Tíminn - 05.01.1996, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.01.1996, Blaðsíða 3
Föstudagur 5. janúar 1996 3 Evrópusambandsstaöall um ferskleika matvöru. Erna Hauksdóttir, framkvœmdastjóri SVC: Óttast að heil- brigöisyfirvöld veiti ekki aðhald Menntamálarábherra skobar bakstur nemenda í Foldaskóla í Sandholtsbakaríi í Grafarvogi í gær, þar sem hon- um voru afhentir bœklingarnir. Meb honum á myndinni er Stefán Sandholt bakari og tveir nemendur Foldaskóla. Tímamynd: CS lönfrœösluverkefniö INN gefur út kynningarbœklinga um iönnám: Þörf á aö kynna ungu fólki atvinnulífið Evrópusta&lar um ferskleika fæ&unnar í verslununum, vinnslustö&vum og veitinga- stö&um á íslandi eru þessa dag- ana a& ver&a a& veruleika. Erna Hauksdóttir hjá Sambandi veit- inga- og gistihúsaeigenda segir a& veitingamenn eigi nú aö vera komnir af sta& me& sitt eigi& innra eftirlit meö ferli matvörunnar. Hún segir a& Evr- ópusta&allinn sé til góöa þrátt fyrir lítt vinsæla skriffinnsku sem þessu fylgir. Allt mi&ar a& ferskleika, gæöum og hollustu matvælanna. Reglugerbin segir Vélstjórafélag Isafjaröar: Áleið úrASÍ Margt bendir til þess aö Vél- stjórafélag ísafjar&ar sé á leiö úr ASÍ yfir í Vélstjórafélag ís- lands, en félagsmenn í Vél- stjórafélagi ísafjar&ar eru tæp- lega 40. A nýafstöðnum aöalfundi Vélstjórafélags íslands var sam- þykkt aö ganga til samstarfs viö Vélstjórafélag ísafjarðar um sameiginlegan rekstur styrktar- og sjúkrasjóöa og orlofsheimila- sjóða félaganna. Jafnframt var ákveöið aö Vélstjórafélagið veiti Vélstjórafélagi ísafjaröar þá fé- lagslega þjónustu sem Alþýöu- samband Vestfjaröa hefur ann- ast fyrir félagið á undanförnum árum. Það felst m.a. í almennu skrifstofuhaldi, gerö kjarasamn- inga ásamt annarri margþættri aðstoð viö félagsmenn í Vél- stjórafélagi ísafjaröar. Samskonar tillaga um sam- starf viö Vélstjórafélag íslands haföi áður verið samþykkt hjá Vélstjórafélagi ísafjaröar. Reikn- aö er meö að atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna Vélstjórafé- lags ísafjaröar um úrsögn félags- ins úr ASÍ fari fram innan tíðar. -grh a& séu menn ekki búnir a& koma á sínu innra eftirliti, þá missi þeir veitingaleyfin. Ný matvælareglugerö ESB gekk í gildi í byrjun síðasta árs og á núna að vera komin í gang hjá fyrirtækjunum eftir nokkurn að- lögunartíma. Reglugerðin fjallar um meðferð matvæla allt frá upp- hafi og þar til fæðan er komin á diska neytenda. Gengur hún meðal annars út á innra eftirlit veitingastaða. Veitingamenn hafa sótt tveggja daga námskeiö SVG í innra eftirliti. Meiningin er að þegar viðkom- andi heilbrigðisyfirvald kemur í heimsókn sjái það svart á hvítu að innra eftirlitið er í fullum gangi. Matvælafræðingar hafa líka verið fengnir til að gera úttekt á fyrir- tækjum að undirlægi fyrirtækj- anna sjálfra. „Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík hefur því miður verið afskaplega lélegt. Sem dæmi um það er að Heilbrigðiseftirlitið kom síðast á Hótel Sögu árið 1989 til að taka sýni. Ég verð að segja það að ég óttast að heilbrigðisyfirvöld víða um land muni ekki sýna nægjan- legt aðhald gagnvart þessum nýju reglum. Fyrirtæki sem fara að lög- um hafa ekkert aö fela í þessu, en það eru til alls konar sleðar. Til dæmis fólk sem er að útbúa veislumat í heimahúsum, kjöllur- um og bílskúrum. Það er lögbrot, en á því er ekki tekið," sagði Erna Hauksdóttir. - JBP Aöstoöarmaöur forsœtis- ráöherra: Eyjólfur hættir Eyjólfur Sveinsson hefur látið af starfi sínu sem aðstoðarmað- ur forsætisráðherra, en hann hætti um áramót. Samkvæmt upplýsingum ráöuneytisins hef- ur ekki verið ráðinn annar í Eyj- ólfs stað. -PS Iönfræ&sluverkefniö INN hef- ur gefiö út þrettán bæklinga me& upplýsingum um nám í jafnmörgum iöngreinum. Bæklingunum ver&ur dreift til nemenda 9. bekkjar og er þeim ætlaö a& au&velda nem- endum a& gera i&nnám a& raunhæfum kosti í námsvali sínu. Iðnfræðsluverkefnið er skammstöfun á: Iðnaður, nem- endur, nýsköpun. Verkefnið er hugsað sem ein leið til aö breyta viðhorfum nemenda til iðn- náms og iðnaðarstarfa. Að verk- efninu standa Menntamála- ráðuneytið, Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur, Samtök iðnaðarins og fræðslusamtök atvinnurek- enda og launþega í iðnaði. Menntamálaráðuneytið styrkti útgáfu bæklinganna sem voru afhentir menntamálaráð- herra formlega í gær. Við þaö tækifæri sagði Ingi Bogi Boga- son hjá Samtökum iðnaðarins að mikil þörf væri á því að kynna unglingum íslenskt at- vinnulíf. I mörgum tilfellum hefðu þeir óskynsamlegar fyrir- myndir að heiman og skólakerf- ið veitti enn sem komiö er mjög takmarkaða fræðslu um at- vinnumál. Byrjað er á því að gefa út bæk- linga um þrettán iðngreinar úr sex ólíkum iðngreinaflokkum. Menntamálaráðherra sagðist í gær eiga von á að útgáfunni yrði haldið áfram enda heföi vel tekist til með þennan fyrsta áfanga. Þær iðngreinar sem kynntar eru í fyrstu bæklingun- um eru: Bókband, stálsmíði, tannsmíði, rafeindavirkjun, raf- virkjun, matreiðsla, framleiösla, rennismíði, netagerð, snyrti- fræði, málaraiðn, húsasmíði og fataiðn (störf klæðskera og kjólasaumara). í bæklingunum er kynnt starfssvið viökomandi iðnaðarmanna, kröfur, nám og möguleikar á framhaldsmennt- un auk þess sem bent er á þá aö- ila sem geta veitt nánari upplýs- ingar. -GBK Guömundur Þ. jónsson formaöur löju: Fremur kosið ný störf Gu&mundur Þ. Jónsson formab- ur I&ju, félags verksmi&jufólks segir aö út af fyrir sig séu Akur- eyringar vel a& því komnir a& fá gott fyrirtæki noröur, eins og sælgætisgeröin Opal er. Hins- vegar hef&i hann viljab a& þessi störf yröu áfram sunnan hei&a og ný störf sköpub nyr&ra. Hann segir að framtíð starfs- manna Opals muni væntanlega skýrast á næstu dögum, en vissulega sé kvíði meðal þeirra vegna þess ástands sem skapast hefur í þeirra málum. Á undan- förnum misserum hafa um 100 manns verið að jafnaði á at- vinnuleysiskrá hjá Iðju, félagi verksmiðjufólks. -grh Deilt um hvort fyrirvari í samningi T.R. viö Lœknafélagiö eigi viö um segulómtœki Lœknisfrœöilegrar myndgreiningar. Birna Jónsdóttir: Segulómrannsóknir eru ekki ný starfsemi Ágreiningur Tryggingastofn- unar ríkisins og læknanna sem reka Læknisfræ&ilega myndgreiningu (LM) snýst um þa& hvort fyrirvari í rammasamningi Trygginga- stofnunar og Læknafélags Reykjavíkur eigi