Tíminn - 24.05.1996, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.05.1996, Blaðsíða 5
Föstudagur 24. maí 1996 5 skapur í ánum yfir rannsókna- tímabiliö. Síðustu ár hafa einnig komið fram niðurstöð- ur um, að árferði hafi mikil áhrif á fjölda seiða og tíma- setningu sjávargöngu þeirra og þar með á veiði árin á eftir. Hlífb vib stórlaxa skilar árangri Jónas Jónasson gerði hins vegar góða grein fyrir erfða- fræðilegum þáttum laxa og benti á niðurstööur rannsókna og athugana í Kollafjarðar- stöðinni á þeim þætti, er varð- ar sérstaklega hvernig megi fjölga stórlöxum í íslenska laxastofninum. Hlutfall laxa, sem snúa aftur til hrygningar í heimaá sína eftir tvö eða fleiri ár í sjó, hefur farið minnkandi á undanförnum árum. Jónas benti á það, hvernig unnt sé að fjölga stórlöxum, þ.e. með því að nota stóra hænga við klakið. Vöktu þess- ar niðurstöður hjá Jónasi mikla athygli og ánægju með- al fundarmanna og víst er að margir vilja að stórum hæng- um verði framvegis frekar lífs auðið út á þessa nýju vitn- eskju vísindamanna. Fundarstjóri á ársfundi Veiðimálastofnunar var Vífill Oddsson verkfræðingur, sem er stjórnarformaður hennar. Ársfundur Veiðimálastofn- unar vegna ársins 1995 var haldinn nýlega. Hann var velsóttur m.a. af helstu for- ráðamönnum veiðimála. Fundurinn tengdist jafn- framt formannafundi Landssambands stangaveiði- félaga, en þar er í forsvari Jón G. Baldvinsson. Fundur þeirra stangaveibimanna var eftir hádegi sama dag og árs- fundurinn, en hópurinn all- ur snæddi saman í hádeg- inu. Á ársfundinum gerði Árni ís- aksson veiðimálastjóri í gróf- um dráttum grein fyrir starf- seminni, en ítarlegt yfirlit um hana kom fram í fréttabréfi Veiðimálastofnunar, „Laxfisk- ar", sem lagt var fram á fund- inum. Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra flutti at- hyglisvert ávarp á fundinum og sagði m.a. skemmtilega frá kynnum sínum af þingeysk- um veiðimönnum. Þá afhenti ráðherra nokkrum ungum mönnum verðlaun Veiðimála- stofnunar fyrir góð skil á fisk- merkjum, en þeir höfðu verið dregnir út úr hópi slíkra skila- manna. Þá veitti Jón G. Bald- vinsson, formaður LS, nokkr- um ungum mönnum verð- laun fyrir góðan árangur í fluguhnýtingum. Umhverfisþættir og sveiflur í laxa- stofnum Tveir forstöðumenn Veiði- málastofnunar, þeir Sigurður Guðjónsson, deildarstjóri Vistfræðideildar, ogjónasjón- asson, forstöðumaður Eldis- deildar, fluttu erindi á fundin- um. í erindi Sigurðar kom m.a. fram, að miklar sveiflur væru í Árni ísaksson veiöimálastjóri í rœöustói. T.h. Vífill Oddsson og Cuö- mundur Bjarnason. jón S. Baldvinsson afhendir Magnúsi Siguröarsyni, Selfossi, verölaun fyrir góöan árangur í fluguhnýtingum. laxveiði milli ára. Einungis langtímarannsóknir gætu svarað, hverjar orsakir þessara sveiflna væru. í þeim tilgangi hefðu farið fram umfangs- miklar rannsóknir í Elliðaán- um og í Vesturdalsá í Vopna- firði á seiðaárgöngum í ánum, gönguseiðafjölda og endur- heimtum úr hafi. Rannsóknir og athuganir hefðu leitt í ljós að umhverfisþættir í sjó skýrðu stærri hluta af stofn- sveiflum