Réttur - 01.07.1982, Síða 2
Ef alþýða manna ætlar að hindra innrás atvinnuleysis og kauplækkunar á
(slandi, verður hún að gerast sterkasta stjórnmálaaflið. Alþýðan verður öll
að horfast með fullu raunsæi á það ástand, sem myndi skapast hér, ef
heimskreppan fær að skella yfir landið óhindrað. Það er ekki aðeins gífurlegt
atvinnuleysi og kauplækkanir, — með tilheyrandi eignamissi og fátækt, —
sem myndi verða hlutskipti verkalýðs og allra annarra launastétta á íslandi,
heldur sýnir og reynslan að yfirstéttin hér reynir að koma sér upp vopnuðu
liði gegn verkalýðnum, er stéttabaráttan harðnar. Hún reyndi það (ríkislög-
reglufrumvörpin) 1923 og 1933, er heimskreppan gamla skall yfir. Hún var
eggjuð af Ameríkönum til að gera slíkt 1952, en alltaf hefur það mistekist.
Nú hefur íhaldið látið íslending einn læra manndrápsaðferðir í herskóla í
Noregi, — ætlar auðsjáanlega að geta stjórnað vígbúnu fasistaliði hér gegn
verkalýðnum, ef hann dirfist að mögla þegarfátækt og kreppu auðvaldsskipu-
lagsins er hleypt inn á heimili hans.
íslenskt launafólk hefur miklu að tapa. Það hefur allt frá fyrsta stóra
sigrinum yfir afturhaldinu 1942, getað útrýmt örbirgðinni úr þjóðfélaginu:
eignast á fjórum áratugum síðan eigin íbúðir og margskonar þægindi og
eignir, sem óhugsandi hefðu þótt á verkamannaheimilum áður og auðmönn-
um blöskraði að sjá þar.
En það duga ekkert annað en harðvítugar pólitískar ráðstafanir til að
vernda lífskjör og eignir launafólks. Og til þess þarf sterka pólitíska
samfylkingu og samstarf allra launastétta, allrar alþýðu á íslandi.
Samtímis því sem heimskreppan færist nær íslandi og hættan af árásum
auðvalds á alþýðu vex hér, er svo unnið að því af erindrekum bandaríska
auðvaldsins á íslandi að minnka viðskiptin við Sovétríkin í stað þess að afla
þar ekki síst íslenskum iðnaði stórmarkaða — eins og hvað eftir annað hefur
sýnt sig í sögu íslenskrar verslunar.
Tilgangurinn er auðsær: Það á að steypa (slandi æ dýpra í skuldafenið hjá
bandarísku bönkunum, svo þessir hákarlar auðsins hefðu öll ráð vor í hendi
sér.
Hins vegar sýnir m.a.s. auðmannastétt Vestur-Evrópu á sama tíma það
verslunarvit og manndóm að standa uppí hárinu á Ronald Reagan og
yfirdrottnunarklíku hans, sbr. gasleiðsluna miklu.
Takmarkið, sem bandaríska auðvaldið ætlar sér að ná með þessari pólitík
erindreka sinna á íslandi, er að knýja það fram í krafti kverkataka á landi og
þjóð, að hér á landi verði settar þær vígvélar, er stjórnað geti
kjarnorkuárásum á Sovétríkin, af því andstaðan gegn staðsetningu slíkra
hervopna vex í Vestur-Evrópu. ísland yrði þannig amerískur skotpallur — og
varnaraðilum skotmark.
íslensk alþýða væri því mað markvissri stjórnmálabaráttu eigi aðeins að
bjarga sjálfri sér úr heimskreppu, heldur og forða þjóð vorri frá hel.