Tíminn - 24.05.1996, Page 2
2
' Rjstudagur24. nfaí 1996
Tíminn
spyr...
Teluröu a& stefna beri a& sam-
einingu samtaka launafólks?
Eiríkur Jónsson forma&ur KÍ:
„Ég held að menn eigi að fylgja
eftir þessari samvinnu sem átt hef-
ur sér stað meðal stéttarfélaganna
og hefja þessa umræðu. Síðan eiga
menn að taka ákvörðun um það
hvort um sameiningu yrði að ræða.
Grundvallaratriðið í þessu er að
menn fari í gegn um umræðuna og
meti síðan stöðuna í framhaldi af
því. Af þeim sökum tel ég aö eðli-
legt að menn eigi að ræða opinskátt
um kosti þess og galla og taka síðan
afstöðu til þess hvort sammni sé
raunhæfasti kosturinn eða eitthvað
annað."
Birgir Björn Sigurjónsson fram-
kvæmdastjóri BHMR:
„Ég held að samtök launamanna
hafi raunverulega alltaf þurft mikið
á því að halda að vera í nánu sam-
ráði og samstarfi sín í milli. Það sem
er að gerast núna varðandi öll rétt-
indi launamanna og réttarstöðu
stéttarfélaga á Alþingi er okkur sér-
stakur hvati og áminning um það
hvað þetta samstarf er nauðsynlegt.
Ég skal hinsvegar ekkert segja til
um þab hvort þetta samstarf muni
leiða til samruna. Aftur á móti er ég
sannfærður um að það muni leiða
til nýrra vinnubragða á vinnumark-
aði þar sem atvinnurekendur og
ríkisvald munu mæta miklu sam-
stilltari verkalýöshreyfingu en um
langt skeið."
Friðbert Traustason formaður
SÍB:
„Mér finnst sjálfsagt ab verka-
lýðshreyfingin á almennum og op-
inberum markaði hefji umræbu um
að samræma lífeyris-, fæðingar- og
veikindaréttindi og annað sem ekki
er hreinlega lagabundið. Auk þess
aö koma fram sameiginlega gagn-
vart ríkisvaldinu. Sameining er
hinsvegar eitthvað sem aðeins tím-
inn mun leiða í ljós."
Allt bendir til ab Ástþór Magnússon hjá Fribi 2000 verbi fimmti for-
setaframbjóbandinn. Ástþór segir kosningabaráttuna skrítna:
„Sækist ekki eftir
baökeri á Bessastöðum"
„Þa& er eins og fólk sé bara a&
sækjast eftir feitu og góðu emb-
ætti — og gó&u ba&keri á Bessa-
stö&um. Mér finnst það skrítiö, ég
mundi alls ekki sækjast eftir að
komast í þetta ba&ker sem sýnt
var í sjónvarpinu í gær, þótt ef-
laust sé það prýðilegt. Ég mundi
halda áfram a& búa í fer&atösku
og vinna gagn fyrir land og þjó& í
friðarmálunum, ég sækist ekki
eftir baðkeri á Bessastöðum né
ö&ru því sem þar er af muna&i,"
sagði Ástþór Magnússon stofn-
andi Friðar 2000 í gær. Allar líkur
benda nú til þess a& Ástþór verði
fimmti maðurinn í forsetaslagn-
um.
„Það er ekkert víst á þessari
stundu hvort ég fer í framboð. Ég er
að reyna að fá þá frambjóðendur
sem komið hafa fram til þess að
vinna með okkur að friðarmálum.
Helst hefði ég kosið að vera áfram í
því að byggja upp mín samtök og
staðið á bak vib einhvern góðan
forseta sem hefði getað verið táknið
fyrir ísland sem friðarland. Ef eng-
inn þeirra hefur sýnt alvarlegan lit á
að starfa með okkur á morgun, þá er
allt tilbúið fyrir mig að ganga við í
dómsmálaráðuneytinu og leggja
fram meðmælendalistana," sagði
Ástþór.
Ástþór segir að það hafi ekki verið
meiningin að fara í framboð. Hann
hafi sent frambjóðendum bréf og
bókina sína, en engin viðbrögð
fengið. -JBP
Hávamál skýrb í nýju Ijósi í bók, sem er þyngri en
Símaskráin og var skrifub á 9 mánubum. Gubrún
Kristín Magnúsdóttir:
Fletti ofan af ýms
um skýringum
„Þessi bók á árei&anlega eftir a&
valda fjaðrafoki, enda er aö finna
í bókinni ádeilur á margt af því
sem búið er a& kenna og inn-
prenta fólki hér á landi í aldir, ég
fletti þarna ofan af ýmsum skýr-
ingum sem voru í gangi," segir
Guðrún Kristín Magnúsdóttir,
listakona. Hún hefur gefið út
fima stóra bók, þykkari en síma-
skrána, sem heitir Óðsmál, og
skrifar undir rithöfundarnafninu
Goþrún Dimmblá.
Guðrún Kristín segir að erindi
Hávamála við okkur, eigi við okkur
endurfundi í þessari bók. Hún segir
Ásatrúna djúp trúarbrögð, sem um
margt beri saman við hindúisma.
Þetta mikla ritverk varð til á 9
mánuðum hjá listiðjunni Freyju-
kettir, sem Guðrún rekur að Skarp-
héðinsgötu 2 í Reykjavík. Bókin er
samin' jöfnum höndum á íslensku
og ensku. Bókin er gefin út í 500
eintökum og fæst í betri bókabúð-
um. ■
Gubrún Kristín Magnúsdóttir,
myndlistarkona, rithöfundur og
kvikmyndaleikari. Hún ferbast um
ab hœtti Sniglanna.
