Tíminn - 25.07.1996, Qupperneq 4
4
Fimmtudagur 25. júlí 1996
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Fréttastjóri:
Tímamót hf.
Jón Kristjánsson
Oddur Olafsson
Birgir Gubmundsson
Ritstjórn og auglýsingar:
Sími:
Símbréf:
Pósthólf 5210,
Setning og umbrot:
Mynda-, plötugerb/prentun:
Brautarholti 1, 105 Reykjavík
563 1600
55 16270
125 Reykjavík
Tæknideild Tímans
ísafoldarprentsmibja hf.
Mánabaráskrift 1700 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Ekki á vísan að róa
Um 30 íslenskir togarar eru við rækjuveiðar á Flæm-
ingjagrunni, skammt undan kanadískri auðlindalög-
sögu, og álíka margir togarar eru að veiðum í Smug-
unni, rétt við lögsögu Noregs og Rússlands. Þar er nú
ördeyða og veiðin á Flæmska hattinum fer hrað-
minnkandi miðað við aflabrögðin síðustu árin.
Ofveiði og fiskverndarstefna íslenskra stjórnvalda
leiða til minnkandi afla á heimamiðum og hafa út-
gerðarfyrirtækin reynt að vinna upp takmarkaða
veiði með því að sækja á fjarlæg mið og utan lögsögu
nokkurra ríkja. Þá hefur flotinn verið stækkaður með
því að kaupa skip og útgerðarfyrirtæki sem eingöngu
miðast við úthafsveiðar, svo umdeildar sem þær eru.
Mikil rækjuveiði undanfarið veldur lækkun á
markaðsverði. Mörg vinnslufyrirtæki eiga í erfiðleik-
um vegna þessa og eru miklar birgðir til í landinu
sem ekki fæst eins gott verð fyrir og vonir stóðu til.
Verð á rækju upp úr sjó mun óhjákvæmilega lækka,
þrátt fyrir minnkandi veiði.
Norður í Smugu bíða menn í ofvæni eftir að afli
fari að glæðast og að þar verði önnur eins uppgrip og
reyndin var á nokkrum undangengnum árum. Ræt-
ist þær vonir, vænkast hagur útgerðar og sjómanna,
en ef sá guli gefur sig ekki, munu vandamál hrannast
upp.
Það ætti að fara að lærast að ekki er á vísan að róa
á úthafinu fremur en á grunnmiðum. Sóknin á fiski-
mið á alþjóðlegum hafsvæðum harðnar ár frá ári.
Skipin stækka og veiðarfærin verða afkastameiri, en
viðgangur fiskistofnanna vex ekki að sama skapi.
Alþjóðasamfélögin eru farin að gefa þessari þróun
gaum og verið er að stíga fyrstu skrefin til að vernda
fiskistofna í úthöfunum. Taka íslendingar þátt í
þeirri samvinnu og eiga enda mikilla hagsmuna að
gæta, svo sem á miðunum á Reykjaneshrygg og hvað
varðar fiskistofna sem flakka á milli lögsögu okkar og
annarra ríkja.
Þær raddir hafa þagnað að mestu sem telja að ís-
lenski fiskiskipastóllinn sé of stór og veiðigetan
óþarflega mikil miðað við þol fiskistofnanna. En
fjölgun og stækkun skipa hefur miðast við að hægt
sé að sækja úthafsmið, enda hafa margir af stóru tog-
urunum engan kvóta innan íslenskrar lögsögu. Er
svo að heyra að gengið hafi verið út frá því sem vísu
að fiskurinn í úthafinu sé takmarkalaus auðlind, eins
og lengi var ætlað um fiskinn á grunnslóð, eða þang-
að til ofveiðin var viðurkennd staðreynd.
Ef úthafsveiðin bregst, mun koma í ljós að flotinn
er of stór og óþarflega afkastamikill og offjárfesting-
arnar ofboðslegar. Þá verður þrýst mjög á að kvótinn
við ísland verði aukinn til að bjarga útgerðum sem
standa höllum fæti.
Úrelding krókabáta er talsverð, enda eru þeir fleiri
en kvótaúthlutunin til þeirra. Því er svo komið að
hver bátur má ekki stunda sjósókn nema örfáa daga
á ári. Ekki sýnist það gæfulega skipulagður atvinnu-
vegur, ef miðað er við tilkostnað og tekjur.
Dragist svo togaraaflinn verulega saman, þegar út-
hafsveiðin gefur minna í hönd en áætlað var, hlýtur
.umræðan um offjárfestinguna að skjóta koiliirum
upp aftur. Þá segja þeir gráðugu og skammsýnu eins
og venjulega: Það er enginn vandi aö vera vitur eftir
á.
Að klikka á smáatribunum
Mikill er glæsileikinn hjá ameríkönum þegar
þeir fara af stab á annab borb og allt skal þar vera
stærst og mest. Þab sýndi sig ekki síst á opnunar-
hátíb ólympíuleikanna um daginn, enda stab-
hæfbu abstandendur leikanna
fyrirfram ab aldrei hefbi sést
önnur eins opnunarhátíb á
ólympíuleikum sögunnar.
Garri getur svosem tekib undir
ab þab af opnunarhátíbinni
sem hann sá var ansi skemmti-
legt. Greinilegt var reyndar ab
skipuleggjendur opnunarhá-
tíbarinnar voru undir einhverj-
um áhrifum frá hátíbarsýning-
um Norbmanna á vetrar-
ólympíuleikunum í Lille-
hammer, en þab var eiginlega
frekar til bóta ef eitthvab var.
Týndust í stórat-
buröunum
En þab er nú meb amerísku ____________
ólympíuleikana eins og svo
margt annab ab ekki fer alltaf
saman glæsileiki og gott skipulag
— eba var þab gæfa og gjörfileiki? Kaninn klikk-
ar ekki á stóru atriöunum meb feita letrinu, en
þegar kemur ab smáa letrinu og hinum fjöl-
mörgu minniháttar atribum sem þarf ab leysa úr
er kominn upp annar vinkill og ólíkur í máliö.
Höfubáherslan er lögb á þab sem allir sjá, en þab
sem enginn sér skiptir greinilega minna máli.
Menn virbast hafa týnt sér gersamlega í því aö
skipuleggja opnunarhátíöina og nánast gleymt
því ab ólympíuleikarnir héldu áfram eftir opn-
unarhátíbina.
GARRI
Vandræbin viröast vera dæmalaus. Keppendur
og áhorfendur eiga í mestu vandræbum meö ab
komast um borgina Atlanta. Nánast hending
viröist ráöa því aö keppendur hafa ekki misst af
greinum sem þeir eiga ab keppa
í vegna óskipulags á fólksflutn-
ingum. Tölvufyrirtækib IBM
viröist heldur hafa sett niöur á
leikunum, en þab liggur undir
ámæli fyrir ab ekki er rétt greint
frá úrslitum einstakra keppnis-
greina nema í undantekningar-
tilvikum. Fréttamenn, sjón-
varpsstöövar og aöilar sem
þurfa ab koma frá sér efni frá
leikunum eiga í mestu erfiöleik-
um meb tæknina og viröist eitt-
hvab hafa skort á aö sú þjónusta
væri hugsuö til enda.
Ekki vandræðin á
íslandi
___________ Garri er nú á því aö allt væri
þetta meö ööru sniöi ef leikarnir
væru haldnir á íslandi. Þar væru
aldeilis ekki vandræbin á ferö-
inni, enda sannabist þaö rækilega hvaö íslend-
ingar eru vel í stakk búnir til ab halda stórat-
buröi þegar leibtogafundurinn frægi var hér á
sinni tíö. Þab er þó eitt skilyröi fyrir því ab sæmi-
lega geti tekist til hjá íslendingum, en þaö er ab
fyrirvarinn á því ab leikarnir verbi haldnir má
helst ekki vera mikiö meiri en mánuöur. Verbi
fyrirvarinn meiri er eins víst aö allt fari í tómt
klúöur.
Garri
Fremstur meðal hinna fremstu
Mikib veröur um dýröir hinn fyrsta ágúst þegar
eibur verbur tekinn af nýjum forseta. Bebiö er í
spenningi eftir hvort svardagar hljóba upp á gub
almáttugan sem er á himnum, eins og stendur í
bæninni, eba jafnveraldlegt fyrirbæri og dreng-
skapinn, sem raunar
er teygöur og togabur
eftir hentugleikum
rétt eins og vilji drott-
ins allsherjar, sem
margir hafa tekib sér
patent á aö stjórna.
Búib er aö snúa öllu
vib í Alþingishúsinu,
kasta út mublum
þingmanna og fræsa
upp gólfin og koma á
nýjum hægindum
fyrir til ab krossum
og stjörnum prýddir
hátíöargestir geti lát-
ib fara sæmilega um
sig þegar kjörinn for-
seti sver sig inní emb-
ættib. Hann veröur
aö sjálfsögbu fínastur
allra því Meistari
hinnar íslensku fálka-
orbu mun bera hana í
keöju á stæltum
herbum. Aörir kross-
berar verba ab láta sér
nægja aö næla sínum krossum í
barminn eöa láta hana og stjörn-
urnar hanga í boröum. Þá má
nefnilega sjá hver fer fremstur mebal fremstra.
í góðu skapi og vondu
Búib er ab birta gestalista og nú eru margir ab
búa til annan lista yfir þær forstandspersónur sem
ekki eru boönar. Þær kváöu vera þónokkrar og
sumar í vondu skapi.
Handhafar forsetavalds trjóna ofarlega á lista og
vill svo hörmulega til ab einn þeirra er haldinn
skítlegu ebli og setur enda punkta og kommur inn
í húrrahrópin sem hann stjórnar af miklum skör-
ungsskap, þegar þingheimur hyllir ættjöröina og
sameiningartákn þjóbarinnar. Eitt af því sem beb-
ib er meb eftirvæntingu í krýningarathöfn lýb-
veldisins er hvar skítlega eblinu þóknast ab setja
punktana þegar hyllingin fer fram. n
Margt fleira verbur til skemmtunar, svo sem ab
telja orbur þeirra sem boönir eru, hverjir bera þær
flestar og flottastar. Svo verbur gaman ab athuga
hve vel kjólfötin passa á karlana og má af því sjá
hverjir eru í eigin fötum og hverjir hafa farib í
búningaleigur grímuballa til ab galla sig upp fyrir
embættistökuna.
Þab alskemmtilegasta er samt ótaliö, en þaö er
ab vega og meta síbu kjólana sem frúrnar munu
spranga í um þingsal þegar réttkjörib sameining-
artákn þjóbarinnar
verbur hyllt sem
sameiningartákn
þjóöarinnar. Hver
veröur fínust og dýr-
ust og hvar skyldi
þessi kjóll hafa veriö
keyptur og hver
saumabi hinn og
getur verib ab mann-
eskjan hafi einhvern
tíma látiö sjá sig í
honum ábur. Nei,
þaö er óhugsandi.
Kosninga-
baráttan
verður
sýnileg
Allar mestu og
bestu dætur og synir
þjóbarinar munu
veröa nærri þegar
svardagar fara fram
og bera krossa sína
meö heiöri og sæmd.
Arkitektar kosningabaráttunn-
ar veröa heiöraöir sérstaklega
samkvæmt ósk nýja forsetans. Fjármálastjórinn
og formaöur söfnunarfélagsins sem bjó til kosn-
ingasjóöinn og forvaltabi hann sómir sér vel sem
einn af innstu koppum í búri fimmta forseta lýb-
veldisins. Og auglýsingasnillingurinn sem hann-
abi og setti sjónarspil hins sigursæla frambjób-
anda á sviö fær nú umbun fyrir sinn þátt í taflinu
og situr hib næsta öbrum í kosningamaskínunni.
Er tími til kominn aö sá verbi sýnilegur því sjald-
an hefur nokkrum manni verib afneitab eins
sterkt eins og aö einhver hafi séb um kynningu og
auglýsingar í sambandi viö kosningabaráttu verö-
andi forseta lýbveldisins. En nú fer Gunnar Steinn
í kjólfötin sín og tekur sig út í þinghúsinu aö verö-
leikum.
Margt er óljóst um hátíöina miklu, eins og hver
sigrar í orbukeppninni og hver ber sinn kjól tign-
arlegast og hvar skítlegu eöli þóknast ab setja
punktana í hyllinguna. Hitt er víst aö eins og
stendur í sálminum,... ab eitt er víst aö alltaf verö-
ur, ákaflega gaman þá.
OÓ
Á víbavangi