Tíminn - 20.07.1996, Page 22
22
Laugardagur 20. júlí 1996
HVAÐ ER Á SEYÐI
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Danssð í Risinu, Hverfisgötu
105, kl. 20 sunnudagskvöld. Þor-
valdur og Vordís sjá um fjörið.
Skrifstofan verður lokuð eftir há-
degi á mánudag, 22. júlí, vegna
jaröarfarar.
Cób ganga um
söguslóbir Vibeyjar
Staðarhaldari í Viðey býður
Reykvíkingum og bæjargestum í
gönguferð um Viðey eftir hádegið í
dag, laugardag, og verður lagt af
stað þegar ferjan kemur til Viðeyjar
klukkan rúmlega tvö. Núna er haf-
in önnur umferð í raðgöngu sum-
arsins og verður að þessu sinni
gengið um Austureyna norðan-
verða.
Meðfram gamla túngarðinum
fyrir austan Viðeyjarstofu og út á
noröurströndina hefur verið lagður
ágætur göngustígur og hefst
gönguferðin að þessu sinni á því að
honum er fylgt að ströndinni. Því
næst liggur leiðin að austurodda
Viðeyjar, þar sem Milljónafélagið
svokallaða hafði mikil umsvif í
upphafi þessarar aldar. Ennþá sjást
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELG ARPAKK AN A
OKKAR
REYKJAVÍK
568-6915
AKUREYRI
461-3000
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
þar nokkur ummerki um fiskverk-
unarhús og önnur mannvirki.
í skólahúsinu, sem hefur verið
gert myndarlega upp, er hin ágæt-
asta myndasýning sem gestir
kynnu að vilja skoða. Þar getur að
líta fjölda ljósmynda frá Stöðinni,
en svo var byggðin á Austureynni
kölluð meðal þeirra sem þar
bjuggu
Fyrs'fa áætlunarferð verður úr
Klettsvör klukkan 13 og síðan á
klukkustundar fresti til klukkan 17.
Ferjutollur er 400 krónur fyrir full-
orðna, en 200 krónur fyrir börn.
Akureyri:
Gunnar Karlsson
sýnir í Deiglunni
í dag, laugardag, kl. 16 verður
opnuð sýning í Deiglunni á mál-
verkum Gunnars Karlssonar. Sýn-
ingin er liður í Listasumri og stend-
ur út júlímánuð.
Gunnar er fæddur að Helluvaði í
Rangárvallasýslu 1959 og nam mál-
aralist við Myndlista- og handíða-
skóla íslands frá 1975-1979 og við
Konunglegu listaakademíuna í
Stokkhólmi frá 1980-1982. Hann
hefur haldið fjórar einkasýningar,
núna síðast í Listasafni Kópavogs
1995, ásamt þvi að hafa tekið þátt í
fjölda samsýninga.
Gunnar teflir fram goðsöguleg-
um minnum á munúðarfullan hátt
og málar í anda klassisisma þannig
að næsta fáir íslenskir málarar
standa honum á sporði. Aðstand-
endur listasumars hvetja Akureyr-
inga og gesti þeirra til þess að láta
þessa sýningu ekki framhjá sér fara.
Flakkferbir — ferba-
klúbbur ungs fólks
Flakkferðir er ferðaklúbbur ungs
fólks sem skipuleggur vímuefna-
lausar adrenalínsferðir. Flakk er
samstarfsverkefni Samvinnuferða-
Landsýnar og Jafningjafræðslunn-
ar.
Flakkferðir standa fyrir meiri-
háttar ferð um verslunarmanna-
helgina. Staður og stund: Stapi á
Snæfellsnesi og Snæfellsjökull um
verslunarmannahelgina. Á svæð-
inu verður útihátíðarstemmning,
svo sem partýtjöld, plötusnúðar,
grillveislur, hljómsveitir.
Ferðir verða upp Snæfellsjökul
alla dagana, þar sem fólk getur
rennt sér niður á snjóbrettum eða
skíðum.
Nóg verður að gerast hjá Flakk-
ferðum þessa helgi og vonast þeir
eftir að sjá sem flesta. Skráning fer
fram í síma 5617835.
Sjóminjasafnib
í Hafnarfirbi
Sunnudaginn 21. júlí verða
gömlu vinnubrögðin kynnt í Sjó-
minjasafni íslands, Hafnarfirði, frá
kl. 13-17, en þá sýna tveir fyrrver-
andi sjómenn vinnu við lóðir og
net. Vinsæl sjómannalög og gamlir
slagarar verða leiknir á harm-
ónikku meðan á opnun stendur.
