Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 2
2 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
Aðalsteinn, er Skralli á leið-
inni til Bretlands?
„Já, til að kenna Bretum glaðværð,
góðvild og góða siði.“
Sirkuseigendur í Bretlandi kvarta sáran
þessa dagana yfir skorti á trúðum og loft-
fimleikafólki. Aðalsteinn Bergdal leikari
hefur aukasjálfið Skralla trúð, sem kætt
hefur íslensk börn og fullorðna í áraraðir.
SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir-
litið (SE) hefur lagt tíu milljóna
króna stjórnvaldssekt á Bænda-
samtökin fyrir ólöglegt verð-
samráð.
Brotið er rakið til Búnaðar-
þings ársins 2008, þar sem fram
kom almennur vilji til þess að
bændur stæðu saman að nauð-
synlegum verðhækkunum á
búvörum sem ekki lúta opin-
berri verðlagninu.
Í úrskurði Samkeppniseftir-
litsins segir að brotið hafi verið
til þess fallið að valda neytend-
um tjóni.
Bændasamtökin sendu frá sér
tilkynningu í gær þar sem þau
mótmæla því að þau hafi haft
ólögmætt verðsamráð.
Stjórn samtakanna muni
ákveða á næstunni hvernig
brugðist verði við. - sh
Brot á Búnaðarþingi:
Bændur fá sekt
fyrir samráð
Opið hús
á sunnudaginn
Nú á sunnudag verður opið hús á
kosningaskrifstofu Bjarna Benediktssonar
í Hlíðasmára 15.
Leikararnir Gói og Atli koma
og skemmta kl. 16. Boðið verður
Bjarni Benediktsson í 1. sæti
ÚTIVIST „Þegar starfsmaður Blá-
fjalla benti okkur á Breiðu bros-
in, sem aldrei hafa hlotið styrk,
vildum við undir eins leyfa þeim
börnum að njóta góðs af,“ segir
Sigurður Páll Sigurðsson, skipu-
leggjandi veglegrar fjölskyldu-
hátíðar sem haldin verður fram á
kvöld í Bláfjöllum. Allur ágóði af
miðasölu skíðasvæðisins rennur
til Breiðra brosa, sem eru sam-
tök aðstandenda barna með skarð
í vör.
Dr. Spock mun ljúka gleðinni
með útitónleikum á snævi þöktu
sviði í vetrarmyrkrinu, en meðal
margs verður blysför niður fjall-
ið, tískusýning, spaug og veiting-
ar í boði fyrir gesti fjallanna.
- þlg / sjá Allt
Góðverk og gleði í Bláfjöllum:
Partí í fjöllum
ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra mælti í gær
fyrir frumvarpi um breytingar
á stjórnarskrá og skipan stjórn-
lagaþings.
Sagði hún slíkt þinghald rétt-
an farveg fyrir endurskoðun
stjórnarskrárinnar og með því
gæti nauðsynleg samfélagssátt
náðst.
Geir H. Haarde, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagðist
telja að kostnaður við stjórnlaga-
þing gæti numið milljarði króna.
Jóhanna sagði dæmið ekki hafa
verið reiknað en vissulega kost-
aði þinghaldið töluvert.
Sá kostnaður væri þó
réttlætanlegur vegna þeirra
miklu lýðræðisumbóta sem
fylgdu. - bþs
Mælt fyrir stjórnarskrárbreytigu:
Stjórnlagaþing
getur skapað
samfélagssátt
FJÁRMÁL Afgangur á vöruskiptum
við útlönd í febrúar nam 5,9 millj-
örðum, samkvæmt bráðabirgða-
tölum Hagstofu Íslands. Innflutn-
ingur vöru nam 26,4 milljörðum
króna sem er nokkuð minna en
í janúar þegar hann nam 32,3
milljörðum. Verðmæti útfluttrar
vöru nam aftur á móti 32,3 millj-
örðum í febrúar en í janúar 33,6
milljörðum.