hjá laxi en seiðabú- Nokkrir fundarmanna. Á miöri mynd má sjá f.v. Böövar Sig- valdason, Braga Vagnsson, Karl Ómar jónsson og Orra Vigfússon. VEIÐIMAL EINAR HANNESSON Umhverfisþætt- ir helsta skýring sveiflna í veibi Segir nú af stafkörlum í Hveragerði Það er gjörsamlega og óumdeil- anlega hafið yfir allan vafa, að það fyrirbæri er ekki til, sem kennt er við íþróttir og er ve- sældarlegra en golf. Sé á annað borð hægt að kalla golf íþrótt, þá er hún íþrótt þeirra karlægu. Þegar Gústaf Svíakonungur V., en hann spilaði tennis, var hálfníræður, var hann spurður hvort honum hefði aldrei komið til hugar að leika golf. „Nei, svo gamall er ég ekki," svaraði kóngur, vitandi það að golf er langt fyrir neðan virð- ingu annarra en þeirra, sem hökta með annan fótinn í gröf- inni. Leikreglur golfs eru þær, að menn ganga um sléttan gras- völl og slá eða pota staf í litla kúlu, í þeirri von að hún lendi ofan í þar til gerðri holu. Kall- ast leikmenn því stafkarlar eða stafkerlingar, allt eftir kynferði viðkomandi. En íþróttamenn eru þeir ekki, hvorki karlkyns né kvenkyns. En að sama skapi og golf krefst minni hreysti af iðkend- um sínum en flestar aðrar mannlegar athafnir, fyrir utan kannski að hella sér kaffi í bolla, þá útheimtir stafpot þetta víðáttumeira landrými en nokkuð það, sem með réttu getur kallast íþrótt. Því hafa golfarar víða lagst í , landvinninga. Vill þá henda að beitt sé fláræði og undir- hyggfu, svo sem háttur er þeirra er sýnast vilja sterkari en efni standa til, hvort heldur er til búks eöa sálar. Nýjasta dæmi þessa á sér nú stað austur í Hveragerði, eða réttara sagt í Gufudal sem ligg- ur norður af bænum. Þar telja kúlupotarar sig eiga rétt til lands undir leikvöll, enda hafa þeir bréf upp á það frá ein- hverri frímerkjasleikju í land- búnaðarráðuneytinu. Sá er þó hængur á, ab búskapur er á landi því sem stafkarlarnir gera kröfu til. Land þetta er bújörð í SPJALL Pjetur Hafstein Lárusson eigu ríkisins, sem hefur leigt það bændum til lífsviðurværis allt frá því það komst í eigu þess. Þess sér hvergi stað í lögum, að hægt sé að hrekja bændur af jörðum, eins þótt leigujarðir séu, til þess eins að karlægir menn geti nýtt það undir göngutúra, janfvel þótt kúla sé með í för. Þess er og að geta, að Hveragerði er í Ölfusinu, sem er hluti af stærsta flatlendi landsins. Er því með ólíkind- um ab ekki megi finna stafkörl- um þessum leikvöll, án þess að svipta vinnandi fólk lífsaf- komu þess. Og jafnvel þótt svo væri, þá er hægur vandi ab leysa þetta mál með því að láta stafkarlana fá tölvuforrit með golfspili. Tölvuleikir eru nú einu sinni ætlaðir ómálga börnum, karlægum gamal- mennum og öðrum þeim sem lítt eru til stórræða fallnir. Það er skiljanlegt að land- búnaðarráðuneytið blandist inn í þetta mál, enda hefur það umsjón með jarðeignum ríkis- ins. Hitt væri þó nær réttu lagi að það yrði til lykta leitt innan heilbrigðisrábuneytisins, enda vandséð ab fullhraustir menn gerist meðlimir í golfklúbbum. Þó skal tekið fram, að ég tel víst að treysta megi landbúnaðar- ráðherra í þessu