Tíminn - 20.07.1996, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.07.1996, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917 80. árgangur Laugardagur 20. júlí * * \mWFILl/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 136. tölublað 1996 Borgarendurskoöandi: Sveitarfélög eiga aö nota góöœriö til aö rétta viö fjárhaginn: Tími til kominn a 5 borga niður skuldir Sjónvarpsendingar RÚV frá Atlanta: Á skián- umi 16.974 mínútur „Þa& er gert ráb fyrir í dag- skránni hjá okkur aö þetta séu 16.974 mínútur," segir Amar Bjömsson íþróttafrétta- maöur hjá RÚV um umfang Olympíuleikana í Atlanta í dagskrá Sjónvarpsins. Þetta munu vera alls 283 tímar, eöa 16 til 17 tímar á dag en leik- unum lýkur þann 5. ágúst nk. Áætlaður kostnaður RÚV vegna leikanna er talinn nema alls 45 milljónum króna. Þá munu útsendingarnar ekki hafa nein truflandi áhrif á helstu fréttatíma sjónvarpsins, eins og stundum þegar sýnt hefur verið beint frá stórum íþróttaviðburðum. Klukkan í Atlanta er um fjórum tímum á eftir þeirri íslensku, en sex tím- um á eftir sumartímanum í Evr- ópu. Tveir íþróttafréttamenn frá RÚV verða ytra, þeir Bjarni Fel- ixsson og Samúel Örn Erlings- son, auk þess sem Ingólfur Hannesson forstöðumaður íþóttadeildar er einnig ytra en á vegum EBU, sambands evr- ópskra sjónvarpsstööva. Til við- bótar mun einhver fjödi starfs- manna RÚV koma að þessum útsendingum beint eða óbeint. Eins og oft áður sýnist sitt hverjum um útsendingar sem þessar og hafa starfsmenn sjón- varpsins ekki farið varhluta af þeim frekar en endranær. Með- al annars munu hafa borist kvartanir um yfirgang íþrótta á skjánum þegar þar hefur ekkert verið að sjá annað en stilli- myndina. Þótt einhverjum kunni að þykja þetta stór skammtur af íþróttaefni frá Atl- anta er þetta ekki eina efnið frá þeirri borg á dagskrá sjónvarps- ins því á hverju fimmtudags- kvöldi er á skjánum sjálfur Matlock frá Atlanta. -grh í víking til íslands: Trine Petersen frá Danmörku, meö Cuömundi jónssyni skátaforingja, á leiö á Landsmót skáta aö Ulfljótsvatni. Trine Petersen frá Friðriks- sundi á Sjálandi er ein af fjöl- mörgum skátum víðsvegar að úr heiminum, sem eru á leið á Landsmót skáta að Úlfljóts- vatni. „Kjarni málsins er að sveitar- félögin eiga að nota góðærið til aö rétta við fjárhag sinn. Það er þeirra hagur og íbú- anna. Þetta er eðlileg krafa við Trine, sem var nýkomin til landsins í gær er Tíminn átti við hana spjall, sagðist enn ekki hafa myndað sér neina sérstaka skoð- un á íslandi, en landslagið væri mjög svipað og í Færeyjum þang- þær batnandi efnahagsástæð- ur sem spáð er", segir borgar- endurskoðandinn í Reykjavík, Símon Hallsson, í formála endurskoðunarskýrslu með að sem hún hafði komið fyrir tveimur ámm. Hún sagðist einnig hafa farið á skátamót í Hollandi í fyrrasumar, og að löngunin til að upplifa eitthvað nýtt hefði rekið hana hingað til lands. ársreikningi Reykjavíkurborg- ar 1995. Á undangengnum samdráttarárum hafi sveitar- félög reynt að mæta þeim miklu kröfum sem gerðar Von er á 2500 skátum á lands- mótið, en það er haldið á 3ja ára fresti. Meðal þáttakenda verða um 500 erlendir skátar frá lönd- um eins og Ástralíu, Pakistan, Ke- nýuogjapan. -sh voru um sértækar aðgerðir, með auknum útgjöldum til fé- lagslegrar þjónustu og fjár- framlögum til styrktar at- vinnulífinu, sem hafi gengið mjög nálægt fjárhag þeirra. Peningaleg staða sveitarfélaga hafi versnað um nærri 16 milljarða á árunum 1991-94 og áætlað að þær hafi enn aukist um hátt í 3 milljarða 1995. En við þær nýju efnahagsað- stæður sem nú blasi við verði ekki með sanngirni gerðar kröf- ur til sveitarfélaga um sérstök fjárframlög til atvinnuaukandi aðgerða og félagslegrar þjón- ustu. „Þvert á móti á að gera þá kröfu að þau noti góðæri til að greiða niður skuldir sínar", segir borgarendurskoðandi. Sveitarfé- lögin hafi ýmis úrræði til að bæta fjárhagsstöðu sína. Nær- tækast sé hjá þeim flestum ab draga úr útgjöldum. Að auki geti sum þeirra selt ónauðsyn- legar eignir. Og enn önnur geti svo aukið tekjur sínar. „Réttlætanlegt virðist til að mynda aö sveitarfélög með þunga vaxta- og skuldabyrði nýti betur rétt sinn til álagning- ar útsvars og annarra skatta. Sama má segja um ýmsa þjón- ustu, sem sum er seld fyrir minna en þriðjung af kostnað- arverði, ab réttlætanlegt sýnist ab gera þá kröfu til notenda þjónustunnar ab þeir taki auk- inn þátt í kostnaði við hana", segir Símon Hallsson. ■ Útgefin atvinnuleyfi komin í 540 á miöju ári: Um 120 fengu at- vinnuleyfi / • / / 1 jum Um 120 atvinnuleyfi voru gef- in út í júní, eða töluvert fleiri en í nokkrum öðrum mánuði á þessu ári. Aö undanförnu hafa ný atvinnuleyfi oftast verið 80-90 á mánuði. Samtals var um 540 atvinnuleyfum út- hlutað frá áramótum til júní- loka borið saman við 1.170 leyfi allt árið 1995. Um 280 af leyfum þessa árs eru ný og tímabundin, um 160 eru framlengingar tímabund- inna leyfa og rúmlega 90 eru óbundin atvinnuleyfi. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.