Minni innflutningur í febrúar
stafar annars vegar af minni inn-
flutningi á hrá- og rekstrarvörum
og hins vegar á eldsneyti og
olíum. - shá
Vöruskiptin í febrúar:
Afgangurinn
sex milljarðar
ÚTSKIPUN Vöruskipti við útlönd skiluðu
afgangi í febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJÖLMIÐLAR Elín Arnar ritstjóri og blaðamenn Vik-
unnar lýsa furðu sinni á dómi Hæstaréttar þar sem
ummæli viðmælanda tímaritsins voru ómerkt og
Björk Eiðsdóttur, blaðamanni Vikunnar sem skráði
viðtalið, var gert að greiða hálfa milljón í miskabæt-
ur, auk dráttarvaxta og málskostnaðar. Í yfirlýs-
ingu segir að þrátt fyrir að í dómi Hæstaréttar sé
það ekki véfengt að blaðamaðurinn viðhafði fagleg
vinnubrögð þá þyrfti blaðamaðurinn engu að síður
að þola ómerkingu ummælanna og greiða miska-
bætur vegna þeirra. Dómurinn breyti skýrri réttar-
venju um það að viðmælendur teljist höfundar
ummæla sinna en ekki blaðamaðurinn sem höfund-
ur greinarinnar. Þýðing þessa sé víðtæk breyting á
starfsumhverfi blaðamanna.
„Með þessum dómi er Hæstiréttur í raun að
kveða upp úr með að blaðamenn séu ábyrgir fyrir
öllu sem viðmælendur þeirra segja, þrátt fyrir að
fyrir liggi hljóðupptaka af ummælum viðmælanda
og samþykki hans fyrir birtingu“, segir í yfirlýsing-
unni. Dómurinn skilji blaðamenn eftir í réttaróvissu
og hefti störf stéttarinnar í heild.
Málsatvik eru þau að Ásgeir Þór Davíðsson, eða
Geiri á Goldfinger, kærði blaðakonuna Björk Eiðs-
dóttur fyrir meiðyrði. Héraðsdómur hafði áður
sýknað Vikuna af kröfum hans. Í grein sinni hafði
Björk eftir viðmælanda sínum, fyrrverandi starfs-
manni Ásgeirs, að hann stæði fyrir vændi á klúbbn-
um Goldfinger. - shá
Dómur Hæstaréttar í máli Vikunnar og Geira á Goldfinger talinn hefta fjölmiðla:
Blaðamenn skildir eftir í réttaróvissu
ELÍN ARNAR Elín, ritstjóri Vikunnar, og starfsmenn hennar lýsa
furðu sinni á dómi Hæstaréttar. Dómurinn viðurkennir fagleg
vinnubrögð blaðamanns en dæmir hann engu að síður til
greiðslu miskabóta.
STJÓRNSÝSLA Dagpeningar vegna
ferðalaga opinberra starfsmanna
erlendis hafa verið lækkaðir
um tíu prósent, eftir tilmæli frá
Steingrími J. Sigfússyni fjár-
málaráðherra.
Þá hefur ráðherrann einnig
ákveðið að breyta sérstök-
um ákvæðum um ferðakostnað
æðstu embættismanna ríkis-
ins. Dagpeningar þeirra munu
samkvæmt því skerðast töluvert
og sömu reglur gilda um þá og
aðra opinbera starfsmenn. Enn
fremur sé sú heimild afnumin að
greiða mökum ráðherra dagpen-
inga þegar þeir eru með ráðherr-
um í för erlendis. - sh
Ráðherra lækkar ferðakostnað:
Minna eytt í
opinberar ferðir
VIÐSKIPTI Tilkynning Íslandsbanka
í gær um greiðslujöfnunarúrræði
bankans vegna erlendra hús-
næðislána hefur vakið nokkra
óánægju í Landsbankanum og
Kaupþingi, samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins.
Ástæðan er sú að uppistaðan í
aðgerðunum sem Íslandsbanki til-
kynnti um er afrakstur víðtæks
samráðs banka og stjórnvalda og
þær verða hluti af frumvarpi við-
skiptaráðherra um greiðslujöfn-
un sem lagt verður fyrir þing á
næstunni.
Íslandsbanki tilkynnti í gær um
sérstakt afborgunarúrræði fyrir
fólk sem á í erfiðleikum með að
greiða af erlendum húsnæðis-
lánum. Um sé að ræða greiðslu-
jöfnun sem á að minnka greiðslu-
byrði og draga mjög úr áhrifum
gengissveiflna á einstakar afborg-
anir.
Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjármála-
fyrirtækja, staðfestir að samtökin
hafi unnið að málinu í samvinnu
við stjórnvöld en vill ekki tjá sig
frekar um það.
Óánægjan sem upp er komin
lýtur að því að Íslandsbanki skuli
fara fram með tilkynningu af
þessu tagi áður en frumvarp við-
skiptaráðherra er lagt fram, og
ekki síður að bankinn skuli með
því eigna sér tillögurnar, sem þó
séu ekki þeirra nema að mjög litlu
leyti.
Ekki náðist í Gylfa Magnússon
viðskiptaráðherra í gær. - sh
Lungi tillagna Íslandsbanka um greiðslujöfnun er úr frumvarpi viðskiptaráðherra:
Kergja vegna þjófstarts Íslandsbanka
ÍSLANDSBANKI Íslandsbanki kynnti
tillögurnar sem sínar. Við það eru ekki
allir sáttir. FRÉTTABLAÐIÐ / ANTON
LÖGREGLUMÁL Fjöldi liðsmanna
vélhjólasamtakanna Vítisengla
er væntanlegur til landsins í dag.
Þeir ætla að freista þessa að kom-
ast inn í landið í gegnum strangt
landamæraeftirlit og í gleðskap
vélhjólaklúbbsins Fáfnis sem
opnar nýtt klúbbhús í Hafnarfirði
með pompi og prakt í dag.
Tólf Vítisenglum hafði verið
meinuð landganga síðdegis í gær
og þeim vísað aftur til síns heima.
Lögregla hafði mikinn viðbún-
að í Leifsstöð vegna fyrirhugaðr-
ar komu Vítisenglanna, sem eru
skilgreindir sem alþjóðleg glæpa-
samtök. Þar voru tugir lögreglu-
manna, meðal annars sérsveitar-
menn. Lögregla hefur að mestu
leyti varist fregna af málinu eða
viðbúnaði sínum.
Liðsmenn Fáfnis biðu Vítisengl-
anna í komusal en þurftu tóm-
hentir frá að hverfa. Eiginkonu
eins Vítisengils var þó hleypt inn
ásamt tveimur vinkonum hennar.
Tveimur Vítisenglum til viðbótar
var vísað úr landi á miðvikudag-
inn síðasta.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun vera von á töluverð-
um fjölda Vítisengla til viðbótar til
landsins í dag víðs vegar að. Jón
Trausti Lúthersson, einn af for-
sprökkum Fáfnis, vildi hins vegar
ekkert tjá sig um málið í gær og
sagði alþjóðasamtök Vítisengla
hafa sett Fáfnisliða í algert fjöl-
miðlabann.
Fáfnismenn hafa lengi stefnt að
því að gera Fáfni að fullgildum
meðlim í Vítisenglum. Þeir hafa
nú stöðu opinberra áhangenda
samtakanna.
Dómsmálaráðherra greip til
þess ráðs að taka upp landamæra-
eftirlit með komum frá löndum
Schengen-svæðisins vegna veislu
Fáfnis og fyrirhugaðrar komu Vít-
isenglanna. Eftirlitið verður í gildi
út daginn í dag.
Veisla Fáfnis í ósamþykktu hús-
næði í Hafnarfirði hefst síðdeg-
is. Þar verður meðal annars boðið
upp á íslenskt brennivín og kjöt-
súpu sem Sverrir Þór Einarsson,
betur þekktur sem Sverrir tattú,
mun elda ofan í mannskapinn. Þá
mun rokksveitin Dark Harvest
leika fyrir viðstadda.
Lögreglan verður með viðbún-
að í Hafnarfirði vegna veislunnar,
sem dómsmálaráðherra telur ógna
þjóðaröryggi. Varðstjóri lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu sagði
að ekki væri hægt að útiloka að ein-
hverjir Vítisenglar væru á land-
inu, sem hefðu komið hingað áður
en landamæraeftirlitið tók gildi á
fimmtudag. stigur@frettabladid.is
Von er á fjölda Vítis-
engla til Íslands í dag
Búist er við því að stór hópur Vítisengla reyni landgöngu í Leifsstöð í dag. Teiti
vélhjólaklúbbsins Fáfnis hefst síðdegis. Ekki er útilokað að einhverjir Vítisenglar
séu staddir á landinu. Samtökin hafa skipað Fáfnisliðum í algert fjölmiðlabann.
HEIÐURGESTA BEÐIÐ Nokkrir liðsmenn Fáfnis sátu löngum stundum í Leifsstöð í gær
og sötruðu kaffi. Þeir ætluðu að veita Vítisenglunum móttöku en varð ekki að ósk
sinni. Englunum var öllum snúið við á staðnum, enda meðlimir alþjóðlegra glæpa-
samtaka. MYND / VÍKURFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS