Tíminn - 11.01.1996, Page 11

Tíminn - 11.01.1996, Page 11
Fimmtudagur 11. janúar 1996 11 Gunnar V. Andrésson, deildarstjóri Ijósmyndadeildar Frjálsrar fjölmiölunar, ásamt dóttur sinni Hrefnu og Tuma. Þrettándagleði Fáks Mikið er jafnan um dýrðir á þrettándanum, þegar helgi jól- anna er kvödd. Hestamannafé- lagið Fákur í Reykjavík hefur lengi staðið fyrir álfabrennu á þrettándanum með brennu, söng, hópreið og flugeldasýn- ingu. Núna hófst skemmtunin uppi í Reiðhöll og stjórnaði framkvæmdastjóri Fáks, Har- aldur Haraldsson, herlegheit- unum. Grýla og Leppalúði riðu um höllina, álfakóngur og álfa- drottning fóru mikinn með hirð sína og trúð, og svo voru allir púkarnir á fullu. Sæmund- ur Jónsson og Halldór Eyjólfs- son stjórnuðu fjöldasöng ásamt barnakór, en Auðunn Valdimarsson og Elsa Haralds- dóttir spiluðu undir á harm- onikku. Síðan marseraði öll Grýla og Leppalúöi voru meö í för. hersingin niður á völl, þar sem kveikt var í brennunni, sungið og trallað og öllu lauk svo með glæsilegri flugeldasýningu og heitu rjómasúkkulaði með stórkostlegum vöfflum uppi í félagsheimili. ■ Mann- lífs- spegill GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON Sveinn Fjeldsted, formaöur Fáks, hélt líka á blysi. jón Ólafsson, stjórnarformaöur Stöövar 2, og Haraldur Haraldsson í Andra klárir í blysförina. Haraldur Haraldsson, framkvœmdastjóri Fáks, stjórnar barnakórnum, en Auöunn Valdimarsson og Elsa Har- aldsdóttir spila undir. Frá vinstri: Halldór Eyjólfsson, Auöunn Valdimarsson og Sœmundur jónsson stjórnuöu fjöldasöng barna, en Siguröur Már Helgason, í trúös- gervi, fylgist meö og heldur í gœöinginn fyrir aftan. Elsa Haraldsdóttir, meö harmónikuna, yst til hœgri. Ásgeir Ásgeirsson í Hestamanninum ásamt dóttur sinni Ásdísi og dótt- ursyninum Andra Viöari Haraldssyni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.