Tíminn - 02.08.1996, Blaðsíða 17

Tíminn - 02.08.1996, Blaðsíða 17
Föstudagur 2. ágúst 1996 17 IVI cð sínu nefi í þættinum í dag veröa gefnir hljómar viö gamla söngperlu, sem oft er sungin á mannamótum eins og þeim sem stunduö eru um verslunarmannahelgi. Þetta er lagiö „Þú ert" eftir þá Gest og Þórarin Guðmundsson. Góöa söngskemmtun! C nm ÞÚ ERT C Dm Þú ert yndið mitt yngsta og besta, G C þú er ástarhnossið mitt nýtt, E Am þú ert sólrún á suöurhæðum, D G þú ert sumarblómið mitt frítt. C Dm Þú ert ljósið, sem lifnaði síðast, G C þú ert löngunar minnar Hlín. C Dm Þú ert allt, sem ég áður þráði, C F G C þú ert ósk, — þú ert óskin mín. i > > 4 > 4 * < » • * 3 < ; : " -I- A N D L Á T Anna Þóröardóttir, Hrafnistu, áður Barmahlíð 23, lést 12. júlí sl. Útförin hefur farið fram. Brynja Reykdal Henrysdóttir er látin. Bálför fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elínbjörg Gubjónsdóttir (Ella Wennerberg), Svíþjóð, er látin. Gísli Jóhannsson andaðist á hjúkrunardeildinni Víðihlíð, Grindavík, mið- vikudaginn 31. júlí. Gubjón K. Gubmundsson bifvélavirki, Laugarnesvegi 108, Reykjavík, lést 29. júlí. Haukur Helgason ritstjóri, Lundarbrekku 6, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 28. júlí sl. ísafold Kristjánsdóttir, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöldi laugardagsins 27. júlí. Margrét Gubjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, Bólstaðarhlíð 45, Reykjvík, lést í Landspítalanum 28. júlí. Margrét Sveinsdóttir lést í Skjóli aö kvöldi 27. júlí. Sólveig Fribfinnsdóttir, Ásholti 10, Reykjavík, andaðist á heimili sínu þann 28. júlí sl. Sveinbjörg Gubmundsdóttir, áður til heimilis á Kleppsvegi 40, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 30. júlí. Valborg Syre, Hátúni 10A, andaðist á heimili sínu þann 28. júlí sl. Þórunn Ásgeirsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 30. júlí. Ca. 12-14 stk. 250 gr hveiti 2 tsk. lyftiduft 125 gr smjör 2 msk. sykur 1 dl sýrbur rjómi Smávegis sultutau Egg til ab pensla meb Perlusykur Blandið hveiti og lyftidufti og myljið smjörið saman við. Bætið sýrða rjómanum og sykri út í og hnoöið saman í mjúkt deig. Fletjið út tvær kringlóttar kökur. Skerið hverja köku í ca. 12 stykki út frá miðju. Setjið smá sultutau á hvert horn og rúlliö saman frá breiðari endanum. Setjið hornin á plötu, penslið þau meö eggi og stráið perlusykri yfir. Bakið í ca. 15 mín. við 200”. Horn. Bfóéerja mfáins 1 egg 5 msk. sykur 50 gr brætt smjör 2 dl hveiti 1/2 tsk. lyftiduft Ca. 2 dl bláber Eggið og sykurinn þeytt í þykka eggjahræru. Bræðið smjörið og kælið aðeins, bætið því út í ásamt hveitinu og lyftiduftinu. Síðast er berjun- um bætt út í hræruna. Ef ekki eru notuð ber, má bara nota bláberjasultutau. Deigið sett í pappírsform og bakað við 200° í miðjum ofni í ca. 8 mín. Bᣣaéað/~ tttarenjjœilöilajr' 4 eggjahvítur 250 gr sykur 1 tsk. kakó Muffins. Eggjahvíturnar eru þeyttar mjög stífar, 4 msk. af sykri bætt út í og þeytt áfram. Af- ganginum af sykrinum bland- að saman við kakóið og hrært varlega saman við eggjahvítu- hræruna. Marengsinn settur með sprautu á smurða eða bökunarpappírsklædda plötu. Bakað við 130” í ca. 30 mín. eða þar til kökurnar eru lausar við plötuna/pappírinn. Sælgætiskökur, mjög góðar með ís. /kád^ina 250 gr rækjur 2 bollar sobin hrísgrjón 3 epli, skorin í smábita, skræld og kjarnar fjar- lægbir 1 græn paprika, skorin í smábita 1 dós sýrbur rjómi 2 harösoöin egg Sett í skál, eggin sett efst, skorin í bita. Sýrða rjómanum hellt yfir. Boriö fram kalt, ristað brauð haft með. Viö brosum A: Hvað sagði konan þín þegar þú komst svona fullur heim í gær? B: Ekki eitt orð. Og þessar tvær framtennur þurfti hvort sem er aö taka. Á bílaverkstæðinu. Konan: Ég vil gjarnan láta laga flautuna á bílnum mínum. Viðgerðarmaðurinn: Það er nú líka eitthvað að bremsunum á bílnum. Konan: Já, auðvitað. Hversvegna heldur þú að ég þurfi að láta laga flautuna? Kennarinn: Kristín mín, ef þú hefur tvær kjötbollur á diskn- um þínum og borðar þær báðar, hvað er þá eftir? Kristín litla: Kartöflurnar. Lögfræðingurinn: Þetta gekk vel hjá okkur, við unnum mál- ið. En eftir á að hyggja, varst það ekki þú sjálfur sem tókst peningana? Skjólstæðingurinn: Ja, ég hélt það alveg þar til þú fluttir þessa stórkostlegu ræðu í réttarsalnum. Forstjórinn spurði skrifstofumanninn hve margir ætluðu með í sumarferðina. Skrifstofumaðurinn svaraöi hálf hik- andi: „30 ef þú ferð með okkur, en 50 ef þú kemur ekki með." Þrír menn voru að ræða saman um hjónabandið. Einn þeirra grobbaði af því að hann og konan hans hefðu verið ham- ingjusöm í þrjú ár, en því miður skildu þau. Annar sagðist geta sagt að hann hefði átt 14 hamingjusöm ár með sinni konu áður en hún því miður dó. Sá þriöji hafði þetta að segja um sína lífsreynslu: „Við vorum gift í 24 hamingjusöm ár — en svo kynntumst við." Vissir þú ab ... 1. Brigitte Bardot seldi skartgripina sína á upp- boði árið 1987 til að stofna dýraverndunarsjóö, sem skal bera nafn hennar. 2. Harvardháskóli er elsti háskóli Bandaríkjanna. 3. Knéfiðla er í daglegu tali kölluð selló. 4. Golfklúbbur Akureyrar hélt fyrst alþjóðlegt golf- mót, Arctic Open, í mið- nætursól árið 1987. 5. „Posungur" er reifabarn. 6. Sólarhringur er 23 klukkustundir og 56 mín- útur. 7. Fimm af tíu hæstu tind- um Norður-Ameríku eru í Alaska. 8. „Leginn" lax er þegar langt er síðan fiskurinn gekk úr sjó. 9. Hálfsjötugur maður er 65 ára. 10. Tókíó er á eyjunni Honsjú. Ák

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.