Tíminn - 11.01.1996, Blaðsíða 10

Tíminn - 11.01.1996, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 11. janúar 1996 Framsóknarflokkurinn Heimsóknir þinqmanna B" ' ’ Framsoknar- I T, ^ % Á flokksins í ■ Siv Reykjanesi WÁf m J * Hjálmar Dagana 8.-16. janúar 1996 munu þingmennirnir Siv Friðleifsdóttir og Hjálmar Árnason heimsækja félög og stofnanir í Reykjaneskjördæmi. Nánari upplýsingar veröa veittar hjá formönnum félaganna á hverjum staö. Vinsamlegast hafiö sam- band viö þá ef óskaö er eftir upplýsingum. Stjórn KFR Suburland Guöni ísólfur Gylfi Almennir stjórnmálafundir veröa haldnir sem hér segir: 1. Fundur aö Skógum, Austur-Fyjafjallahreppi, miðvikudaginn 10. janúar kl. 15.00. 2. Fundur aö Ströndinni í Vík miðvikudaginn 10. febrúar kl. 20.30. 3. Fundur að Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri, fimmtudaginn 11. janúar kl. 21.00. Alþingismennirnir Guöni Ágústsson og ísólfur Gylfi Pálmason veröa á öllum fund- Absendar greinar scm birtast ciga í blaöinu þurfa aö vera tölvuscttar og vistaöar á diskling scm tcxti, hvort scm er í DOS cöa Macintosh umhvcrfi. Vclrit- aöar cöa skrifaöar grcinar geta þurft aö bíöa birtingar vcgna anna viö innslátt. IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ Norðlendingar Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, kynnir ný tækifæri til atvinnu- sköpunar. Fimmtudagur 11. janúar: Sveitasetrið Blönduósi, kl. 18.00 Föstudagur 12. janúar: Veitingahúsið Krókurinn, Sauðárkróki Iðnaðar- og Vibskiptarábuneytið ií* Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúb og vinarhug vib andlát og útför Þóris Jóns Guðlaugssonar Vobmúlastöbum Cub gefi ykkur öllum glebilegt nýtt ár. V. Anna María Cubmann Þórey Lísa Þórisdóttir Sæbjörg Tyrfingsdóttir Gublaugur jónsson Auður Þórhallsdóttir ísak Gubmann (--------------------------------------------------------------- í Bróbir okkar Erlendur Sigurþórsson frá Kollabæ, Dvalarheimili aldrabra, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli lést á Vífilsstabaspítala þribjudaginn 9. janúar. Stefanía jórunn Sigurþórsdóttir Tómas Sigurþórsson V_______________________________________________________________/ Anna Sigurbardóttir Dr. Anna Sigurðardóttir, for- stöðumaður Kvennasögusafns íslands, lést að morgni 3. janúar 1996. Anna fæddist á Hvítár- bakka í Borgarfirði 5. desember 1908. Foreldrar hennar voru Sigurður Þórólfsson, skólastjóri þar, og kona hans Ásdís Margrét Þorgrímsdóttir. Fæðing litlu stúlkunnar á Hvítárbakka var ekki aðeins gæfa foreldranna, heldur allra íslenskra kvenna og raunar is- lensku þjóðarinnar. Heilladis- irnar voru ósparar á gjafir sínar til hennar, glæsileik og gáfur hlaut hún í vöggugjöf. Eitt af aðalsmerkjum Onnu var rétt- lætiskenndin og góðviljinn. Hún var í senn sterk og við- kvæm. Kynni hefjast með ýmsu móti. Sem ung kona hreifst ég af málflutningi hennar er ég hlýddi á í ríkisútvarpinu árið 1953. Þá ræddi hún um störf og stöðu húsmæðra. Réttlætis- kenndin og mannvirðingin leyndu sér ekki. Hún vakti at- hygli á því hve mikilvæg upp- eldisstörfin voru og að meta bæri uppeldisstörfin, sem unn- in eru á heimilum, ekki síður en kennslu og fóstrustörf, svo ör- lagarik sem þau voru, enda felst í þessum störfum öðru fremur gæfa liverrar þjóðar, þar er grunnurinn lagður. Anna giftist árið 1939 Skúla Þorsteinssyni, námsstjóra á Austurlandi. Skúli var mikilvirk- ur í öllu er að fræðslu og kennslu laut og félagsmálum kennarastéttarinnar og foringi í ungmennafélagshreyfingunni. Þessi glæsilegu ungu hjón flytj- ast til Eskifjaröar. Þaö er örlaga- ríkt fyrir hvert þorp á lands- byggbinni sem fær slíka send- ingu. Spor þeirra hjóna þar voru mikil gæfuspor, sem Eskfirðing- ar muna og meta. Um þetta leyti fóru sögur að berast af húsmóður á Eskifirði við söfnun heimilda og hvers- konar fróöleiks um íslenskar konur. Þar var á ferðinni Anna Sigurðardóttir, sú hin sama er ásamt tveim öbrum konum stofnaði Kvennasögusafn ís- lands á fyrsta degi kvennaárs Sameinuðu þjóðanna 1975. Safnið hefur verið til húsa á heimili hennar að Hjarðarhaga hér í borg og Anna verið for- stöðumaöur þess frá upphafi. Safnið er skráð og mikiö sótt, en vinna forstööumanns er óskráö. Fjöldi fólks kemur í safniö að leita fanga til fróðleiks og í rit- gerbir. Lýsir margur undrun sinni yfir áhuga Önnu á verk- efnum þeirra og velgengni, enda hefur þakklætið ekki leynt sér. Þegar Háskóli íslands hélt 75 ára afmæli sitt hátíðlegt árið t MINNING 1986, var lýst kjöri nokkurra heiðursdoktora. I þeim hópi voru tvær heiöurskonur, önnur þeirra er Margrét Danadrottn- ing, en hin Anna Siguröardóttir. Anna var sæmd hinni íslensku fálkaorðu áriö 1978. Þegar ég veitti forystu Orlofs- nefnd húsmæðra í Reykjavík og landsnefnd orlofsins, var það eitt af láni mínu ab í nefndina var kjörin Anna Sigurðardóttir. Var hún ritari landsnefndar og þær ritsmíðar, er hún vann á ráöstefnum landsnefndarinnar, bera sömu einkenni og öll hennar störf. Nákvæmnin og fræðin voru þau, ab þetta eru sterkustu heimildir um starf- semi Orlofs húsmæbra á þessu tímabili og eiga sinn sess í Kvennasögusafni. í starfsemi Orlofsnefndarinnar naut Anna sín alveg sérstaklega. Þar hitti hún konurnar — húsmæðurnar — sem hugur hennar hafði allt- af staðið til, að hefja þær og sjá þær fá trú á sjálfar sig og eigin getu, til sjálfstæðrar hugsunar, heima og heiman, með fróðleik og réttlætiskennd í fylgd. Það er mér í minni er við stóð- um að kvöldvöku, svonefndu Davíðskvöldi, með fróðleik um listamanninn í ljóði og sögum, að vib leituðum til yfirlætis- lausrar konu og spurðum hvort hún vildi ekki lesa fyrir okkur kvæbið „Konan sem kyndir ofn- inn minn". Hún brosti og sagði: „Ég hef nú alltaf haft gaman af ljóöum, en ég hef aldrei komið neins staðar fram og get þetta ekki." Viö Anna töldum hana á að reyna og sjá til, sem hún og gerði. Hún hafði vöndunina í gerö sinni og flutti kvæðið og skilaði með ágætum. í kvöld- vökulok var henni hrósað. Þab gladdi hana, en hún sagði: „Hjálpi mér hamingjan, ef þaö fréttist heima að ég hafði verið að lesa upp í stórum hópi kvenna hér í Orlofinu." Þeir sem þekktu Önnu Sigurðardótt- ur geta skilið viðbrögð hennar, því að þarna fann hún einmitt konurnar sem hún leitaði að og lagði hug sinn í að styrkja. Síðar varð þessi umrædda kona fyrir- liði í rööum kvenna. Allt samstarf með Önnu var farsælt og skemmtilegt. Sá fjöldi kvenna, er hún var í forsvari fyrir, auðgaðist af