Tíminn - 25.07.1996, Síða 6
6
Fimmtudagur 25. júlí 1996
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Frá setningarathöfn Vinabœjamótsins á Ólafsfiröi.
Deilt um hver á
ab skrifa sögu
Hverageröis
Baejarfulltrúar í minni- og
meirihluta bæjarstjórnar
Hverageröis deildu hart á síb-
asta fundi um það hver eigi aö
skrifa sögu Hveragerðis, sem
gefa á út í tilefni af 50 ára af-
mæli sveitarfélagsins. Meiri-
hlutinn vill að Guömundur
Kristinsson sjái um skrifin, en
minnihlutinn vill að sagn-
fraeðingur vinni verkið.
í breytingartillögu minni-
hlutans var því fagnað ab lagt
yrði fjármagn til ritunar á
sögu Hveragerðis, en um leið
kom fram að nauðsynlegt
væri aö vanda vel til og fá til
verksins sagnfræöing sem
þekktur væri fyrir fagleg
vinnubrögð.
Breytingartillagan var borin
upp, en felld með 4 atkvæð-
um gegn 3. Það verður því
Guðmundur Kristinsson sem
mun rita sögu Hveragerðis-
bæjar, samkvæmt fyrrnefnd-
um bókunum í bæjarstjórn
Hveragerðis.
M U L X
OLAFSFIRÐI
Vel heppnaö
vinabæjamót
Vinabæjamótib, sem haldið
var á Ólafsfirði um þarsíðustu
helgi, tókst í alla staði frábær-
lega vel og þeir 260 gestir frá
Danmörku, Svíþjóð, Noregi og
Finnlandi, sem komu á mótið,
voru himinlifandi með mót-
tökurnar og dagskrána. Þeir
fóru síðan frá Ólafsfirði
þreyttir en ánægðir að lokinni
hátíðarguðsþjónustu á sunnu-
dag. „Eg er bara mjög hress
með þetta og ekki ástæba til
annars og þó að veðrið hafi
veriö svona á laugardag þá er
það bara hluti af tilverunni og
setti svip sinn á mótið", sagði
Óskar Þór Sigurbjörnsson, for-
maður vinabæjanefndarinnar,
ab loknu vinabæjamóti.
„Ég held að við höfum náb
mjög vel til fólks og þátttaka
var virkilega góð og gestirnir
létu vel af sér. Forráðamenn
norsku lúðrasveitarinnar
sögðu að sveitin hefði senni-
lega aldrei spilað betur en í
íþróttahúsinu þar sem þeir
fundu fyrir mikilli nálægð vib
fólkið, og sá lúðrasveitin sér-
staka ástæðu til að þakka fyrir
sig á sunnudag með því að
fara upp á Hornbrekku og
spila fyrir gamla fólkið og
marsera síðan um bæinn,"
sagði Óskar jafnframt.
FnÉTTnninnm
SELFOSSI
Eggert á Þor-
valdseyri hlýtur
fálkaorbuna fyrir
ræktunarstörf
„Þessi orbuveiting kom mér
á óvart, það er nú ekki mikið
um að bændaskarfar séu hylltir
svona," segir Eggert Ólafsson á
Þorvaldseyri í A.-Eyjafjalla-
hreppi, sem var sæmdur ís-
lensku fálkaorðunni 17. júní
sl. fyrir ræktunarstörf. Á Þor-
valdseyri hefur verið stunduð
kornrækt i 35 ár og um árabil
var Eggert eini bóndinn hér á
landi sem það gerði. Nú, þegar
hann getur tekið það rólega á
efri ámm, er kornræktin orðin
viðurkennd búgrein stunduð
af yfir 120 bændum í landinu
á hátt í þúsund hekturum
lands.
Mest af kornuppskerunni á
Þorvaldseyri er notað sem fób-
ur fyrir kýr og svín. Einnig er
nokkuð notað til manneldis, í
brauð og sem nokkurs konar
múslí, sem pakkað er í neyt-
endapakkningar og þykir afar
hollt.
Eggert segir aðstæður til
kornræktar undir Eyjafjöllum
með besta móti. Þar komi
sumarið snemma og nætur-
frost séu fátíðari síðsumars en
víða annars staðar. En aðstæb-
urnar eru ekki bara góðar und-
ir Eyjafjöllum. Eggert heldur
því fram að kornrækt eigi sér
mikla framtíð í landinu, sé
gjaldeyrissparandi og færi at-
vinnu inn í landið, sem annars
sé keypt erlendis frá. „Ég tel að
hægt sé að rækta korn í flest-
um sveitum hér á Suðurlandi
og mun víðar um landið, og í
raun er það gób vibmiðun ab
þar sem kartöflur spretta nokk-
urn veginn áfallalaust er hægt
að rækta korn. Menn geta að
vísu alltaf átt von á hörðum
árum, en það er ekkert annað
en gerist erlendis," segir fálka-
orðuhafinn Eggert Ólafsson.
Listamenn á
heimsmælikvaröa
Vib sjávargarðinn á Stokks-
eyri hafa listamennirnir og
skötuhjúin Haukur Dór Sturlu-
son og Þóra Hreinsdóttir kom-
ib sér fyrir í húsi sem áður
hýsti Hitaveitu Eyra. Húsið er
allt í senn gallerí, vinnustofa
og íbúð fjölskyldunnar.
Haukur Dór er löngu lands-
þekktur bæði sem leirlistar- og
myndlistarmaður. Sínar fyrstu
Málverkiö Landvcettir eftir Hauk
Dór Sturluson. Raunveruleg
stœrö verksins er 150 x 135 cm,
en Haukur er þekktur fyrir aö
mála mjög stórar myndir.
sýningar hélt hann í byrjun
sjötta áratugarins og varð fljót-
lega þekktur og umtalaður fyr-
ir hin stóru tilvistarlegu verk
sín þar sem mannlegar ástríður
og meinlokur sálarinnar eru
meðhöndlaðar á ofsafenginn
hátt, mannlífið allt verður eins
og öfgafullur orustuvöllur.
í leirlistinni er Haukur nú
sem fyrr afkastamikill og skap-
andi og segja má að með þess-
ari blöndu af leirlist og mynd-
list ættu allir að geta fundið
eitthvað í smiðju listamanns-
ins sem hæfir eigin smekk og
buddu.
Listakonan unga, Þóra
Hreinsdóttir, var nýstigin af
sæng þegar blabamann Sunn-
lenska bar ab garði í vor, og
hafa því undanfarnar vikur
meira farið í barnauppeldi en
venjubundna listsköpun. Vetr-
arafköstin eru samt allnokkur
og hefur Þóra þá aöallega feng-
ist við tréristur. Það má segja
að opnun gallerísins á Stokks-
eyri sé í reynd fyrsta sýning
Þóru, en á veggjum hanga
skemmtilegar tréristur af óræð-
um kaupstað, ævintýrastað.
Eggert Ólafsson ásamt konu sinni Ingibjörgu Ólafsson, sem fcedd er í
Noregi. Börn þeirra eru fjögur og barnabörnin sextán.
Stund milli stríöa. íslensku keppendurnir ásamt þjálfara liösins. Þau eru frá
vinstri Cuörún Halla Finnsdóttir, Hlynur Guömundsson þjálfari, Ágústa
Tryggvadóttir, Kristján Hagalín Guöjónsson og Ólafur Dan Hreinsson.
Öresundsleikar í Svíþjóö:
Góður árangur ís
lenskra krakka
Dagana 12.-14. júlí s.l. sendi
Frjálsíþróttasamband íslands úr-
valshóp skólaþríþrautar til Sví-
þjóðar til keppni á Öresunds-
leikum, sem eru haldnir þar ár
hvert af frjálsíþróttadeild Hels-
ingjaborgar.
Þessir leikar, sem hafa fest í sessi
í Helsingjaborg, voru nú haldnir í
34. skipti. Mót þetta er mjög sterkt
og haldið á alþjóðamælikvarða.
Þátttökuþjóðir voru 11 talsins,
keppendur um 2600 og um 6000
skráningar.
í úrvalshópi skólaþríþrautar vom
fjórir einstaklingar sem stóðu uppi
sem sigurvegarar, eftir 1600 manna
undankeppni er fór fram í grunn-
skólum landsins síðastliðinn vetur.
Þess má geta að allir nemendur í
grunnskólum landsins hafa rétt til
að taka þátt í skólaþríþraut í sínum
Skóla undir handleiðslu síns
íþróttakennara.
Úrvalshópur skólaþríþrautar FRÍ
1996 er:
Ágústa Tryggvadóttir, f. '83, frá
Grunnskólanum að Þingborg, Ár-
nessýslu.
Guðrún Halla Finnsdóttir, f. '84,
frá Hofsstaðaskóla í Garðabæ.
Kristján Hagalín Guðjónsson, f.
'84, frá Laugaskóla í Dalasýslu.
Ólafur Dan Hreinsson, f. '84, frá
Hamraskóla í Grafarvogi.
Árangur íslensku keppendanna
var mjög góður í alla staði. Fjór-
menningarnir kepptu í samtals Í6
keppnisgreinum; komust þar af 7
sinnum á verðlaunapall. 9 per-
sónuleg met voru sett.
Sett var það markmið fyrir leik-
ana að Ólafur Dan myndi stefna að
því að hlaupa undir gildandi Öre-
sunds-meti í 1500 m, og þar með
sínu besta. Það tókst ög hljóp hann
á 4.59,50 mín.
Ágústa lenti í þeirri þrekraun að
þurfa að keppa á tveimur stöðum á
vellinum í einu — í þrístökki og
kúluvarpi — en náði samt á pall í
kúluvarpi. Hún varpaði kúlunni
10,26 m, sem er persónulegt met.
Guðrún Halla hefur aldrei æft
frjálsar íþróttir fyrr. Var markmið
hennar að vera fyrir ofan miðju í
hverri grein, er hún tæki þátt í, og
tókst það með miklum sóma. Þess
má geta að Guðrún var þremur
sætum frá því að lenda á verð-
launapalli í 800 m hlaupi. Hún
hljóp á 2.39,14 mín., sem er per-
sónulegt met.
Kristján Hagalín er mikill keppn-
ismaður og var hann stutt frá því
að komast á verðlaunapall í öllum
sínum keppnisgreinum. Hann var
1 cm frá því að komast á pall í
langstökki og einum hundraðs-
hluta frá því að komast á pall í 60
m hlaupi. Hann stökk 4,86 m, sem
er persónulegt met, og hljóp á 8,60
sek.
Öresundsmótið var í öllum til-
vikum þeirra fyrsta alþjóðamót og
að auki keppt á erlendri grund.
Þótti raunhæft markmið að vera
fyrir ofan miðju í hverri grein sem
keppt var í, en að meðaltali voru
um 65 keppendur í hverri grein.
Það tókst með miklum ágætum og
var árangur og framkoma íslensku
keppendanna þjóð okkar til mikils
sóma. ■
Mjólkurbikarkeppni KSÍ:
Undanúrslit á
landsbyggöinni
Næstkomandi sunnudag, 28. júlí,
fara fram undanúrslitaleikirnir í
Mjólkurbikarkeppni KSÍ og verða
þeir báðir hábir úti á landi. Á Ak-
ureyri mætast Þór og Skaginn og
í Eyjum taka heimamenn á móti
KR. Leikurinn í Eyjum hefst kl.
19 á Hásteinsvelli, en hinn leik-
urinn kl. 16 á Akureyrarvelli.
Eftir fund aganefndar KSÍ er ljóst
að nokkrir lykilmenn í liði Þórs
verða fjarri góðu gamni þegar
flautað verður til leiks þar nyrðra á
sunnudaginn, en nefndin hefur úr-
skurðað fjóra Þórsara í leikbann.
Þeir Birgir Þór Karlsson, Þorsteinn
Sveinsson og Zöran Zikic verða í
leikbanni á sunnudag vegna fjög-
urra gulra spjalda, en sá fjórði,
Davíð Garðarsson, verður í leik-
banni vegna brottvísunar sem
hann fékk i leik á móti Leikni í 2.
deildinni.
Þá verður einnig skarð fyrir skildi
í liði KR í leiknum gegn ÍBV, því
Ijóst þykir að markvarðahrellirinn
Guðmundur Benediktsson verður
ekki í liðinu, vegna meiðsla sem'
hann hláut í leiknum gegn ÍA í
Frostaskjólinu sl. sunnudag. Þótt
ávallt komi maður í manns stað í
boltanum, er næsta víst að fjarvera
Guðmundar mun veikja framlínu
Vesturbæjarliðsins gegn baráttu-
glööum Eyjamönnum.
Sé tekið mið af stöðu liðanna á
íslandsmótinu, þykir einsýnt að
Skaginn og KR muni sigra í þessum
leikjum og mætast í bikarúrslita-
leiknum 25. ágúst n.k. Það er þó
ekki á vísan að róa þegar boltinn er
annarsvegar og þá sérstaklega í bik-
arkeppni. Þar ræður dagsformið
mestu, en ekki staða liða í deildum,
og því allt eins víst að menn eigi
eftir að upplifa óvænt úrslit í þess-
um tveimur viðureignum fyrir
norðan og sunnan. -grh