Tíminn - 03.02.1990, Blaðsíða 12
20
HELGIN
Laugardagur 3. febrúar 1990
llllll ÍTIMANS RÁS llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllíllllllllllllllllll
ATLI
MAGNÚSSON:
Merkir spádómar
Um áramót vakna til lífsins
margskonar spáfrœðingar. Sumir
spá í störnurnar og ráða það af því
er Júpíter skreppur inn í hús Satúrn-
usar hvað gerast hljóti, en aðrir
þegja sem fastasl um hvaðan þeim
komi hinn yfirskilvitlegi fróðleikur,
og liggur þá helst við að œtla að
þeir hljóti einhvers konar vitranir
eða opinberanir í annarlegu leiðslu-
ástandi. En allt erþetta efni vinsœlt
og blöð og tímarit opna þessu fús-
lega faðm sinn, þótt ár eftir ár sann-
ist að mjög skeikar að stórtíðindi
ýmis gangi eftir. Virðast menn gera
sig ánœgða með ef spáandanarnir
ramba á svo sem fimm atriði af
fimmtíu eða svo, þótt oft hafi hvert
barnið mátt ráða af við blasandi lík-
um aðþau rœtlust.
Sjálfsagt er að kannast við að
margir þeir er setja saman svona
spár gera það meira í gamni en al-
vöru, en svo er ekki alltaf. Margur
er mjög veikur fyrir að fá sagt fyrir
um það ókomna og kann að láta
spámennsku hvers konar hafa áhrif
á daglega breylni sína og á þá
strengi hafa óhlutvandar persónur
löngum slegið. En svo hefur verið
frá Biblíudögum, enda gerir Guð
Israelsmanna ráð fyrir því sem
kunnuglegu fyrirbœri að spámenn
séu á ferli meðal lýðsins. Er þá ekki
áll við þá heilögu spámenn, eins og
Elía og þá hina, heldur allra handa
kuklara, eins og við enn í dag virð-
umst hafa á meðal vor. Leggur
Biblían bann viö að leita þjónustu
slfkra manna eða reyna að iðka list
þeirra. Samt er gengi þeirra aldrei
meira en núna. Varla er mörgum œt-
landi að taka spádóma svo alvar-
Iega að þeir bíði skaða af, þótt það
muni vera til, svo vér freistum til að
meta þetta sem heldur meinlaust
gaman og várla skaðsamlegra en að
trúa á andalœkna.
En í nýlegu tfmariti erlendu rák-
umst vér nýlega á spár sem eru
miklu slórfelldari í sniðunum en
vant er, enda byggðar á langtum
traustari undirstöðum en tölvum
stjörnuspekimiðstöða nútímans,
sem sé sjálfri Opinberunarbókinni.
Þar hafa höfundarnir gert merka
uppgötvun, sem sé þá aö sjálfur and
— kristur sé upp risinn á meðal vor
í líki Mikhaels Gorbatsjovs. Þelta
verða aö kallast tíðindi! Þar sern
okkur brestur guðfrœðilega þekk-
ingu á þessu merka riti, skal þess
aðeins getið að rýnendurnir í hinu
erlenda tímariti þykjast löngu hafa
spáð að and — kristur rnundi fœð-
ast á sömu slóðum og sovéski leið-
toginn, hann hafi á enni sér það
merki sem enn ljóslegar bendi á eðli
lians og þar fram eftir götunum.
And — kristur mun ríkja í fáein ár
að sögn blaðsins sem mikill friðar-
höfðingi, en þá snúa við blaðinu og
opinbera illsku sína. Harðstjórn
hans varir þó ekki mjög lengi, því á
hana verður endi bundinn á sjálfum
dómsdegi, sem mjög er lekinn að
nálgast.
Þetta œtlum vér að sé nú heldur
en ekki innlegg í umrœðu samtím-
ans! Og þeir sem ekki hafa lesið í
Opinberunarbókinni til þessa œltu
að byrja á því hið snarasta, því senn
eru síðustu forvöð.
Gettu nú
Rétt var það — myndin hér á
dögunum var tekin í Þjórsár-
dalnum.
En hver er hann, þessi
hrikalegi gnúpur, sem hér
skagar í sjó fram á sœbarðri
strönd?
KROSSGATA
'011 0 ] vs C° 1 jw | UTP' \HKó P- | UN l3 • FLblVI£. Rft- „ hkosu ~Tfl £ Yooo 3RAK r/s'K- A Nfl Q StafoR /ÍUUFR' TÓN/V XVEfV- |j VýfO ■ 1
r V l 1 Y/Tt/R To/V- ÍKflLD LYF Mó-, TROG
al - »■“ x — 1 l
SEKKU'R iH SEFA8I RÓÐ^ ' zh s
BÍLL CSMIR'
LD- BJÓJ? UNÞ/R EINS VIFF fu&LUM | H
(3t SHlli. BoLrfl- FÉLR&
ÍB/NDA m ki .1 'xshcr' i Æ7?fl UENVfl /0 SKAFíf? áíJólk-. INfl 5
FIM M TótíH AMSA
r> H /ARp // EFni i YfND L
þVk R - rwM 10OO■ UNG - V/Ðl SEKT
f\u KA' Hívuru y í T>'«1 n V&KMR! VlSSfíU n'Mfí - KRóK- tYKKJA YsrpR, fiV- l-fLÐÓúD
LMiSf) 1Út\ uís/UM •gf/rr. ftN ' ' '■ n KÝRfíflL 3ftUL EHDltífx 8
SlCL/ iHB&r SToLW 5ÓSS íl'at-
T/ÍLA& MÆLIR AteÐ L 1
GÉRAST fíwwj
FLÝÐl mm s • 3R0V BFNl 11 í*JftKK HEIMfl Í)T.T. REy/CJA detmp-L A51 P io
Kvi K. BL/ES
SP/)NN SEVW fARA H/cGT 7?oÐ SlóLÓ MiH mm //
miös un d
s VElN n
ómr
ÓSKUR
URE.1MS- uD^- q FftLIW B TT ST/jFUR ftFANNA n
j r
ÖPLAST KoRbl
b H výbvn- SUP f 1 1 /y
s é !?. WX» J . Fr/NTl
KYíK- uyNóa HOS L, KJfiKflR Ys pv7LP nL 1S