Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 37
menning
mars 2009
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
U
ndanfarin ár hefur verið nóg
að gera á íslenskum arkitekta-
stofum: stórverkefni af ýmsu
tagi hafa verið undirbúin og
sum skriðið af stað. Íslenskir
arkitektar hafa mátt hafa sig allan við:
stórir reitir í þéttbýli hafa verið undir.
Nýjar skipulagstillögur hafa komið fram
um mikið byggingarmagn í borg og
bæjum og jafnframt höfðu fjármagns-
sterkir aðilar hugmyndir um stór og ný
hverfi: Kvosin, Slippurinn, Grandi,
Höfðahverfið, Barónsstígsreitur, raunar
allt svæðið umhverfis Laugaveg, Hamp-
iðjureitur og í jaðri byggðarinnar voru
stórfenglegar áætlanir um uppbyggingu
hverfa inn á heiðarnar: við Elliðavatn
suður og vestur fyrir Vatnsendahæð, í
Úlfarsárdal, ný hverfi voru skipulögð
suður með sjó og víða um land gerðu
menn sér vonir um mikla endurnýjun á
húsnæði.
Nú blasir raunveruleikinn við: offram-
boð er á tilbúnum eignum til íbúðar, versl-
unar- og atvinnureksturs. Kaupendur
skila lóðum, grunna verður að hylja, hálf-
köruð hús eru birgð. Fram undan er tími
sem um sumt minnir á þá daga þegar fjöl-
skyldur fluttu í bílskúr og menn byggðu
hús sín á áratug í nýjum hverfum. Offjár-
festing mun sliga fjölskyldur og fyrirtæki
og þegar komið er að þroti verða eigendur
í stórum vandræðum með að losa eignir
sínar. Starfandi fyrirtæki munu reyna að
komast í ódýrara húsnæði takist þeim að
losa sig úr samningum um það sem þau
eru í. Langvinn stöðnun blasir við bygg-
ingariðnaði í nýbyggingum.
Reynsla af viðlíka kreppum sýnir að
það tekur menn nokkur ár að koma bygg-
ingariðnaði í gang, verkefni þeirra fyrir-
tækja sem lifa kreppuna af verður viðhald
eldri eigna, líka þeirra sem nýsmíðaðar
eru, því hraður byggingarmáti þenslu-
ástands hefur í för með sér óvönduð
vinnubrögð.
Rof er því fyrirsjáanlegt í byggingar-
sögunni. Næsta áratug verða fyrir augum
okkar ókláraðar byggingar af öllu tagi,
ófrágengnar lóðir, tóm hús. Og bygging-
arstíll sem gegnumsneitt laut fyrst og
fremst hagræði í byggingarmáta.
Arkitektar og verkfræðingar eru ekki
teknir með í frumvarpi ríkisstjórnar um
niðurfellingu virðisaukaskatts af vinnu á
byggingarstað en hafa komið á framfæri
athugasemdum þar um að miklu munaði
þessar stéttir um ef vinna þeirra væri
undanþegin virðisaukaskatti. Sem tryggði
þá líka vandaðri vinnu. Þá hafa samtök
þeirra ályktað að haldið verði áfram und-
irbúningi verkefna til framtíðar sem auki
verkefni stéttanna. Og eins og Margrét
Jónsdóttir, formaður Arkitektafélagsins,
segir: „Svo þarf að klára öll þau hús sem
nú eru í byggingu – einhvern tíma.“
Höfðatorg hefur
verið tekið
sem dæmi um
yfirgang verktaka
og undanlátssemi
skipulagsyfir-
valda.
Strax eftir hrun bankanna
í haust máttu arkitekta-
stofur bregðast hratt við:
dregið var saman í manna-
haldi eins snögglega og
hægt var og á einni viku
varð heil stétt í landinu að
stærstum hluta atvinnu-
laus. Við blasir að rof
verður í byggingarsögu
þjóðarinnar eftir þensluna
sem liðin er hjá.
BYGGINGARLIST
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
ROF Í BYGGINGARSÖGU
fram undan
■ HEIMSKAMMERJAZZDÆGURSINFÓNÍURAFPOPP ■ KVENTÓNSKÁLD MEÐ TÓNLEIKA
■ MÖTTULS SAGA: NÝ ÓPERA KYNNT
Síðueldar í kvikmynd
Gagarín hefur lokið við að endurskapa mestu
náttúruhamfarir Íslandssögunnar í kvikmynd.
Móðuharðindin taka nú korter. BLS. 4
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Fullkomlega náttúru-
laust í öllu sínu
samþjappaða ofbeldi,
hryllingi, grimmd og
fúkyrðum.
BLS. 6
Leikverkið
Rústað