Réttur


Réttur - 01.07.1982, Blaðsíða 52

Réttur - 01.07.1982, Blaðsíða 52
séö sérstaka ástæðu til aö banna Nestle að nota nafn stofnunarinnar í leiðbeining- um fyrirtækisins um meðferð barnamats. Enda hefur komið í ljós að hinar nýju víðtæku leiðbeiningar eru ekkert annað en svik („public relations fraud“). Lyfjaframleiðendur deyða eina milljón manna á ári Það eru fleiri auðgunarmorð í þriðja heiminum en þau sem auðhringurinn Nestle orsakar. Lyfjaframleiðendur og eiturefnaframleiðendur eru einnig stór- tækir. Lyfjaframleiðendur hafa gert sér Ijósa grein fyrir því að þótt ekki hafí tekist að koma á fót viðhlítandi heilsugæslu eða hjúkrun sjúkra víða í þriðja heiminum, þá má með auglýsingatækni ná beint til fólks hvað varðar lyf sem fást án lyfseðla. Auglýsingarnar byggjast aðallega á því að Ijúga til um lækningamátt lyfjanna, án þess að fyrir því séu vísindalegar forsend- ur. Þá sleppa framleiðendur mikilvægum upplýsingum svo læknar og lyfjaútsölur geta með engu móti áttað sig á afleiðing- um lyfjanna. Upplýsingum um að lyf geti undir ákveðnum kringumstæðum verið lífshættuleg er t.d. sleppt. Lyf sem aldrei ná því að verða viðurkennd á vesturlönd- um eru seld í stórum stíl í þriðja heimin- um. Þá nota lyfjaframleiðendur sér það óspart að lyf sem einungis eru notuð í hitabeltislöndum koma aldrei til skoðunar á vesturlöndum. Þannig líða íbúar þriðja heimsins hroðalega neyð vegna ýmissa aukaverkana þeirra lyfja sem þeir kaupa í góðri trú um að þau komi heilsu þeirra í lag. Algengar aukaverkanir eru blinda, blóðtappar, kirkingslegt vaxtarlag barna og breytingar á vöðvauppbyggingu svo eitthvað sé nefnt utan dauðans. Áætlað er að 10 til 15 milljón tilfella komi upp ár hvert þar sem um er að ræða skaða af völdum lyfja. Dauðatilfellin eru talin ein milljón. Allar þessar tölur sagðar varlega áætlaðar. (Byggt á Multinational Monitor) 180
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.