Tíminn - 20.07.1996, Qupperneq 11

Tíminn - 20.07.1996, Qupperneq 11
Laugardagur 20. júlí 1996 11 Fomíslenskt tímatal er ab ýmsu leyti merkilegt og hefur löngum vakið athygli og aðdáun fræbi- manna, erlendra sem íslenskra. Þótt það sé lítib notað nú, lifir þab enn meb þjóbinni, eins og sjá má þegar menn halda sumardaginn fyrsta hátíblegan eba minnast fyrsta vetrardags. Nöfn eins og þorri og góa hafa ekki heídur fall- ib í gleymsku. Tímatalib, sem landnámsmenn sameinuðust um, hefur líklega átt sér fyrirmynd í Noregi, en þær end- urbætur, sem gerðar vom á því eftir landnám, eru svo veigamiklar að það má með réttu kallast íslenskt fremur en norrænt. Þetta forna tímatal er venjulega nefnt misseris- tal, því að gmndvallaratriði þess er skipting ársins í tvö misseri, sumar og vemr. Á hvom misseri reiknuðu menn tímann með því að telja hve margar vikur væru liðnar frá byrjun misseris, eða hve margar væm eftir til loka þess, vikur sumars eða vikur vetrar. Sumarmisserið hófst á fimmtudegi (þórsdegi) en vetrar- misserið á föstudegi (frjádegi) eða laugardegi og er umdeilt hvort sé uppmnalegra. Hvers vegna þessir vikudagar voru valdir sem upphaf missera er óvíst, en það var ekki fyrr en með kristninni að sunnudagur- inn varð helgidagur og fyrsti dagur viku. í venjulegu ári (tveimur miss- erum) töldust 52 vikur réttar (364 dagar), en í hlaupári 53 vikur (371 dagur). Rétt meðallengd ársins fékkst með því að skjóta inn heilli viku á nokkurra ára fresti í stað þess að leiðrétta með einum hlaupárs- degi, eins og gert er í því tímatali sem nú er notað og allir þekkja. Hlaupársvikan (lagningarvikan eða sumaraukinn) virðist vera ís- lensk hugmynd án erlendrar hlið- stæðu. Hún var innleidd um miðja 10. öld að tillögu Þorsteins surts Hallsteinssonar. Ari fróði segir frá því í íslendingabók að ákveðið hafi verið að lengja sumarmisserið um eina viku sjöunda hvert sumar. Meðallengd ársins í slíku tímatali hefði orðið 365 dagar sléttir. Sumir fræðimenn hafa hins vegar verið þeirrar skoðunar, að „sjöunda hver". hjá Ara merki „sjötta hvert" í nú- tímaskilningi. Sé það rétt, hefur Tímataliö byggir á snúningi jarbar og afstööu til himintungla. Myndin er úr Creenwich- stjörnuathugun- arstöbinni. Höfundar forna íslenska tímatalsins höfbu ekki stjörnukíkja ab stybjast vib, þegar þeir skiptu árum í tímabil af mikilli nákvœmni. tvímánuður. Þessa mánuði má enn sjá í íslenska almanakinu og þeir hafa það fram yfir þá mánuði, sem við höfum erft frá Rómverjum, að vera allir jafnlangir, 30 dagar hver. Nú em tólf 30 daga mánuðir aðeins 360 dagar samtals og vantar því fjóra daga til að fylla tvö misseri. Úr þessu er bætt með því að skjóta inn fjórum aukadögum milli mánaða á miðju sumri. Sami mánuður hefst þá ætíð á sama vikudegi, svo að fast samband verður milli mánaðardaga og vikudaga, ólíkt því sem við eig- um að venjast í nýrra tímatali. í hlaupámm (sumaraukaámm) er lagningarvikunni sömuleiðis skotið inn á milli mánaða. Þetta mánaða- kerfi er á ýmsan hátt einfaldara og betra en það sem við nú búum við. Ýmislegt bendir þó til að þetta snjalla kerfi hafi verið lærðra manna smíð, sem litt hafi verið notuð af al- menningi. Af mánaðanöfnunum em aðeins fá, sem eitthvað ber á í fornum rimm, og nöfn annarra virðast hafa verið á reiki. Nöfn eins og þorri og góa (áður gói) eru vissu- lega ævaforn svo að enginn veit lengur hvað þau merkja. En hvort þau voru í öndverðu notuð um ná- kvæmlega 30 daga tímaskeið er all- sendis óvíst. í íslenska almanakinu allt fram til ársins 1923 vom dagar gömlu mán- aðanna tölusettir frá 1 upp í 30, líkt og gert er við nýju mánuðina í nú- tíma dagatölum. Þetta gaf þó vill- andi mynd af því hvernig gömlu mánaðanöfnin vom notuð til dag- setninga, því að alla jafna töldu menn í vikum frá byrjun mánaðar eða til loka hans. Viknatalningin skipaði þannig alla tíð höfuðsæti í gamla misseristalinu. Rómversku mánaðanöfnin janú- ar, febrúar o.s.frv., sem innleidd vom af kirkjunnar mönnum eftir kristnitöku, vom alþýðu manna framandi og ætluðu seint að ná fót- festu hér á landi. í rímbók þeirri, ■■^EZS23S32fi3S3S