Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 10
10 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
KYNFERÐISBROT „Þetta eru sláandi
tölur. Samkvæmt íslenskum lögum
er ofbeldi versti glæpur sem mann-
eskja getur beitt á eftir morði, og
þegar ofbeldismennirnir eru fleiri
en einn getur hver og einn ímynd-
að sér hvers lags hrikalegur glæp-
ur það er,“ segir Guðrún Jónsdótt-
ir, talskona Stígamóta − samtaka
kvenna gegn kynferðisofbeldi. Í
ársskýrslu samtakanna sem kynnt
var í gær kemur fram að fimmtán
hópnauðganir voru tilkynntar til
Stígamóta á síðasta ári. Árið áður,
sem var í fyrsta sinn sem tölur um
tilkynntar hópnauðganir voru birt-
ar, var samtökunum tilkynnt um
sex hópnauðganir, og er því um vel
rúmlega helmingsfjölgun að ræða.
Tilkynntum lyfjanauðgunum fjölg-
aði úr ellefu í fjórtán milli ára.
Guðrún segist vilja fara var-
lega í að draga of miklar ályktan-
ir af þessum tölum. „Þetta eru auð-
vitað of lágar tölur til að hægt sé
að draga af þeim stórar ályktanir,
en þetta gæti verið merki um að
ofbeldið sé að harðna. Við vitum
það ekki fyrir víst, en svona blasir
þetta við okkur,“ segir Guðrún.
Í skýrslunni kemur einnig fram
að af þeim kynferðisafbrotamönn-
um sem tilkynnt var um á síðasta
ári, og vitað er um þjóðerni á, séu
84 prósent íslenskir. 9,7 prósent
þeirra komi frá öðrum löndum en
upplýsingar um þjóðerni vanti hjá
5,8 prósentum af þeim sem beittu
ofbeldi. Samkvæmt tölum Hagstof-
unnar fyrir 2008 eru útlendingar
um 8,1 prósent samfélagsins. Stór
hluti af þeim 9,7 prósentum sem
eru útlendingar hafi framið brot
sín í útlöndum, og þess vegna sé
ljóst að íslenskum konum standi
ekki meiri ógn af útlendingum en
Íslendingum.
„Umræðan hefur mikið til
verið á þeim nótum að íslenskum
konum stafi mest hætta af erlend-
um mönnum sem koma hingað til
lands,“ segir Guðrún. „Við höfum
líka tekið eftir því að þegar útlend-
ingar nauðga er það tekið fram í
fjölmiðlum, og það ýtir undir þá
skökku mynd að þeir séu hættu-
legri en Íslendingar. Það er goð-
sögn sem ekki er fótur fyrir.“
Verkefnið Stígamót á staðinn
hófst síðasta haust, og í kjölfar
þess komu 52 einstaklingar í viðtöl
á vegum Stígamóta utan Reykjavík-
ur. Af þeim voru 28 sem ekki höfðu
komið í viðtal áður. Framhald verð-
ur á verkefninu og segir Guðrún
líklegt að viðtölum utan Reykjavík-
ur eigi eftir að fjölga á næstunni.
kjartan@frettabladid.is
Aldrei tilkynnt um
fleiri hópnauðganir
Tilkynntum hópnauðgunum til Stígamóta fjölgaði úr sex í fimmtán milli ára.
Forstöðumaður segir mögulegt að kynferðisofbeldi sé að harðna. Umræða um
að útlendingar nauðgi oftar en Íslendingar sé goðsögn sem ekki sé fótur fyrir.
SKÝRSLA Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, og Ingibjörg Þórðardóttir félagsráðgjafi kynntu ársskýrslu samtakanna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sextán samtök skoruðu í gær á
stjórnvöld að leggja bann við kaup-
um á vændi. Í áskorun þeirra segir
meðal annars að fagna beri því
að enn einu sinni sé komið fram á
Alþingi frumvarp þess efnis. Nýmæli
sé að þingmenn stjórnarflokkanna
tveggja, ásamt þingkonum Fram-
sóknarflokks, leggi fram frumvarpið
og því ætti ekkert að vera því til
fyrirstöðu að það verði afgreitt og
samþykkt.
Ljóst sé að málið njóti ekki bara
stuðnings allrar kvennahreyfing-
arinnar, heldur líka mikils stuðn-
ings hjá þjóðinni því samkvæmt
skoðanakönnun Capacent Gallup
frá því í mars 2007 vilja 70 prósent
þjóðarinnar banna kaup á vændi.
ÁSKORUN TIL STJÓRNVALDA
STJÓRNMÁL Frumvarp ríkisstjórnarinnar um álver
í Helguvík nýtur ekki stuðnings allrar ríkisstjórn-
arinnar. Tveir ráðherrar Vinstri hreyfingarinnar
- græns framboðs, Steingrímur J. Sigfússon og Kol-
brún Halldórsdóttir, hafa lýst andstöðu við málið og
má ætla að hinir tveir séu sömu skoðunar. Líkast til
mun gjörvallur þingflokkur VG leggjast gegn frum-
varpinu en ekki er ljóst hvort þingmenn flokksins
greiða atkvæði gegn því eða sitja hjá við atkvæða-
greiðslu.
Í frumvarpinu er lagt til að ríkisstjórninni verði
veitt heimild til að semja við Century Aluminum
Company, eiganda Norðuráls Helguvíkur ehf., um
álver í Helguvík. Á samningurinn að fjalla um
byggingu og rekstur 360 þúsund tonna álvers, skatt-
lagningu þess og lögsögu dómstóla.
Eitt af meginverkefnum Össurar Skarphéðins-
sonar iðnaðarráðherra hefur verið að koma álveri í
Helguvík á koppinn. Hefur hann í þingræðum lýst
yfir að þjóðin þarfnist verkefnisins enda skapi það
fjölmörg nauðsynleg störf.
Þó að VG sé á móti álverinu er meirihlutastuðn-
ingur við það á þingi enda aðrir flokkar hlynntir
framkvæmdinni. - bþs
Vinstri græn eru andvíg því að ríkisstjórnin semji um álver í Helguvík:
Hálf ríkisstjórn með stjórnarfrumvarpi
ÁLVERIÐ RÍS Þótt ekki hafi verið gerður formlegur samn-
ingur um álver í Helguvík eru framkvæmdir hafnar.
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
0
9
4
2
3
6
MEIRA FYRIR NÁMSMENN! Landsbankinn veitir Námufélögum námsstyrki í tuttugasta sinn. Nánari upplýsingar og
T
B
W
A
\R
e
yk
ja
ví
k
\
S
ÍA
\
0
9
4
1
9
7
A
T
A
R
N
A
Glæsileg
Sölu sýning
í dag.
Fjöldi tilboða
í tilefni dagsins.
Opið frá 10 til 16.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki