Tíminn - 19.12.1995, Side 13
Þri&judagur 19. desember 1995
13
Tunglferbin sem
ekki tókst
Apollo 13 ★★★1/2
Handrit: William Broyles, Jr. og Al Rein-
ert.
Leikstjóri: Ron Howard.
Abalhlutverk: Tom Hanks, Kevin Bacon,
Bill Paxton, Gary Sinise, Ed Harris og
Kathleen Quinlan.
Háskólabíó.
Öllum leyfb.
Eftir að þeir Neil Armstrong
og Buzz Aldrin höföu stigið fæti
á tunglið í elleftu Apolloferð-
inni misstu Bandaríkjamenn á-
hugann á tunglferðum. Þegar
lagt er af stað í þá þrettándu er
áhugi þeirra í algjöru lágmarki. í
þeirri för eru Jim Lovell
(Hanks), Fred Haise (Paxton) og
Jack Swigert (Bacon). Allt geng-
ur ab óskum í fyrstu, en þegar
sprenging verður í súrefnistanki
geimfarsins skapast neyðará-
stand í orðsins fyllstu merk-
ingu. Til að geimfararnir þrír
komist heilir á húfi til jarðar
þarf að leysa mýmörg tæknileg
vandamál á stuttum tíma. Vís-
indamennirnir á jörðu niðri
þurfa að „spila af fingrum
fram", því ekkert þessu líkt
hafði gerst áður. Það reynir
einnig á þjálfun og tæknikunn-
áttu þremenninganna, sem
hvað eftir annað þurfa ab glíma
við ótrúlegustu vandamál. Þeg-
ar fréttist af vandræðum geim-
faranna er áhugi Bandaríkja-
manna vakinn og allur hinn
vestræni heimur fylgist síðan
með fréttum af því hvort tekst
ab koma þeim til jarðar.
Þaö vita líklega allir hvernig
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
þetta endaði allt saman, en með
frábæru handriti og leikstjórn
verður útkoman engu að síður
mjög spennandi og áhrifarík,
sérstaklega þegar líða tekur á
myndina. Tæknilegum vanda-
málum er gert hátt undir höfði,
en samt þannig að allir skilji
hvab við er að glíma, og mann-
legu hliðinni er einnig komið til
skila. Það er auövelt aö spila inn
á tilfinningar áhorfenda, sem
skynja allir einveru þremenn-
inganna órafjarri heimahögun-
um, en þetta er gert á smekkleg-
an hátt og án allrar væmni.
Helsti gallinn er hins vegar að
lopinn er teygður ansi mikið í
byrjun og hefði mátt stytta
þann kafla myndarinnar og
þétta þannig frásögnina.
Leikararnir eru síðan hver
öðrum betri með Tom Hanks
fremstan í flokki, en bæði Kevin
Bacon og sérstaklega Bill Paxton
sýna einnig stjörnuleik.
Apollo 13 er stórmynd í flesta
staði og það er nokkuð öruggt
að einhverjir af aðstandendum
hennar eiga eftir að fá styttur af-
hentar á næstu Óskarsverð-
launahátíb. Myndin er enn
sýnd á fimm-sýningum í Há-
skólabíó.
W Framsóknarflokkurínn
Jólaalmanak SUF
Eftirtalin númer hafa hlotib vinning í jólaalmanaki SUF:
1. desember 4541 3602
2. desember 881 1950
3. desember 7326 3844
4. desember 4989 6408
5. desember 3105 6455
6. desember 4964 3401
7. desember 6236 4010
8. desember 19 1284
9. desember 1776 7879
10. desember 2532 6046
11. desember 3595 117
12. desember 5582 4585
13. desember 1234 2964
14. desember 1598 902
15. desember 3840 4685
16. desember 5748 6053
17. desember 6521 4094
Allar nánari uppiýsingar veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 562 4480.
Samband ungra framsóknarmanna
Jjl Venjum unga
hestamenn
strax á að
N0TA HJÁLM!
UÉUMFERÐAR
Uráð
(--------------------------------------------------------
. u*
Ástkær eiginmabur minn og faðir
Þórir Jón Gu&laugsson
Vo&múlastö&um
verbur jarbsunginn frá Vobmúlastabakapellu fimmtu-
daginn 21. desemberkl. 14:00.
Minningarathöfn verður í Akureyrarkirkju mibviku-
daginn 27. desember kl. 13:30.
V
Anna María Gubmann
Þórey Lísa Þórisdóttir
Söngkonan, leikkonan, umhverfissinni á vegum SÞ og sjónvarpskynnirinn fíflast viö snyrtiboröiö meö dóttur
sinni.
Mæðgur
í París
Olivia Newton-John er fræg
um gervallan hnöttinn, enda
geislandi og frískleg söng- og
leikkona. Þaö varð heldur ekki
til að varpa skugga á ljóma
söngkonunnar þegar henni
tókst að yfirvinna brjósta-
krabbamein — sumir segja
með óbilandi bjartsýni.
Sjálf lítur hún fyrst og fremst
á sig sem móður, en hún á eina
níu ára gamla stúlku aö nafni
Chloe. Þegar Olivia hafði rétt
lokið upptökum á Songs from
Heathcliff ásamt Cliff Richard
í Bretlandi, skrapp hún til Par-
ísar ásamt dóttur sinni þar sem
hún kynnti nýjustu plötu sína,
Gaia: One Woman's Journey.
Platan er afrakstur tveggja
ára vinnu, sem hófst eftir að
Olivia fór í velheppnaða að-
gerð þar sem unniö var á
krabbameininu. Hún einangr-
abi sig á búgarði sínum í þessi
tvö ár og á þeim tíma skrifabi
hún einlægustu og tilfinninga-
ríkustu texta sína til þessa.
„Ég held að þaö sem fékk
mig til að taka upp þessa plötu
hafi verið verðmæti einfald-
leikans, náttúmnnar og mann-
legra samskipta, sem hafa mun
í SPEGLI
TÍIVIANS
meira gildi en efnislegir hlutir
og peningar," segir þessi efn-
aða kona í einlægni. „Þessi lífs-
speki kemur mjög greinilega
fram á Gaia."
Sé tillit tekið til þeirra áfalla
sem Olivia hefur orðið fyrir,
krabbameinsins og skilnaðar-
ins vib eiginmann sinn, Matt
Lattanzi, fyrir ári síðan, verður
að segjast að lífsspeki hennar
ætti að vera öðru fólki hvatn-
ing.
■
Chloe fœddist innan hjónabands þeirra Oliviu New-
ton-John og Matt Lattanzi.
Þaö er eitt hlutverk sem Olivia setur ofar öörv í irfi
sínu — aö vera móöir níu ára dóttur sinnar.