Tíminn - 23.02.1996, Side 7
Föstudagur 23. febrúar 1996
7
Endurskobun vinnulöggjafar rœdd á félagsfundi Samtaka iönaöar-
ins. VSÍ:
Auka skilvirkni
og efla ábyrgb
„Þab er út af fyrir sig margt
haegt ab segja um Pál Péturs-
son félagsmálarábherra. Þab
er þó hægt ab fullyrba þab,
ab hann er ekki manna lík-
legastur til ab beygja af leib
frá sannfaeringu sinni,"
sagbi Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ,
á opnum félagsfundi Sam-
taka ibnabarins þar sem rætt
var um endurskobun vinnu-
löggjafarinnar og framhald-
ib í þeim málum.
Hann sagbist engu vilja spá
um þab hver hin endanlega
lending yrbi í þessu máli af
hálfu rábherra og m.a. vegna
andstöbu verkalýbshreyfingar-
innar. Hann gerir hinsvegar
fastlega ráb fyrir því ab ráb-
herrann muni axla þá ábyrgb
sem á honum hvílir í þessu
máli. í því sambandi benti
hann á ab núverandi ríkis-
stjórn væri sú fyrsta sem hefbi
sett þab í stjórnarsáttmála ab
hrinda í framkvæmd endur-
skobun á vinnulöggjöfinni,
sem væri tæplega 60 ára göm-
ul, eba frá árinu 1938. Frá þeim
tíma heföu orðiö miklar breyt-
ingar og því nauösynlegt að
setja nýjar leikreglur á vinnu-
markabi, sem auka skilvirkni
við gerb kjarasamninga og efla
ábyrgð samtaka á samninga-
gerb.
Þórarinn V. sagði aö.í fram-
komnum tillögum stæði styr-
inn einna mest um það
ákvæbi, er lýtur að allsherjarat-
kvæðagreiðlu um verkföll og
verkbönn, þar sem gert er ráð
fyrir að um þriðjung félags-
manna þurfi til að fella samn-
inga. Hann viðurkenndi þó að
þetta gæti orðið erfitt í fram-
kvæmd hjá stórum félögum
fremur en hjá þeim smærri,
sökum almennrar félagslegrar
deyfðar sem ríki meðal félags-
manna stéttarfélaga. í því sam-
bandi minnti hann á að aðeins
4% aðildarfélaga verkalýðsfé-
laga hefðu staðið að baki sam-
þykkt þjóðarsáttarsamning-
anna á sínum tíma. Þá væru
verkföll og verkbönn skilyrt
því að búið væri að leggja fram
kröfur og reyna ab ná sáttum á
samningafundum.
Af öðrum helstu tillögum til
breytinga nefndi Þórarinn
ákvæði um samningsumboð
stéttarfélaga og framsal á því.
Eins og málum væri háttað um
þessar mundir, þá væri hin
hefðbundna undirskrift samn-
inga aðeins tillaga að samn-
ingi, því samningsrétturinn
væri hjá einstökum verkalýðs-
félögum og því væri það í
þeirra valdi að samþykkja
samning eða fella hann. Sem
dæmi um hvernig þessi mál
geta þróast nefndi hann m.a.
að nýverið var felldur samn-
ingur á Flateyri, rúmu ári eftir
að hann hafði verið gerður.
Þessu verklagi þyrfti að breyta
og m.a. er lagt til að samningur
samninganefnda muni gilda
nema honum sé hafnað, auk
þess sem gert er ráð fyrir að
ákveða sameiginlega atkvæða-
greiðslu með fleiri félögum.
í tillögunum er einnig lagt til
að tekin verði upp formleg við-
ræðuáætlun í stab þeirrar
óvissu, sem einatt hefur ein-
kennt viðræður aðila um gerð
nýs kjarasamnings. Hann sagði
að viðvarandi óvissa um gerð
kjarasamninga hefði haft slæm
áhrif á atvinnulífið, sem oftast
nær heldur að sér höndum á
sviði fjárfestinga og annarra
framkvæmda á meðan ekki er
vitað hvernig staðið verður að
samningagerðinni né heldur
hvaða kröfur eru settar á odd-
inn.
