Fréttablaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 46
7. MARS 2009 LAUGARDAGUR6 ● fréttablaðið ● karlmenn og krabbamein
Bónus er einn af stuðningsaðil-
um átaksins Karlmenn og krabba-
mein en í verslunum Bónus má
kaupa miða til styrktar átakinu.
Þá hefur Bónus einnig þá sérstöðu
að hafa aldrei selt tóbak í verslun-
um sínum.
„Það voru stofnendur fyrirtæk-
isins þeir Jóhannes og Jón Ásgeir
sem tóku þessa ákvörðun,“ segir
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, og telur að
þar hafi hollustu- og heilsufars-
sjónarmið ráðið miklu.
„Þetta var eitthvað sem Jóhann-
es var alveg harður á og vildi ekki
sjá inni í Bónus,“ segir Guðmundur
og bætir við að Bónus sé eini mat-
vörumarkaðurinn sem ekki selji
tóbak. En hvað segja viðskiptavin-
irnir við því? „Ég held að þeir séu
almennt ánægðir með þetta fram-
tak enda deyja margir af völd-
um reykinga á hverju ári,“ segir
Guðmundur.
Hann segir einnig frá því að
Bónus hafi haft í hyggju að selja
nikótíntyggjó á tímabili þar sem
talið var að hægt væri að selja það
á lægra verði. „En við komumst að
því að við þyrftum lyfjaleyfi til að
flytja það inn,“ segir Guðmundur
og telur ákaflega litlar líkur á að
sígarettur verði til sölu í verslun-
um Bónus í framtíðinni. - sg
Aldrei selt tóbak
Guðmundur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Bónuss, telur engar líkur á því að
tóbak verði selt í verslunum fyrirtækis-
ins í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Guðjón Þór Mathiesen, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Pennans, með slaufuna
góðu sem Penninn selur nú öðru sinni fyrir Krabbameinsfélag Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Krabbamein er skelfilegur sjúk-
dómur, sama í hvaða mynd hann
birtist, og hefur mikil áhrif á fjöl-
skylduna og raunar alla, burtséð
frá því hvar þeir eru staddir í þjóð-
félagsstiganum, því hann snertir
flesta með einum eða öðrum hætti.
Því viljum við láta gott af okkur
leiða og taka samfélagslega ábyrgð
með því að leggja góðu málefni
lið,“ segir Guðjón Þór Mathiesen,
framkvæmdastjóri fyrirtækja-
sviðs Pennans, sem annast nú í
annað sinn sölu á slaufum fyrir
Krabbameinsfélag Íslands til
fyrirtækja í landinu.
„Þetta er í annað sinn sem við
nýtum söluteymi okkar í að bjóða
slaufur Krabbameinsfélagsins til
sölu en allur ágóði rennur beint til
félagsins. Við seldum bleiku slauf-
una í október sem mæltist mjög vel
fyrir og gekk einstaklega vel, en
fólk kann virkilega að meta þetta
framtak þar sem við gefum alla
okkar vinnu.“
Að sögn Guðjóns gengur salan
þannig fyrir sig að fyrirtækja-
þjónustan heimsækir fyrirtæki og
býður slaufuna til sölu, en einnig
má hringja í pöntunarnúmer fyr-
irtækjaþjónustunnar 540 2050 og
fá hana senda.
„Viðtökurnar hafa verið góðar,
enda álslaufan virkilega stáss-
leg og flott. Því geta karlar jafnt
sem konur borið hana með stolti og
þannig sýnt samhug í verki.“ -þlg
Vilja sýna samhug í verki
Ýmsir aðilar hafa lagt átaks-
verkefninu Karlmenn og
krabbamein lið. Þar á meðal
verslanakeðjan Herragarður-
inn sem selur sérstök þrílit
bindi til styrktar málefninu.
„Þetta er alveg frábært málefni
og við hikuðum því ekki við að
leggja okkar af mörkum og með
okkar hætti þegar haft var sam-
band,“ segir Hákon Hákonarson,
framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins Fata og skóa, sem selur sér-
stök þrílit bindi frá Krabbameins-
félagi íslands í verslunum sínum,
Herragarðinum, Boss og Herra-
lagernum. Bindin eru einkenn-
andi fyrir átaksverkefnið Karl-
menn og krabbamein sem er í
gangi um þessar mundir en allur
ágóði af sölu þeirra rennur óskipt-
ur til verkefnisins.
