Tíminn - 25.07.1996, Síða 10
10
Fimmtudagur 25. júlí 1996
Flóttamenn frá fyrrum
Júgóslavíu:
ísfiröingum
fjölgar
Samningur um móttöku og
þjónustu ísafjaröarbæjar vib
flóttamenn frá löndum gömlu
Júgóslavíu var undirritabur í
Stjómsýsluhúsinu á ísafirbi í
gær af Páli Péturssyni félags-
málarábherra og fulltrúa ísa-
fjarbarbæjar.
í samningnum er mebal annars
gert ráb fyrir ab ísafjaröarbær
leggi flóttamönnunum til íbúöar-
húsnæbi meb hita og rafmagni,
stofnkostnaö og fastagjald síma,
framfærslueyri, atvinnumiölun,
fræbslumál, þ.e. grunnskóla-
kennslu, leikskólavistun og
barnagæslu eftir því sem vib á og
félagsráögjöf. Gert er ráö fyrir aö
ríkissjóöur greiöi kostnaö vegna
komu flóttamannanna og veru
þeirra hér á landi fyrsta árið.
Samningurinn er sá fyrsti sem
ríkið gerir viö sveitarfélag um
mótttöku ákveðins hóps flótta-
manna, hann er gerður að tillögu
flóttamannráðs en hugmyndin er
upphaflega komin frá ísafjarðar-
bæ. Flóttamannaráð var stofnaö
vegna þessarar móttöku flótta-
manna, í því sitja fulltrúar frá
fimm ráðuneytum undir forystu
félagsmálaráöuneytisins. Ráðið
mun starfa áfram og skila tillög-
um til ríkisstjórnar, „meö tilkomu
þess er loksins komin formlegur
samstarfsvettvangur fyrir hlutað-
eigandi ráðuneyti um málefni
flóttamanna," segir Sesselja Árna-
dóttir, deildarstjóri hjá félags-
málaráöuneytinu:
Flóttamennirnir sem koma eru
31 talsins. Þeir voru aö sögn Sess-
elju meðal annars valdir meö til-
liti til þess hvort þeir væru líkleg-
ir til að geta aölagast íslensku
samfélagi. Um er aö ræöa sjö
barnafjölskyldur sem em bland-
aðar, þ.e. annaö foreldriö er Serbi
en hitt Króatí. -gos
Þegar kíkt er fram í tímann viröist áriö 1997 œtla aö veröa fyrsta áriö í átta ár sem þokkalegur hagvöxtur veröur í heiminum.
Seölabankinn: 7 997 fyrsta ár þokkalegs hagvaxtar í öllum helstu ríkjum heims frá 1989:
Hagvöxtur í iönríkjum
aö rísa úr öskustónni
„Ef svo fer sem horfir, gæti áriö
1997 orðib fyrsta árib síban 1989
sem þokkalegur hagvöxtur er í
öllum helstu ríkjum heims", segir
í forystugrein Hagtalna frá Seöla-
bankanum. OECD geri ráb fyrir
1,7% hagvexti í Evrópuríkjum á
þessu ári en 2,6% á því næsta. í
OECD ríkjum í heild er spáb 2,1%
hagvexti á þessu ári en 2,5% árib
1997. í ljósi nýjustu upplýsinga
frá Japan og Bandaríkjunum sé
þessi spá jafnvel í varfærnara lagi.
Reiknað er með að fjárfesting fyr-
irtækja og fjárfesting í íbúðarhús-
næði verði drifkraftur hagvaxtar á
árinu, en vöxtur einkaneyslu verði
fremur hægur fyrst í stab, enda
muni ráðstöfunartekjur vaxa hægt
á næstunni. En þrátt fyrir hagvöxt
er ekki reiknað meb að neitt dragi
úr atvinnuleysi í Evrópu, þar sem
11,4% vinnuaflsins eru án vinnu í
ár. Atvinnulausum muni jafnvel
fjölga í Þýskalandi.
Síðustu vikurnar hafa, að sögn
Seðlabankans, komið fram skýr
merki um að því hagvaxtarhléi sem
vart varð við í Bandaríkunum og
Evrópu á síðasta ári, sé að ljúka.
„Horfur eru á að hagvöxtur í helstu
iðnríkjum heims muni rísa úr lægð
undanfarinna missera á þessu ári".
Og þótt hagvöxtur sé greinilega að
taka við sér í Bandaríkjunum og
Japan hafi lítil merki sést um ab
Þjóöhátíö í Eyjum:
Getur orbið með þeim fjölmennari
íöluverðrar bjartsýni gætir
meöal Eyjamanna um aö þjóö-
hátíðin í Herjólfsdal um versl-
unarmannahelgina geti orðib
meb þeim fjölmennari á
seinni tímum. Þeir byggja þab
m.a. á því aö í ár er ekki útlit
fyrir ab Eyjamenn fái mikla
samkeppni um unga fólkib frá
öbrum útihátíöum, auk þess
sem vibbrögb í pakkasölu og í
forsölu hafa verið mjög góö.
Hinsvegar geta náttúruöflin
sett strik í reikninginn ef veö-
ur hamlar flutningum á milli
lands og Eyja.
Miðaö við undirtektir telja
Eyjamenn ekki ólíklegt aö allt
að 10 þúsund manns muni
verða á þjóðhátíð í ár. Hinsveg-
ar er aldrei að vita nema seinni
tíma aðsóknarmet verði slegið,
en taliö er aö 14 þúsund manns
hafi verið á þjóðhátíð sumarið
1986 þegar Stuðmenn skemmtu
þar, sællar minningar.
