Tíminn - 11.01.1996, Síða 9
Fimmtudagur 11. janúar 1996
9
Lífeyrissjóðurinn Framsýn
Nýr lífeyrissjóður hefur nú verið stofnaður, Lífeyrissjóðurinn Framsýn.
Frá og með 1. janúar 1996 hefur hann tekið við réttindum og skyldum sex
lífeyrissjóða, sem eru þessir:
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar, Lífeyrissjóður Hlífar og
Framtíðarinnar, Lífeyrissjóður Sóknar, Lífeyrissjóður verksmiðjufólks,
Lífeyrissjóður Félags starfsfólks í veitingahúsum og Almennur lífeyrissjóður
iðnaðarmanna. Þessir lífeyrissjóðir hafa nú allir hætt starfsemi sinni og
sameinast í hinum nýja lífeyrissjóði.
I lok árs 1995 er hrein eign Lífeyrissjóðsins Framsýnar um 26 milljarðar
króna. Virkir sjóðfélagar eru um 28.000 talsins og 90.000 einstaklingar eiga
réttindi í sjóðnum, er hann því fjölmennasti lífeyrissjóður landsins.
Að Lífeyrissjóðnum Framsýn standa eftirtalin félög:
Verkamannafélagið Dagsbrún, Verkakvennafélagið Framsókn,
Verkamannafélagið Hlífj Verkakvennafélagið Framtíðin, Starfsmannafélagið
Sókn, Iðja - félag verksmiðjufólks, Félag starfsfólks í veitingahúsum,
Bakarasveinafélag Islands, Bifreiðastjórafélagið Sleipnir, Félag hárgreiðslu-
og hárskerasveina og Vinnuveitendasamband íslands.
Með stofnun Lífe)'rissjóðsins Framsýnar er lagður grunnur að öflugum
lífeyrissjóði sem tryggja skal sjóðfélögum sínum besta mögulegan lífeyri
samfara markvissri ávöxtun iðgjalda og hagkvæmum rekstri.
Stœrð er siyrkur!
LIFEYRISSJÓÐURINN FRAMSÝN
Skrifstofa Lífeyrissjóðsins Framsýnar er að Suðurlandsbraut 30,108 Reykjavík. Skrifstofan er opin frá kl. 9 til 17 alla virka daga. Sími: 5334700. Fax: 5334705. Kt.: 561195-2779.