Þessi atriði ættu því að liggja
ljósar fyrir en ábur, þegar sér-
stök viðræðuáætlun liggur fyrir
strax í upphafi viðræðna.
Þá er gert ráð fyrir ríkari
heimild til sáttasemjara að
leggja fram miðlunartillögur til
lausnar kjaradeilum. Meðal
annars er lagt til að sáttasemj-
ari geti tengt saman lausnir
fleiri deilna með einni tillögu
og gert úr þeim eina samnings-
niðurstöðu og miðlun. Einnig
að sáttasemjari geti kynnt efni
miðlunartillögu og slík tillaga
sé samþykkt, ef færri en þriðj-
ungur greibir atkvæði gegn
henni. í þessum kafla er einnig
lagt til að fram fari póstkosn-
ingar um miðlunartillögu.
-grh
Skíbagöngumenn í Haukadal.
Paradís fyrir fólk
á gönguskí&um
Frá Stefáni Böbvarssyni, fréttaritara
Tímans í uppsveitum Árnessýslu:
Laugardaginn 17. febrúar sl.
gafst fólki kostur á að læra að
ganga á skíðum í skóginum við
Haukadal í Biskupstungum.
Haldin voru þrjú námskeið yfir
daginn og mættu milli 50 og 60
manns til leiks, þrátt fyrir úr-
komusamt veður á köflum.
Um kennsluna sáu tveir
kennarar frá Skíðasambandi ís-
lands, en fyrir námskeiðinu
stóðu, auk Skíðasambandsins,
Ungmennafélag Biskups-
tungna, Hótel Geysir og Skóg-
rækt ríkisins. Aður höfðu
gönguleiðir verið troðnar með
vélsleða frá Björgunarsveit Bisk-
upstungna, svo að aðstaðan var
í besta lagi og snjórinn auk þess
þægilega þykkur fyrir alla til að
falla í. Höfðu kennararnir það á
orði að Haukadalurinn, skógur-
inn og umhverfið, væri paradís
fyrir fólk á gönguskíðum.
Eftir brun og byltur þáðu svo
þátttakendur kaffihlaðborð í
boði Hótels Geysis. ■
Landsbankinn: Vaxtabreytingarnar 1. febrúar juku ekki vaxtamuninn:
Vill kenna stjórnvöldum ráö
til lækkunar langtímavaxta
„Vaxtabreytingarnar þann 1.
febrúar juku ekki vaxtamun
bankans, þrátt fyrir fullyrb-
ingar annarra þar um, en
voru einvörbungu svar vib
abstæbum sem gátu haft
áhrif á stöbu og afkomu
bankans, ef ekki hefbi verib
Tollverbirnir aðeins
upplýstir um skyldur
Fribrik Sophusson fjármála-
rábherra sagbi ab yfirmanni
tollgæslunnar hafi verib
uppálagt ab kynna tollvörb-
um reglur um skyldur þeirra
og samskipti vib fjölmibla eft-
ir ab birst höfbu fréttir þar
sem starfandi tollverbir lýstu
því yfir ab galopnar væru leib-
ir til þess ab smygla fíkniefn-
um inn í landib. Þessi um-
mæli fjármálarábherra féllu í
svari vib fyrirspum frá Ög-
mundi Jónassyni um abgerbir
til varnar innflutningi fíkni-
efna til landsins.
Ögmundur sagði að stöðugt
bærust fréttir af fíkniefnaneyslu
og lögreglan hreinsaði út úr
hverju fíkniefnabælinu á fætur
öðru. Efla þyrfti baráttu gegn
þessum vágesti, og nú hefðu
unglingar sjálfir sameinast um
að hefja baráttu gegn honum og
væri það einhver virkasta leibin
sem unnt væri að hugsa sér.
Engu að síður þyrfti að vera á
varðbergi vegna innflutnings og
þar mætti niðurskurður fjár-
muna til tollgæslu ekki verða til
þess að auðvelda ólöglegan inn-
flutning. Ögmundur kvaðst
undrandi á fregnum um að toll-
verbir, sem látið hefðu sannleik-
ann í ljós í blaðaviötali, hafi ver-
ið kallaðir inn á teppi til þess að
taka við skriflegum áminning-
um fyrir ummæli sín.
