Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 59
LAUGARDAGUR 7. mars 2009 137
Aðalfundur
ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAGIÐ
heldur AÐALFUND
Þriðjudaginn 10.mars n.k. kl. 18.00
að Síðumúla 6 í húsakynnum SÍBS.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Firma Consulting er óháð ráðgjafafyrirtæki
sem sérhæfir sig í stórum og millistórum
fyrirtækjum
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Ráðgjöf
til fyrirtækja
ALÞJÓÐLEGIR FRIÐARSTYRKIR
RÓTARÝHREYFINGARINNAR 2010
Rótarýsjóðurinn, ROTARY FOUNDATION, sem
rekinn er af Alþjóða Rótarýhreyfi ngunni, mun veita
allt að 60 styrki til tveggja ára meistaranáms skóla-
árin 2010-2012. Styrkirnir verða veittir til náms og
rannsókna sem tengjast alþjóðasamstarfi og efl ingu
friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar
hefur reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið
fyrstu háskólagráðu.
Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á sam-
vinnu við sjö virta háskóla:
Universidad del Salvador, Argentínu
University of Queensland, Ástralíu
Duke University & University of North Carolina, USA
University of California-Berkeley, USA
University of Bradford, Englandi
Sciences Po, Frakklandi
International Christian University, Japan
Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára
námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnisstyrkir.
Rótarýhreyfi ngin á Íslandi má senda eina umsókn.
Val íslenska umsækjandans fer fram eftir ítarleg
viðtöl og könnun á námsferli og störfum. Makar,
afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarýfé-
laga geta ekki sótt um styrkinn. Sjö Íslendingar hafa
fengið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir árið
2002.
Nánari upplýsingar um námið, háskólana og
umsóknarskilmála er að fi nna á heimasíðu Rotary
International: rotary.org/ foundation/educational
(Rotary Centers for International Studies). Einnig
má nálgast upplýsingar á skrifstofu Rótarýumdæm-
isins (rotary@rotary.is). Sími 568-2233 (eða í síma
525-4818).
Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru
beðnir um að senda ítarlegt æviágrip og lýsingu
á markmiði með framhaldsnámi fyrir 30. mars til
Skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut
54, 108 Reykjavík, merkt “Friðarstyrkur”.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar
Rauða kross Íslands 2009
Þriðjudaginn 17. mars 2009 að
Laugavegi 120, 5. hæð kl. 17:00
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til umræðu og
staðfestingar
2. Skýrsla stjórnar um starfi ð frá síðasta aðalfundi
3. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðasta almanaksár lagðir
fram til samþykktar
4. Kosning stjórnarmanna skv. lögum félagsins
5. Lagabreytingar
6. Starfs- og fjárhagsáætlanir næsta árs lagðar fram til umræðu
7. Önnur mál
Boðið verður upp á léttar veitingar
Minningarsjóður
Guðjóns Samúelssonar
Minningarsjóður dr. phil. húsameistara
Guðjóns Samúelssonar auglýsir hér með eftir
umsóknum um styrkveitingar úr sjóðnum.
Styrkir eru veittir annað hvert ár og fer styrk-
veiting fram í áttunda sinn þann 22. apríl 2009.
Tilgangur sjóðsins er skv. skipulagsskrá
“að útbreiða þekkingu á húsagerðarlist
í íslenskum anda”.
Styrkveitingar munu að þessu
sinni nema 2.000.000 kr..
Umsóknir skulu vera á rafrænu formi og
sendast á netfangið ai@ai.is eða til skrifstofu
Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, 105
Reykjavík, merktar “Minningarsjóður”, eigi síðar
en kl. 12.00 mánudaginn 6. apríl 2009.