Tíminn - 12.01.1996, Síða 10
10
Föstudagur 12. janúar 1996
NÝJAR
BÆKUR
Ævintýri
Ragga
Bókaútgáfan Iöunn hefur gef-
iö út bókina Raggi litli og kon-
ungsdóttirin eftir Harald S.
Magnússon. Haraldur hefur áð-
ur sent frá sér nokkrar bækur og
er þetta fjórða bók hans um
Ragga litla og ævintýri hans.
Þetta er skemmtileg saga af
hressum strák, sem jafnan hefur
ráð undir rifi hverju. Skemmti-
legar og fjörlegar myndir eftir
Brian Pilkington prýða bókina
og gefa sögunni aukið vægi.
Hér segir frá því er Raggi litli
fer út að leika sér með flugdrek-
ann sinn og lendir í furðulegu
ævintýri. Flugdrekinn ber hann
langar leiðir yfir höf og lönd, til
konungsríkis þar sem allir eru í
stökustu vandræðum af því að
konungsdóttirin getur ekki lært
að lesa, hvernig sem reynt er að
kenna henni það. En Raggi
kann ráð sem dugir, því hann
veit hvað krökkum finnst
skemmtilegt — líka konungs-
dætrum!
Raggi litli og konungsdóttirin
er 32 blaðsíöur og er bókin
prentuð í Prentbæ hf. Verö
herinar er 1.380 krónur.
Leiöbeiningar
um blóma-
rækt
Mál og menning hefur sent
frá sér handbókina 350 stofu-
blóm eftir hollenska garðyrkju-
fræðinginn Rob Herwig.
Bókin hefst á almennum leið-
beiningum um blómarækt. Síð-
an tekur við umfjöllun í staf-
rófsröð um öll algengustu blóm
sem hægt er að rækta í heima-
húsum hér á landi. Lýst er í máli
og myndum 350 stofublómum,
útliti þeirra, umhiröu, ræktun
og hvernig best er að fjölga
þeim. Við hverja mynd er yfirlit
um þarfir plöntunnar fyrir
birtu, hita, jarðveg og vatn.
Þetta er aukin og endurskoð-
uö útgáfa samnefndrar bókar
sem út kom árið 1981, og er í
henni fjallað um 100 nýjar teg-
undir sem ekki voru í fyrri út-
gáfunni. Bókin hefur verið gefin
út í 15 þjóðlöndum og hefur
notið gífurlegra vinsælda.
Ingunn Ásdísardóttir þýddi
bókina, en Óli Valur Hansson
var sérlegur garðyrkjuráðunaut-
ur.
350 stofublóm er 192 bls.,
prentuð á Ítalíu. Auglýsinga-
stofan Grafít hannaði kápuna.
350 stofublóm er bók mánaðar-
ins í desember og kostar nú
2700 kr., en hækkar í 3880 kr.
frá og með 1. janúar 1996.
Frábærar
teikningar
Bókaútgáfan Iðunn hefur gef-
ib út myndskreytta barnabók
eftir þau Brian Pilkington og
Kate Harrison og nefnist hún
Tóta og Tjú-Tjú. Þar segir frá lít-
illi stúlku sem eignast furöuleg-
an félaga. Þetta er fyrsta bók
Kate Harrison, en Brian Pilking-
ton hefur samib og mynd-
skreytt fjölda barnabóka sem
hafa verið gefnar út víða um
heim og notið mikilla vinsælda
fyrir frábærar teikningar og
skemmtilegan texta. Brian hef-
ur hlotið ýmsar viburkenningar
fyrir verk sín og hafa barnabæk-
ur hans komið út í allt að tíu
löndum samtímis.
í kynningu á bókarkápu segir
meöal annars:
„Fallegi, margliti steinninn
sem Tóta litla fann í fjörunni
reyndist geyma stórkostlegt
leyndarmál — lítið furðudýr
sem sagði ekkert nema tjú-tjú!
Tóta gaf dýrinu þess vegna
nafnið Tjú-Tjú og þaö varð besti
vinur hennar. En litla leyndar-
málið stækkaöi og stækkabi og
Tótu var hætt að lítast á blikuna
... Og eina nóttina tóku undar-
legir atburðir að gerast."
Tóta og Tjú-Tjú er gullfalleg
og skemmtileg saga, skreytt
heillandi litmyndum Brians
Pilkington. Bókin er 28 blaösíö-
ur, prentub í Prentbæ hf. Nanna
Rögnvaldardóttir þýddi text-
ann. Verð bókarinnar er 1.280
krónur.
Farsælir
sjómenn
Út er komin hjá Skjaldborg
hf. bókin Gegnum lífsins öldur.
Viðtöl við sex valinkunna sjó-
sóknara eftir Jón Kr. Gunnars-
son.
Farsæl sjómennska byggist á
reynslu, þekkingu og áræbi. í
þessari bók er fræbst um líf sjó-
manna í ýmsum greinum sjó-
mennskunnar. Viðmælendui
eru valinkunnir sjómenn á ýms-
um aldri og með margvíslega
reynslu.
