600
Símbréf: 55 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Jæknideild Tímans
Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmiöja hf.
Mánaöaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Sögulegt afrek
Atlantshafsbandalagið er að taka miklum stakka-
skiptum og hlutverk þess að breytast. Með því að
taka að sér friðargæslu í óróaríkjunum á Balkanskaga
og senda þangað fjölmennt herlið eru samtökin að
breytast úr varnarbandalagi meðlimaríkjanna í
nokkurs konar alþjóðalögreglu.
Friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna hafa sinnt
slíkum hlutverkum víða um heim, en yfirleitt reynst
vanmáttungar þar sem þeim hefur verið meinað að
taka beinan þátt í hernaðaraðgerðum. Þann tíma
sem friðagæsla SÞ hefur verið til staðar í ríkjum fyrr-
um Júgóslavíu hafa stríðsaðilar farið sínu fram og
sýnt fámennum og vanbúnum hersveitum Sf> full-
komna fyrirlitningu.
Nú á að verða breyting á. Með nýgerðu friðarsam-
komulagi stríðandi fylkinga á Balkanskaga er gert ráð
fyrir að Nató taki við friðargæslu af SÞ. Og nú á að
gæta friðarins af hörku. Fjölmennt og vel vopnum
búið herlið verður sent til stríðshrjáðra héraða og
mun grípa til harðra gagnaðgerða ef stríðsherrarnir
gerast full bardagafúsir og fara um með ófriði.
Það eru ekki aðeins Natóherir sem gæta eiga friðar-
ins, heldur munu mörg önnur ríki senda liðveislu til
að halda uppi reglu og friði. Mörg fyrrum Austur-
Evrópuríki munu senda herlið sem verður undir
beinni yfirstjórn Nató. Er sú samvinna vissulega
mikil tíðindi.
En ef til vill sætir það hvað mestum tíðindum að
Rússar munu senda hermenn til gæslustarfa og þótt
þeir sætti sig ekki við að heyra beint undir yfirstjórn
Atlantshafsbandalagsins munu rússnesku hersveit-
irnar starfa náið með Natóhernum við að gæta friðar
og berja niður ófriðarseggi þegar og ef þeir láta á sér
kræla.
Víða gætir efasemda um að sú fjölþjóðasamvinna
sem nú hefur tekist um að verja friðinn á Balkan-
skaganum takist. Til dæmis þrjóskast Bandaríkjaþing
við að samþykkja að þarlendir hermenn verði sendir
til Bosníu. Og í Rússlandi telja margir þjóðernissinn-
ar að það sýni undirlægjuhátt að rússneskir hermenn
stafi með og jafnvel undir stjórn hershöfðingja Nató.
Enn er eftir að sýna sig hvort mikill herstyrkur Na-
tó og samstarfsríkjanna við friðargæsluna er þess
megnugur að stöðva ófriðinn milli stríðandi afla á
Balkan. Heiftin og hefnigirnin er rík meðal þeirra
sem deilt hafa með vopnum og friðasamningar eru
enn sem komið er pappírsgögnin ein.
Meðal stríðandi fylkinga eru vel vopnaðir og
þrautþjálfaðir bardagamenn, vanir skæruhernaði og
hvers kyns vélabrögðum. Og ekki er á það að treysta
að herflokkarnir lúti einni yfirstjórn né taki mark á
samningum.
Þegar Natóherir taka við af friðagæslusveitum SÞ
verður breyting á. Ef til árása kemur munu munu
nýju hersveitirnar snúast gegn þeim sem rjúfa frið-
inn af fullri hörku. Fari svo verður það í fyrsta sinn
sem Nató tekur beinan þátt í hernaðaraðgerðum og
það utan varnarsvæðisins sem samtökin voru mynd-
uð til að verja með þeim árangri að þar hefur ekki
þurft að grípa til vopna í hálfa öld.
Hvort Natóherinn á erindi sem erfiði á ófriðarbæl-
inu Balkanskaga má efast um á þessarri stundu. En
vonandi verður svo og þaö lofar góðu að nú hafa nær
öll Evrópuríki bundist samtökum um að stöðva ófrið
í álfunni og að Rússar og Atlantshafsbandalagsríkin
hafa snúið bökum saman til tryggja frið. Það eitt er
sögulegt afrek.
Verkalýðsbaráttan nýja
Atökin magn-
ast nú hratt í
verkalýös-
hreyfingunni
og áhrínsoröin
fljúga á milli
foringjanna
svo annaö eins
hefur ekki sést
um árabil.
