Tíminn - 20.07.1996, Page 10
10
Hagvrðingaþáttur
Hagyrðingar eflast að öllum mun þegar þáttur fer að
láta kræla á sér eftir nokkurt hlé. Búi skrifar að óhug
hafi sett að mönnum, þegar þátturinn lét ekki á sér
kræla um skeið og óttast var um afdrif hans:
Hagyrðinga- þurfa -þátt
þjáðir menn og 'eiga bágt.
Andlegt fjör og eðli kátt
örvar hann og styrkir þrátt.
Hverfi hann, er geðið grátt,
gremjan lamar þrek og mátt,
enda nœr ei neinni átt
að nota slíkan aulahátt.
Aukum heldur smátt og smátt
í smiðju dverga hamraslátt,
það mun skaþa þjóðarsátt,
þá mun verða hlegið dátt.
Að gleyþa útlent glamrið hrátt
gleþur hug og bœtir fátt,
enda leggur Búi brátt
bann við sltku oþinskátt.
Búi
Sami sendir vísu sem sameinar myndríkt mál Snorra-
Eddu og hið besta úr nútímaskáldskap. Kæmi ekki á
óvart að hún sé ort úti á breiðum og eyríkum firði,
eða á þeim slóðum sem Sigurður Nordal telur líkur á
að Völuspá hafi verið ort á einni sumarnóttu.
Út á breiðan Sónar sæ
Suttungs gnoð ég stundum rœ,
og úr flautu Fjalars nce
fógrum tónum. — Ókei, bœ!
Gott vor, og þó
Árgœska ríkir, en einugi gagnar,
það athuga þjóðin má.
Við sitjum uþþi með ÓlafRagnar,
eftir sem fjölmiðlar spá.
Ólafur Stefánsson
Um presta
og kirkjumál
Æðstu prestar íslands þjóðar
allskyns lesti hafa drýgt.
Tíðum mest í faðmi fljóðar
fitluðu best við holdsins mýkt.
Ekki styrkjast andans menn
eða virkja trúna.
Grúfir myrkur yfir enn
okkar kirkju núna.
Pétur Stefánsson
En bjargræðið kann að vera nærri:
Benni Hinn
Þó að hrynji heimurinn
úr hugsýki og elli,
býst ég við að Benni Hinn
bjargi oss í hvelli.
Sveinn Kristinsson
Botnar og vísur sendist til Tímans
Brautarholti 1
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Laugardagur 20. júlí 1996
þessu merki, þá sé ég hvort hún er
meb þurra húð eöa ekki. Hvort
hana vantar krem sem er súrefnis-
gefandi, vegna þess að það eykur
orku.húöarinnar og bætir litarhátt-
inn. Eða hvort hún þarf kannski
helst af öllu „firming" krem, sem er
svolítið strekkjandi og má þá einnig
nota niður á hálsinn. Þau krem eru
bæði til í fitusnauðu formi og með
svolítilli fitu í. Og vilji hún fara út í
ávaxtasýrur, þá er það sérstakt krem
sem notað er á nóttunni og svo
önnur meðferð sem passar þar á
móti á daginn.
Þessu er best að rugla ekki saman.
Ég ráðlegg konum alltaf að nota
virku kremin ein og sér hverju
sinni. Vera þá bara með eitt virkt
krem í einu, þangað til búið er úr
krukkunni. Og þegar hún er síðan
búin, að kaupa þá ekki sama virka
kremiö strax aftur, heldur annab
virkt krem.
Hreinsun
aöalatriðið
Það eru krem á markaðnum sem
eru fjölvirknikrem. En persónulega
trúi ég ekki eins mikib á þau, af því
ég vil meina að ein virknin skemmi
fyrir annarri. Þegar krem eru virk,
álít ég best að þau séu virk á ein-
hvern einn máta. Ef eitt krem er
súrefnisgefandi og strekkjandi og
bætiefnagefandi, þá hlýtur eitthvab
af þessu að líða fyrir hitt eða of lítiö
sé af hverju þessara virku efna.
Þab, sem er aðalatriðið fyrir kon-
ur sem vilja kaupa sér góð krem, er
að þær hreinsi húðina mjög vel.
