Réttur - 01.01.1943, Side 59
RÉTTUR
63
falið því, og framkvæmdir koma í kjölfarið, skal hún birt hér í
heild. Hún hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela Búnaðarfélagi Islands eftirfarandi verk-
efni:
1. Að láta fara fram rannsókn á því, hvar heppilegust eru skilyrði
með tilliti til ræktunar, rafvirkjunar, samgangna o. s. frv. til
landbúnaðarframleiðslu í ýmsum greinum með stofnun byggða-
hverfa og aukið þéttbýli fyrir augum.
2. Að gera áætlun um rafvirkjun sveitabyggða og samgöngukerfi
sveitanna með hliðsjón af rannsókn þeirri, er greinir í 1. lið, í
samvinnu við aðrar hlutaðeigandi ríkisstofnanir.
3. í sambandi við ofangreinda rannsókn að gera tillögur um stofn-
un fyrirmyndarbúa á ýmsum stöðum á landinu og um fyrir-
komulag þeirra, og skulu verkefni þeirra vera m, a. að gera til-
raunir í ræktun og búrekstri, halda námskeið fyrir bændur o. s.
frv.
4. Að undirbúa löggjöf um framkvæmdir og aðstoð við landbún-
aðinn á grundvelli þess undirbúningsstarfs, sem að ofan grein-
ir, og að endurskoða gildandi búnaðarlöggjöf, til að greiða fyr-
ir þróun hans í samræmi við þær niðurstöður, sem rannsókn sú,
er um getur í 1. lið, leiðir í ljós.
Kostnaður greiðist úr ríkissjóði.“
Loks er að geta þess, að sett voru lög um orlof, samkvæmt frum-
varpi sömdu af milliþinganefnd. Réttindi þau, sem helztu verka-
lýðsfélögin öfluðu sér með samningum á síðasta ári, eru þar með
staðfest með lögum og gerð abnenn.
SÖFNUN HANDA RAUÐA KROSSI SOVÉTRÍKJANNA
í febrúar ákvað Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík að
hefja fjársöfnun handa Rauða krossi Sovétrikjanna. Ymsir merk-
ustu menn þjóðarinnar birlu ávarp til almennings, þar sem skorað
er á fólk að taka þátt í söfnun þessari. Undir ávarp þetta rituðu
menn úr öllum flokkum og stéttum, þar á meðal biskup landsins,
bankastjóri Landsbankans, margir alþingismenn, embættismenn og