máli. Ég trúi því einfaldlega ekki að hann, þingeyskt eðalmenni, láti flat- lenska stafkarla hrekja bónda af jörð sinni, til þess eins ab þeir geti í krankleika sínum og vesöld rölt á eftir kúlu milli hola. ■ FÖSTUDAGS PISTILL ÁSGEIR HANNES BROTIST TIL LANDAUÐNAR íslendingum hefur gengið hálf illa að halda friðinn við landið sitt. Land- námsbækur segja að landið hafi ver- ib skógi vaxiö frá fjöru til fjalla fyrir ellefu hundrub árum. Síðan hafi menn og dýr gengib á skógana og nú er svo komiö fyrir skóglendi ís- lendinga að stærstu skógarnir eru í húsagöröum Reykvíkinga. En skógar landsins eru ekki einu náttúruauðæfi íslendinga sem hafa gengib til þurrðar. Ýmsar perlur landsins hafa látiö undan síga fyrir bæði mannkyni og bústofni á íslandi og má þar telja bæði Raubhóla og Dimmuborgir. Heilu flákunum á há- lendinu er drekkt í uppistöðulónum fyrir orkuverin. Dýr merkurinnar hafa týnt tölunni hvert á fætur öbru og þjóbin hefur orðið að hlaupa í skörbin með upp- stoppaða geirfugla frá Sotheby's í Lundúnum. Hvítir haukar eru allir seldir úr landi fyrir löngu. Og ekki nóg meb þab: Þegar mannskepnan og saubkind- in stóbu loks yfir moldum trjágróð- urs í landinu beindust sjónir þeirra að mýrlendinu. Nú var tekib til óspilltra málanna ab ræsa fram vot- lendiö hvar sem til þess náðist og heimili margra af frumbyggjum landsins rústub í fullkomnu tilgangs- leysi. Og til ab bíta höfuðiö af skömminni var ríkissjóður látinn greiba bændum stórfé fyrir ab má fugla votlendisins út af íbúaskrá landsins. Og ekki er öllu enn til skila haldib: Hafdjúpin hafa ekki orðib útundan á leib íslensku þjóðarinnar til lan- daubnar. Síld af Norburlandsstofni hvarf eins og dögg fyrir sólu og fleiri stofna biða sömu örlög. Sveitir hausaveibara voru sendar til höfuðs selnum Snorra vib strendur landsins fyrir þrjátíu silfurpeninga. Skoltarnir einir hirtir sem höfublebur og limlest hræin skilin eftir börnum og hröfn- um ab leik. Hvalir voru skotnir nibur eins og endur í skotbakka og búast má nú vib frekari hvalavígum eftir skamma grib. Og ekki má gleyma blessabri skepnunni þorskinum. Reyndar er þorskstofninn í gíslingu hjá nokkrum útvegsmönnum landsins og því frek- ar erlendur ríkisborgari í fiskveiðilög- sögunni en samlandi þjóðarinnar. Meb sama áframhaldi þarf þorskur- inn ekki ab óttast ab hann kembi hærurnar. En sögur af nýjasta fantabragði mannkynsins berast vestan af Breiba- firbi. Þar hóta bændur ab skjóta sjálf- an konung fuglanna nibur eins og hvern annan umrenning, af því hann gegnir kalli náttúrunnar og leitar ab æti fyrir sig og sína. Nú er arnar- stofninn á íslandi notaður til ab kúga fé úr ríkissjóði eftir ab skógar eru allir og votlendib. Bændur hafa með rétti kvartab yfir ab ímynd þeirra sé grátt leikin í frétt- um. Þeirra bíba örugglega önnur sjö ár mögur á gráa svæbinu á meban nokkra þeirra klæjar í gikkfingurinn við arnan/arp. íslenski örninn þarf ekki ab bibja nokkurn mann afsökunar á ab hann sé til og allra síst að gjalda fyrir líf sitt meb lífi sínu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.