Réttur - 01.01.1943, Blaðsíða 58
62
RÉTTUR
ætlað var, þegar frumvarpið var lagt fram síðastliðinn vetur. Fram-
lög til verklegra framkvæmda, vegagerða, brúargerða, hafnargerða
o. fl. voru allmjög hækkuð. Heimilað var að verja 2 milljón kr. til
atvinnuaukningar sérstaklega, ef ekki verður næg atvinna í land-
inu. Felld var niður heimild sú er var í frumvarpinu og hefur verið
í fjárlögum undanfarið, að lækka útgjöld ríkissjóðs um 35%, ef
stjórninni þætti ástæða til. Náði þetta fram að ganga, þrátt fyrir
hatrama andstöðu afturhaldsins í Framsókn og Sjálfstæðisflokkn-
um (Jónas frá Hriflu, Pétur Ottesen o. fl.). Þá var.ákveðið að
framlög til verklegra framkvæmda, sem ekki verður unnt að nota á
árinu af styrjaldarástæðum, skuli nota eingöngu til sömu fram-
kvæmda síðar, og óheimilt að verja fénu til annars. Samþykkt var
að veita 300 þús. til byggingar fæðingardeildar við Landspítalann
og framlag til hygginga barnaskóla utan kaupstaða stórum hækk-
að. Samþykktar voru nokkrar launauppbætur til kennara. Þá voru
og samþykktar nokkrar tillögur Sósíalistaflokksins um smærri
framlög til ýmissa félags- og menningarmála.
Af lillögum þeim, sem Sósíalistaflokkurinn hefur borið fram og
náð hafa samþykki Alþingis, má nefna eftirfarandi:
í tilefni af frumvarpi flokksins um elli- og örorkutryggingar sam-
þykkti efri deild með rökstuddri dagskrá viljayfirlýsingu um að
þegar á þessu ári yrðu afgreidd lög um fullkomnar elli- og örorku-
tryggingar í samræmi við tillögur flokksins. Inn í húsaleigulögin
hafa verið tekin upp ákvæði um sJcömmlun húsnœðis og að fyrir-
mæli laganna skuli ná til verbúða, bryggja og palla, sem leigð eru
línuveiðabátum. Samþykkt var tillaga flokksins um ráðstafanir til
að úlvega fiskimönnum nœga beitu, með sæmilegum kjörum. Sam-
þykkt voru Jagaákvæði um stofnun lánadeildar við fislciveiðasjóð,
er veiti vaxtalaus lán til bátabygginga. Samþykkt var að veita rík-
isábyrgð fyrir virkjun Fljólaár, fyrir Siglufjarðarkaupstað.
Þá var samþykkt tillaga Sósíalistaflokksins, er hann hefur flutt
á tveim síðustu þingum um undirbúning undir gagngerða nýsJcip-
un í ísJenzkum landbúnaði. Vegna þess, að samþykkt þessarar til-
lögu getur orðið hið mikilvægasta framfaraskref fyrir þjóðina, ef
Búnaðarfélagið leggur alúð við verkefni það, sem Alþingi hefur