Hreyfing, sem
allir voru
löngu búnir aö
sætta sig viö
aö væri oröin
aö steinrunnu
skriffinna-
trölli. „Við vildum ekki taka þátt í þessari upp-
skeruhátíð" er haft eftir Halldóri Björnssyni í
Mogganum í gær vegna þess að hann skrópaöi á
miöstjórnarfundi hjá ASÍ í fyrra-_________________
dag. Björn Snæbjörnsson Einingar- O/VRRI
Jakinn
°9
manns-
eyrað
Þessi forn-
gríski átaka-
formaður sagöist af sama tilefni_________
ekki hafa séö ástæöu til að mæta á
miðstjórnarfund vegna þess ágreinings sem upp
er kominn. Kristján Gunnarsson úr Keflavík sagði
hins vegar: „Ég hafði ekki geð í mér til aö fara á
miðstjórnarfund. Eftir aö hafa verið útnefndur
lýðskrumari í sjónvarpinu í gær af forseta Alþýöu-
sambandsins, þá held ég aö ég sé ekkert að blanda
geði viö hann á meðan ég er að jafna mig á þess-
um fréttum,"
Varnarræöa Bensa
En á miðstjórnarfundinum, sem svona margir
skrópuöu á, voru þó mættir nokkrir dyggustu
stuðningsmenn forsetans og virðast þeir hafa
safnast saman viö kvöldverðarborðiö og hlýtt á
lærimeistarann flytja varnarræöu sína, sem morg-
unblöðin bæði, Tíminn og Mogginn, birtu síðan í
heild sinni, rétt eins og um varnarræðu Sókrates-
ar hafi verið aö ræða. Þar ber forsetinn af sér sakir
og hefur mikla gagnsókn, ekki síst gegn Hlíf í
Hafnarfirði og Sigga Th. Hlíf var nefnilega búið aö
senda frá sér ályktun um að segja ætti upp launa-
samningum, ef launanefndin gæti ekki samiö um
almennileg kjör. Nú er Siggi í Hlíf kominn í þann
kór sem segir að launanefndin hafi ekki haft um-
boð til að semja um kjörin — og þessa mótsögn
dregur Bensi byggingamaður fram af fullum
þunga í varnarræðu sinni.
leikur hófst
svo í enn nýj-
ar hæðir með
því leikræna
sjónarspili,
sem sett var á
svið í Bíóborg-
inni hjá Dags-
brún í gær.
Gvendur jaki, sem er nánast samkvæmt skilgrein-
ingu óvinur Bensa númer eitt, jós olíunni nær lát-
laust á eldinn í áhrifamiklum einþáttungi, sem að
_____________vísu hefur heyrst áður og verður sí-
fellt líkari því að verið sé að spila
rödd Jakans af segulbandi með
rafhlöðum. Er nú
erfiðleik-
nanast tomum
svo komið að tíðnisvið mannseyrans á
um með að skynja bassadrunurnar, sem frá Guð-
mundi koma, nema þegar hann endrum og sinn-
um brýnir upp raustina og flýgur áttund upp
tónskalann og hljómar eins og það sem menn
venjulega kalla strigabassa. En meira að segja Jak-
inn ræður ekki lengur alveg sínu liði og ASI-átök-
in teygja sig inn í Dagsbrún, eins og upphlaupið í
Bíóborginni í gær sannar.
Það er því greinilega ekki ofsögum sagt á forsíðu
Tímans í gær að það „hrikti í stoðum ASÍ", því
verkalýðshreyfingin er loksins komin í stríð. Stóri
gallinn er hins vegar sá, að hún er komin í borg-
arastríð þar sem innbyrðis átök hafa gengið svo
langt að trúlega verður að klára slaginn til þess að
nokkur von geti orðið um friö.
En á meðan verkalýðshreyfingin berst á bana-
spjótum situr Sesar atvinnurekandanna, Þórarinn
Viðar, í heiðurssæti sínu í Colosseum og horfir
glaður á. Eftir áratuga skriffinnsku og hagfræð-
ingaleik verkalýöshreyfingarinnar hefur hún nú
loks gripið til aðgerða og baráttu. Vinnuveitend-
um er það að sjálfsögöu fagnaðarefni að úr því að
slík barátta gaus upp, skuli hún ekki hafa beinst
gegn þeim nema að takmörkuðu leyti. Hugtakið
verkalýðsbarátta hefur því öðlast nýtt inntak og
vísar til baráttu verkalýðsins við verkalýðinn.