Þeir sem segja frá eru: Guð-
mundur Jónsson skipstjóri,
Hafnarfirði; Gunnar Ingvason
frá Hliösnesi, hrognkelsaveiði-
maður; Júlíus Sigurösson skip-
stjóri, Hafnarfirði; Jósteinn
Finnbogason smábátasjómaður,
Húsavík; Hákon Magnússon
skipstjóri, Reykjavík, og Magn-
ús Jónsson smábátasjómaður,
Sauðárkróki.
Verð kr. 3.480.
Álfatrú og íslenskt vit
Tilsvör þess ágæta fólks, sem
hélt uppi vörnum fyrir álfa og
aðrar „hulduverur" í þætti sjón-
varpsins 7. jan. 1996, voru jafn
greindarleg og þau voru heiðar-
leg, og sýna að enn er nokkuð
eftir af vorri þjóð. Ég þarf varla
ab taka fram, aö samúö mín var
með „vörninni", og er þó skylt
að geta þess að gagnrýnar spurn-
ingar þáttagerðarmannsins voru
jafnan vel valdar og vel fram
settar. Það hefbi verið ófullkom-
in mynd, ef ógert hefði verið lát-
ib að spyrja spurninga eins og
„hvaö um þá sem halda að þetta
sé ekki annað en heilaspuni og
tilbúningur?" Þessu svaraði Leó
á Svanavatni eitthvað á þá leið,
að slíkt væri ekki annað en ein-
strengingsháttur þeirra, sem
neita að gefa gaum því sem ligg-
ur fyrir. Var gott að heyra þann
mann tala — og sjá mynd hans
um leið — og væri um margt ab
ræða, ef lengra væri haldib. Séra
Rögnvaldur heitinn á Staðarstað
stóð sig vel og greindi á milli
náttúrlegs trúarlífs og guðfræði-
legrar kreddufestu. Annar mað-
ur, skagfirskur, sagbi að þetta
hlyti að vera „eitthvað raunveru-
LESENDUR
legt" og líkar mér jafnan vel að
heyra það orð nefnt í þessum
samböndum.
En þrátt fyrir aðdáun mína á
málsvörn þeirra, sem álfum eru
trúir, þá kæmist ég — væri ég
spurður beinskeytt um þab efni
— í nokkurn vanda. Jaröfræði,
bergfræði og eölisfræöi segja mér
að ekki sé byggð í hólum og
bergi, og það er fjarri mér að
ganga framhjá raunsæi og þekk-
ingu. Þarna er óneitanlega um
mótsögn aö ræða eða ráðgátu,
og til þess eru gátur að ráða þær.
Sú skýring er til, að þar sem er
reynsla manna af álfum og fram-
libnum, sé um ab ræða fjarsýnir
til annarra staða en þeirra, sem
menn eru staddir á (sbr. sjón-
varp). Reynslusögur af álfum hef
ég lengi borið saman vib þessa
skýringu, sem hefur þann kost
að vera raunhæf.
Maður nokkur sagði frá því í
útvarpi fyrir löngu, að hann reið
eftir Galmaströnd í Eyjafirði þar
sem byggb var engin; fer hann
þá að undrast það að sjá þar bæ
vib bæ, á leið sinni, og fólk aö
störfum; einnig minnir mig, að
væri minnst á sólskinið. Þegar
hann er kominn til manna-
byggða að nýju, var sem hulu
væri svipt af augum hans.
Það hygg ég, að reynsla
mannsins hafi verið sama eðlis
og sú sem nefnist draumar, og sé
hvortveggja fram komið við vit-
undarþátttöku í eiginlegri
reynslu fólks í fjarlægum stöð-
um, þar sem aðrar sólir skína,
það er að segja í fjarlægum sól-
kerfum himingeimsins.
Mjög skýrt kemur þetta um
aðrar sólir t.d. fram í álfasögu-
safni Eiríks Laxdals frá 18. öld,
sem Þorsteinn Antonsson og
María A. Þorsteinsdóttir gáfu út
fyrir nokkrum árum (Þjóðsaga).
Dæmin eru óteljandi, og það er
aðeins kenningarleg forherðing
sem lokar fyrir skilning í þessu
efni.
Ég vil óska Sigurði Grímssyni
myndatökustjóra heilla í starfi.
Meb þessum ágæta þætti tel ég
hann hafa aukið verðleika sína.
Þorsteinn Guðjónsson
Saga Kópavogs af sjónar-
hóli Alþýðubandalagsins
Pólitísk saga Kópavogs séb frá bæj-
ardyrum Alþýðubandalagsins er
komin út og nefnist Þinghóll. Und-
irtitill er Stiklað á stónt í sögu félags-
heimilis og félagsstarfs innan veggja
og utan. Höfundur er Sigurður
Grétar Guömundsson, sem lengi
hefur tekið þátt í opinberum mál-
efnum í heimabæ sínum og sat
meðal annars lengi í bæjarstjórn.
Heitið Þinghóll er tekið eftir sam-
nefndu félagsheimili Alþýðu-
bandalagsins, sem áður var til húsa
í gömlu húsi sem bar þetta nafn.
Formála ritar Ólafur Jónsson,
formabur Þinghóls hf. Þar segir
með meiru: „Höfundurinn fékk
engin fyrirmæli um efnisval og
Fréttir af bókum
uppbyggingu verksins, en með því
að velja einn af þátttakendum í
hinni pólitísku atburbarás bæjar-
málanna í Kópavogi til þess að
vinna verkiö var stjórnin að gefa
tóninn um að skrifaö væri um þá
sérstæðu pólitísku samstöbu íbú-
anna í Kópavogi, sem var ráðandi
afl í bæjarmálum í Kópavogi í tvo
áratugi og leiddi til stofnunar
hlutafélags og byggingar sam-
komuhúss á því ári sem tap varð í
kosningunum."
Ástin
Út er komin sjöunda bókin
um Frans í flokknum Litlir lestr-
arhestar. Bókin heitir Ástarsög-
ur af Frans og er eftir Christine
Nöstlinger, myndskreytt af Er-
hard Dietl.
Frans er alltaf jafn úrræbagób-
ur og hugmyndaríkur. Hér kem-
ur hann stóra bróður sínum til
aðstoðar þegar hann verður ást-
fanginn og fyrr en varir verður
Frans ástfanginn sjálfur.
Jórunn Sigurðardóttir þýddi
bókina, sem kemur út hjá Máli
og menningu og kostar 990
krónur. G.Ben.-Edda prentstofa
hf. prentaði, Næst gerbi kápu.
Holræsin á
ströndinni,
ný bók eftir
Þorra
Út er komin bókin Holræsin á
ströndinni eftir Þorra Jóhanns-
son.
Þetta er sjötta bók höfundar
frá 1980. Bókin inniheldur ný
Holræsin
á ströndinni
ljóö, heimspekilega prósa og
langan ljóbabálk um æskulýðs-
mál og trúmál. Þema bókarinn-
ar einkennist af þráhyggju og
endurteknu efni, er skáldiö vill
koma til skila.
Þorri hefur oft vakið athygli
fyrir skorinorba texta og kraft-
mikinn skáldskap, er einkennist
af dulúð.
Útgefandi er Skákprent. Hol-
ræsin á ströndinni er 68 bls.
Filmuunnin og prentuö í Skák-
prent, Flatey annabist bókband,
höfundur hannaði útlit bókar-
innar. Verð í verslunum er 1500
kr.
í sveit
Komin er út barnabókin
Goggi og Grjóni vel í sveit settir
eftir Gunnar Helgason. Bókin
fjallar um sömu söguhetjur og
fyrri bók höfundar, Goggi og
Grjóni, og segir í gamansömum
stíl frá sveitadvöl þeirra félaga.
Þeir taka sér margt óvænt fyrir
hendur og óhætt er að segja að
þeir verði reynslunni ríkari.
Gunnar Helgason er leikari og
annar umsjónarmanna Stund-
arinnar okkar í Sjónvarpinu.
Mál og menning gefur bókina
út, en hún er prentuð í Prent-
smiðjunni Odda hf. og kostar
1380 krónur. Grafít hf. gerbi
kápu.
Bókin um
englana
Skálholtsútgáfan, útgáfufélag
þjóökirkjunnar, hefur gefið út
Bókina um englana eftir sr. Karl
Sigurbjörnsson.
I bókinni segir höfundur, sr.
Karl Sigurbjörnsson, meðal ann-
ars:
„Allt í einu, upp úr þurru, birt-
ust þeir. Englar hér og englar þar
á ólíklegustu stöbum og sam-
hengi. Og við sem héldum aö þeir
væru endanlega úr sögunni,
horfnir úr vitund og veruleika
samtímans, leifar úreltrar heims-
myndar. Ekki aldeilis!
Engla þekktum við vitaskuld
sem börn, þeir voru hluti bæna-
versanna og þáttur trúarvitundar.
Þó fór svo um margan að verða
viðskila við þennan þátt barna-
trúar, englar Guðs voru látnir
liggja eftir eins og barnaglingur.
Samt mæta þeir okkur enn og aft-
ur hér og hvar. Umfram allt verða
þeir áberandi um jólin þegar þeir
standa nánast jafnfætis jólasvein-
um, álfum og tröllum ævintýr-
anna. En þótt við pökkum engl-
unum nibur í kassa með hinu
jóladótinu og viljum láta þá lönd
og leið, þá lifa þeir samt góbu lífi
í myndlistinni og í sálmum og
textum trúarinnar."
Bókin um englana er 96 blað-
síður að stærð og litprentuð. Bók-
ina prýðir fjöldi mynda eftir er-
lenda og innlenda listamenn, þar
á meðal Kristínu Gunnlaugsdótt-
ur, Karólínu Lárusdóttur, Jón
Reykdal og Helga Þorgils Frið-
jónsson.
Hönnun og umbrot sá Skerpla
um og prentun Steindórsprent-
Gutenberg. Bókin kostar kr.
2.480. ■