Tíminn - 19.12.1995, Page 7

Tíminn - 19.12.1995, Page 7
Þri&judagur 19. desember 1995 7 UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND Cennadí Zjúganov, leibtogi rússneska Kommúnistaflokksins, hrósar sigri fyrir framan sjónvarpsmyndavélarnar í gœr, skömmu eftir ab fyrstu tölur úr kosningunum höfbu borist. Niöurstööur rússnesku þingkosninganna smám saman aö koma í Ijós: Kommúnistar hrósa sigri Moskvu — Reuter Ljóst er aö rússneski Komm- únistaflokkurinn var sigurveg- ari þingkosninganna á sunnu- daginn, en þegar taldar höfðu verið 26 milljónir atkvæða, eða 38% þeirra sem kusu, höfðu kommúnistar hlotið 21,8%. Næstir á eftir þeim kemur flokkur öfgasinnans Vladimirs Zhirinovski, Frjáls- lyndi lýðræðisflokkurinn, með 11,1% atkvæða. Þetta eru þó aðeins bráða- birgðaniðurstöður og geta at- kvæðatölur breyst allnokkuð þegar líður á talninguna, en endanlegra talna er ekki að vænta fyrr en eftir nokkra daga. Samkvæmt þessum niður- stöðum náðu einungis fjórir flokkar að komast yfir 5% markið, sem er nauðsynlegt til þess að koma manni á þing. Hinir tveir flokkarnir eru flokkur Viktors Tsjernómyrdín forsætisráðherra, Heimili okk- ar Rússland, með 9,7% at- kvæða, og Jabloko, sem er frjálslyndur umbótaflokkur Franz Vranitsky, kanslari Aust- urríkis, átti erfitt með að hemja kæti sína vegna þess ár- angurs sem hann nábi í þing- kosningunum í Austurríki um helgina. Fylgi vinstri manna hafði fariö stöbugt minnkandi í 16 ár og fyrir kosningarnar nú um helgina var allt útlit fyrir að framhald yrði á þeirri þróun. Og framtíðarhorfur Vranitskys sjálfs í pólitík voru ekki góðar. Allt benti til þess að sigurvegari kosninganna yrbi Jörg Haider og Frelsis- flokkur hans, sem er flokkur þjóðernissinnaðra hægri- manna sem hafa lagt áherslu á málflutning gegn útlending- um. Grígorís Javlinskí, með 8,4%. Þeir flokkar, sem ná yfir 5% markið, skipta á milli sín 225 af 450 þingsætum Dúmunnar, neðri deildar rússneska þings- ins, en hinum 225 þingsætun- um sem eftir eru er úthlutað til þeirra einstaklinga sem fá flest atkvæbi í einmenningskjör- dæmum. Engar tölur höfðu enn borist um niðurstöður í einmenningskjördæmunum í gær þegar Tíminn fór í prent- un. „Þetta eru alvöru kommúnistar" Rússneski Kommúnista- flokkurinn hefur lýst því yfir að hann ætli að endurreisa Sovétríkin, hægja á efnahags- umbótunum og tryggja fólki aftur það öryggi sem það bjó við áður en Sovétríkin hrundu. Þeir ætla að nibur- greiða verblag og auka fjárfest- ingu til að efla framleiðsluna, en hafa þó ekki lýst neinum hugmyndum um þab hvernig þeir hyggjast fjármagna þessar En það óvænta gerbist, Jafn- aðarmannaflokkur Vranitskys hlaut 38,3% atkvæða og 72 þingsæti af alls 183, og telst því ótvíræður sigurvegari kosninganna. Þetta er sjö þingsætum meira en hann hlaut í síðustu þingkosning- um. Frelsisflokkurinn hlaut 22,1% atkvæða og 41 þing- sæti, sem er litlu minna en hann hlaut síöast. Skoðana- kannanir höfðu bent til þess að hann gæti fengið um 25% atkvæða, svo ljóst er að