Tíminn - 20.07.1996, Qupperneq 3
Laugardagur 20. júlí 1996
T
3
Malbikaö í nýju Súöavík:
Norskt
grjót
var flutt
inn
Atvinnuleysi í júní 4,3% á höfubborgarsvœbinu en 2,6% á landsbyggbinni:
Atvinnuleysi minnkað
niöur í 3,6% í júní
Súðvíkingar hafa gert samn-
ing við Hlaðbæ-Colas hf. um
malbikun allra gatna í nýja
þorpinu. Fyrirtækið hefur
reist malbikunarstöð á ísafirði
vegna framkvæmdanna við
jarðgöngin og því hæg heima-
tökin.
Hér er um að ræða 19,8 millj-
ón króna samning. Steinefni í
malbikið verður flutt inn frá
Noregi þar sem ekki er fáanlegt
jafn slitsterkt efni vestra og tæp-
ast í landinu, segir í Fréttabréfi
Súðavíkurhrepps.
JVJ verktakar annast síðasta
áfanga verksins og á honum að
ljúka um næstu mánaðamót.
Atvinnulausum fækkaði um
1.300 manns milli maí og
júní, eða í 3,6% af mann-
afla, sem er töluvert meira
en Vinnumálaskrifstofan
hafði gert ráö fyrir. Skráð at-
vinnuleysi svarar til tæplega
5.000 manns á skrá allan
mánuðinn — sem er rúm-
lega 2.000 manns færra en í
júní í fyrra.
Þessi mikla fækkun milli
ára hefur fyrst og fremst orðið
á landsbyggðinni, þar sem at-
vinnulausum hefur fækkað
um nær helming milli ára (úr
5,3% niöur í 2,6%). Atvinnu-
leysi er nú komiö niður í 1,5%
meðal karla á landsbyggðinni,
en er 4,3% hjá konum, en af
þeim voru nær 40% þó í
hlutastörfum.
Fólki án vinnu á höfuðbor’g-
arsvæðinu hefur aftur á móti
fækkað mun minna. í júní
voru að jafnaði nær 3.500
manns án vinnu á höfuðborg-
arsvæöinu (rúmlega 1.400
karlar og hátt í 2.100 konur),
en hafði þá fækkað um 760 frá
maímánuði, eða um 18%. í
Reykjavík var um fimmta
hver kona á atvinnuleysisskrá
í hlutastarfi.
Atvinnulausum fækkar
hlutfallslega miklu meira í
öðmm landshlutum og um
þriðjung til helming á ein-
Fyrirhugub rábning í starf grasafrœbings vib Lystigarbinn á Akureyri:
Umhverfisnefnd átelur vinnu-
brögö starfsmannadeildar
Umhverfisnefnd Akureyrar-
bæjar hefur látið bóka gagn-
rýni á vinnubrögð starfs-
mannadeildar varðandi fyrir-
hugaða ráðningu í starf grasa-
fræðings/líffræðings við
Lystigarðinn á Akureyri. For-
saga málsins er sú að umhverf-
isnefnd mælti með Evu G. Þor-
valdsdóttur í starfiö, en Eva
ákvað að þiggja ekki starfið,
bæði vegna meintra lélegra
launakjara og þess að henni
hafi verið meinuð aðild að
sínu stéttarfélagi. í samtali við
Tímann sagði Eva að Akureyr-
arbær hefði sett sem skilyrði
fyrir ráðningu sinni að hún
yrði ekki í stéttarfélagi nátt-
úrufræðinga, heldur í stéttar-
félagi starfsmanna Akureyrar-
bæjar. Það hefði riöið bagga-
muninn um það að hún ákvað
að taka ekki starfinu.
í bókun umhverfisnefndar
kemur einnig fram að nefndin
treysti sér ekki til að mæla með að
starfið verði auglýst á ný að
óbreyttri stefnu í kjaramálum.
Bæjarstjóri neitar
alfarið
ásökunum
í samtali við Tímann sagði Jak-
ób Björnsson, bæjarstjóri Akur-
eyrar, bæinn ekki reka neina lág-
launastefnu. „Það að einn eða
tveir einstaklingar séu ósáttir við
þau kjör sem í boði em segir nátt-
úrulega ekkert um launastefnu
bæjarins. Það er alltof gróft álykt-
að. Það getur verið að Mogginn
borgi blaðamönnum betur en
Tíminn, en þýöir það þá að Tím-
inn reki láglaunastefnu? En ég
svara því ákveðið neitandi að Ak-
ureyrarbær reki vísvitandi lág-
launastefnu."
Ekki meinuð aðild að
stéttarfélagi
„Hvað varðar það að konunni
hafi verið neitað um aðild að
stéttarfélagi er ekki rétt. Þar er
misskilningur á ferðinni og Akur-
eyrarbær og forsvarsmenn hans
gera sér fulla grein fyrir þeim lög-
um sem í gildi eru þar um. Hér er
fólki ekki meinuð aðild að því
stéttarfélagi sem það kýs. Það er
frelsi um félagaaðild hér á landi
og það er Akureyrarbæ fulljóst."