xi>xiiixxx ý,- \ J - ***** -> '■ ' aBEBgmrsiB? t Ttwrrn’ Þorsteinn Sœmundsson: Brot úr sögu tímatals á íslandi meðallengd ársins í miss- eristalinu orðið 365 og 1/6 úr degi, sem er mun nær réttu árstíðaári. Hlaupárs- regla misseristalsins var síðar endurbætt með hlið- sjón af júlíanska tímatal- inu, sem tók að ryðja sér til rúms hér á landi eftir kristnitöku. Ætla má að misseristalið hafi verið komið í fastar skorður á öndverðri 11. öld og var það síban notað jafnhliba hinu júlíanska, sem kirkj- unnar menn studdust við og smám saman náði til al- mennings. í dagsetning- um var þá farið að miða jöfnum höndum við kaþ- ólska hátíðis- og messu- daga og íslenska misseris- talið. Þetta sést til dæmis ef gripið er niður í Sturlungu; þar má finna með stuttu millibili setningar eins og þessar: „Þetta var hinn næsta dag fyrir Péturs- messu um veturinn" og „Þórður fór af Eyri heiman laugardag í sjöttu viku sumars" (íslendinga saga). En misseristalið var ekki viknatal einvörðungu, heldur fylgdi þvi mánaða- tal með nöfnum eins og þorri, góa, einmánubur og Grein þessi er tekin úr nýendurskoðuð- um kynningarbœk- lingi Raunvísinda- sviðs Háskólans. Höfundur sýnir fram á að tímatal, sem hér var notað til foma, sé samið hér á landi og sé að mörgu leyti fullkomnara en þau tímatöl sem þá tíðkuðust erlendis og. vom tekin upp síðar. A sem út kom á Hólum árið 1597 og kennd er við þá Guðbrand bisk- up Þorláksson og Arn- grím lærða, var gerð tilraun til að innleiða íslensk nöfn jafnhliöa þeim útlendu. Janúar varð þannig miðsvetr- armánuður, febrúar föstugangsmánuður og mars jafndægram- ánuður, svo ab dæmi séu tekin. Nýyrðin samdi séra Ólafur Guðmundsson í Sauðanesi, höfundur vísunnar „Ap, jún, sept, nóv" sem allir þekkja. Þau voru tekin upp í ýmsar seinni rímbækur og almanök, en náðu aldrei merkj- anlegum vinsældum. Á 18. öld komast róm- versku mánaðanöfnin loks inn í vitund al- mennings. Vikudaganöfnin ís- lensku eiga sér sér- stæba sögu. Sjö daga vikan var upprunnin hjá Gyðingum, mörg- um öldum fyrir Krists burð. Hún barst til Norðurlanda löngu á undan kristninni, og Þorsteinn Sœmundsson. heiðnir menn völdu dögunum nöfn himintungla og guða, hlibstætt því sem Rómverjar höfbu gert og fleiri þjóbir. Þannig var sunnudagur kenndur við sólina, mánadagur vib mánann, síðan týsdagur, óðinsdag- ur, þórsdagur, og frjádagur (þ.e. friggjardagur). Loks kom laugardag- ur eða þvottdagur sem er sérnor- rænt nafn, án suðrænna fyrir- mynda. Þessi nöfn tíðkast enn í ná- grannalöndum okkar, en á íslandi voru þau látin víkja, með tilskipun kirkjulegs yfirvalds. Svo sem kunn- ugt er fékk Jón biskup Ögmundsson á Hólum (1121) því framgengt að nöfnin þriðjudagur, miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur voru tekin upp í stað hinna fomu nafna sem minntu á heiöin goð. Þab segir sína sögu um vald kirkjunnar á þess- um tíma, að almenningur skyldi virða þetta boð sem augljóslega gekk gegn rótgróinni hefð. Ab vísu vann kirkjan ekki fullnaðarsigur, því að „drottinsdagur" og „annar dagur (viku)" náðu ekki ab útrýma sunnudegi og mánudegi úr málinu. En afleiðingin af framtaki biskups varð sú að íslendingar sitja nú uppi meb vikudaganöfn af þrennum toga: laugardagsnafnib, sem er nor- rænt ab uppruna, sunnudag og mánudag, sem eru norræn nöfn, sniðin eftir subrænni fyrirmynd, og loks fjögur daganöfn samin eftir kirkjulegri forskrift. Þessu verður tæpast breytt í fýrirsjáanlegri fram- tíð, jafnvel þótt gerð yrði um þab samþykkt á Alþingi, sem ólíklegt er. Á 18. öld reyndu byltingarmenn í Frakklandi að breyta nöfnum daga og mánaba. Þetta var liður í róttækri tilraun til umbóta á tímatalinu, sem meðal annars fól í sér að mánuðirn- ir fengu allir sömu lengd, 30 daga. Tilraunin mistókst og eftir tólf ár var aftur horfið ab fyrra tímatali, sem enn er í gildi. En ef sá dagur skyldi koma að þjóbir heims reyndu að ná samstöðu um endurbætur á núgildandi tímatali, mætti vel hugsa sér að sækja hugmyndir í hið forníslenska misseristal. Höfundur er stjarnfreebingur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.