Þær eiga ekki bara að hreinsa af sér
málninguna, heldur hreinsa húð-
ina algjörlega, þannig að þessi góðu
krem fái óheftan aðgang að húð-
inni. Þetta getur kona t.d. séð þegar
hún er búin að nota hreinsimjólk-
Þróun í kremum er nuna yfir í 24 stunda krem:
Sérkremin er best að nota
bara eitt hverju sinni
Kona, sem ætlaði loksins að fara að
dekra við sjálfa sig með því ab
kaupa sér virkilega gott krem, sagð-
ist eiginlega hafa orðið ringluð þeg-
ar hún stóð frammi fyrir því að
velja sér eitt krem úr öllum þeim
aragrúa sem er á boðstólum. Hvert
þeirra um sig á að gera hrein undra-
verk fyrir húðina: Þab eru raka-
krem, sem gera húðina mjúka og
ferska. Hrukkukrem sem sléttaði úr
hrukkunum. Ávaxtasýrukrem sem
endurnýjabi efsta lag húðarinnar,
svo hún varð eins og á ungmey.
Krem sem lofa andlitslyftingu án
skurðaðgerðar. Og svo framvegis.
Eiginlega fannst konunni hún
þurfa á öllu þessu að halda, en sagð-
ist tæpast trúa því að hún ætti ab
smyrja öllum þessum kremum
hverju ofan á annað. Hvað á venju-
leg kona að setja á andlitið á sér, þá
auðvitað eftir ab hún hefur hreins-
að húðina vel og vandlega?
Villugjarnt í krema-
frumskóginum
Heiðar: „Sé hún t.d. mjög þurr í
húöinni, sem er mjög algengt á vet-
urna, getur hún byrjað á að bera á
sig hreint þunnfljótandi rakakrem,
beðið síðan í smástund og sett þá
annað krem með ákveðinni virkni
og er þá tilbúin fyrir málningu. Yfir
sumarið, þegar ekki er eins mikið
álag á húðina, gæti hún aftur á
móti notað 24 stunda krem, annað
hvort eitt og sér eða með öðru, áður
en hún málar sig.
Þróunin í kremum núna eru 24
stunda krem. Flest snyrtivörumerki
eru núna aö endurskipuleggja og
búa til ab mestu leyti 24 stunda
krem og síöan sérkrem, sem fara þá
ýmist undir eða yfir 24 stunda
kremið — einmitt út af þessum
frumskógi sem konan talar um, þ.e.
að hinn almenni neytandi er hætt-
ur að botna í þessari
geysilegu krema-
tækni. Það eru
„firming" krem,
það eru súrefnisgef-
andi krem, það eru
krem með ávaxta-
sýrum, það eru
krem með vítamín-
um og bætiefnum
sem húðin getur
tekib við, og svo
framvegis.
Bara eitt sérkrem í
einu
Þegar maður notar þessi krem,
æskilegt að vera meb eitthvert eitt
þessara sérkrema í einu, og kaupa
sér síðan aftur aðra tegund næst.
Ég hef gott dæmi fyrir mér, þar
sem ég horfi á frönsku snyrtivör-
urnar Sotyis í hillunni hér fyrir
framan mig. Þar eru 24 stunda krem
eiginlega að verða allsráöandi. Þau
koma í tvennu lagi, annars vegar
sem krem og hins vegar fitulítil og
fljótandi.
Ef kona ætlar ab fá sér krem í
ina, þá kemur samt litur í bómull-
ina sem hún notar til að bera á sig
andlitsvatnið. Það þýðir auðvitað
ab húðin er ekki fullkomlega hrein
til að taka við mjög fínu kremi.
Að þessu leyti standa Japanir
mjög framarlega. í snyrtivörumerk-
inu Kanebo er til dæmis gert ráb
fyrir tvöfaldri hreinsun. Konan
hreinsar fyrst af sér farbann og síð-
an er annað efni til að hreinsa húð-
ina sjálfa með sérlöguðum silki-
blönduðum klút, sem er þveginn á
milli, og þá er loks komið að and-
litsvatninu. Þetta er þessi japanska
hefð og þegar hún er notuð, kemur
aldrei neinn litur í bómullina með
andlitsvatninu. ■
Heibar
jónsson,
snyrtir,
svarar
spurningum
lesenda