Tíminn - 13.12.1995, Page 9
Mi&vikudagur 13. desember 1995
wWllfllW
9
CEISLADISKAR
wHin mesta vandvirkni"
í skugga Morthens
Bubbi Morthens
Skífan 1995
„Aldrei, aldrei mátti annað sjást en
.hin mesta vandvirkni, hverjar sem
aðstæður voru. Látum okkur þetta
verða fyrirmynd, hvort sem við er-
um dægurlagasöngvarar, húsmæð-
ur, veðurfræðingar eða eitthvað
annað." Þannig lýkur Trausti Jóns-
son veðurfræðingur ávarpsorðum
sínum um Hauk Morthens í geisla-
bók þessarar plötu, eftir að hafa út-
skýrt meö hvílíkri alúð og virðingu
Haukur umgekkst lífsstarf sitt.
Segja má að Bubbi Morthens hafi
haft þessi frýjunarorö Trausta að
leiðarljósi á þessari plötu sem hann
gefur út í minningu og til heiðurs
Hauki frænda sínum, en á plötunni
syngur Bubbi þrettán lög sem urðu
fræg í flutningi Hauks. „Hin mesta
vandvirkni" einkennir allt á þessari
plötu: sönginn hjá Bubba, hljóð-
færaleikinn, upptöku og hljómgæði
og umslag og ytri búnað allan.
Meira að segja nafn plötunnar er
valið af mikilli vandvirkni, því það
segir ótrúlega margt um plötu af
þessu tagi. Bubbi hlýtur alltaf að
standa í skugga Hauks þegar hann
syngur „lögin hans".
Enda kemur á daginn að ef und-
an er skilin upptökutækni, þá bætir
Bubbi litlu við það sem gamli mað-
urinn gaf þessum frægu lögum, þó
þau verði óhjákvæmilega öðruvísi í
meðförum hans. Hið hrokalausa
nafn plötunnar gerir hlustandan-
um líka auðveldara fyrir að sætta sig
við að Bubbi ljái þessum perlum
Hauks nýjan „bubbískan" blæ.
Viðkvæmasta og vogaðasta uppá-
tæki þessarar plötu er trúlega sam-
söngur Bubba og Hauks í laginu
Borg mín borg, en þar syngur Bubbi
á móti Hauki og raddar með honum
þetta fræga lag með hjálp nútíma-
tækni. Þessi samsetning hefur trú-
lega kostað talsverða yfirlegu, en
niðurstaðan er í raun mun betri en
búast hefði mátt við. Þetta er mjög
smekklega gert, gefur laginu nýjan
karakter og verður það ferskasta á
plötunni.
Lagavalið á plötunni er — fyrir
utan þessa útsetningu á Borg mín
borg — ekki óþarflega ögrandi
gagnvart aðdáendum Hauks og það
vekur t.d. athygli að lög eins og Til
eru fræ eru ekki með. Hins vegar lög
eins og Brúnaljósin brúnu, Þrek og
tár, Lóa litla á Brú o.fl. sem hafa ver-
iö sungin af öðrum en Hauki í gegn-
um árin. Þessi lög eru öll stórvel út-
sett og flutt á þessari plötu með
þéttum, hljómmiklum og fagmann-
legum hljóðfæraleik undir öruggri
sögn Bubba.
I skugga Morthens er því vönduð
plata í alla staði, áferðarfalleg og
mjög áheyrileg. Hins vegar er áber-
andi að Bubbi passar sig að stíga
varlega til jarðar, sökum virðingar
fyrir minningu frænda síns. Fyrir
vikið verður þessi plata ekki eins
átakamikil og plötur þar sem Bubbi
er bara hann sjálfur.
-BG
Personulegur
og tregafullur
Clebifólkiö
KK
Japis 1995
Þessi nýja plata KK virðist koma í
eðlilegu — jafnvel þægilegu —
framhaldi af fyrri plötum hans.
Stíllinn er mjög áþekkur og hljóm-
urinn kunnuglegur. Þó má e.t.v.
finna persónulegri undirtónn nú
en áður. Þennan persónulega tón
má m.a. merkja af textum plöt-
unnar, þar sem í nánast öllum
þeirra er aö finna fyrstu persónu
frásögn: „Ég hlýt að geta bjargað
mér / og fundið einhver ráð."
(1,2,3, fjór)
Á sama hátt og textar plötunnar
eru persónulegir má segja það
sama um tónlistina sjálfa, því KK
gefur sér talsvert svigrúm til að
bregða út af sínu fræga „lestarbíti"
með ýmsum tilbrigðum og sveita-
tónlistarstemningin kemur sterk-
lega fram víöa, ekki síst fyrir til-
stilli fiölunnar. Þá kemur hið gull-
fallega rólega lag „I think of ang-
els", sem Ellen Kristjánsdóttir
syngur sterkt inn í þetta samhengi.
Almennt kemur fram áberandi
tregi á plötunni, sem ítrekar þá
persónulegu eiginleika sem áður
hafa veriö nefndir, og eitt sterkasta
lag plötunnar — sem raunar er í
tveimur svipuðum útsetningum á
plötunni — lagið Grand hótel I og
II, er gott dæmi um það. Lagið
sjálft er þrungið trega og textinn
myndrænn, þannig aö þó hann sé
ekki auðskilinn er auðvelt að
skynja tregann eins og oft er með
vel heppnuð ljóð.
Hljóðfæraleikurinn og hljómur-
inn á þessari plötu er í háum
gæöaflokki eins og búast mátti við,
en KK sjálfur er þar í stóru hlut-
verki með gítarinn, ekki síst í
„instrumental" Tunglskinsvalsin-
um.
Hafþór Ólafsson (Súkkat) syngur
eitt lag á þessari plötu og rífur
þannig dálítið „KK-hljóminn" í
heildinni, því söngstíll Hafþórs og
Súkkats er mjög sérstakur og þrátt
fyrir allt ólíkur KK. Það er ekki
sjálfgefið að þetta hafi verið góð
hugmynd, þó svo að meö þessu
hafi fjölbreytni plötunnar aukist.
Loks verður ekki hjá því komist
að lýsa vonbrigðum með að í ann-
ars ágætri geislabók með textum
skuli ekki hafa verið prófarkalesið
betur. Þar úir allt og grúir í kjána-
legum mál- og stafsetningarvill-
um. Þegar jafn stór hlutur og
vandaður geisladiskur er í húfi, eru
svona hlutir alger óþarfi og skrifast
á Myndasmiðju Austurbæjar, sem
hannar umslagið.
í heildina er þessi nýi diskur
hinn besti áheyrnar og skemmti-
lega persónulegur.
Ævintýrið um landkönnuö-
inn mikla
Nokkuð er farið að fenna yfir
minningu Vilhjálms Stefáns-
sonar landkönnuðar, og yngra
fólk kannast varla við hann
nema af afspurn. En um miðja
öldina var Vilhjálmur þekktur
og dáður hér á landi, margar
bóka hans mikið lesnar, en er-
lendis hefur hann ávallt verib
vel metinn sem vísindamaður
og nafn hans tengt heimskauta-
ferðum og vísindaafrekum.
Nú er tími til kominn að rifja
upp afrek Vilhjálms, sem fædd-
ur var af íslenskum foreldrum
vestanhafs og er því alíslenskur,
þótt hann hafi alið aldur sinn í
Ameríku.
Út er komin ný ævisaga Vil-
hjálms eftir William R. Hunt, en
hún er rituð árið 1986. íslensku
Vilhjálmur og Evelyn Stefánsson.
Fréttir af bókum
þýðingunni, sem Björn Jónsson
gerði, fylgir kafli eftir ekkju Vil-
hjálms, Evelyn Stefánsson Nef.
Þar rekur hún kynni sín af Vil-
hjálmi og segir frá hjónabandi
þeirra og samskiptum, skap-
gerðareinkennum manns síns
og þeirri persónu sem hún
kynntist öbrum betur.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, ritar formálsorð.
Margar myndir eru til skýr-
ingar efni bókarinnar og landa-
kort sem sýna ferbir hans um
norðurslóðir. ■
Jólahlaðborð
í hádeginu og á kvöldin alla daga fram til 2. janúar
SJÁVARRÉTTIR
Kryddsíld með lauk og eggi* Marineruð síld með
lauk • Karrýsíld með grænmeti • Reyksoðinn fískur með
graslaukssósu • Sjávarréttasalat • Graflax • Reyktur lax
Grásleppuhrogn • Sardínur • og fleira
KJÖTRÉTTIR
Hangikjöt • Reykt grísakjöt • Lambasteik • Grísasteik með
puru • Lifrarkæfa og paté • Pottréttir með gæsa- anda- eða
hreindýrakjöti • Reyksoðinn lundi og svartfugl • Kaldreykt
lambacarpacio • Litlar kjötbollur • Tartalettur • og fleira
EFTIRRÉTTIR
Jólasmákökur • Amerísk ávaxtakaka • Ris a la mandel • o.fl.
Verð í hádeginu kr. 1.650- en kr. 2.550 á kvöldin.
Vinsamlega pantið tímanlega í síma
5050 925 og 562 7575
Jólaheimur Hótel Loftleiða erfyrirþig og alla fjölskylduna.
Jólasöngvar og lifandi tónlist hljóma alla daga og skapa
hina réttu jólastemningu.
Sunnudagana 10 og 17 desember klukkan 14:00
verður jólaball fyrir alla fjölskylduna.
: Jólasveinninn kemur með pakka handa börnunum.
SCANPÍC
LOFTLflBIR
Jólaheimur út affyrir sig
Matargestir eru sjálfkrafa þátttakendur í ferðahappadrætti.
-BG