Friðrik Sophusson kvað það
ekki rétt. Yfirmanni tollgæsl-
unnar hafi aðeins verið falið aö
kynna starfsmönnum sínum
reglur um skyldur þeirra, þar
sem ótvírætt komi fram að þeim
sé óheimilt ab skýra frá málum
sem þeir hafi til meðferðar. Fjár-
málaráðherra kvaðst telja það
óeðlileg vinnubrögð að knýja
fram meiri vinnu til handa sjálf-
um sér með þeim hætti sem
tollverðir hefðu verið að gera
með umræddu fréttavibtali.
Hins vegar væri þab blaða-
mannsins sök ab hafa slegið við-
talinu upp sem forsíðufrétt í
blaði sínu.
Friðrik líkti ummælum toll-
varðanna við það að lögreglu-
menn lýstu því yfir að óhætt
væri að brjótast inn í hús í
ákveðnum hverfum í Reykjavík
að næturlagi, því þeir hefðu
enga aðstöðu til þess að vera þar
á vakt.
Ögmundur Jónasson sagði að
réttast væri að kalla þessa opin-
beru starfsmenn aftur fyrir og
biðja þá afsökunar á þeim
áminningum sem þeir hefbu
hlotiö. -Þ1
brugbist vib meb þeim hætti
sem gert var," segir m.a. í
nýrri greinargerb Lands-
banka íslands í vaxtamálum.
„Landsbankinn mun jafn-
framt á næstunni koma á
framfæri vib stjórnvöld hug-
myndum um meb hvaba
hætti hægt væri ab stubla ab
lækkun langtímavaxta," seg-
ir í lok greinargerbarinnar.
Vaxtahækkun verðtryggðra
inn- og útlána 1. febrúar segir
bankinn hafa verið viðbrögð
við linnulausri auglýsingaher-
ferð Þjónustumiðstöðvar ríkis-
verðbréfa, sem bauð eigendum
8 milljarða í spariskírteinum
sem voru til innlausnar í mán-
uðinum upp á 5,81% skipti-
kjör. Vegna þessa hafi Lands-
bankinn séð sig knúinn til að
hækka vexti á Landsbók til 5
ára, sem aftur hafi leitt til þess
að útlánsvextirnir þurftu líka
að hækka.
Hækkun óverðtryggðra nafn-
vaxta hafi hins vegar grund-
vallast á stöðugri hækkun
skammtímavaxta á peninga-
markabi frá ársbyrjun ásamt
verðbólguspá, m.a. frá Seðla-
bankanum, þar sem gefin var
til kynna meiri aukning verb-
bólgu í febrúar en raun varð á.
Eigi að síður segist Lands-
bankinn hafa ákveðið að lækka
ekki vexti þann 21. febrúar.
Enda hafi engar verulegar
breytingar orðið á grundvelli
vaxtabreytinganna þann 1.
febrúar. ■
Námskeiö um útboö og
verksamninga:
Ný útgáfa
ÍST30
Gerð og framkvæmd verk-
samninga, útboba og útbobs-
gagna verba kennd á nám-
skeibi Endurmenntunarstofn-
unar Háskólans dagana 29.
febrúar og 1. mars.
Skoðuð verða ýmis lagaleg og
fjárhagsleg atriði og algeng
ágreiningsatriði. Endurskoðun
hefur farið fram á undanförn-
um árum á staðlinum ÍST30,
sem fjallar um almenna útboðs-
og samningsskilmála í verkleg-
um framkvæmdum. Lokadrögin
liggja nú fyrir og veröa kynnt á
námskeiðinu. -JBP
Samstarfsnefnd lögreglu á Suövesturlandi:
Skoðun á eftirvögnum
Lögreglan á Suðvesturlandi
mun skoba eftirvagna dagana
24.-25. feb. Sérstaklega verbur
kannab ástand snjósleba-
kerra, ab því er varbar ljósa-
og hemlabúnab, skráningu og
skobun.
Þess skal getib að eftirvagnar,
þar meb taldar snjósleðakerrur,
yfir 750 kg eru skráningarskyldir.
Á snjósleðakerrum milli 750-1500
kg er fullnægjandi að þær séu
meb ýtihemli og öryggistengingu
(keðju eða vír) á milli dráttartæk-
is og beislis eftirvagns. ■