vi& um rann- sóknir me& segulómtæki sem LM hefur fest kaup á. Birna Jónsdóttir geislagreininga- læknir segir svo ekki vera og þa& séu skýr brot á samningi T.R. vi& LM a& grei&a ekki fyr- ir rannsóknirnar. Karl Steinar Guðnason, for- stjóri Tryggingastofnunar, vísar til samnings Tryggingastofnun- ar við L.R. þar sem fram kemur sá fyrirvari að hann nái ekki til nýrrar starfsemi lækna sem hafi hærri stofnkostnað en nemur venjulegum stofnkostnaði lækningastofu, nema samþykki Tryggingastofnunar komi til. Hann telur að rannsóknir meö segulómtæki Læknisfræðilegrar myndgreiningar falli undir þennan fyrirvara. Birna Jónsdóttir, sérfræðingur í geislagreiningu og ein þeirra sem stendur að Læknisfræðilegri myndgreiningu, er á öðru máli. Hún segir tvær ástæður vera fyr- ir því að fyrirvarinn eigi ekki við. „í fyrsta lagi eru segulómrann- sóknir ekki ný læknastarfsemi. Tryggingastofnun hefur í þrjú ár keypt þessa þjónustu af öðmm aðila. I öðru lagi er þetta mjög hagstæður stofnkostnaður fyrir lækningastofu sem er fullkom- lega eðlilegt að sérfræðingar í geislagreiningu reki." Birna bendir á ákvæði í samn- ingi LM við T.R. þar sem segir að ný verk verði ekki tekin upp á meðfylgjandi skrá nema með samþykki samráðsnefndar T.R. og L.R. „11. og 12. grein skrárinnar fjalla um segulómrannsóknir. Þannig að segulómrannsóknir eru ekki nýjar á skránni. Það er þess vegna ekki vafamál aö meö því að greiða ekki fyrir þessar rannsóknir er Tryggingastofnun að brjóta samninginn," segir Birna. Um þetta atriöi segir Karl Steinar hins vegar að þótt segu- lómrannsóknir komi fram í gjaldskrá samnningsins hafi það ekki falið í sér fyrirheit um að greiða fyrir slíkar rannsóknir. Tryggingastofnun ríkisins hefur sagt upp samningnum við LM en samkvæmt ákvæði hans gengur sú uppsögn ekki í gildi fyrr en um næstu áramót. Segulómrannsóknir koma í staðinn fyrir röntgenmyndatök- ur að verulegu leyti, að sögn Birnu. Þó er reiknað með að mest fækkun verði í tölvusneiö- myndum. „Segulómrannsókn er betri að því leytinu að við hana eru ekki notaðir neinir röntgengeislar eða aðrir orkumiklir geislar, þannig aö hún er hættulaus. Það er heilsupólitískt sjónarmið að nota eins lítið af orkumiklum geislum og hægt er. Auk þess gefa þessar útvarpsbylgjur og það segulsviö sem er notað til að mynda sjúklinginn okkur ná- kvæmari mynd af ýmsum vefj- um en nokkur eldri aðferð gat gert. Segulómrannsókn er besta aðferð sem hefur verið fundin upp sl. 100 ár til að taka myndir af lifandi manneskjum." Einingaverð fyrir segulóm- rannsóknir er um 24-25 þúsund krónur sem er hærra en fyrir tölvusneiðmyndarannsókn. Birna segir það skýrast af tvennu: „Við reiknum ekki með því að koma jafn mörgum sjúklingum í gegnum þetta tæki á hverjum degi og tölvusneibmyndatækib. Auk þess var tölvusneiömynda- tækið mun ódýrara." Byrjað verður að nota tækiö strax í næstu viku. Þótt ágrein- ingurinn hafi ekki verið leystur verða sjúklingar aðeins krafðir um sinn hluta samkvæmt samn- ingnum, sem er 900 krónur. Þeir þurfa ekki að óttast endurkröfu hvernig sem deilan viö T.R. fer að sögn Birnu. -GBK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.