Jakob sagði bókun umhverfis-
nefndar afar óheppilega og
byggða á misskilningi. Það er
sumarleysfistími og menn hafa
greinilega ekki náð alveg nógu vel
saman innan kerfisins og í raun er
mjög bagalegt þegar slíkar bókan-
ir fara af staö. Það hefði verið
hægt að ryðja úr vegi þeim mis-
skilningi sem þarna var uppi án
þess að til opinberra bókana
kæmi." -sh
Vel heppnuö hátíö í
Hornafiröi:
Sjö eöa átta
tonn af áfengi
á Humarhátíð
Metsala varð hjá ÁTVR í Höfn í
Homafirði fyrir humarhátíðina
um daginn. Milli sjö og átta
tonn af áfengi vom afgreidd út
úr búöinni, segir í Eystrahomi,
en auk þess tvö til þrjú tonn
„bakdyramegin" frá HP og son-
um, sem afgreiða beint til veit-
ingahúsa á svæðinu.
Mest var salan á bjór, en hlut-
fallslega minna af sterkum vín-
um en fyrir venjulegar helgar.
Greinilegt er að magn áfengra
veiga hefur verið til muna meira
en af lostætinu, sjálfum humrin-
um, á Humarhátíðinni.
En hvemig gekk?
„Bara þetta venjulega, nokkrir
að gubba og nokkrir þreyttir að
leggja sig," sagði lögreglan í þessu
líflega héraðsfréttablaði. Og rétt
er það fólk skemmti sér konung-
lega við að borða humar sem
skolað var niður með bjór. ■
Dómnefnd Friedmans leist vel á fimmþúsundkrónuseöilinn frá íslandi.
Fimmþúsundkallinn
fékk þriöju verölaun
Fimmþúsundkróna seðlinum ís-
lenska hlotnaðist nokkur heiður í
fyrstu alþjóðlegu samkeppninni
um útlit gildandi peningaseðla
sem efnt var til á vegum stofnun-
ar í Hollandi.
Dómnefnd undir stjórn hag-
fræðiprófessorsins dr. Miltons Fri-
edmans úrskurðaði fimmþúsund-
krónu seðilinn okkar í þriðja sætið.
Danski þjóðbankinn varð sigurveg-
ari með 1.000 króna seðilinn sinn,
en sá svissneski í öbru sæti fyrir 50
franka sebli. Dómnefndin mat 237
sebla frá 45 löndum.
Fimm þúsund króna seöillinn ber
andlitsmynd af Ragnheiöi Jónsdótt-
ur (1645-1715), biskupsfrú á Hólum
og er seöilinn tileinkaður hannyrð-
um og nytjalistum, en í þeim grein-
um var biskupsfrúin mikill frömuö-
ur. Kristín Þorkelsdóttir og Stephen
A. Fairbairn teiknuðu seöilinn eins
og aðra seðla sem veriö hafa í notk-
un hér á landi eftir gjaldmiðils-
breytinguna 1981. Seðlabankinn
gaf seöilinn út í júní 1986.
staka stöðum, m.a. í Borgar-
nesi, Sauðárkróki, Skaga-
strönd, Seyðisfirði, Vopna-
firði, á Héraði, Hveragerði,
Þorlákshöfn og víðar.
Utan höfuðborgarsvæðisins
var atvinnuleysi hvergi yfir
3% í júní, en hins vegar lang-
minnst 0,5% á Vestfjörðum.
Miklar breytingar virðast
meðal annars hafa átt sér stað
á vinnumarkaði á Norður-
landi eystra, þar sem atvinnu-
leysi vildi lengi loða við, var
t.d. milli 6% og 7% í júní í
fyrra og árib þar áður. í júní
voru aðeins 2,7% norölensks
vinnuafls án starfa, sem var
rúmlega fjórðungs fækkun frá
mánuðinum á undan og
meira en helmings fækkun frá
júní í fyrra.
Af atvinnulausum í júnílok
voru rúmlega 900 í hluta-
starfi, þar af rúmlega helm-
ingurinn á höfuðborgarsvæð-
inu og yfirgnæfandi meiri-
hluti (760) konur.
Vinnumiðlanir höfbu 63
laus störf í bobi í júnílok, sem
er nokkur fækkun frá mánuð-
inum á undan. Vinnumála-
skrifstofan áætlar að atvinnu-
laUsum muni fækka enn núna
í júlí, þ.e. ef áhrifa sumarlok-
ana fiskvinnslustöðva gæti
ekki þeim mun meira.
Lægri hraöi, aukíö umferðaröryggi,
minni hávaöi og minni mengun
Borgarverkfræöingur, Umferóardeild,
Gatnamálastjóri, Borgarskipulag.
Hægt á akstri
um íbúðahverfi
Borgaryfirvöld kynna um þessar
mundir fyrir íbúum borgarinnar
hverfi þar sem leyfilegur há-
marksakstur er 30 kílómetrar.
Margar þessara gatna hafa verið
eknar af ótrúlegu kæruleysi öku-
manna, þrátt fyrir þrengsl í göt-
um og börn að leik. Framundan
eru ný vegaskilti sem eiga ekki
að fara fram hjá ökumönnum,
og hverfin afmörkuð með
breyttu yfirborði gatna og fleiru.
Myndin er af forsíðu kynningar-
bæklings borgarinnar. ■