samfélagi við hana og mat hana mikils. Ein Orlofskvenna, Oddfríbur Sæ- mundsdóttir, birtir í ljóðabók sinni „Rökkvar í runnum" eftir- farandi kveðju til Önnu Sigurð- ardóttur, og mun ort undir Or- lofsáhrifum: Frá okkar ylríku dögum eigum við samhljóma strengi, óskir frá ótal vinum auki þitt brautargengi. Þökk fyrir þekkingu og störfm, þjóðin minnist þín lengi. Þegar ég, sem formaður Ljös- mæðrafélags íslands, stóö að því að Ljósmæörafélagiö stæði að útgáfu sögu sinnar og stéttar- talinu Ljósmæður á íslandi, færöi Anna félaginu að gjöf til birtingar ritsmíð er hún nefnir Barnsburður. Þessi ritsmíb hennar er stórmerk, segir sögu barnsburðar á Islandi, aöstöðu, fátækt og þekkingarskort og þekkingarleit og er sérstæður og merkilegur fróðleikur hinnar mikilvægu stundar lífsins — fæðingar barns. Ég persónulega og íslenskar ljósmæður erum stoltar og þakklátar fyrir gjöf- ina. Árið 1985 gaf hún út bók- ina Vinna kvenna í 1100 ár. Með þeirri bók skipaði hún sér veglegan sess meðal okkar bestu fræðimanna. Síðan birtist mikil- væg ritsmíð hennar um nunnur og nunnuklaustur. Nefndi hún þá bók „Allt haföi annan róm áður í páfadóm". Fyrsta íslenska bókin, sem skrifuð var til heið- urs konu, var „Konur skrifa" til heiöurs Önnu Sigurðardóttur, sem gefin var út af Sögufélaginu árið 1980. Hún naut þeirrar gæfu að maður hennar, Skúli Þorsteins- son, skildi og fylgdi jafnréttis- kröfum kvenna, enda fyrsti karlmaðurinn sem gekk í Kven- réttindafélag íslands eftir að þeir áttu rétt á inngöngu í félag- ið. Frá því að ég heyrði fyrst í Önnu Sigurðardóttur hefur þráðurinn spunnist til æ meiri kynna samstarfs og vináttu, sem ég er innilega þakklát fyrir. Anna Sigurðardóttir var vinur minn og verndari. Ég kveð hana með minni dýpstu virðingu og þakklæti. Steinunn Finnbogadóttir Almennur lifeyrissjóbur iðnab- armanna sameinast Framsýn Sjoöfelagar í Almennum líf- eyrissjóöi iönaðarmanna sam- þykktu á almennum sjóðfé- lagafundi 20. desember sl. ab sameinast Lífeyrissjóbnum Framsýn frá og meb 1. janúar 1996. Sú samþykkt var stað- fest á fundi stjórnar Samtaka ibnabarins 5. jan. sl. Almennur lífeyrissjóður iðn- aðarmanna hóf starfsemi á ár- inu 1964. Félagar í sjóðnum störfuðu aöallega á sviði hinna löggiltu iðngreina. Fjöldi virkra sjóðfélaga á síbasta ári var á átt- unda hundrað. Meö sameiningu Almenns líf- eyrissjóðs iðnaöarmanna við hinn nýja lífeyrissjóð, „Lífeyris- sjóðinn Framsýn", hafa samein- ast sex lífeyrissjóðir í einn öflug- an lífeyrissjóö, sem veröur næst- stærsti lífeyrissjóður landsins með hreina eign um 26 millj- arða króna í árslok 1995. Lífeyrissjóðurinn Framsýn hefur frá og með 1. janúar 1996 tekið við réttindum og skyldum eftirtalinna lífeyrissjóða: Lífeyr- issjóður Dagsbrúnar og Fram- sóknar, Lífeyrissjóöur Hlífar og Framtíöarinnar, Lífeyrissjóður Sóknar, Lífeyrissjóður verk- smiöjufólks, Lífeyrissjóður Fé- lags starfsfólks í veitingahúsum og Almennum lífeyrissjóði iðn- aöarmanna. Með stofnun Lífeyrissjóðsins Framsýnar er lagður grunnur ab öflugum lífeyrissjóði, sem tryggja skal sjóðfélögum sínum besta mögulegan lífeyri samfara markvissri ávöxtun iögjalda og hagkvæmum rekstri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.