Fréttablaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 16
16 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL „Ef fjölskyldur eiga í
fjárhagserfiðleikum er fermingar-
tollurinn felldur niður, auk þess
sem prestar hafa milligöngu um
að fá styrki hjá Hjálparstarfi kirkj-
unnar eða öðrum sjóðum vegna
kostnaðar,“ segir séra Bjarni Karls-
son, sóknarprestur í Laugarnes-
kirkju. Dæmi eru um að foreldrar
fermingarbarna, sem eiga við fjár-
hagsörðugleika að etja, þurfi ekki
að reiða af hendi um 15.000 króna
gjald sem ætlað er í kostnað vegna
fermingarfræðslu og -ferðalags.
Bjarni segir ekki koma til greina
að kirkjunnar menn gangi hart
fram í rukkun á fermingargjald-
inu. „Það er klár regla hjá öllum
söfnuðum þjóð-
kirkjunnar að
þjónustan stend-
ur ekki eða fell-
ur með peninga-
greiðslum. Í
stærri söfnuð-
um deilist ferm-
ingartollurinn
á þau sem ann-
ast fermingar-
fræðsluna,
presta og aðra starfsmenn, svo að
hér er ekki um miklar upphæðir
að tefla fyrir neinn, enda væri það
óeðlilegt.“
Bjarni hefur ekki orðið var við
að fermingargjöldin skili sér verr
nú en áður. Hann segir efnahags-
kreppuna mögulega geta haft sínar
góðu hliðar. „Ein er ef til vill sú að
losa ferminguna úr klóm þeirrar
hvimleiðu samanburðarlistar og
markaðsvæðingar sem orðið hafa
örlög hennar í vitund margra. Því
skora ég á foreldra og ástvini að
standa saman um að halda hófleg-
ar veislur og gefa hæfilegar gjafir
en leyfa aðalatriðinu, unglingnum
sjálfum og játningu hans, að vera
í forgrunni,“ segir séra Bjarni
Karlsson. - kg
Þjóðkirkjan gengur ekki hart fram í að rukka fólk í fjárhagserfiðleikum:
Fella niður fermingartollinn
SÉRA BJARNI
KARLSSON
STAÐFESTING Séra Bjarni hvetur foreldra
til að halda hóflegar veislur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BRUGÐIÐ Á LEIK Á Torgi hins himneska
friðar í Peking brugðu þingþjónar á
leik undir lok vikunnar í tilefni þess að
þjóðþing landsins kom saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP