Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 54
7. mars 2009 LAUGARDAGUR82
Nordic
Sveitarfélagið Árborg framlengir
umsóknarfrest um starf hjá
Fjölskyldumiðstöð Árborgar
Fjölskyldumiðstöð Árborgar auglýsir eftir sérfræðingi á
sviði félagslegrar ráðgjafar í 100% starf. Verkefni sviðsins
er fyrst og fremst samkvæmt lögum um félagsþjónustu
sveitarfélaga nr. 40/1991 og barnaverndarlögum nr.
80/2002.
Starfssvið:
• Félagsleg ráðgjöf í einstaklings- og fjölskyldumálum
• Fjárhagsaðstoð
• Húsnæðismál
• Barnavernd
Menntun og hæfniskröfur:
• Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða háskólamenntun á
sviði félagsvísinda
• Reynsla á sviði félagsþjónustu æskileg
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfi leikar og sjálfstæð vinnubrögð
• Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stétta-
rfélags og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu
og umsagnaraðila berist skrifl ega til Annýjar Ingimarsdót-
tur, verkefnisstjóra félagslegrar ráðgjafar, Fjölskyldu-
miðstöð Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfoss, eigi síðar en
23. mars 2009.
Nánari upplýsingar um starfi ð veitir Anný Ingimarsdóttir,
verkefnisstjóri félagslegrar ráðgjafar, anny@arborg.is, eða
í síma 480-1900.
Fjölskyldumiðstöð Árborgar er eitt þriggja sviða í stjórnsýslu
Sveitarfélagsins Árborgar og veitir íbúum sveitarfélagsins þjónustu
á sviði félags-, fræðslu-, íþrótta-, forvarna- og menningarmála
með það að markmiði að efl a velferðarþjónustu sveitarfélagsins
og skapa fjölskylduvænt samfélag. Umsækjendum er bent á að
kynna sér heimasíðu sveitarfélagsins þar sem m.a. er að fi nna
stefnu sveitarfélagins í málafl okkum sem tengjast fjölskyldunni
með einum eða öðrum hætti.
Forsætisráðuneytið auglýsir
embætti seðlabankastjóra Seðlabanka
Íslands laust til umsóknar.
Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra Seðla-
banka Íslands til fi mm ára í senn, sbr. 1. mgr.
23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands.
Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabanka-
stjóra tvisvar sinnum. Seðlabankastjóri skal full-
nægja almennum starfsgengisskilyrðum skv.
6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins.
Seðlabankastjóri stýrir Seðlabanka Íslands og ber
ábyrgð á rekstri hans og fer með ákvörðunarvald
í öllum málefnum hans sem ekki eru falin öðrum
samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í
hagfræði eða tengdum greinum og búa yfi r
víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi
og efnahags- og peningamálum. Gerð er krafa um
stjórnunarhæfi leika og hæfni í mannlegum sam-
skiptum.
Við skipun í embættið mun forsætisráðherra,
skv. 2. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka Íslands,
skipa þriggja manna nefnd er hefur það hlutverk
að leggja mat á hæfni umsækjenda um stöðuna.
Verður einn nefndarmaður skipaður samkvæmt
tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn
samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabanka
Íslands og einn án tilnefningar og er hann for-
maður nefndarinnar.
Í umsókn um embættið skal greina frá nafni,
kennitölu og heimilisfangi umsækjanda auk þess
sem veita skal ítarlegar upplýsingar um menntun
viðkomandi, starfsferil og reynslu.
Um laun og önnur starfskjör fer eftir ákvörðun
bankaráðs Seðlabanka Íslands, sbr. b-lið 28. gr.
laga um Seðlabanka Íslands.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2009. Vinsamlega
sendið umsóknir og starfsferilskrár til forsætis-
ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg,
eða á netfang ráðuneytisins postur@for.stjr.is.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um
stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir ráðuneytisstjóri
forsætisráðuneytisins.
Í forsætisráðuneytinu, 5. mars 2009.
Forsætisráðuneytið auglýsir
embætti aðstoðarseðlabankastjóra
Seðlabanka Íslands laust til umsóknar.
Forsætisráðherra skipar aðstoðarseðlabankastjóra
Seðlabanka Íslands til fi mm ára í senn, sbr. 1. mgr.
23. gr. laga um Seðlabanka Íslands. Við skipun í
embættið nú skal forsætisráðherra þó, sbr. 1. mgr.
ákvæðis III til bráðabirgða í lögum nr. 5/2009, skipa
aðstoðarseðlabankastjóra til fjögurra ára. Aðeins
er hægt að skipa sama mann aðstoðarseðlabanka-
stjóra tvisvar sinnum. Aðstoðarseðlabankastjóri
skal fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum
skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins. Aðstoðarseðlabankastjóri er
staðgengill seðlabankastjóra.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í
hagfræði eða tengdum greinum og búa yfi r víð-
tækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og
efnahags- og peningamálum. Gerð er krafa um