úrslit- in hljóta að valda nokkrum vonbrigðum í herbúðum Hai- ders, enda þótt flokkur hans sé enn þriðji stærsti stjórnmála- flokkur landsins og ekkert sem bendir til þess að hann fari að aðgerðir. Þó er ljóst að þeim hefur tek- ist að höfða til verulegs hóps kjósenda, þeir virðast vera að segja það sem fólk vill heyra. Að því leytinu leika þeir sama leik og Zhirinovski lék fyrir fjórum árum, en þá tókst honum að afla þjóðernisflokki sínum 22,9% atkvæða meö því að lofa róttækum breyting- um og heita því að enginn skyldi fá að vaða yfir rúss- nesku þjóbina. Sá boðskapur gengur hins vegar ekki lengur í fólk, sem hefur fengið nóg af óörygginu og umrótinu, og horfa nú margir með söknuði til Sovétríkjanna sálugu. Rússneski kommúnista- flokkurinn virðist eiga fátt sameiginlegt með kommún- istaflokkum í öðrum fyrrver- andi austantjaldsríkjum, þar sem þeir hafa einnig unnið hvern kosningasigurinn á fæt- ur öðrum, en hafa yfirleitt hafnað öllu afturhvarfi til for- tíðarinnar og hyggjast taka þátt í umbótastarfinu af heil- um hug. Öbru máli gegnir um leggja upp laupana á næst- unni. Vonbrigða gætti einnig í herbúðum Þjóðarflokksins, en hann hlaut 28,3% atkvæða sem er örlítið meira en í síð- ustu kosningum. Þjóðarflokk- urinn, sem er flokkur íhalds- manna, hefur lagt áherslu á að gera þurfi strangar efnahags- aðgerðir hið fyrsta og sleit stjórnarsamstarfi sínu við Jafnaðarmannaflokkinn vegna ágreinings í efnahagsmálum. Þeir sem mestu töpuðu í kosningunum eru smáflokk- arnir, flokkar græningja og frjálslyndra. Ljóst er að stór hópur kjósenda hefur ákveðið að greiba heldur Jafnaðar- mannaflokki Vranitskys at- rússneska kommúnista. „Við þurfum að taka kommúnist- unum með varúð. Þeir segja eitt við fréttamenn, annað við okkur, enn annab við Zhir- inovskí og fjórðu útgáfuna við Vesturlönd," segir Vladimir Lukin, einn af leiðtogum Ja- bloko. „Þetta eru alvöru kommúnistar." Ljóst er að kommúnistar verða langstærsti flokkurinn í Dúmunni. Hins vegar er Dú- man valdalítil stofnun, forset- inn og ríkisstjórnin hafa miklu meiri völd í raun. Því er líklegt að það sé fátt sem þeir geta gert á þingi í andstöbu vib ríkisstjórn og forseta. Kommúnistaflokkurinn er hins vegar vel skipulagður og hefur innan sinna vébanda hálfa milljón meðlima. Næsta skref þeirra verður því ab taka þátt í forsetakosningunum, sem fram eiga að fara í júlí á næsta ári. Fullvíst er talið að Zjúganov hyggist bjóða sig fram til forseta þegar þar ab kemur. kvæbi sitt en smáflokkunum, væntanlega í því skyni að reyna að koma í veg fyrir sigur Frelsisflokksins. „Margir kjós- endur studdu Jafnaðarmanna- flokkinn, sem hafa aldrei greitt honum atkvæði sitt áður og munu sennilega aldrei gera það aftur," sagbi Wolfgang Bachmayer hjá kosningastofn- un Austurríkis. „Þeir studdu Jafnaðarmannaflokkinn ein- göngu í því skyni að koma í veg fyrir að Haider kæmist í ríkisstjórn." Samningaviðræður eru þeg- ar hafnar um myndun nýrrar samsteypustjórnar Jafnaðar- mannaflokksins og Þjóðar- flokksins. Gonzalez