Réttur - 01.01.1943, Síða 69
RÉTTUR
73
innar í því mikla endurreisnar- og sköpunarstarfi, sem framundan
er, þegar friður næst. Sú ákvörðun Kommúnistaflokks Bretlands
að sækja um inngöngu í Verkamannaflokkinn, sýnir bezt, að brezk-
uni kommúnistum er það fullkomið alvörumál að eining alþýðunn-
ar náist nú þegar, vegna verkefnanna og þeirra tækifæra, sem bíða
verkalýðshreyfingarinnar.
Islenzkir sósíalistar og aðrir þeir, sem ekki láta sér nægja yfir-
borðsskilning á heimsstjórnmálum, ættu að ná sér í rit Palme Dutts.
Bók hans um fasismann, Fascism and social revolution, er enn í
fullu gildi, en hún kom út ári eftir valdatöku Hitlers. Þeir drættir
í svip fasismans, sem skýrzt hafa við atburði síðustu ára, eru teknir
til meðferðar í einum kafla nýju bókarinnar (Britain in the world
front), „Andlit óvinarins“. Eins má segja að bókinni World Poli-
tics 1918—1936 sé framhaldið til 1942 með tveimur köflum nýju
bókarinnar, „Tvær fylkingar“ og „Sigursæl herstjórnaraðferð“.
Hið mikla rit Dutts um Indland, A Guide to the Indian Problem,
er einn þungvægasti skerfurinn, sem lagður hefur verið til frelsis-
baráttu Indverja síðustu árin. Þar er þróun Indlandsmála fylgt allt
frá því að Bretar hófu íhlutun, og braut indverskra stjórnmála rakin
fram til ársins 1942. Ritið er undirbyggt með víðtækum heimilda-
rannsóknum, staðreyndirnar látnar tala styrku máli um kúgun
brezka auðvaldsins og frelsisbaráttu indversku þjóðarinnar. „Um
allt Indland er Palme Dutt elskaður“, sagði Krishna Menon, ind-
verskur sjálfstæðissinni og áhrifamaður í brezkaVerkamannaflokkn-
um, er hann reis upp í Cambridge Theatre til að hylla ritstjóra
Labour Monthly á 20 ára afmæli þess, sumarið 1941. Sjálfsagt ekki
að ófyrirsynju. Indverska þjóðin á tæpast trúrri son, Indland engan
snjallari málsvara en þennan leiðtoga brezka Konnnúnistaflokksins.
S. G.