„Hugsanlega velta einhverj-
ir vöngum yfir því hvaða erindi
þetta átak eigi við okkur,“ segir
Hákon. „En auðvitað liggur beint
við að bindin séu seld í okkar
verslunum; bæði vegna þess að
þær eru með þekktustu og út-
breiddustu herrafataverslunum
um land allt og svo er stór hluti
kúnnahópsins, sem er frá tvítugu
og upp í nírætt, miðaldra karlar,“
bendir hann á og bætir við: „Karl-
ar á miðjum aldri og eldri eru í
stórum áhættuhópi.“
Sjálfur segist Hákon huga
vel að heilsunni með reglu-
legr i h reyf-
ingu og hollu
mataræði.
Hins vegar
hafi hann
ekki verið
alveg nógu
duglegur að
fara í lækn-
isskoðun en
þetta átak
Krabbameins-
félags Íslands
hafi svo sannar-
lega hreyft við honum og vakið til
umhugsunar um gildi þess að fara
reglu-
lega til
læknis.
„Það
segir sig
sjá l f t að
þetta hefur
allt áhrif og
það á auðvitað
við um ansi marga
sjúkdóma, ekki bara krabba-
mein. Mikilvægt er að vera með
heilsuna í lagi, hreyfa sig, borða
þokkalega hollt og gæta hófs á
sem flestum sviðum.“
Hvað bindunum viðvíkur bend-
ir Hákon á að þau fari vel með
ýmsum jakkafötum og skyrtum,
eins og meðfylgjandi myndir
sýna þar sem starfsmenn Herra-
garðsins í Smáralind víluðu ekki
fyrir sér að stilla sér upp með
bindin fyrir ljósmyndara Frétta-
blaðsins. - rve
Bindin styrkja starfið
Dagur Ingason, verslunarstjóri Herragarðsins í Smára-
lind, ásamt starfsmanni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● VISSIR ÞÚ AÐ:
■ Um 700 krabbamein greinast árlega hjá íslenskum
körlum.
■ Lungnakrabbamein er það krabbamein sem dregur
flesta íslenska karla til dauða.
■ Eistnakrabbamein er algengasta krabbameinið hjá
ungum körlum.
■ Árlega greinast sex karlar á aldrinum 15 til 39 ára með
eistnakrabbamein.
■ Einn af hverjum níu körlum á Íslandi fær krabbamein í
blöðruhálskirtil.
■ Talsverð aukning hefur orðið á ristilkrabbameini hjá
íslenskum körlum undanfarna áratugi.
Bindin fara vel með ýmsum litum,
svo sem bláu, hvítu og bleiku.
„Þeir sem hafa verið í sundi eða öðrum íþróttum
eru betur í stakk búnir til að taka á einhverju
sem upp kemur,“ segir Jörgen Már Berndsen
sem fer alltaf í Laugardalslaug í hádeginu. „Ég
er búinn að vera hátt í fjörutíu ár í laugunum,“
segir Jörgen sem æfði einu sinni sund með sund-
félaginu Ægi en lætur sér nægja að stinga sér í
heitu pottana í dag enda fleira þangað að sækja en
ylinn.
„Á svona stað myndast vinskapur manna sem
hittast alltaf á sama tíma í hádeginu,“ segir
Jörgen og útskýrir að flestir fari ávallt í sömu
pottana og stundum myndist rígur þeirra á milli.
Það sé þó yfirleitt í góðu og eftir sundferðina
gæði pottormar sér á heitri súpu á kaffistofunni í
sátt og samlyndi.
Sá hópur sem stundar heitu pottana gerir ýmis-
legt saman. Jörgen skipuleggur til að mynda ár-
legt þorrablót og hengir upp vatnsheldar auglýs-
ingar um það í pottana. „Þetta er félagsskapur þar
sem allir hjálpa öllum,“ segir Jörgen sem reynir
alltaf að vakna í góðu skapi. „Það er helmingurinn
af því að fá mikið út úr lífinu.“ - sg
Vaknar í góðu skapi
Jörgen mætir í laugarnar á hverjum degi og segir sund-
ferðirnar og félagsskapinn gefa lífinu gildi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM