Fréttablaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 18
18 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 66 Velta: 156 milljónir króna
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
264 -0,18% 807 -0,85%
MESTA HÆKKUN
MAREL 1,70%
STRAUM. - BURÐ. 1,18%
ÖSSUR 0,35%
MESTA LÆKKUN
CENTURY ALUM. -29,32%
ALFESCA -8,57%
BAKKAVÖR -0,54%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,20 -8,57% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 235,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,84 -0,54% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,75 +0,00% ... Føroya Banki 100,00 +0,00% ... Icelandair Group
11,46 +0,00% ... Marel Food Systems 54,00 +1,70% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,71 +1,18% ... Össur 85,10 +0,35%
Fúlir Pólverjar
Pólverjar eru hundfúlir út í Lars Christensen,
aðalhagfræðing Danske Bank, þessa
dagana og kenna honum um
gengisfall á zloty-inu, gjaldmiðli
Póllands. Lars varð heimsfrægur
á Íslandi þegar Danske Bank birti
greiningu um íslenskt efnahagslíf
á vordögum 2006 og kunnu fáir
honum þakkir fyrir þegar krónan féll
og gengi bankanna hrundi. Sagan
virðist endurtaka sig í Póllandi nú en
Christensen er skrifaður fyrir því að
Danske Bank og önnur fjármálafyr-
irtæki hafa hagnast á stöðu gegn
zloty-inu sem hefur fallið um
fjörutíu prósent á hálfu ári.
Danska vampíran
Danska dagblaðið Politiken sagði í vikunni
reiðina skiljanlega í ljósi þess að tugþúsundir
Pólverja burðast nú um með óheyrilega dýr
myntkörfulán í svissneskum frönkum og evrum
sem þeir hafi tekið síðustu ár í skugga sterks
zlotys. Andúðin á hagfræðingnum gekk svo
langt á dögunum að pólska dagblaðið Fakt
sendi ljósmyndara til að fylgja
honum eftir í Kaupmannahöfn
og birti flennistóra mynd af
honum í kjölfarið þar sem
honum var líkt við hinn
fégráðuga Gordon Gekko,
sem Michael Douglas lék
eftirminnilega í kvik-
myndinni Wall Street fyrir
23 árum, undir yfirskrift-
inni: Danska vampíran.
Peningaskápurinn...
Skilanefnd Glitnis hefur
náð samkomulagi um
dótturfélag gamla bankans
í Lúxemborg. Kaupþing er
að komast að samkomulagi
um sölu þar. Gamli Lands-
bankinn missti útibú sitt í
bankahruninu.
„Þetta er stór áfangi,“ segir
Kristján Óskarsson í skilanefnd
Glitnis sem hefur náð samningum
við seðlabankann í Lúxemborg
hvernig staðið skuli að uppgjöri
skulda vegna dótturfélags Glitn-
is þar í landi. Samningaviðræður
hafa staðið sleitulítið yfir síðan í
október í fyrra til að forða bank-
anum frá gjaldþroti.
Samkvæmt samningnum fær
skilanefndin fimm ára svigrúm
til að gera upp skuldir við seðla-
bankann.
Seðlabanki Lúxemborgar á
kröfu upp á einn milljarð evra á
hendur gamla Glitni.
Skilanefndin mun leggja fast-
eignalánasafn í eigu dótturfélags-
ins í Lúxemborg til greiðslu skuld-
arinnar en það er með veðum
í atvinnu- og íbúðarhúsnæði á
Norðurlöndum, í Bretlandi og
Þýskalandi. Gert er ráð fyrir að
aðrir kröfuhafar en Seðlabankinn
fái kröfur greiddar strax. Eftir
að gert hefur verið upp við seðla-
bankann ytra færist afgangurinn
í bækur skilanefndar til fullnustu
annarra krafna.
Knútur Þórhallsson í skila-
nefnd Kaupþings segir sömuleið-
is langt og strangt karp að baki en
bankinn er við það að landa sam-
komulagi um sölu á Kaupþingi í
Lúxemborg til fjárfestingarsjóðs
frá Líbíu. Samningar standa nú
yfir við kröfuhafa og er búist við
að ferlinu ljúki innan fjögurra
vikna.
Að því loknu leggur fjárfest-
ingarsjóðurinn bankanum til
nýtt hlutafé upp á 75 til 100 millj-
ónir evra, jafnvirði rúmra fjórtán
milljarða króna og hafa yfirvöld í
Belgíu og Lúxemborg tryggt lán
upp á 600 milljónir evra til viðbót-
ar svo bankinn geti greitt út inni-
stæður sínar.
Gamla Kaupþing fær ekki aur í
tengslum við söluna.
Þeir Knútur og Kristján telja
báðir að bankarnir, sem hafa verið
í greiðslustöðvun frá bankahrun-
inu hér í október, geri að mestu
eða öllu leyti upp endurhverf við-
skipti sín við seðlabanka Lúxem-
borgar, sem er hluti af neti evr-
ópska seðlabankans.
jonab@markadurinn.is
Bönkunum bjargað frá gjaldþroti
Landsbankanum í Lúxemborg var
lokað fljótlega eftir að fjármálaeftir-
litið ytra tók bankann yfir í október
og er hann gjaldþrota. „Við unnum
að því að ná samkomulagi við yfir-
völd í Lúxemborg en því miður tókst
það ekki. Það eru mikil vonbrigði
enda töldum við að þannig hefði
mátt hámarka virði eigna gamla
bankans,“ segir Páll Benediktsson,
upplýsingafulltrúi skilanefndar
Landsbankans.
LANDSBANKINN FÓR EINN Í ÞROT
LÚXEMBORG Skilanefndir Glitnis og Kaupþings hafa unnið að því hörðum hönd-
um að bjarga dótturfélögum bankanna ytra frá gjaldþroti.
Evrópski seðlabankinn bókfærir
tap upp á 10,3 milljarða evra, jafn-
virði 1.500 milljarða króna, vegna
falls fimm banka í Þýskalandi og
Niðurlöndum í fyrra.
Á meðal þeirra eru dótturfélög
Glitnis, Kaupþings og Landsbank-
ans auk Lehman Brothers og hol-
lenska bankans Indover.
Þetta kom fram í máli Jean-
Claude Trichet, bankastjóra evr-
ópska seðlabankans, á blaða-
mannafundi á fimmtudag.
Reynt verður að ná sem mestu
upp í kröfur til að lækka afskrift-
ir, að sögn viðskiptablaðsins Fin-
ancial Times. Falli tap á bankann
dreifist það á aðra seðlabanka í
Evrópu. - jab
Trichet vill ekki
sjá afskriftir