Réttur


Réttur - 01.01.1943, Síða 14

Réttur - 01.01.1943, Síða 14
18 RÉTTUK Pétur postuli? Heigull og svikari, sem afneitaði skoðunum sínum. Hvað var Páll? Bölvaður flakkari og kaplabrinki, sem sagði eitt í dag og annað á morgun. Guðspjallamennirnir Markús, Lúkas og Matteus voru allir mestu óráðsíubelgir og kaplabrinkar. Jafnvel Lazarus, sem þóttist vera dauður, var einnig skelfilegur kaplabrinki. Æ-hæ-hæ-hæ! hló Gunna og hossaðist á rúminu sínu. En Stína virtist hins vegar ekki skilja til hlítar, að Bjössi þurfti að komast á- fram í heiminum, því að hún byrgði andlitið höndum og grét hljóð- lega. Þetta er bara guðlast, volaði hún. Farið þið. Ég vil ekki hafa ykkur inni hjá mér. Farið þið! Ég gekk óðar til dyranna, rjóður og sneyptur. Mér blöskraði þetta tal. Hvað skyldi móðir mín segja, ef hún vissi, að ég hlustaði á kenningar ósvífins villutrúarmanns, nýfermdur unglingurinn? Hvað skyldi faðir minn segja, ef hann vissi, að ég ætlaði að gerast eins konar verzlunarfélagi ofstopafulls byltingarseggs, sem vildi sennilega láta hengja alla presta og drekkja öllum veraldlegum embættismönnum ? En Bjössi yppti bara öxlum, þegar við vorum komnir út á ganginn, — hann hnippli í handlegginn á mér og hvísl- aði: Þetta er allt saman helvítis karlinum að kenna. Stelpurnar verða svona asnalegar vegna fæðunnar; hún er fjörefnalaus; þær þurfa að fá almennilegan mat, því að annars lenda þær út í trú- málin. Það er ekki forsvaranlegt að bjóða okkur upp á úldið kjöt. Ég anzaði honum ekki. En þegar við vorum komnir inn úr dyr- um piltaskálans, staðnæmdist hann snögglega, eins og honum hefði hugkvæmzt eitthvert snjallræði. Heyrðu, sagði hann dálítið ólíkindalega, ég ætla að skreppa til þeirra aftur. Það er alls ekki forsvaranlegt að skilja við stelpuna hágrátandi. . . . Og hann hvarf á ný út um dyrnar. En vafalaust hefur honum tekizt að hugga Stínu, vafalaust hefur Stína fyrirgefið honum guð- lastið, því að hann fór að venja komur sínar niður í kjallarann á kvöldin, þegar vinnunni var lokið. Hann vildi ekki hafa neinn með sér. Hann sagðist vera að frelsa stúlkurnar. Og svo fékk hann þessar fimmtán krónur, sem ég átti, en keypti

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.