Garri
Velmegun jólasveinanna
Hátíö ljóss og friöar, sálmasöngs
og ofáts nálgast óðfluga. Þá höld-
um við kristnir menn upp á af-
mæli frelsarans, sem fæddist í
jötu og fékk dýrindis gjafir sem
vitrir menn og forríkir gáfu hon-
um.
En af því að ekki eru lengur tök
á því að gefa Jesúbarninu flottar
gjafir á afmælinu, vegna þess að
enginn veit hvert á aö senda þær,
þá fá bara einhverjir aðrir gjafirn-
ar í fínum umbúðum og í stað
þess aö vitringarnir frá Austur-
löndum komu með sínar gjafir
færandi hendi er nú prentuð for-
skrift til hægðarauka: Til: Bjössa.
Frá: Bjögga og Stínu. Og allir fá
svo eitthvað fallegt, eins og stend-
ur í sálminum.
Á hinum síðari og bestu tímum er gjafaúrvaliö
góöu heilli orðið talsvert betra en þegar þeir austur-
lendingar tóku kúrsinn á stjörnuna á úlföldum sín-
um árið 0 með gull, reykelsi og myrru í farteskinu.
Allt fyrir alla
Og mikiö er þægilegt að fá allar þær góöu leiðbein-
ingar um hvað á að gefa ættingjum og vinum í jóla-
gjöf. Það sér ekki í Moggann fyrir ráðgjöf um hvað sé
jólagjöfin í ár. í útvörpunum öllum er þulin þula um
hvaða bók allir krakkar óska sér aö fá, hvaða bók á að
gefa unglingunum, hvaða bók mamma vill, og svo er
þaö bókin hana pabba og bókin handa afa og bókin
handa ömmu og Sigga og Gunnu. Svo er hægt að
velja úr stórspennandi klámsögum eftir stórgáfaöar
skáldkonur handa elskunni sinni og svona má lengi
telja. í sjónvörpunum eru heilu prógrömmin um all-
ar þær bækur sem eru jólagjöfin í ár.
Þá eru það allar hinar sortirnar af gjöfum, sem lýst
er sem hinni einu og sönnu jólagjöf. Bunan stendur
út úr loftmiðlunum um þær og inn á heimilin berast
litfagrar sérútgáfur frá alls kyns verslunarfyrirtækjum
r;-' í' .
kJ Wl-v.,
V' v '
. m
JT
Á víbavangi
og er innstreymið um bréfalúgurn-
ar af glansmyndum jólagjafanna
orðið svo magnað að gluggapóstur-
inn týnist í herlegheitunum og fer
með bunkunum út í ruslatunnu.
Þaö eitt gerir jólaundirbúninginn
hjá sumum talsvert léttbærari.
Allur þessi sérkennilegi jólapóst-
ur er svo rosalega meiriháttar að út-
gáfur áuglýsingablaðanna eru enn-
þá fínni en nokkur jólabók, meira
að segja flottari en jólatrén eftir að
búið er að hengja á þau skrautið.
Kaupa núna og borga
löngu, löngu seinna
Af því að jólin eru til að gleðja
sjálfan sig og aðra, er aldrei of
miklu til kostað að gera þau sem
gleöilegust. Og mörgum verður glatt í sinni, þegar
það upplýkst hvílíkrar ofgnóttar gjafa og munaðar í
mat, drykk, mublum og fatnaði við eigum eftir aö
njóta á jólum. Auglýsingatæknin sér til þess aö eng-
inn þarf aö eiga í vandræöum meö hvaö á að kaupa,
vandamálið er miklu fremur hvaö á ekki að kaupa.
Ekki stendur heldur á aö fjárhagurinn þurfi að vera
kaupgleöinni fjötur um fót. Nýtt kortatímabil er haf-
iö, svo að ekkert þarf að borga fyrr en komiö er langt
fram á næsta ár. Og meö raðgreiðslum er hægt að
draga borgun fram undir aldamót.
Og ofan á alla þá dýrö sem hægt er að kaupa hér,
eins og auglýsingarnar allar sanna, eru Dublin og all-
ar hinar borgirnar í örskotsfæri og þar er nú heldur
ekkert slor að versla, en það er önnur saga.
Öll jólagjafadýröin sýnir og sannar aö hér ríkir vel-
megun og kaupgetan hlýtur að vera óskapleg.
Eða hver borgar annars auglýsingakostnaöinn á
öllum jólavarningnum og fyrirganginum til aö halda
upp á afmæli Jesú? Þaö gera jólasveinarnir, hinir einu
og sönnu.
OÓ