Tíminn - 25.07.1996, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 25. júlí 1996
Tíminn
spyr,..
Eru farsímar skaðlegir heilsu
fólks?
Karl Þorsteinsson
hjá fjarskiptasviði Pósts og Síma:
Það er einhver útgeislun frá þessu,
en hún er mjög takmörkuð miðað
við örbylgjuofnana, þannig að það
er langur vegur frá því að menn séu
að „sjóða á sér heilana" eins og þaö
hefur verið nefnt í fjölmiðlum. Ég
hef ekki heyrt neitt um ab fólk hafi
orðið fyrir óþægindum af þessu, án
þess þó að ég hafi verið ab kynna
mér það sérstaklega.
------------r-------------;-------
/40 \
Ólafur Ólafsson landlæknir:
Þeir hafa verulega truflandi áhrif á
andlega heilsu manna. Að ganga
með síma á sér dag og nótt og fá
aldrei að vera í friði, kemur niður á
fjölskyldulífi og ekki síst bifreiða-
akstri. Það eru til algjörir fíklar, sem
veigra sér ekki vib ab tala í farsíma á
100 km hraða eða á erfiðum gatna-
mótum. Varðandi líkamleg áhrif, þá
hefur lítið sannast í því máli. Það
hefur verið gerður aragrúi rann-
sókna og við höfum tekiö málið upp
á mörgum fundum meb Heilbrigðis-
ráðuneytinu og Hollustuvernd, en
fram að þessu hef ég ekki séð neitt
sem örugglega sannar óheillavænleg
áhrif rafsegulbylgja. Ég á hinsvegar
eftir að líta á allra nýjustu rannsókn-
ir á þessu sviði.
Leó Kristjánsson
jarðeðlisfræbingur:
Farsímar senda frá sér rafsegulbylgj-
ur með segul- og rafsviðum. Þessi
svið eru mjög dauf miðað við t.d.
jarðsegulsvibið sem við göngum í
dags daglega. En vegna þess ab í
þeim eru sveiflur þá geta þau haft
meiri hlutfallsleg áhrif en kyrrstæba
jarðsegulsvibið. Það þarf ekki endi-
lega að vera að rafsegulsviöib sé
heilsuspillandi í sjálfu sér, heldur
geta verið óbein áhrif sem menn
hafa ekki enn áttað sig á. Vert er þó
að nefna ab bandaríska eðlisfræbifé-
lagið sendi í fyrra frá sér yfirlýsingu
um ab engar sannanir séu fyrir
áhrifum rafsegulsviöa frá háspennu-
raflínum eða raftækjum á heilsufar
fólks.
Tölvur á 33% íslenskra heimila, en abeins 3-19% heimila í öörum
Evrópulöndum:
s
Islendingar 2-10 sinnum
tölvuvæddari en allir aðrir
Samkvæmt nýrri könnun Félags-
vísindastofnunar á tölvueign
landsmanna virðast einkatölvur
frá 2-falt til 10-falt algengari á
heimilum íslendinga heldur en
nokkurra annarra Evrópuþjóba
og til dæmis nærri
4 sinnum algeng-
ari á íslenskum
heimilum en
dönskum.
Könnun Félags-
vísindastofnunar
leiddi í ljós að
einkatölvur eru á
um þriðja hverju
heimili á íslandi. í
nýlegri „Skýrslu for-
sætisráðherra um
laun og lífskjör á ís-
landi, Danmörku og
víðar" kom m.a.
fram ab einkatölvur
eru aðeins til á 9%
heimila í Dan-
mörku. Hollending-
ar komast næst okk-
ur, með einkatölvur
á 19% heimila.
Heimilistölvur
eru hins vegar allt
að 10 sinnum algengari á íslandi en
í Portúgal og Grikklandi þar sem
einkatölvur eru aðeins á 3-5%
heimila (þrátt fyrir svipað launastig
og hér, samkvæmt nýjustu frétt-
um).
Miðað vib þennan og annan sam-
anburð á íbúða-, bíla- og tækjaeign
Evrópubúa, m.a. í skýrslu forsætis-
ráðherra, virðist íslendingum verða
hreint ótrúlega mikið úr sínum lágu
launum. ■
Bindindismótiö i Galtalœkjarskógi:
Fólk mætir þótt rigni
eldi og brennisteini
„Fimm þúsund manns koma ör-
ugglega, þótt rigni eldi og
brennisteini," segir Jón K. Gub-
bergsson, mótsstjóri bindindis-
mótsins í Galtalækjarskógi um
verslunarmannahelgina. Það er
síðan háb vebri hversu margir
til viðbótar munu sækja útihá-
tíðina heim, en svæbib er vel í
stakk búib til ab taka á móti allt
ab 10 þúsund manns og jafnvel
fleirum, ef því er ab skipta.
Hápunktur mótsins er sem fyrr
flugeldasýning og brenna, svo
ekki sé minnst á heibursgesti
mótsins, Ólaf Ragnar Grímsson
forseta og Guðrúnu K. Þorbergs-
dóttur eiginkonu hans.
Undirbúningur er á lokastigi
fyrir bindindismótið þar sem boð-
ið verður uppá fjölbreytta og
glæsilega dagskrá fyrir alla aldurs-
hópa, eins og endranær. Þar
munu m.a. kom fram hljómsveit-
irnar Reggae On Ice og Upplyft-
ing ásamt plötusnúðagenginu
DjiB 303 og skemmtikraftarnir
Halli og Laddi, Magnús Scheving
og Ómar Ragnarsson. Brúðubíll-
inn verður á sínum stað, auk þess
sem danshópur á vegum Auðar
Haralds mun sýna leikni sína og
færni. Haldið verður uppá 10 ára
afmæli Söngvakeppni Æskunnar,
en fyrsti sigurvegari þeirrar
keppni var sjálfur Bjarni Ara. Veg-
legt tívolí verður á staðnum og
svonefnt Æviritýraland, hesta-
leiga og farið verður í ýmsa leiki
og þrautir. Góð aðstaða er í Galta-
lækjarskógi fyrir útihátíð og m.a.
eru þar 30 vatnssalerni, verslanir,
veitingahús, íssala, öflug gæsla,
læknavakt o.fl. Þá er komið fast
form á tjaldsvæði skógarins og
m.a. eru þar fjölskyldubúðir, hjól-
hýsasvæði, unglingabúðir o.fl.
-grh
V/fJ /9KV/1ÐUM AÐ
BUÓÐ/) PÚ UPP /
búutum!
Sálfræbingar a u
Vandarnálasúpurnar
einn launa
umþdttaabee11’” —
&0GCA
Sagt var...
Fribargæslulibum fjölgar
„Um 70 bandarískar konur í fribar-
gæslulibinu í Bosníu hafa verib send-
ar heim frá áramótum vegna þess að
þær voru meb barni."
Reuter/DV í fyrradag.
Örvhentur ritstjóri óskast
„Það er einu sinni svo ab betri penn-
ar finnast vinstra megin."
Er haft eftir Óla Birni Kárasyni, ritstjóra
Vibskiptabla&sins. Hann segir þab
skipta höfubmáli hver ritstýri hinu nýja
dagblabi, Degi- Tímanum. Alþýbublab-
ib.
Menntahroki
„í kringum 1990 var gert átak í því
ab útrýma ómenntuöum."
Haft eftir jónasi Magnússyni, formanni
Landssambands lögreglumanna, um
ómenntaba lögreglumenn. Tíminn.
Landinn meb munnræpu
„56% heimila meb fleiri en eitt sím-
tæki"
Fyrirsögn Moggans á grein um neyslu-
könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla
íslands.
Hrói Höttur á ferb í Hafnarfirbi
„Ósannab sé ab ákærbi hafi aubgast
persónulega vegna þeirrar háttsemi
sem hann er sakfelldur fyrir. Ákærbi
hafi lagt allt sitt undir í þeirri vibleitni
sinni ab bjarga félaginu frá falli og
tryggja áframhaldandi rekstur þess."
Mebal málsbóta vib ákvörbun refsingar
í máli Jóhanns G. Bergþórssonar, bæj-
arfulltrúa sjálfstæbismanna í Hafnar-
firbi. Mogginn í gær.
Gamalt og gott
„Ellefu árum eftir ab ákvebib var ab
taka hina heimsþekktu raubu síma-
klefa, sem einkennt höfbu borg og
bý í Bretlandi allt frá árunum á milli
stríba, hefur breska símafyrirtækib
British Telecommunications ákveðib
ab fylgja áskorunum mikils fjölda
símnotenda ab innleiba þá á ný."
Mogginn í gær.
Fastur fyrir sem fyrr, Bjartur í
Sumarhúsum
„Ritstjórnarstefna Dags veröur ríkj-
andi: hógvær landsbyggbarstefna og
vöndub."
Segir Hörbur Blöndal, framkvæmda-
stjóri nýja blabsins, Dagur-Tíminn. Al-
þýbublabib.
Hver sag&i ab kalda stríöib væri
yfirsta&ib?
„Þab er opinbert leyndarmál innan
fjölmiblageirans ab ákveöib ógnar-
jafnvægi hefur ríkt milli DV og Morg-
unblaösins um langt skeib."
Segir í Alþýbublabinu. DV er prentab
meb prentvélum Moggans og þegar
DV- menn hafa vibrab þær hugmyndir
ab gefa út morgunblab, þá tala
Moggamenn um ab gefa út síbdegis-
blab.
Manna á meöal er fátt meira
rætt en sameining Tímans og
Dags. Einkum er rætt um rit-
stjórastólinn, og nafníð. Ekki eru
allir sáttir við vinnuheitið Dagur-
Tíminn. Einn lesandi varpaði
fram hugmynd að nafni, riefni-
lega Dagstund. Margir hringja í
Tímann þessa dagana og spjalla
um nýtt dagblaö. Sameiginlegt
er meö þessum símtölum að öll-
um líst vel á hugmyndina ...
•
Mest er spurst fyrir um væntan-
legan ritstjóra nýs og stórs dag-
blabs á íslandi. Ákvörbun um rit-
stjóra liggur ekki fyrir, en vænta
má ákvöröunar á næstu dögum.
Á Bylgjunni í gær var lesin nokk-
ur nafnaruna yfir helstu kandíd-
ata, en ekki er talib ab mikið hafi
verið á þeim lista græðandi ...