Ljósmynd jim Smart.
Leiðrétting
Þau mistök urðu í vinnslu blaðsins í
gær að röng mynd birtist með frétt
um að opna ætti Uxahryggjaveg
fyrir hvítasunnu. Rétt mynd birtist
hér en undir henni átti að standa:
Eins og sjá má á myndinni var víða
runnið úr veginum um Uxahryggi
og vegurinn því nánast ófær. Vega-
gerðin í Borgarnesi opnaði Uxa-
hryggjaveg úr Lundarreykjadal að
Kaldadalsvegamótum í gær (fyrra-
dag). Kaldidalur er hins vegar ófær
og verður næstu tvær vikur a.m.k.
Tímamynd: T.Þ., Borganesi
Sagt var...
„The day after" í Eyjum...
„Timburmennin voru ekkert svo óg-
urleg á uppstigningardag, reyndar
svo þolanleg ab hláturinn var aldrei
langt undan. Það er nefnilega oft svo
a& sé maður ekki illa fyrirkallabur eftir
létt fyllerí getur „the day after" orðið
ekki síðri en kvöldiö áður".
Gubrún Kristjánsdóttir lýsir kryddinu í
vel heppna&ri Vestmannaeyjaferb í HP.
... og DFB stemmning me&
Göflurum
„Eftir fáein rauðvínsglös leystist ein-
kennileg orka úr læðingi og fyrr en
varði vorum við komnar í DFB- tíma-
bilið (djamm fyrir barneignir). Af
stemmingunni ab dæma þarna um
kvöldið má ætla að DEB-tímabilið
(djamm eftir börn) sé í uppsiglingu
//
Sama Gubrún í sama bla&i.
Seg&u þa& me& rósum ...
„Ég ráblegg mönnum ab færa konu
sinni Ossiana rós til að ná athygli.
Það er með rósir eins og konur, það
verður að meðhöndla hverja og eina
á sérstakan hátt".
Benny Sigur&ardóttir blómabóndi í
Hverager&i í DV
Lei&in ab íslensku vegabréfi ...
„Ég bar mig upp við Einar Benedikts-
son þegar hann var sendiherra í Par-
ís. Hann lofa&i öllu fögru, en ekkert
gerðist... Ég gafst samt ekki upp og
fór á fund næsta sendiherra, Haralds
Kröyers. Hann brást vi& fjjótt og vel
og rá&færði sig vi& Birgi Isleif Gunn-
arsson menntamálaráðherra, sem þá
var staddur í París. Hannjofaði ab
taka máli& upp heima á íslandi og
stóð við orð sín. Gengið var frá öll-
um formsatri&um á nokkrum vikum
og að því loknu var íslenskt vegabréf
gefið út handa Vilai".
Tilvltnun HP í frásögn Errós af því
hvernig honum tókst a& útvega tæ-
lenskri sambýliskonu sinni íslenskan
passa án þess a& ney&ast til a& giftast
henni.
Talnaspeki ...
„Tívolíhúsiö, sem er í eigu Hvera-
gerðisbæjar, er 6.000 fm a& flatar-
máli en syðri hluti þess er um 3.000
fm."
Frétt í Morgunbla&inu.
Tjáningarfrelsíb ekki fyrir alla?
„Auglýsendur telja það hluta af tján-
ingarfrelsinu að geja nýtt sér öflugan
fjölmibil eins og RÚV. Því þá að
skerba tjáningarfrelsib me& því ab
banna alfrið auglýsingar í RUV?"
Spyr Markús Örn Antonsson fram-
kvæmdastj. hljó&varps í Morgunblab-
inu.
Samstarf meirihlutaflokkanna í Hafnarfirbi
var í fréttum Tímans um daginn. Greint
var frá því ab hugur ýmissa krata stendur
til þess ab slíta samstarfinu vib jóhann
Bergþórsson og taka upp samstarf vib
Alþýbubandalagib.
í pottinum er því nú hvíslab ab einn höf-
ubarkitektinn ab baki þessu hjá jcrötum sé
enginn annar en Gubmundur Árni Stef-
ánsson sem sagbur er hafa lítinn áhuga á
þvf ab Alþýbuflokkurinn flækist inn í
málaferli Jóhanns frekar en orbib er.
Gubmundur er sag&ur vera búinn ab fá
nóg af því ab vera bendla&ur vib spillingu
og telji Ijóst ab enn ein spillingarumræð-
an muni spilla fyrir Hafnarfjarðarkrötum,
ef ekkert verbi ab gert. Þessi rök eru hins
vegar sögb vera gild, óháb því hvort um
raunverulega spillingu sé ab ræba eba
ekki. Þab sé ímyndin og ásýndin sem
skipti máli...
•
Þab heyrbist á ASÍ-þingi ab samstarfsörb-
ugleikar hafi átt sér stab innan Flóa-
bandalagsins svonefnda, verkalýbsfélag-
anna á Faxaflóasvæ&inu. Þannig varfull-
yrt ab Sigur&i T. Sigurðssyni formanni í
Hlíf hafi ekki tekist, þrátt fyrir tilraunir í
marggang, ab ná símasambandi vib koll-
ega sinn, Halldór Björnsson formann
Dagsbrúnar. Sigurbur vildi stilla saman
strengi fyrir þingib. Þab mistókst...
Ger&ar eru miklar si&fer&ilegar kröfur til
hinna ýmsu forseta í dag. Á ASÍ-þingi var
bent á ab hinn nýi forseti sambandsins,
Grétar Þorsteinsson, væri gúddtemplar
frá barnæsku, virkur mabur í hreyfingu
templara og hefbi stjórnab bingóum
þeirra meb mikilli reisn ...