Björn Þorgrímsson, fram-
kvæmdastjóri íþróttafélagsins
Þórs sem sér um þjóðhátíðina í
ár, bendir einnig á ab fólk hafi
byrjað óvenju snemma að panta
ferðir með Flugleiðum á þjóðhá-
tíð en oft áður. Hann telur ein-
sýnt að þessi fyrirhyggja sé í ein-
hverju sambandi við þá stað-
reynd að minna sé um skipu-
lagðar útihátíöir en áður um
komandi verslunarmannahelgi.
Meðal annars verður ekkert um
að vera á Klaustri, öndvert við
Uxann í fyrra og sömuleiðis
bendir ekkert til þess að eitt-
hvað verði um að vera í Húna-
veri í ár.
Þeir sem ætla að skemmta sér
á þjóðhátíð í Eyjum verða að
greiða 7 þúsund krónur í að-
gangseyri. Þeir sem hafa vaðiö
fyrir neðan sig og kaupa í for-
sölu fá miðann á 6500. Það til-
boð gildir hinsvegar til loka
þessarar vinnuviku auk þess
sem þeir miðar eru aðeins seldir
í sparisjóðum og þá í tengslum
við þann í Eyjum.
-grh
Kodak og APS-myndatökutœknin:
Framköllun nýju film-
anna er hafin í Kópavogi
APS-ljósmyndatæknin sem
Kodak hefur kynnt um allan
heim að undanförnu teygir
ab sjálfsögðu anga sína til Is-
lands. Hans Petersen um-
boðsmabur Kodak um
margra áratuga skeið vinnur
markvisst að því ab útbreiða
nýja filmu og nýjar mynda-
vélar, sem höfða mjög til nú-
tíma tölvutækni.
Neytendur vilja, samkvæmt
markaðsrannsóknum víða um
heim, fá auðveldari og einfald-
ari myndavélar, — og betri
myndir. Til að fá þessu fram-
gengt var þróuð ný tækni í ljós-
myndun og framköllun, sem
nú er að koma í ljós.
Hér á landi hefúr fyrsta APS-
framköllunarstofan verið opn-
uð, en það er Hans Petersen í
Hamraborg í Kópavogi.
Þá er komin á markaðinn ný
myndavél fyrir hinar nýju
filmur sem geyma stafrænar
upplýsingar um hverja mynd.
Þetta eru litlar og meðfærilegar
myndavélar, auðveldar í notk-
un, en búa yfir miklum gæð-
um.
Ókostur við þetta nýja kerfi
er aðallega einn. Verð á hrað-
framköllun verður 10-15% dýr-
ara en tíðkast og myndum ekki
skilað fyrr en eftir tvo daga.
Verð á hraðframköllun hér á
landi hefur þótt nógu dýrt til
þessa. -JBP
Hilmar Þ. Björnsson frá Selfossi
var fyrsti viöskiptavinur Hans Pet-
ersen meö APS-filmu. Hér er Cuö-
rún Eyjólfsdóttir sölustjóri aö af-
henda Hilmari myndir sínar úr Evr-
ópuferö í sumar.
aukin verðbólga sé í aðsigi.
í þróunarríkjunum var 6% hag-
vöxtur á síðasta ári og reiknað með
svipuðum eða ívið meiri vexti á
þessu ári. Einkennt hafi þróun und-
anfarinna ára að hagvöxtur margra
þróunarríkja, einkum í Asíu, hafi
haldið áfram nánast óháð hagvexti
í iðnríkjunum.
í Rússlandi hafi hagvöxtur ekki
hafist að marki þótt batamerki séu
sýnileg. Á hinn bóginn hafi hann
verið nokkuð góður í þeim A-Evr-
ópulöndum sem fyrst hófu efna-
hagsumbætur, svo sem Póllandi,
Tékklandi, Slóvakíu, Slóveníu, Lit-
háen og Eistlandi. ■
Alþýöubankinn lifir áfram í
eignarhaldsfélaginu:
Moldríkt félag
sem ávaxtar
vel sitt pund
Nafn Alþýbubankans kemur
upp af og til í umræðunni. Enn
er starfandi Eignarhaldsfélag
Alþýðubankans hf., sem er
talsvert vibamikib umsýslufé-
lag í peningamálum. Hagnað-
ur þess félags fyrstu 6 mánubi
ársins reyndist vera 47,3 millj-
ónir króna og allar kennitölur
í rekstri þess óhemju glæsileg-
ar.
Á síðasta hausti mótaði félagið
þá stefnu í fjárfestingum sínum
að hlutur þess í íslandsbanka hf.
yrði minnkaður. Jafnframt yrði
40 til 50% eigna þess í vaxtaber-
andi verðbréfnum, um 30-40% í
skráðum markaðshæfum hluta-
befúm, um 15% í óskráöum
hlutabréfum og um 5% í erlend-
um hlutabréfum.
Samkvæmt 6 mánaða árs-
hlutareikningi félagsins eru bók-
færðar eignir þess 2,1 milljarður
króna, vaxtaberandi verðbréfa-
eign er um 43% eignanna — og
eiginfjárhlutfallið er 65%. Al-
þýðubankinn, eða eignarhalds-
félag hans, er moldríkt fyrirtæki
sem eigendur þurfa ekki að hafa
miklar áhyggjur af. -JBP