Verkleg sjóvinna hefur verið fastur
liöur í starfsemi safnsins í sumar og
verður áfram á dagskrá alla sunnu-
daga í júlí og ágúst.
Sjóminjasafnið er nú opið alla
daga frá kl. 13-17 fram til 30. sept-
ember. í safninu eru varðveittir
munir og myndir er tengjast sjó-
mennsku og siglingum fyrri tíma,
þ.ám. tveir árabátar. Einnig er til
sýnis loftskeyta- og kortaklefi af
nýsköpunartogaranum Röðli GK
518, ýmis veiðarfæri, áhöld og
tæki, m.a. hvalskutull, skipslíkön
og fleira.
í forsal Sjóminjasafns stendur nú
yfir sýning á 15 olíumálverkum eft-
ir Bjarna Jónsson listmálara. Allt
eru þetta myndir um sjómennsku
og sjávarhætti fyrir daga vélvæð-
ingar og má því segja að um hrein-
ar heimildarmyndir sé að ræða. All-
ar myndirnar eru til sölu.
Regnboginn sýnir Down
Periscope (Á bóla kaf)
Regnboginn hefur hafiö sýning-
ar á gamanmyndinni „Down Per-
iscope" eða Á bólakaf. Aðalhlut-
verk myndarinnar er í höndum
Kelsey Grammer, sem er íslending-
um að góðu kunnur fyrir túlkun
sína á sálfræðingnum Fraser úr
samnefndum sjónvarpsþáttum og
úr sjónvarpsþáttunum Staupa-
steinn, sem sýndir voru við miklar
vinsældir í sjónvarpinu fyrir ekki
margt löngu.Sjóliðsforingjann
Thomas Dodge (Kelsey Grammer)
hefur alltaf dreymt um að stýra
fullkomnum kjarnorkukafbát á
stærð við fótboltavöll og öðlast
þannig völd og virðingu innan
hersins. Og honum er fenginn kaf-
bátur til umráða — en hann er ekki
það hátæknileikfang sem Dodge
hafði dreymt um. Öðru nær. Aðal-
hlutverk: Kelsey Grammer, Lauren
Holly, Rob Schneider og Bruce
Dern. Leikstjóri: David S. Ward.
Sumartónleikar í
Hallgrímskirkju
Hjónin Janette Fishell frá Banda-
ríkjunum og Colin Andrews frá
Bretlandi koma fram á þriðju tón-
leikum „Sumarkvölds við orgelið
1996", sem verða í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 21. júlí kl. 20.30. Á
efnisskránni eru þrír dúettar, sem
þau leika saman, og á milli leikur
hann verk eftir Bach og breska tón-
skáldið Parry, og hún leikur verk
eftir bandarísku tónskáldin Willi-
am Albright og Dan Locklan og
franska tónskáldið Marcel Dupré.
Þetta er í fyrsta skipti sem tveir
leika í einu á Klais-orgel Hallgríms-
kirkju og verður án efa athyglisvert
á að hlýða. Dúettarnir þrír eru allir
umritanir á þekktum verkum sem
Janette Fishell hefur gert fyrir org-
el: „Allegro moderato" úr Branden-
borgarkonsert nr. 3 í G-dúr eftir J.S.
Bach; tvö lög úr Hnetubrjótnum
eftir Tsjaíkovskíj, „Arabískur dans"
og „Mars"; og loks „Bacchanale" úr
óperunni Samson og Dalíla eftir Sa-
int-Saens.
Náttúrufræðifélagið:
„Langa ferbin" um
Strandir og Inn-Djúp
Á þessu sumri verður „langa
ferð" Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags fjögurra daga ferð norður á
Strandir og um Inn-Djúp dagana
25. júlí til og með 28. júlí. Svo sem
venja er með þá ferð, verður reynt
að leggja áherslu á allsherjar nátt-
úruskoðun og gera ferðina sem
fjölbreyttasta. Lagt verður af stað
íBF
frá Umferðarmiðstöðinni (sunnan-
verðri) fimmtudaginn 25. júlí, kl.
9, og ekið þaðan sem leið liggur
um Borgarfjörð, Holtavörðuheiði
og norður á Strandir að Laugarhóli
í Bjarnarfirði, þar sem gist verður í
tvær nætur. Föstudaginn 26. júlí
verður farið frá Laugarhóli og ekið
norður eftir Ströndum sem vegir
leyfa til Norðurfjarðar og náttúra,
lífríki og mannlíf skoðað eftir föng-
um, þar sem sérstök áhersla verður
lögð á Árnesmegineldstöðina og
lífríki fjörunnar. Síðan verður ekið
til baka aftur að Laugarhóli með
viðkomu í Drangsnesi. Laugardag-
inn 27. júlí verður ekið um Stein-
grímsfjarðarheiði yfir í ísafjarðar-
djúp og út að Bæjum. Ráðgert er að
sigla út í Æðey og ganga inn að
Kaldalónsjökli. Síðan verður ekið
til baka fyrir ísafjörð að Reykjanesi,
þar sem gist verður. Sunnudaginn
28. júlí verður ekið til baka til
Reykjavíkur um Þorskafjarðarheiði,
Gilsfjörð, Dali og Bröttubrekku.
Leiðbeinendur í ferðinni verða
Hilmar Malmquist líffræðingur og
Ómar Bjarki Smárason jarðfræðing-
ur, auk fleiri fræðimanna og stað-
kunnugra heimamanna sem vonir
standa til að verði þátttakendur í
ferðinni. Fararstjórar verða þeir
jarðfræðingarnir Freysteinn Sig-
urðsson og Guttormur Sigbjarnar-
son. Ferðin kostar 7000 kr. auk
gistigjalda og ferðin út í Æðey kost-
ar sérstaklega 1500 krónur fyrir þá
sem þangað vilja fara. Öllum er
heimil þátttaka. Allar upplýsingar
um ferðina og skráning í hana fer
fram á skrifstofu HÍN að Hlemmi 3,
sími 562 4757.
---------------------------\
Inniiegar þakkir fyrir aubsýnda samúð og vinarhug vegna andláts móð-
ur okkar, tengdamóbur, ömmu og langömmu
Kristínar Sæmundsdóttur
frá Mib-Mörk, Vestur-Eyjafjöllum,
Kirkjuhvoli, Hvolsvelli
Sérstakar þakkir færum vib starfsfólki Kirkjuhvols og starfsfólki Sjúkra-
húss Suburlands.
V.
Sæmundur Sveinbjörnsson
Sigurjón Sveinbjörnsson
Gubrún Sveinbjörnsdóttir
Gubbjörg Sveinbjörnsdóttir
Sigurbjörn Sveinbjörnsson
Gubmundur Sveinbjörnsson
Gísli Sveinbjörnsson
Ásta Sveinbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ragnhildur Ólafsdóttir
Jóna Gerbur Konrábsdóttir
Ágúst Oddur Kjartansson
Karl S. Karlsson
Sigurlín Sigurbardóttir
Hrafnhildur Sigurvinsdóttir
Gubjón jónsson
Dagskrá útvarps og sjónvarps
Laugardagur
20. júlí
6.45 Veburfregnir
6.50 Bæn: Séra Axel
Árnason flytur.
7.31 Fréttir á ensku
8.00 Fréttir
8.07 Snemma á laugardagsmorgni
8.50 Ljób dagsins
9.00 Fréttir
9.03 Út um græna grundu
10.00 Fréttir
10.03 Veburfregnir
10.15 Meb sól í hjarta
11.00 í vikulokin á Egilsstöðum
12.00 Útvarpsdagbókin og dagskrá
laugardagsins
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veburfregnir og auglýsingar
1 3.00 Fréttaauki á laugardegi
1 3.30 Helgi í hérabi:
Útvarpsmenn á ferb um landib
15.00 Listahátíb Ólympíuleikanna
1 7.00 Hádegisleikrit Útvarpsleikhússins
18.15 Kabarettsöngvar
18.45 Ljób dagsins
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar og veburfregnir
19.40 Sumarvaka - þáttur meb léttu
snibi á vegum Ríkisútvarpsins á
Akureyri.
21.00 Heimur harmóníkunnar
21.40 Úrval úr Kvöldvöku:
í víkum norbur víst er hlegib
22.00 Fréttir
22.10 Veburfregnir
22.15 Orb kvöldsins
22.20 Út og subur
23.00 Dustab af dansskónum
24.00 Fréttir
00.10 Um lágpættib
01.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns. Veburspá
Laugardagur
20. júlí
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
10.50 Hlé
13.10 Ólympíuleikarnir í
Atlanta
16.10 Hlé
16.25 Ólympíuleikarnir í Atlanta
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Öskubuska (15:26)
19.00 Ólympíuleikarnir í Atlanta
20.00 Fréttir
20.30 Vebur
20.35 Lottó
20.40 Skólaminningar
(A Class To Remember) Japönsk
sjónvarpsmynd frá 1993 um nem-
endur og kennara í kvöldskóla í
Tókíó þar sem hvorir tveggja hafa
jafnríka ánægju af skólastarfinu.
Leikstjóri er Yoji Yamada og abal-
hlutverk leika Toshiuki Nishida og
Keiko Takeshita. Þýbandi: Halldór
Gunnarsson.
22.50 Ólympíuleikarnir í Atlanta
Sýnt frá úrslitum í þungavigt karla
og kvenna í júdó.
23.30 Ólympíuleikarnir í Atlanta
Bein útsending frá keppni í fjórum
greinum sunds.
01.10 Ólympíuleikarnir í Atlanta
Bein útsending frá keppni í
skylduæfingum karla í fimleikum.
03.25 Ólympíuleikarnir í Atlanta
Samantekt af vibburbum kvöldsins.
04.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Lauqardaaur
20. júlí
ÍyB 09.00 Kata og Orgill
rjnnl/i o 09.25 Smásögur
^ú/ui/Z 09.30 Bangsi litli
09.40 Herramenn og
heiburskonur
09.45 Brúmmi
09.50 Náttúran sér um sína
10.15 Baldur búálfur
10.40 Villti Villi
11.05 Heljarslób
11.30 Ævintýrabækur Enid Blyton
12.00 NBA-molar
12.30 Sjónvarpsmarkaburinn
13.00 Saga Queen
14.35 Handlaginn heimilisfabir (e)
15.00 Gúlliver í Putalandi
16.15 Andrés önd og Mikki mús
16.40 Hinrik fimmti
19.00 Fréttir og vebur
20.00 Fyndnarfjölskyldumyndir
(15:25) (America's Funniest Home
Videos)
20.30 Góba nótt, elskan (14:26)
(Goodnight Sweetheart)
21.05 Kúrekar í stórborginni
(The Cowboy Way) Gamanmynd
um nútímakúrekana Sonny og Pet-
er sem þurfa ab fara til New York
og kynnast þar algjörlega nýjum
heimi. Eftir ab hafa setib ótemjur
allt sitt líf kunna þeir engin önnur
ráb gegn glæpum og umferbar-
öngþveiti í New York en ab bretta
upp ermarnar og láta hart mæta
hörbu. Abalhlutverk: Woody
Harrelson og Kiefer Sutherland.
Leikstjóri: Gregg Champion. Bönn-
ub börnum.
22.50 Konungur í New York
(King of New York) Vibfræg
glæpamynd sem fengib hefur
góba dóma. Christopher Walken
leikur valdamikinn glæpaforingja í
New York. Þrátt fyrir atvinnu sína
á hann í baráttu vib samvisku sína
og telur sig bera hag ákvebinna
þjóbfélagshópa fyrir brjósti. Þetta
er spennandi mynd meb eftir-
minnilegum skotbardögum. í öbr-
um abalhlutverkum eru Laurence
Fishburne, David Caruso og
Wesley Snipes. Leikstjóri: Abel Ferr-
ara. Stranglega bönnub börnum.
00.30 Blóbheita gínan
(Mannequin on the Move) Gam-
anmynd. Gluggaskreytingamabur-
inn Jason er ab undirbúa sögulega
sýningu í stórverslun. Þegar hann
er að snyrta eina gínuna t og fjar-
lægir af henni hálsmen, vaknar
gínan til lífsins. Aðalhlutverk:
Kristy Swanson og William Rags-
dale. Leikstjóri: Stewart Raffil.
1990.
i 02.10 Dagskrárlok
Laugardagur
20. júlí
12.00 Opna
^jsvn meistaramótib í golfi
1996.
18.00 Taumlaus tónlist
19.30 Þjálfarinn
20.00 Hunter
21.00 Vitni ab aftökunni
22.30 Órábnar gátur
23.20 Klúbburinn
00.50 Dagskrárlok
Laugardagur
20. júlí
stop -t» ■ 09.00 Barnatími Stöbvar
1\ , 11.05 Bjallan hringir
mÆi. ' n .30 Subur-ameríska
knattspyrnan
12.20 A brimbrettum
13.10 Hlé
1 7.30 Þruman í Paradís
18.15 Lífshættir ríka og fræga fólksins
19.00 Benny Hill
19.30 Vísitölufjölskyldan
19.55 Moesha
20.20 Arabíunætur
21.30 Snjór
23.00 Endimörk
23.45 Njósnarinn (E)
01.55 Dagskrárlok Stöbvar 3