Tíminn - 13.12.1995, Qupperneq 3

Tíminn - 13.12.1995, Qupperneq 3
Miðvikudagur 13. desember 1995 3 Bœjarstjórn Húsavíkur: Tannlæknamir ekki saman í meirihluta Talið er að meirihluti bæjar- stjórnar Húsavíkur muni starfa áfram en mjög hrikti I samstarfi framsóknar- og al- þýðubandalagsmanna í síð- ustu viku og um tíma leit út fyrir að meirihlutasamstarf væri að myndast á milli framsóknar- og sjálfstæðis- manna. Ástæður átakanna í bæjar- stjórninni var tillaga frá Stef- áni Haraldssyni, fyrsta manni á lista framsóknarmanna, þess efnis að sameina bæri útvegs- fyrirtækin Höfða og Fiskiðju- samlag Húsavíkur. Stefán flutti tillöguna án samráðs við samstarfsflokk sinn og greiddu bæjarfulltrúar sjálfstæðis- manna henni atkvæði en bæj- arfulltrúar hins meirihluta- flokksins greiddu henni ekki atkvæði og kváðust ekki sjá neinn tilgangi í þeim vinnu- brögðum sem verið væri að viðhafa. Sameining fyrirtækj- anna hefur verið á dagskrá bæjarstjórnar um nokkurt skeið og á raunar rætur að rekja aftur til samstarfs fram- sóknar- og sjálfstæðismanna á síðasta kjörtímabili. Fannst bæjarfulltrúum framsóknar- manna að alþýðubandalags- lönnemar styöja upp- sögn samninga: / ASI sýpur seyðið af lé- legum samn- ingum Kjaramálanefnd Iðnnema- sambansins þyrkir það afleitt að ekki hafi verið betur samið í síbustu kjarasamningum, núna sé Alþýbusambandib ab súpa seybið af þeim gjörbum. Kjaramálanefndin hefur lýst yfir stuðningi við aðgerðir verkalýðsfélaganna fimm, sem standa að uppsögn kjarasamn- inga. Segja iðnnemar að úr- skurður launanefndar sé ekki á nokkurn hátt í samræmi við yf- irlýsingar forystu ASÍ, þegar vissir aðilar í þjóðfélaginu tóku að skammta sér laún og hafa fullyrt að ekkert hafi verið til skiptanna. Nefndin kveðst hafa áhyggjur af „ístöðuleysi forustu Alþýðu- sambandsins gagnvart vilja launafólks og þess skilningsleys- is á kjörum alþýðu í landinu sem forustan hefur sýnt". -JBP menn væru seinir til fram- kvæmda við sameininguna en oddviti þeirra í bæjarstjórn- inni er Kristján Ásgeirsson sem einnig gegnir framkvæmda- stjórastarfi hjá Höfða. Tillaga Stefáns Haraldssonar var því fyrst og fremst fram komin til þess að ýta undir framkvæmd- ir við sameininguna en ekki til þess að efna til nýs meirihluta bæjarstjórnar þótt hætta virt- ist á slíku um tíma. Til gamans má geta þess að ekki er langt á milli oddvita framsóknar- og sjálfstæðismanna, þeirra Stef- áns Haraldssonar og Sigurjóns Benediktssonar, því þeir eru báðir tannlæknar á staðnum og reka stofur í sama húsinu. -ÞI Gjafir til Bosníubarna „ Þaö streyma til okkar gjafirnar, fallega innpakkaöar og merktar, þaö er áreiöanlega kominn flugvélarfarmur og vel þaö," sagöi Ástþór Magnússon hjá Peace 2000 samtökun- um ígcer. íslensk börn eru aö gefa leikföng til jafnaldra sinna í stríöshrjáöu landi. Flogiö veröur 21. desember til Saraje- vo. Á myndinni er Harpa Karlsdóttir aö taka á móti gjöfum íslenskra barna í Kolaportinu ígcer. Tímamynd: cs Velgengni verktaka velt- ur á Columbia-álverinu Nýtt álver Columbia á Grund- artanga er forsenda þess ab hagur verktaka og vinnuvé- lagaeigenda batni til muna, ab sögn Kristínar Siguröar- dóttur, framkvæmdastjóra Fé- lags vinnuvélaeigenda. „Komi einungis til viðbótin við álverið í Straumsvík verðum við í sömu sporum," segir Krist- ín, „þar sem boðaður niður- skurður í framkvæmdum sem kemur þar á móti er svo mikill, auk þess sem sveitarfélög virðast ætla að halda mjög að sér hönd- um á næsta ári." Þetta kom m.a. fram á fundi Félags vinnuvélaeigenda sem haldinn var um helgina, en þar gerðu forsvarsmenn helztu verkkaupa á landinu grein fyrir horfum í jarðvinnu og öðrum framkvæmdum á næsta ári. „Það kom frarn hjá borgar- stjóranum í Reykjavík á þessum fundi að af hálfu borgarinnar væri að því stefnt á næsta ári að halda framkvæmdum í sama horfi og á þessu ári, en aukning- ar væri ekki að vænta. Vega- málastjóri sagði ab um veruleg- an samdrátt yrði að ræða hjá Vegagerðinni ef fjárlagafrum- varpið yrði afgreitt eins og það liggur fyrir, en hann benti á ab þessi mál væru enn í óvissu þar sem enn væri ekki búið að gera út um málið. í máli vegamála- stjóra kom fram að hann hefði orðiö var við miklaí áhyggjur manna úti um land af því ab samdrátturinn verði mjög harð- ur þar," segir Kristín Sigurðar- dóttir og bætir því við ab mest af fyrirhuguöum vegafram- kvæmdum sé á höfuðborgar- svæðinu. „Þær framkvæmdir yrðu þá í kringum álverið í Straumsvík og göngin undir Hvalfjörð, ef þau koma. Göngunum mundu þá fylgja vegatengingar sem kæmu þó ekki til framkvæmda á næsta ári heldur þar næsta," segir Kristín. „Horfur hjá verktökum og vinnuvélaeigendum eru bjart- astar hvað varðar Landsvirkjun. Forráöamenn Landsvirkjunar telja ab vegna stækkunar álvers- ins í Straumsvík verði nokkur aukning á framkvæmdum, en það koma fram að framkvæmd- ir við hugsanlegt álver Colum- bia-fyrirtækisins á Grundar- tanga muni færast fram fyrir stækkunina í Straumsvík vegna þess að Columbia ætlar að opna fyrr," segir Kristín Sigurðardótt- ir framkvæmdastjóri Félags vinnuveitenda. -Á.R. Hvar er fíkni- efnaskýrslan? Svanfríður Jónasdóttir, þing- mabur Norðurlands eystra, spurði á Alþingi á föstudag um hvab liði gerb skýrslu um notkun fíkniefna sem beðið hafi verib um, en vegna þess hversu beibnin snerti marga aðila í stjórnkerfinu þá var spurningunni beint til for- sætisráöherra. Beiðnin hafi komið fram á Alþingi um miðjan október en ekkert bólaöi enn á svari eba vitaö væri um hvort svara væri að vænta. Davíð Oddsson, forsætisráð- herra sagði að beiðnin hafi ver- Flugfélag Noröurlands: Hefur áætlunarflug til Kulusuk Fyrsta áætlunarflug Flugfélags Norðurlands til Grænlands verður í dag en þá fer Metro skrúfuvél félagsins frá Kefla- vík til Kulusuk á Grænlandi. Flugfélag Norðurlands hefur að undanförnu stundað leigu- flug á þessari flugleið og farið með hópa ferbamanna til Kul- usuk. I tengslum við þær ferðir hef- ur verið boðið upp á þyrluflug til Ammassalik en ekki er vega- samband á milli þessara staða. Sömu sögu er að segja varðandi áætlunarflugið, sem nú er að hefjast, því Grænlandsflug mun halda uppi þyrluflugi á milli Kulusuk og Ammassalik í tengslum vib ferðir Flugfélags Norðurlands. Fyrst um sinn veröur flogib einusinni í viku frá Keflavík og verður farib á miðvikudögum en gert er ráb fyrir að flogið verbi á fimmtu- dögum í febrúar og á mánudög- um og fimmtudögum þegar kemur fram í mars. Þá er einnig áformað að fljúga frá Reykjavík í sumar í stab Keflavíkur. -ÞI ið mjög viðamikil og flókin og því mikið verk að vinna þær upplýsingar sem beðið hafi ver- ið um. Ekki væri fyrirsjáanlegt að unnt væri að sinna því verk- efni nema á lengri tíma og því hafi hann ritað forseta Alþingis bréf varðandi þetta efni og óskað viðræðna um hvernig að þessu yrði staðið. Davíð sagði að ráðuneyti hafi ákveðin frest til þess að veita svör við fyrir- spurnum og í ljósi umfangs þessa máls hefði verib ófram- kvæmanlegt að vinna það inn- an þeirra tímamarka. Olafur G. Einarsson, forseti Alþingis, upplýsti að hann hefði meðtek- ið umrætt bréf en viðræðum um efni þess væri ekki lokiö. Páll Pétursson, félagsmálaráð- herra, sagði ab þarna væri um mjög viðamikið og jafnframt alvarlegt mál að ræða og ljóst væri að mikla vinnu þyrfti til þess að svara þeim spurningum sem fram hafi komið til fulls. Páll varpaði því fram að ef til vill væri naubsynlegt að efna til starfshóps til þess að fjalla um þetta mál. Ólafur G. Einarsson sagði að fljótlega yrði efnt til umræbna um málið á Alþingi. -Þ1 Frekari aögeröir gegn ósoneyöingu á 10. afmœl- isári Vínarsáttmálans: Ósonlagiö aldrei þynnra en nú Ósonlagib hefur aldrei mælst þynnra en nú og gatib yfir suðurskautinu hefur aldrei verið stærra og langlífara en í ár. Aö sögn umhverfisráöu- neytisins má búast við ab þessi öfugþróun haldi áfram í einhvem tíma áður en alþjób- legar aðgerbir fara ab skila ár- angri, vegna þeirra efna sem þagar hafa borist út í and- rúmsloftið. Á fundi í Vín sem lauk 7. des sl. náðist samkomulag um ab- geröir sem styrki enn frekar al- þjóðlegar samþykktir um vernd- un ósonlagsins. Minnst var 10 ára afmælis Vínarsáttmálans um vernd ósonlagsins en þá samþykktu þjóðir heims ab draga úr notkun ýmissa óson- eyöandi efna s.s. í úðabrúsum og kælibrúsum. Nú náðist samstaða á milli iönríkja og þróunarríkja að tak- marka enn frekar notkun vetn- isflúorkolefna (HCFC) og metýl- brómíðs. Sigurbjörg Gísladóttir, for- stöðumaður hjá Hollustuvernd ríkisins, var fulltrúi íslands á fundinum í Vín. -BÞ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.