veröur í kjöri Felipe Gonzalez, forsætisráð- herra Spánar, hefur ákveðið að bjóða sig fram í kosningunum í mars á næsta ári, en óvissa hafbi ríkt um hvort hann hyggðist gefa nýjum manni kost á ab taka við leiðtogaembætti Sósíal- demókrataflokksins ábur en að kosningum kæmi. Eftirlitsmenn segja kosningarnar frjálsar og sanngjarnar Óháðir alþjóblegir eftirlitsað- ilar, sem fylgdust með fram- kvæmd þingkosninganna í Rússlandi, hafa lýst því yfir að kosningarnar hafi í stórum dráttum verið bæði frjálsar og sanngjarnar. Reyndar hafi átt sér stab einstaka frávik frá því, en á heildina litið væri um mikla framför að ræba frá síðustu þingkosningum í landinu, sem fram fóru árið 1993. „Kosning- arnar sýna að lýðræði í Rúss- landi er öflugra en nokkru sinni fyrr, enda þótt það sé enn ekki fyllilega traust í sessi," sagði William Taft, frá Alþjóðastofn- un Repúblíkana í Bandaríkjun- um. „Þátttakan er meiri en í kosningunum fyrir tveim árum, sem sýnir að traust almennings á stofnunum lýðræðisþjóðfé- lagsins er að aukast." Aö komast í eölilegt horf Franskt þjóðlíf er smám sam- an ab færast í eðlilegt horf eftir þriggja vikna verkföll sem höfðu meira og minna Iamað allar samgöngur í landinu. Mikil ólga er þó enn undir niðri og verka- lýbsleibtogar hafa varað við því ab verkalýðsátök geti sem hæg- ast blossað upp að nýju eftir ára- mótin. „Ef þeir (ríkisstjórnin) láta ekki af þeirri iðju sinni ab gefa fyrirtækjunum gjafir undir því yfirskini að verið sé að auka atvinnu ... gæti allt farið í loft upp," sagði Louis Viannet, en hann er leiðtógi CGT þar sem kommúnistar fara með stjórn. Indónesía og Ástralía gera öryggissamning Indónesar og Ástralir undirrit- uðu í gær öryggissamning, sem báðir aðilar vonast til að geti dregið úr gagnkvæmri tor- tryggni sem löngum hefur verið á milli þeirra. Samkvæmt samn- ingnum er stefnt að því að auka hernaðarsamvinnu ríkjanna. Það voru utanríkisráðherrar ríkj- anna, Ali Alatas frá Indónesíu og Gareth Evans frá Ástralíu, sem undirrituöu samninginn, en viðstaddir vom Paul Keating for- sætisráðherra Ástralíu og Su- harto, forseti Indónesíu. Til hemaðarátaka kom milli ríkj- anna tveggja snemma á sjöunda áratugnum. Sáttaviöræöur Hamas og PLO í gær hófust í Kaíró í Egypta- landi sáttaviðræður milli full- trúa Palestínsku sjálfsstjórnar- svæðanna og Hamas, skæruliða- hreyfingar bókstafssinnaöra múslima. Þetta eru fyrstu opin- beru sáttaviðræður þeirra frá því að PLO samdi um frið vib ísra- elsstjórn árið 1993. Fulltrúar PLO vonast til þess ab þeim tak- ist að fá Hamas til þess aft lýsa því yfir formlega aft skærulifta- hernaði samtakanna á hendur Ísraelsríki sé lokift og aft þau muni í framhaldi af því taka þátt í fyrstu kosningunum sem fara eiga fram á sjálfsstjórnarsvæð- unum í Palestínu þann 20. janú- ar nk. ■ Vranitsky kanslari sigrar í þingkosningunum í Austurríki. Crœningjar og frjálslyndir tapa: Erfiö stjórnarmyndun framundan Vínarborg — Reuter

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.